Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992 Tækni Nyljatæki í næstu framtíð Myndsími, stafræn snælda og raddstýrð hljómtæki með innbyggðum bílsíma á raftækjasýningunni miklu í Las Vegas eftir Helga Rúnar Óskarsson Myndsími, nú stafræn snælda og raddstýrð hljómtæki með innbyggð- ' um bílasíma er aðeins brot af því sem vakti athygli á raftækjasýning- unni í Las Vegas í Bandaríkjunum, í janúar síðastliðnum. Þessi sýning hefur verið árlegur viðburður í Bandaríkjunum sl. 25 ár, en tvisvar á ári koma flestir helstu framleiðendumir í raftækjum fyrir neytenda- markaðinn saman og sýna nýjustu afurðir sínar. Ávarp Johns Sculleys John Sculley, forstjóri Apple, flutti ávarp við opnun sýningarinnar þar sem hann lýsti því yfir að Apple myndi færa út kvíamar á þessu ári og hefja markaðssetningu á raf- eindavörum fyrir neytendamarkað- inn. Þar sem rafeindatæki nútímans notast æ meira við stafræna tækni, sagði Schulley að góð þekking Apple á því sviði myndi greiða leiðina inn á þennan eftirsóknarverða markað. „Apple hefur alltaf haft sérstöðu í tölvuiðnaðinum og vörur okkar era þekktar fyrir að vera auðveldar í notkun," sagði hann og bætti því við að nýju vöramar yrðu jafn þægi- legar og þjálar í notkun og aðrar vörar frá fyrirtækinu. Hann talaði um aukinn áhuga Apple á margmiðlun (multimedia) sem er sú tækni að sameina texta, hljóð, grafík, kvikmyndir, ljósmyndir og teiknimyndir. Geisladiskar leika stóran þátt í margmiðluninni og ætlar Apple að kynna tvö ný drif á þessu ári sem lesa gögn af geisla- diskum (CD-ROM). Schulley sagði að Apple væri í samvinnu við þekkt rafeindafyrir- tæki en nefndi engin nöfn. Flestir vita þó að Apple hefur átt í nánu samstarfi við fyrirtæki eins og Sony sem hefur smíðað ýmsa hluti í Apple-tölvur. Að Iokum sagði Schulley að staf- ræn tækni væri það sem koma skyldi og Apple ætlaði sér að taka þátt í þeirri þróun. „Við (Apple) höfum valið leið sem styrkir okkur og á sama tíma deilum við tækniþekkingu okkar með nokkram af fremstu raf- eindafyrirtæknum heims,“ sagði hann. Myndsími Það hefur lengi verið draumur margra að eignast síma sem birtir mynd af þeim sem er hinum megin á línunni. Á rafeindasýningunni í Las Vegas kynnti bandaríska síma- fyrirtækið AT&T síma sem gerir þennan draum að veraleika. Nýi myndsíminn — VideoPhone 2500 — er í rauninni nauðalíkur venjulegum síma ef undanskilinn er 3,3 tommu litaskjár og örsmá linsa. Myndsíminn verður markaðssett- ur vestanhafs í maí nk. og mun hann kosta 1.500 dali (um 90.000 ísl.kr.). Þeir sem hafa efni á nýja símanum geta stungið honum beint í samband og byrjað að spjalla (og horfa). Steve Clemente, yfirmaður mynd- símadeildar AT&T, segir að nýi myndsíminn muni valda byltingu í öllum fjarskiptum. „Við ætlum okk- ur að vera fremstir á þessu sviði,“ sagði hann og bætti því við að stefnt yrði að gera tækni AT&T að staðli. Hann sagði að til að byija með yrði aðalmarkaðurinn fjölskyldur þar sem einn af meðlimunum væri lítið heima við. Hafi fólk áhyggjur af útlitinu áður en tólið er tekið upp býður síminn notandanum upp á að skoða sig á skjánum áður en hringt er. Standi illa á hjá þeim sem svarar í símann er lítið mál að loka fyrir linsuna með sérstöku loki. Skjárinn á símanum, sem getur birt 10 ramma á sekúndu, var hann- aður af Epson-fyrirtækinu. Tii að senda myndina er notaður sérstakt mótald líkt og tölvur notast við í samskiptum í gegnum símalínur. Ný stafræn snælda Það sem vakti hvað mesta at- hýgli á sýningunni á Las Vegas var ný stafræn snælda (Digital Compact Cassette — DCC) sem fyrirtækin Philips og Matsushita hafa þróað í sameiningu síðastliðin tvö ár. Nýja snældan er af sömu stærð og al- mennt er notuð í dag sem gerir not- endum kleift að nota gömlu snæld- umar í nýju stafrænu tækin. Nýju tækin geta því bæði spilað gömlu og nýju snældumar og hefur notand- inn einnig þann möguleika að hljóð- rita efni á nýju snældumar, þar á meðal af geisladiskum. Nýja snældan er með málmhlíf, líkt og 3‘A tommu disklingar sem notaðir era í tölvur, en hún ver band- ið í snældunni gegn hnjaski, ryki, óhreinindum og öðrum skakkaföll- um. Notandinn þarf aldrei að snúa nýju snældunni við til að spila hina hliðina vegna þess hún spilast í báð- ar áttir. Gert er ráð fyrir fyrstu stafrænu snældutækjunum á markað seinni- hluta þessa árs. Philips hefur gefið upp að fyrstu tækin muni kosta 700 til 800 dali. Aðrir framleiðendur, eins og Technics og Panasonic (bæði dótturfyrirtæki Matsushita), hafa ekki viljað gefa upp verð að svo stöddu. Auk Philips og Matsushita hafa Tandy, Sony, Denon og Sanyo ásamt fleiram gefið yfirlýsingar um að muni bjóða upp á stafræn tæki seinnihluta þessa árs. Snælduframleiðendur, eins og TDK og BASF, hafa þegar hafið framleiðslu á nýju stafrænu snæld- unum. Enn sem komið er hefur ekki verið gefið upp hvert verðið verður á nýju snældunum'. Blöð sem sérhæfa sig í skrifum um hljómtæki keppast nú við að grandskoða þessa nýju vöra og bera hana saman við aðra stafræna tækni eins og geisladiskinn og DAT, staf- rænu snælduna frá Sony sem kynnt var árið 1987 en hefur ekki náð mikilli útbreiðslu á almennum mark- aði. Samkvæmt niðurstöðum blaða eins og Audio virðist nýja stafræna snældan ekki gefa geisladisknum eftir hvað varðar hljómgæði og seg- ir í janúarhefti blaðsins að hin staf- rænu tæki framtíðarinnar geti jafn- vel boðið upp á meiri gæði en við þekkjum af geisladiskum í dag. Hvort nýja stafræna snældan slær í gegn á eftir að koma í ljós en au- glóst er að kostimir eru fleiri en gallarnir. Sem dæmi þá er rúmlega 50% af öllu tónlistarefni sem gefíð er út í Bandaríkjunum á snældum. Talið er að nýja stafræna snældan eigi eftir að auka markaðshlutdeild sína á kostnað geisladisksins. DCC- snældan er að mörgu leyti auðveld- ari í meðföram en geisladiskurinn, kemur jafnvel til með að vera ódýr- ari og svo býður hún auðvitað upp á möguleika á hljóðritun. Gallarnir, ef galla skyldi kalla, era þeir að lít- il reynsla er komin á þessa nýju vöra og til að byija með gætu tæk- in verið of dýr til að ná útbreiðslu, en líklegt þykir að verðið eigi eftir að lækka líkt og á geislaspilurunum. Hljómtæki með innbyggðum bílasíma Það stöldruðu margir við á bás þýska fyrirtækisins Blaupunkt en það kynnti meðal annars ný hljóm- tæki í bíl sem era með innbyggðum síma. Nýja tækið frá Blaupunkt — Las Vegas RCM-84 — hefur geisla- spilara sem tekur tíu diska, segul- band, magnara, hátalara, útvarp og bílasíma. Ollu þessu getur bílstjórinn stjórnað með röddinni! Það sem þarf að gera um leið og tækið er sett í bílinn er að „kenna“ tækinu að þekkja rödd viðkomandi og hvaða orð þýða hvað. Eða m.ö.o. forrita tækið fyrir viðkomandi notanda. Þannig getur bílstjórinn beðið um næsta disk í geislaspilarann, skipt um útvarpsstöð, hækkað og lækkað o.s.frv. án þess að sleppa hendi af stýri. Bílasíminn er sáraeinfaldur í notk- un. Notandinn getur t.d. sagt, „hringja heim“, slökknar þá á hljóm- tækjunum og síminn hringir í viðeig- andi númer. Rödd manneskjunnar sem bílstjórinn talar við hljómar svo í hátöluranum í bílnum. Sérstakur hljóðnemi, innbyggður í hljómtækin, kemur í stað símtóls. Sé einhver að reyna að hringja í bílstjórann, slökknar á hljómtækjun- um og síminn tekur við. Bílstjórinn á því aldrei að þurfa að sleppa hendi af stýrinu til að svara símanum. Talsmaður Blaupunkt vildi ekki gefa upp hvað tækið kemur til með að kosta þegar það kemur á markað seinna á þessu ári, en sagði takmark fyrirtækisins að bjóða það á viðráð- anlegu verði. Tækið kemur fyrst á markað í Bandaríkjunum og stuttu seinna í Evrópu. Geisladiskar Geisladiskurinn hefur valdið bylt- ingu í hljómtækjaiðnaðinum frá því hann kom á markað fyrir tæpum tíu árum. Það hefur verið ósk margra að einhvem tímann yrði hægt að hljóðrita á geisladisk jafn auðveld- lega og við hljóðritum á snældur. Mörg fremstu rafeindafyrirtæki ver- aldar hafa unnið hörðum höndum undanfarin ár við að þróa geisladisk sem er hægt að endurhljóðrita að vild. Það sýndi sig á sýningunni í Las Vegas að nokkur fyrirtæki hafa náð umtalsverðum árangri á þessu sviði. Pioneer, sem hefur verið framar- lega í framleiðslu á myndgeislaspil- urum, kynnti nýtt tæki sem getur skráð bæði hljóð og myndrænt efni á geisladisk. Nýi spilarinn getur skráð 64 mínútur af myndefni á einn og sama diskin (32 mínútur á hvora hlið). Verð spilarans er 39.000 dalir (rúml. 2,3 milljónir ísl.) og kostar auður diskur 1.295 dali (rúml. 77 þús. ísl.). Japanska fyrirtækið TDK, þekkt- ast fyrir framleiðslu á segulböndum og snældum, kynnti nýjan geisladisk sem hægt er að hljóðrita allt að 63 mínútur af tónlist. Diskurinn kostar 80 dali (um 4.800 ísl). Talsmaður TDK tjáði Morgunblaðinu af fyrir- tækið myndi leggja áherslu á að kynna diskinn fyrir atvinnumönnum en gerði ekki ráð fyrir að hann yrði vinsæl söluvara á almennum neyt- endamarkaði. Stórfyrirtækið Kodak kynnti nokkrar gerðir af nýjum „ljós- mynda“-geislaspilara. Kodak spilar- inn er ætlaður þeim sem vilja skoða ljósmyndir sínar í sjónvarpinu. Hver geisladiskur rúmar um 100 ljós- mundir. Notandinn getur stjórnað hvaða myndir birtast á skjánum, valið sérstakan hluta úr myndinni, t.d. andlit, og stækkað hann á skján- um. Aðrar nýjungar Hér hefur aðeins verið stiklað á stóra varðandi það sem kynnt var á sýningunni í Las Vegas. Ánnað sem gestir fengu að beija augum var t.d. háskerpusjónvarp (High-Definition Television) frá Pioneer, myndbands- upptökuvél frá Sharp með tveimur linsum, stafrænir hátalarar frá Philips og ýmsar nýjungar frá tölvu- leikjaframleiðendum eins og Nint- endo. Samkvæmt upplýsingum frá félagi raftækjaframleiðenda í Bandaríkjunum er gert ráð fyrir að Bandaríkjamenn hafí keypt raftæki fyrir 35,7 milljarði dala (um 2.142 milljarðar ísl.) á ári og er spáð 2,1% aukningu í ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.