Morgunblaðið - 19.03.1992, Qupperneq 16
VZterkurog
k> hagkvæmur
auglýsingamiðill!
VIÐSKIPn An/niNULÍF
XJöfóar til
X X fólks í öllum
starfsgreinum!
FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
Samtök
Fólk
Markaðsráð Borgarness
stofnað nk. laugardag
Fyrirtæki, Borgamesbær og stéttarfélög standa saman að stofnuninni
MARKAÐSRAÐ — Séð yfir bæjarstæðið í Borgarnesi þar
sem fyrirtæki, bæjaryfirvöld og verkalýðsfélög standa saman að stofn-
un Markaðsráðs.
MARKAÐSRÁÐ Borgarness
verður stofnað næstkomandi
laugardag til að vinna að mark-
aðssetningu Borgarness sem fyr-
irmyndar þjónustu-, verslunar-
og iðnaðarbæjar. Að sögn Bjarka
Jóhannessonar markaðsráðgjafa
þjá Atvinnuráðgjöf Vesturlands
hefur verið unnið að stofnun
Markaðsráðs að frumkvæði at-
vinnumálanefndar Borgarness í
samvinnu við Atvinnuráðgjöfina.
Nú hafa yfir 40 fyrirtæki, Borg-
amesbær og stéttarfélögin í
Borgarnesi samþykkt þátttöku í
félaginu. Reiknað er með að fé-
lagsgjöldin nemi um 2-2,5 millj-
ónum árlega til að standa undir
sameiginlegri kynningu á Borg-
arnesi og þess sem bærinn hefur
að bjóða. Markaðsráðið mun
verða stofnað í tengslum við 125
ára verslunarafmæli Borgarnes-
bæjar.
Bjarki Jóhannesson segir að í
drögum að lögum Markaðsráðs
komi fram að félagið vinni eftir
markmiðum sem það setji sér ár frá
ári. „Það tryggir að Markaðsráð
verði virkt og það mun leiða tii
meiri árangurs en ella. Ráðið verður
vakandi fyrir breytingum í um-
hverfinu. í ár er markmiðið að
markaðssetja Borgames sem fyrir-
myndar þjónustu-, verslunar- og
iðnaðarbæ. Á næsta ári verður
markmiðið e.t.v. eitthvað allt ann-
að, það fer algjörlega eftir vilja
stjómarmanna, aðalfundar og
þeirrar reynslu sem fyrsta árið veit-
ir,“ segir Bjarki.
Félagar að Markaðsráði geta orð-
ið fyrirtæki, Borgarnesbær, stéttar-
félög og einstaklingar sem stunda
atvinnurekstur í eigin nafni. Til að
fjármagna starfsemi ráðsins greiða
félagar árgjöld, sem miðast við
meðalstarfmannafjölda einstakra
fyrirtækja en sérstaklega er samið
um árgjöld Borgarnesbæjar og
stéttarfélaganna. Gjöldin munu
verða á bilinu 10-200 þúsund.
Nú hafa nokkur fyrirtæki í Borg-
amesi ásamt Borganesbæ tekið sig
saman um að auglýsa sig og bæinn
á strætisvögnum Reykjavíkur í
tengslum við 125 ára verslunaraf-
mæli bæjanns. Þetta er gert í sam-
vinnu við íslensku auglýsingastof-
una, Strætó-auglýsingar og Islensk
almannatengsl.
Á morgun, föstudag, mun einn
strætisvagn aka á milli fjölmiðla í
Reykjavík og kynnt verður ýmis-
konar framleiðsla og þjónusta úr
Borgarnesi. Bílstjórinn verður í
gervi Egils Skallagrímssonar og
hljómsveit úr Borgamesi mun flytja
frumsamda tónlist.
Eftir stofnun Markaðsráðs mun
félagið sjálft taka upp á ýmis konar
kynningarstarfsemi ásamt því að
finna leiðir til að bæta samkeppnis-
stöðu bæjarins. Til þessa verður
sérstakur starfsmaður ráðinn tíma-
bundið. M.a. eru hugmyndir um að
markaðshátíð verði haldin á Brúar-
torgi í Borgarnesi í vor þar sem öll
fyrirtæki í Borgarnesi fá tækifæri
til að kynna sína framleiðslu og
þjónustu.
Að sögn Bjarka hafa fyrirtæki í
Borgarnesi hingað til auglýst starf-
semi sína hvert í sínu lagi en vegna
smæðar flestra þeirra hefur hvert
um sig ekki nægilega mikið fjár-
magn til kynningar þannig að góð-
ur árangur náist. Vinni þau saman
nýtist fjármagnið til kynningar mun
betur, auk þess sem markaðurinn
fái heilsteyptari mynd af Borgar-
nesi.
Nýirmennhjá
Fínutl
MEYJÓLFUR Torfi Geirsson hef-
ur verið ráðinn framkvæmdastjóri
Fínullar hf. í
Borgarnesi. Hann
útskrifaðist frá
Samvinnuskólan-
um árið 1970. Ey-
jólfur starfaði sem
bókari hjá Kaup-
félagi Borgfirð-
inga í tvö ár, fram-
kvæmdastjóri
Ungmennafélags
Skallagríms um 10 ára skeið til
1984, aðalbókari hjá Borgarnes-
hrepp frá 1982-1986, bókari hjá
Endurskoðunarskrifstofunni sf.
frá 1986-1988 og hjá BTB frá 1988
þar til hann tók við starfi fram-
kvæmdastjóra Fínullar hf..
MGUNNAR Björn Hinz hefur ver-
ið ráðinn markaðsstjóri Fínullar hf.
og verður hann
með aðsetur á
skrifstofum fyrir-
tækisins í Mos-
fellsbæ. Hann út-
skrifaðist úr lyfja-
fræði frá Háskóla
íslands árið 1982,
síðar úr Útflutn-
ings- og markaðs-
skólanum og sem
markaðsfræðingur
frá I H R í Stokkhólmi, Institutet
för Högre kommunikation och Rekl-
amutbildning, árið 1989. Gunnar
starfaði hjá Apoteksbolagetí
Stokkhólmi. Eiginkona hans er Þor-
björg Guðjónsdóttir tannfræðingur
og eiga þau tvær dætur.
Hagfræð-
ingur VSI
H GUÐNIN. Aðalsteinsson tók til
starfa sem hagfræðingur Vinnu-
veitendasam-
bands íslands
þann 16. mars sl.
Hann útskrifaðist
með BS-econ
gráðu í hagfræði
frá Háskóla ís-
lands árið 1991.
Með námi og fram
til 16. mars sl.
vann Guðni hjá
Guðni
Torgið
Hentar ísland hátækniframleidslu?
Atvinnuástandið á íslandi í upp-
hafi þessa árs er það versta í rúm
tuttugu ár. Skráð atvinnuleysi á
landsvísu var um 3% af áætluðum
heildarvinnuafla í janúar og 2,8%
í febrúar skv. upplýsingum frá
Vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytis. í fyrradag var lagt fram
á Alþingi yfirlit frá Þjóðhagsstofn-
un þar sem fram kemur að í Ijósi
þróunar fyrstu tvo mánuði ársins
telur stofnunin ekki ástæðu til að
endurmeta fyrri spá um 2,5% at-
vinnuleysi á árinu. Þá kemur fram
í yfirlitinu að á næsta ári megi jafn-
vel búast við ívið meira atvinnu-
leysi.
Því miður er ekki útlit fyrir að
atvinnuástandið hér lagist í bráð
að öllu óbreyttu. Á þessu ári er
fyrirsjáanlegur mikill samdráttur í
fiskveiðum og vinnslu vegna
^ minnkandi kvóta og háir raunvext-
ir hafa neikvæð áhrif á fjárfest-
ingu. Þá leiðir frestun álversfram-
kvæmda til þess að ekkert verður
af fyrirhuguðum stórframkvæmd-
um á árinu sem hefðu tryggt fjölda
manns vinnu. Það er deginum Ijós-
ara að brýn þörf á aðgerðum í at-
vinnumálum. Þó auðvitað væri
best að þær aðgerðir yrðu almenn-
ar undir forystu stjórnvalda og ýttu
undir atvinnu í landinu í heild, má
ekki vanmeta eða horfa fram hjá
því sem einstaka aðgerðir og minni
verkefni geta áorkað.
Frfiðnaðarsvæði hafa oft verið
'rædd á íslandi, en aldrei af jafnmik-
illi alvöru og nú. í næsta mánuði
er að vænta niðurstöðu athugunar
um hagkvæmni fríiðnaðarsvæðis á
Keflavíkurflugvelli og segist Þröst-
ur Ólafsson, aðstoðarmaður utan-
ríkisráðherra, vongóður um að hún
verði ásættanleg. Hugmyndin um
þetta fríiðnaðarsvæði felur í
meginatriðum í sér að fyrirtæki í
Bandaríkjunum komi sér hér upp
aðstöðu til samsetningar og dreif-
ingar vöru á Evrópumarkað. Ef af
þessu verður má segja að ávinn-
ingurinn sé í stórun dráttum tví-
þættur, annars vegar aukin umferð
um Keflavíkurflugvöll og hins vegar
aukin atvinna á svæðinu.
Hugtakið fríiðnaðarsvæði nær
yfir margs konar starfsemi tengda
útflutningi á vörum og þjónustu.
Ein tegund fríiðnaðarsvæða er
svokallað framtakssvæði. Þar er
um að ræða svæði þar sem sér-
stakar'áðstæður eru boðnar fyrir-
tækjum til að efla atvinnulíf í lands-
hlutum sem eru illa staddir í at-
vinnumálum. Á þessum svæðum
eru sérréttindi fyrirtækjanna mun
takmarkaðri en á fríiðnaðarsvæð-
um almennt. Reynt er að létta sem
mest undir stofnun fyrirtækja með
því að draga úr allri skriffinnsku í
kringum rekstur þeirra og veita ríf-
leg skattafríðindi fyrstu árin m.a.
með afskriftarreglum. Svona
svæði eru t.d. algeng í Bretlandi
þar sem atvinnuleysi hefur verið
mikið um árabil.
Fjárfestingaraðilar á framtaks-
svæðum, sem og öðrum tegund-
um fríiðnaðarsvæða, leggja mikla
áherslu á ýmis ytri skilyrði atvinnu-
rekstrar s.s. stjórnmálalegt jafn-
vægi og jákvætt viðhorf stjórn-
valda og almennings gagnvart er-
lendu fyrirtækjunum. Auk þessa
þarf að vera fyrir hendi hvers kyns
þjónusta svo sem banka-, bók-
halds-, samskipta- og flutninga-
þjónusta.
Bandaríska fyrirtækið Digital
Equipment Corp., sem er annar
stærsti tölvuframleiðandi heims,
opnaði í september 1990 verk-
smiðju rétt utan við Edinborg í
Skotlandi. Þetta er önnur stærsta
fjárfestingin sem Digital hefur ráð-
ist í utan Bandaríkjanna og hefur
alls kostað 200 milljónir dollara
eða 12 milljarða íslenskra króna í
uppbyggingu. Verksmiðjan veitir
Hagfræðistofnun Háskóla íslands
og var hann með stundakennslu við
viðskipta- og hagfræðideild haustið
1991. Hann hefur setið í stjórn
Hagfræðistofnunar Islands. Sam-
býliskona Guðna er Ásta Þórarins-
dóttir hagfræðinemi.
Framkvæmda-
stjóri Lýsingar
MÓLAFUR Helgi Ólafsson var
ráðinn framkvæmdastjóri Lýsingar
hf. frá 15. mars sl.
Hann var stúdent
frá stærðfræði-
deild Menntaskól-
ans í Reykjavík
árið 1965 og út-
skrifaðist úr við-
skiptafræðideild
Háskóla íslands í
janúar 1971. Ólaf-
ur Helgi starfaði
sem deildarstjóri tölvu og kerfis-
fræðideildar ÍSAL á áninum 1971-
1976, deildarstjóri tölvudeildar
Heimilistækja hf. 1976-1979, fjár-
málastjóri Orkubús Vestfjarða 1979-
1987 og sem viðskiptafræðingur hjá
Lýsingu hf. frá stofnun fyrirtækisins
árið 1987.
Sölustjóri hjá
Eignahöllinni
M FINNBOGI Kristjánsson var
nýverið ráðinn sölustjóri hjá Eigna-
höllinni fasteigna-
sölu. Hann útskrif-
aðist sem búfræð-
ingur frá Bænda-
skólanum Hvan-
neyri árið 1977 og
starfaði.við Kaup-
félag Önfirðinga
til 1984. Auk þess
hefur Finnbogi
verið við nám í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og
Tækniskólann á ísafirði. Frá
1984-1986 starfaði hann við blaða-
mennsku og fjölmiðlun, en hann lauk
námi frá Samvinnuskólanum að
Bifröst árið 1986. Frá þeim tíma
hefur hann verið aðalsölumaður á
fasteignasölunni Húsvangur þar til
nú. Sambýliskona Finnboga er
Magnea Jenný Guðmundardóttir
og eiga þau eina dóttur.
Ólafur
450 manns atvinnu og á síðasta
ári var veitt 360 milljónum króna
í þjálfun starfsfólksins. Verk-
smiðjubyggingin lætur lítið yfir sér
og uppfyllir ströngustu mengunar-
skilyrði. Undanfarið hefur Digital
veitt rúmlega þremur milljörðum
króna til að undirbúa verksmiðjuna
fyrir framleiðslu á nýjustu afurð
fyrirtækisins, RISC örgjörvanum
Alpha sem kynntur var um síðustu
mánaðarmót.
Þegar Pier Carlo Falotti, yfir-
maður Digital í Evrópu, var spurð-
ur hvers vegna fyrirtækið hefði
valið þessari verksmiðju stað í
Skotlandi nefndi hann þrjárástæð-
ur: Nægt landrými, góða mögu-
leika á að nálgast vel menntað
starfsfólk og að skosk yfirvöld
hefðu hvatt til byggingarinnar og
boðið þá velkomna með ýmsum
skattaívilnunum fyrstu árin. Þessi
verksmiðja gæti verið á (slandi í
dag. HKF