Morgunblaðið - 16.04.1992, Side 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1992
Sagan gerist að miklu leyti í fangabúðum.
Sjónvarpið:
Fyrsti hringurinn
■■■■■ Skáldsaga sovéska nóbelsskáldsins Alexanders Solzhenit-
99 05 syns er efniviðurinn í bíómynd Sjónvarpsins að kvöldi páska-
^ dags. Eins og kunnugt er var Solzhenitsyn virkur andófs-
maður gegn kommúnismanum og sat oft og einatt í fangelsi fyrir
þær sakir. Fyrsti hringurinn eða First Cirele gerist að miklu leyti í
fangabúðum. Stalín situr við völd og það er mál manna að allir
helstu hæfileikamenn og hugsuðir Sovétríkjanna sitji bak við lás og
slá. Til þess að nýta á einhvern hátt hæfileika þessa fólks hafa stjórn-
völd komið upp Mavrino fangelsinu þar sem ófrjálsir vísindamenn
vinna að tilraunum og uppfinningum fyrir ríkið. Ein af uppfinningun-
um sem unnið er að er raddgreiningartæki og þegar leyniþjónustu-
menn ná hljóðupptöku af rödd meints föðurlandssvikara leggja yfir-
völdin allt kapp á að hönnun tækisins ljúki sem fyrst svo hafa megi
hendur í hári njósnarans. Vísindamennirnir sem að tilrauninni vinna
standa hins vegar frammi fyrir erfiðu siðferðismati. Með helstu hlut-
verk fara Robert Powell, Victor Gerber, Robert Joy og Christopher
Plummer. Leikstjóri er Sheldon Larry. Fyrri hluti myndarinnar verð-
ur sýndur í kvöld en sá síðari annað kvöld.
Sjónvarpið:
Ástríkur og þrautimar tólf
■H A annan páskadag hefst
00 dagskrá Sjónvarpsins
með efni fyrir börn á öll-
um aldri. Það eru kumpánarnir
Ástríkur gallvaski og Steinríkur
alvaski sem létta okkur Iund, en
þeir eiga sér fjölmarga aðdáendur
hér á landi sem annars staðar.
Teiknimyndasaga þeirra Goscinnys
og Uderzos um litla, þrautseiga
þorpið í miðri Gallíu sem alla tíð
stendur uppi í hárinu á rómverska
heimsveldinu hefur farið sigurför
um heiminn og vakið kátínu ungra
sem aldinna, hvort sem menn vilja
Ieggja pólitíska merkingu í sögurn-
ar eða einfaldlega lesa þær sér til
skemmtunar. I þessari teiknimynd
er Sesar orðinn úrkula vonar um
að sér takist nokkurn tíma að leggja
Gaulveijabæ undir sig með hefð-
bundnum aðferðum. Hann hugsar
því upp herbragð sem hann ætlar
að verði þorpinu að falli. íbúunum
er boðið að leysa tólf þrautir. Tak-
ist þeim það hljóta þeir yfirráð yfir
gjörvöllu Rómarveldi, en mistakist
þeim er þeim skylt að gefast upp
fyrir Sesari. Vitaskuld eru það
Ástríkur og Steinríkur sem Gaul-
veijabæingar setja allt sitt traust
á. Það eru leikararnir Erla Rut
Harðardóttir, Magnús Ólafsson,
Þórhallur (Laddi) Sigurðsson og
Sigurður Siguijónsson sem ljá per-
sónum myndarinnar raddir sínar.
Ástríkur og Steinríkur eiga stöðugt í stríði við Rómverja.
Stöð 2:
Ástar-
bönd yfir
Atlants-
hafid
■■■■ Það er rómantík eins og
91 05 hún er fallegust í mynd-
“" inni Ástarbönd yfir Atl-
antshafið eða „Charing Cross Road
84“, sem Stöð 2 sýnir á páskadag.
Helen Hanff var bandarískur rithöf-
undur og hafði geysilegan áhuga á
bókum og bókmenntum. Hún skrif-
aði endurminningar sínar og á þeim
er bíómyndin byggð. Sagan er
hnyttin og hugljúf og myndin skilar
fullkomlega andblæ sögunnar og
þeim styrk, sem fólst í þessu ótrú-
lega ástarsambandi. Helen situr í
New York og skrifar bóksala í
London bréf, þar sem hún biður
hann um að útvega sér frekar sjald-
gæfa bók. Þetta bréf varð upphafið
Anne Bancroft fer með annað
aðalhiutverkanna í myndinni.
að 20 ára ástarsambandi fólks, sem
bjó sitt hvorum megin við Atlants-
hafið, hafði aldrei hist og átti aldr-
ei eftir að hittast. Með hlutverk
bóksalans fer Anthony Hopins, sem
fékk Óskarsverðlaun í ár fyrir leik
sinn í Lömbin þagna. Anne Banc-
roft leikur rithöfundinn, en hún er
þekkt úr myndum eins og Agnes
of God, The Elephant Man og The
Graduate, svo eitthvað sé nefnt.
SjónvarpSð:
Dauðinn læðist
■■■■■ Á þriðjudag, miðvikudag og föstudag sýnir Sjónvarpið
91 05 spennandi myndaflokk með hinum geðilla rannsóknarlög-
—1 -*• reglumanni Taggart og Jardine félaga hans, en þeir vinna
saman að því að uppiýsa flókin morðmál í Glasgow. Áð þessu sinni
fínnst maður látinn í íbúð sinni. í fyrstu liggur beinast við að gruna
aðstandendur hins
látna um ódæðið
en þegar málin eru
skoðuð nánar
kemur ýmislegt
upp á yfirborðið
sem skekkir
myndina. Þegar
annað gamal-
menni er síðan
myrt á sama hátt
taka málin nýja
stefnu. Mark
McManus leikur
Taggart, James
Macpherson leikur
Jardine, Harriet
Buchan leíkur Je-
an, eiginkonu
Taggart. I öðrum
stórum hlutverk-
um eru lain And-
ers og Harriet
Buchan.
Taggart hinn geðilli
r~
Itilefni níræðisafmælis Halldórs
Laxhess verða Rás 1 og Sjón-
varpið með ýmislegt á dagskrá
sem tengist nóbelsskáldinu. Rás
1 ríður á vaðið á páskadag kl.
16.20, en þá verður fluttur leik-
lestur á smásögunni Jóni í Brauð-
húsum eftir Halldór. Rúmum tíu
árum eftir dauða Jóns hittast tveir
vinir hans fyrir tilviljun á förnum
vegi. Við þennan fund riljast upp
fyrir þeim sá tími þegar þeir
fylgdu Jóni. En síðan hefur allt
breyst og þeir eru ekki samir.
Þátturinn verður endurfluttur
þriðjudaginn 21. april kl. 22.30.
Halldór Laxness- las söguna
Kristnihald undir Jökli í útvarpinu
árið 1976 við miklar vinsældir.
Þriðjudaginn 21. apríl kl. 14.03
verður endurfluttur lestur Hall-
dórs á sögunni.
Sumardaginn fyrsta, á af-
mælisdegi Halldórs, verður dag-
skrá Rásar 1 helguð skáldinu og
verkum þess frá kl. 13 til 18.30.
I fyrsta hluta dagskrárinnar er
reynt að bregða upp mynd af
æsku- og mótunarárum hans með
leiklestri úr bréfum, handritum
og blaðaviðtölum, þar sem Halldór
og samtíðarmenn hans koma við
sögú. í öðrum hluta er svipast um
á ferli Halldórs með úrvali úr seg-
ulbandasafni útvarpsins og nýleg-
um blaðaviðtölum. Einnig eru
samferðarmenn hans teknir tali.
Kl. 17.00 hefst bein útsending
Útvarpsleikhússins og Þjóðleik-
hússins á fyrsta leikriti skáldsins,
Straumrofi. Leikritið var fyrst
flutt í Iðnó árið 1934 og fyrsta
útvarpsuppfærslan var árið 1971.
Umsjónarmenn dagskrárinnar eru
Friðrik Rafnsson, Pétur Gunnars-
Sjónvarpið:
ífótspoi
Muggs
■* Nú eru liðin rétt 100 ár fi
00 fæðingu listamannsins Gui
mundar Thorsteinssonar, eé
Muggs, eins og hann var oftast kallai
ur. Af því tilefni lét Sjónvarpið gei
mynd þar sem rakin er stutt en viðburði
rík ævi listamannsins, en Muggur vi
ekki nema 32 ára þegar hann lést. Þs
er Björn Th. Björnsson listfræðingur sei
leiðir okkur í fótspor Muggs og segir fi
helstu verkum hans. Björn kynnir áhor
endum heimaslóðir Muggs á íslandi o
fylgir honum síðan til Kaupmannahafi
ar, en þangað flyst fjölskylda hans þeg;
hann er 12 ára. Muggur var víðförull o
Björn leiðir áhorfendur m.a. um stræ
og torg hinnar fornu borgar Siena
Toscanahéraði á Ítalíu, þar sem Muggi
málaði altaristöfluna sem nú er í Bessi
staðakirkju. Einnig er komið við í borj
inni Cagnes á suðurströnd Frakklanc
þar sem Muggur bjó síðasta veturinn se:
hann lifði. Heitasta ósk hans var að kon
ast heim til Islands og ná þar heilsu, c
sú ósk rættist ekki, því hann lést í Kau]
mannahöfn í júli 1924. Myndin er fran
leidd af Saga film.
i