Morgunblaðið - 16.04.1992, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1992
C 7
LLDÓR
KNESS
Auður og Halldór Laxness.
Sjónvarpið og Rás 2:
Minningartónleikar
um Freddie Mercury
Á annan í pásk-
00 55 um verða haldnir
^" miklir tónleikar
á Wembley-leikvanginum í
Lundúnum, til minningar
um Freddy Mercury,
söngvara hljómsveitarinn-
ar Queen, sem lést úr eyðni
í nóvember síðastliðnum.
Sjónvarpið sýnir frá tón-
leikunum miðvikudaginn
22. apríl en einnig verður
samsending frá Rás 2 í
steríó. Meðal þeirra sem
fram koma eru Monserrat
Caballé, Spinal Tap, Guns
N’ Roses, U2, Metallica,
David Bowie, Elton John,
George Michael og Robert
Plant. Á sviðinu birtast
einnig gegnum gervi-
hnattasamband frá Sakra-
mento í Kaliforníu þeir
Paul Young og Zucchero
ásamt félögum í Queen,
þeim John Deacon, Brian
May og Roger Taylor.
Freddy Mercury verður minnst á Wembl-
ey.
1
•rsxus
Kalli kanína alltaf jafn hress
þrátt fjrir árin fimmtíu.
Stðð 2:
Kalli kanína
50 ára
Stöð 2 sýnir klukku-
io oo stundar langan þátt
** á páskadag, sem
gerður er í tilefni 50 ára afmæl-
is Kalla kanínu eða Bugs
Bunny. Sýnt er frá einkalífi
Kalla og margir góðir gestir
líta inn í tilefni dagsins. Bill
Cosby hyllir Mel Blanc, þann
sem ljáði Kalla röddina. Af öðr-
um gestum má nefna Whoopi
Goldberg, John Goodman, Va-
lerie Harper, Chuck Norris,
Jane Seymour, William Shatner
og Jon Voight. Kalli kanína
kom fyrst fram í myndinni A
Wild Hare og var tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir frammi-
stöðuna. Sfðan hefur þssi ein-
stæða kanína skemmt fólki á
öllum aldri um allan heim.
Bjarni Dagur og Kristján Jóhannsson á góðri stundu á Ítalíu.
Bylgjan;
BRAVO! BRAVISSIMO!
son, María Kristjánsdóttir og
Ævar Kjartansson.
Skáldið á Gljúfrasteini
Sjónvarpið sýnir þáttinn
Skáldið á Gljúfrasteini kl. 20.35
að kvöldi sumardagsins fyrsta.
Halldór Laxness kom fram á
fyrsta útsendingarkvöldi sjón-
varpsins og hefur æ síðan verið
þar tíður gestur. Oft hefur hann
birst í fréttatímum vegna frum-
sýninga á eigin leikritum, en einn-
ig í umræðuþáttum af ýmsu tagi.
Þessi þáttur ber þess ótvírætt
vitni, hvert heimildargildi sjón-
varpið mun hafa í framtíðinni, því
allt efni sem fýrir augu ber er úr
safni sjónvarpsins. Sýnd eru brot
úr viðtölum við skáldið á ýmsum
tímamótum, þar sem rætt er við
Haildór um verk hans, skoðanir á
samtímamönnum og atburðum
líðandi stundar. Einnig verður
brugðið upp svipmyndum úr verk-
um skáldsins, bæði brotum úr
sviðsverkum og sjónvarpsupp-
færslum.
Rás 1:
Krístni-
hald í Japan
■R Kristnir Japanir eru ekki
20 stór hluti Japönsku þjóð-
arinnar þar sem flestir
eru Sinto- og Búddatrúar. í þætti
sem er á dagskrá Rásar 1 klukkan
10.20 annan í páskum ræðir Anna
Margrét Sigurðardóttir við séra
Helgu Soffíu Konráðsdóttur, en hún
er nýflutt heim til íslands eftir að
hafa búið í Japan i tvö ár. Eingin-
maður Helgu er japanskur og prest-
ur eins og hún, en hann þjónaði litl-
um söfnuði í borginni Nagoya sem
er mitt á milli Tókíó og Osaka. í
þættinum segir Helga af kristni-
haldi safnaðarins og lífi sínu sem
prestfrú í þessu samfélagi þar sem
langflestir eru annarar trúar og
halda engar kristnar hátíðir.
■■ Á páskadagskrá Bylgj-
00 unnar er nýr þáttur um
Kristján Jóhannsson
óperusöngvara. Bjarni Dagur Jóns-
son dagskrárgerðarmaður fór til
Italíu i marsmánuði og fylgdist með
Kristjáni á æfingu, bæði í Flórens
og Veróna. Uppistaða þáttarins er
viðtal við Kristján, en þar segir
hann frá sorgum sínum og sigrum.
Fyrstu árunum með karlakórnum
Geysi, söngnámi heima og erlendis.
Einnig segir Kristján frá kennurum
sínum og hvaða áhrif þeir höfðu á
hann. „Viðtalið iðar af lífi og fjöri,
enda segir hann frá af sinni al-
kunnu hreinskilni,“ segir í kynningu
frá Stöð 2. Inn í þáttinn eru fléttuð
viðtöl við vini og kunningja ásamt
nýjum upptökum með söng hans.
Frami Kristjáns á óperusviðinu
hefur verið ótrúlegur síðustu árin.
Fyrir um fimm árum tók hann þá
ákvörðun að hætta að syngja í
minni óperuhúsunum í Evrópu og
Ameríku og reyna að komast að í
þeim stóru á Italíu. Segja má að
þáttaskilin hafi orðið þegar hann
söng fyrir óperustjóra Scala í
Mílanó, en eftir það buðust honum
stórhlutverk víða um Ítalíu. Meðal
tónlistarfólks víða um heim er
Kristján talinn i hópi þeirra söngv-
ara, sem augu og eyru unnenda
óperutónlistar eiga eftir að beinast
að á næstu árum. Glæsilegur og
kraftmikill hetjutenór eins og ítalir
vilja hafa þá, eða sprengitenór eins
og Kristján hefur sjálfur orðað það.
Þrátt fyrir að hann hafi aðlaðast
lífinu á Ítalíu á hann sér þann
draum stærstan að koma sem oft-
ast til Islands og syngja fyrir ís-
lenska áheyrendur. Þættinum verð-
ur útvarpað í tvennu lagi, á páska-
dag milli kl. 14 og 16 og á annan
páskadag kl. 16-17.
Umsjónarmaður og höfundur handrits er Björn Th. Björnsson
en kvikmyndasljóri Valdimar Leifsson.
Stöð 2:
Kiri te Kanawa og ópevuperiur
■■■■■ Kiri te Kanawa hefur í nokkur ár verið meðal
1 7 00 mestu sópransöngvara heims. Hún er þekkt langt
■ út fyrir raðir unnenda óperutónlistar, enda hefur
hún spreytt sig á margs konar tónlist. I þætti sem Stöð 2
sýnir á páskadag kynnir hún uppáhaldsatriðin sín úr óperum
og eru þau bæði sungin af henni og öðrum frægum söngvur-
um. Hún leiðir áhorfendur um húsakynni Konunglegu óper-
unnar í London. Þaðan eru einnig upptökur með Placido
Domingo (Ævintýri Hoffmanns), Ileana Cotrubas (La Bo-
heme) og með Kiri sjálfri (Rósakavalerinn og Leðurblakan).
.Frá Scala í Mílanó koma m.a. atriði úr Ernani og Andrea
Chenier með José Carreras og Placido Domingo. Þá eru
upptökur frá sýningu á Otello í Arena di Verona þar sem
lafði Kiri fer með hlutverk Desdemónu. Einnig er sýnt frá
fleiri uppfærslum, bæði á Englandi og á Ítalíu, og lafði Kiri
rekur að nokkru söngferil sinn.
Kiri te Kanavva.
f
J
|
2
I
I
j/
í