Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 1
<í<t A 1 f i 1 D I FJÁRMÁL: Skuldir heimila víöa svipaöar og tekjur eftir skatta /4 RÚSSLAND: Gífurleg náttúruverömæti og miklir viðskiptamöguleikar /6 VIÐSHPTI ÆVINNULff n PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992 BLAÐ 1-J Bankamál Hagnaður Búnaðarbankans um 70 milljónir á sL ári Aukið aðhald með útlánum vegna versnandi lausafjárstöðu HAGNAÐUR Búnaðarbankans fyrir tekju- og eignarskatt nam alls 172 milljónum á sl. ári en skattar lögðust óvenju þungt á reksturinn á árinu, þ.á.m. eignarskattur. Að teknu tilliti til skatta nam hagnaður alls um 70 milljónum króna samanborið við tæpar 204 miiyónir árið áður. Að sögn Jóns Adólfs Guðjónssonar, banka- stjóra Búnaðarbankans, hafði verið reiknað með um 200 milljóna hagnaði á árinu en vegna lítillar verðbólgu undir lok ársins báru óverðtryggð innlán hærri vexti en gert hafði verið ráð fyrir. Þannig var raunávöxtun bundinna innlána á Metbók 8,12% á árinu. Vaxtamunur Búnaðarbankans á sl. ári var 4,25% þegar miðað er við mismun fjármunatekna og fjár- magnsgjalda að teknu tilliti til verðlagsbreytinga og hefur hann lækkað úr 5,59% frá árinu 1989. Þegar tekið er tillit til framlags í afskriftarreikning hefur vaxta- munur hins vegar lækkað úr 5,18% í 3,37% á tímabilinu. Rekstrargjöld bankans hækk- SÖLUGENGI DOLLARS Síðustu fjórar vikur 61,00---------------------------- kr. 60.50 --------------------t------- 6o,oo---------------------- 59,39 59 50^"\^l------------- 59,00--------.................... 58.50 ---------'----------------- 58,00---------------------------- 57.50 --------------------------- I-----1-------1--------1-----1 25.mars 1. apríl 8. 15. 22. uðu um 17,5% milli ára en þar vegur þungt rúmlega 20% hækkun á launakostnaði. Jón Adólf segir að skýringin á þessari hækkun sé miklu leyti fólgin í fjölgun starfs- manna í stoðdeildum þar sem laun- akostnaður sé hár t.d. markaðsde- ild og skipulags- og hagræðingar- deild. Að sama skapi hafi starfs- mönnum fækkað í afgreiðsludeild- um þar sem laun séu lægri. Auk þess stafi þessi hækkun af kjara- samningum og hækkunar á launa- tengdum gjöldum. Starfsmanna- Qöldi var óbreyttur milli ára eða 491. Framlag í afskriftarreikning út- lána á sl. ári nam alls um 354 milljónum samanborið við 249 milljónir árið áður og voru afskrif- aðar um 130 milljónir vegna tap- aðra útlána. í árslok nam afskrift- arreikningurinn 672 milljónum og er það 1,8% af útlánum, áföllnum vöxtum og veittum ábyrgðum. Framlag vegna lífeyrisskuld- bindinga nam á sl. ári 56 milljónum samanborið við 123 milljónir árið áður og var staða sjóðsins í árslok alls 1.176 milljónir. Hefur bankinn nú að fullu uppfyllt skuldbindingar sínar að þessu Ieyti. Heildarinnlán Búnaðarbankans í árslok námu alls 31,1 milljarði og höfðu aukist um 14,5% á árinu. Þar af var aukning innlána á Met- bók 40% og námu þau alls 9,5 milljörðum í árslok. Heildarútlán bankans námu alls 29,1 milljarði og höfðu aukist um 19% á árinu. Eigið fé var alls 3.402 milljónir í árslok og jókst um 10,2% á árinu. Að sögn Jóns Adólfs lækkaði eig- inyárhlutfall milli ára úr 9,9% í 9,4% skv. skilgreiningu laga um viðskiptabanka. Búnaðarbankinn uppfyllti lausafjárskyldu Seðlabankans fyrstu níu mánuði sl. árs en lausa- fjárstaðan fór versnandi undir lok ársins. Lenti bankinn undir til- skildu 12% lausaijárhlutfalli Seðla- bankans í október. Jón Adólf sagði að framhald hefði orðið á þessari þróun á það sem af væri árinu og hefðu innlán lækkað um tæplega 1 milljarð á fyrsta ársfjórðungi en á sama tíma hefðu útlán aukist. Því hefði ekki tekist að uppfylla tilskilið lausafjárhlutfall í mars og apríl. „Það verður beitt auknu að- haldi í útlánum. Við óttumst hins vegar þessi innlánsþróun stafí að einhveiju leyti af umræðu um skattlagningu sparifjár að undan- förnu. Það verður að hafa það í huga að eldri kynslóðin, þ.e. 60 ára og eldri, á 60% af sparifé bank- akerfisins og harðneskjulegar kröfur um skattlagningu á þetta fólk slær það óhug. Því er ástæða til að vara stjórnvöld við hvatvís- legum ákvörðunum í þessum efn- um,“ sagði Jón Adólf Guðjónsson. NÝTING hótela í Reykjavík hefur minnkað verulega síðustu sjö árin og hefur aldrei verið jafnléleg og á síðasta ári, samkvæmt upp- lýsingum úr nýju fréttabréfi frá Sambandi veitinga- og gistihúsa. f blaðinu kemur fram að skýringa á þessari lélegu nýtingu megi meðal annars leita í síauknu framboði gistiherbergja. Síöan í júní 1990 hefur gistirúmum í Reykjavík Pgað um 372xig er þá gisting á einkaheimilum ekki talin með. Meirihluti aukningarinnar varð á árinu 1991. Betur horfir með bókanir hótela í sumar enda er fyrirhugað að halda hér allmargar ráðstefnur. Forráðamenn hótel- anna eru hins vegar hóflega bjart- sýnir á sumarið því reynsla undan- farinna ára sýnir að mikið af gisti- rými er afbókað á vorin þegar of seint er að ráðstafa því til annarra. 64,4% 63,8% 1988 19M 59,0% Traust íyrirtæki - góð ávöxtun Landsbréf hf. hafa til sölu skuldabréf Lindar hf. og Samvinnusjóðs íslands hf. Ávöxtun þessara bréfa er nú 9,8% á ári umfram lánskjaravísitölu. Lánstími er 3 - 4 ár. Lind hf. Lind hf. er eignarleiguíyrirtæki en Landsbanki íslands á um 80% í íyrirtækinu. Lind hf. starfar eftir lögum um eignarleigur og undir eftirliti bankaeftirlitsins. Eignir Lindar hf. voru alls rúmlega 2,5 milljarðar króna í lok síðasta árs. Samvinnusjóður íslands hf. Samvinnusjóður íslands hf. er fjárfestingarsjóður í eigu Samvinnuhreyfingarinnar. Eigið fé Samvinnusjóðs Islands var í lok síðasta reikningsárs um 382 milljónir og eigin- íjárhlutfall 62%. Hagnaður síðasta LANDSBRÉF H.F. ? reikningsárs var 13,4 milljónir króna Landsbankinn stendurwed okkur 1 Sudurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598 £ Löggilt verdbréfafyrirtæki. Adili ad Verdbréfaþingi íslands. <

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.