Morgunblaðið - 07.05.1992, Síða 3

Morgunblaðið - 07.05.1992, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1992 C 3 HVAÐ SEGJA ■H TÖLVUSALARNIR? Þegar leitað var til nokkurra tölvusala, kom í ljós að þeir sjá flestir framtíðina í svipuðu ljósi. Lykilorðin hjá þeim voru netvæðing, auk- in samvinna og samruni tölvufyrirtækja, heildarlausnir á einum stað og að þjónustusamningar verði stærri hluti af tekjum fyrirtækjanna í framtiðinni, vegna lækkandi verðs á tölvubúnaði. Margir telja að verðstríðið fari upp um einn flokk, þ.e. frá 386 tölvum í 486 tölvurn- ar. Magnús S. Norðdahl hjá ACO hf. taldi að strax á næsta ári gæti markaðurinn á milli þessara gerða skipst til helminga. Eg held að það liggi nokkuð í augum uppi að fyrirtæki, eins og okkar, sem hafa byggt á PC-vél- um, þurfa að vera vakandi gagn- vart möguleikum á nánari sam- starfi við önnur tölvufyrirtæki," sagði Heimir Sigurðsson hjá Örtölv- utækni, „tii að geta styrkt stöðu sína gagnvart því að bjóða heildar- lausnir. Af þessari ástæðu þá er líklegt að væringar verði áfram á tölvumarkaðnum varðandi samstarf og samruna fyrirtækja. Aðstæður í dag eru þannig að menn verða að vera fjárhagslega sterkir og með góða tæknilega getu til að lifa af.“ Margir tölvusalar spá því að fleiri fyrirtæki á markaðnum eigi eftir að sameinast eða auka samstarfið. „Það er grundvöllur hér fyrir auknu samstarfi tölvufyrirtækja eins og gerðist t.d. með tölvuvæðingu Pósts og síma,“ segir Frosti Bergsson hjá Hewlett-Packard. Það er nokkuð sammerkt hjá tölvusölum að þjónustudeildir fyrir- tækjanna hafa vaxið verulega að undanförnu, fyrst og fremst vegna netvæðinga. „Eftir að fyrirtæki fóru að fara úr miðlungstölvuumhverf- inu, fækkar þeim stöðugt, sem eru með sérstakar tölvudeildir," sagði Örn Andrésson hjá EJS hf. „Menn hætta að líta á PC vélar og tölvu- net, sem eitthvað sem þarf aðila í að hugsa um. En staðreyndin er sú að því auðveldara sem það tölvuum- hverfi er, sem snýr að notandanum, þá verða tæknimálin æ flóknari. Krafan um meiri gæði á öllum svið- um gagnvart notanda og meiri ein- faldleiki gerir tæknina flóknari.“ Hugbúnaðarstuldur Það hefur komið fram í samræð- um við ýmsa tölvusala undanfarnar vikur, að þeim finnst að hugbúnað- arþjófnaður hafi færst í aukanna upp á síðkastið. í nýlegri grein í Viðskiptablaði Morgunblaðsins var giskað á að stolið hefði verið hug- búnaði fyrir 700 milljónir á síðasta ári. Einn tölvusali taldi þessa upp- hæð vægt áætlaða. Það hefur verið nánast ómögu- legt að gera nokkuð í þessum mál- um, nema að viðkomandi aðili sé beinlínis staðinn að verki við að afrita á ólöglegan hátt, að sögn Árna G. Jónssonar hjá Apple- umboðinu. Þar á bæ binda menn miklar vonir við nýtt frumvarp sem varðar höfundarétt á hugbúnaði. „Það hefur verið mikill stuldur í gangi frá upphafi á Macintosh hug- búnaði almennt," sagði Árni, „og þess eru dæmi að sami aðili hafi keypt 3 forrit og 100 tölvur. Varla hefur hinum 97 tölvunum verið ætlað að standa ónotaðar? Erlendis er viðhorfið til stolins hugbúnaðar allt annað og ef um er að ræða stór fyrirtæki, sem eru að kaupa vélar og hugbúnað i stór- um stíl, er sérsamið um að hve miklu leyti má samnýta hugbúnað- inn. En hérna hefur það verið álitin helber frekja okkur að ætlast til þess að menn kaupi löglegan hug- búnað.“ MGN/VE Gagnahólf fyrir pappírslaus viðskipti Póstur og sími hefur um skeið boðið upp á nýjan þjónustu á sviði tölvusamskipta sem nefnd er almennt gagnahólfa- og skeytaflutningakerfi. Sam- þykktur hefur verið alþjóðleg- ur staðall, X.400, fyrir þessi kerfi og opnar hann möguleika á samskiptum milli tölva mismundandi framleiðenda sem fara nú mjög vaxandi. Undir þetta falla pappírslaus viðskipti, s.s. sendingar pant- ana, reikninga og tollskjala í gegnum tölvur. Til að geta gerst áskrifendur að þessari þjónustu Pósts og síma þurfa menn einkatölvu, mót- ald og viðeigandi hugbúnað. Hver notandi fær ákveðið hólf og getur sent hvers konar tölvugögn, við- skiptaskjöl eða bréf, þ.e. texta og myndir, til annars notanda og fengið slík gögn í hólf sitt. Aðeins notandi sjálfur kemst í hólfið. Gagnahólfskerfið er svipað venj- ulegri póstþjónustu. Sendandi sem- ur bréf á tölvu, tilekur nafn og aðsetur viðtakanda og sendir í gagnahólf. Kerfið flytur bréfið og afhendir viðtakanda, einum eða fleirum skv. óskum sendanda. Áskrifendur gagnahólfa greiða fast gjald ársfjórðungslega og síð- an fyrir magn sem sent er um kerfið. Tenging við útlönd er væntanleg á árinu. Gagnahólf- skerfið byggir á SYSTEM/88 tölvubúnaði frá IBM og hugbúnaði frá ICL. Póstur og sími: Gagnakerfi Póstþjónusta Telexnetið Símanetið Gagnahólfa- og skeytaflutningskerfi ZZC Utlönd Gagnanetið Einmennings- I tölvur Gagnahólf einkaaðila Tenging íjarskiptakerfa Pósts og síma við almenna gagnahólfa- og skeytaflutningsker fið. MERUN GERIN NEYÐARSPENNUGJAFAR FYRIR TÖLVUR OG TÖLVUKERFI Stærðir: 250VA - 4800kVA Getum einnig útvegað með stuttum fyrirvara: - Spennujafnara (Line Conditioner) - Spennusíur (Filters) MERLIN GERIN býður vönduð og nákvæm tæki, þar sem öryggi er í fyrirrúmi. HF. Vatnagörðum 10 Símar 685854, 685855. J^iaeJHnnspu bókhaldskerfi fyrir Macintosh-tölvur MacHansa er öflugt bókhaldskerfi sem er notað af meira en 4.000 notendum víða um heim, svo sem í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Eistlandi, Englandi, Simbabwe, Ungverjalandi, Rússlandi og Póllandi. Mac Hansa, sem er einstaklega þœgilegt í notkun, samanstendur af é Skró Sýtl Spjald Spjaldskré Vmlslegt I lflj)l Kerfið er hannað sérstaklega fyrir Macintosh og nýt- ir allaeiginleika hins vingjamlega umhverfis, svo sem: Útgáfu og áskrift, prentun á leysiprentara og möguleika á tengingu við töflureikni og ritvinnslu. MacHansa þarfnast ekki mikils diskrýmis og vinnur á öllum Macintosh- Fylgiskjol: SkoAo Númer \l | Fœrsludags. | l.l.1992 | Undlrkerfl D Tiluíiiun |L)ósrttunorvól Lina Lykill Etnl TeHtl Oebet Kredlt I 4240 Smóéhöld 60273,00 2 2173 Smóóhöid 16727,00 3 1 1 10 Áv 002 05000,00 4 *j Lelðréttlng o fylgiskjali|3 fjárhagsbókhaldi (3 útgáfur), sölu- og viðskiptamannabók haldi. tölvum sem eru með harðdisk, þ.e. allt frá Macintosh Plus upp í hina geysiöflugu Macintosh Quadra. Apple-umboðið Skipholti 21, sími (91) 624 800 GKS '92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.