Morgunblaðið - 07.05.1992, Page 4

Morgunblaðið - 07.05.1992, Page 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAI 1992 Sunbréf á einkatölvum BITFAX er heiti á búnaði fyrir einkatölvur sem ásamt mótaldi gerir þeim kleift að senda símbréf (fax). Með því að nota Microsoft Windows 3.0 BitFax fyrir Windows verð- ur auðvelt að senda og taka á móti símbréfum og verulega dregur úr pappírsnotkun. Fyrirtækið Tæknibær í Garðabæ hefur umboð fyrir þennan búnað. Hægt er að senda hvers kon- ar Windows-skjöl með BitFax rétt eins og um prentara væri að ræða og eru skjölin send með því útliti sem sendandi geng- ur frá þeim (letur, grafík o.fl.). Hægt er að taka á móti skjölum og vinna annað á tölvuna á sama tíma. Með BitFax ná einnig senda sama skjalið til margra aðila, senda að næturlagi þegar sím- gjöld eru lægri og stilla á sjálf- virkt endurval, sé lína móttak- anda upptekin. BitFax heldur skrá yfir hvert skjal er sent og hvaðan skjal kemur og staðfestir hvort skjal hefur komist til skila og upplýsir hvað sé að ef ekki næst samband. Þá hefur BitFax að geyma símaskrá sem hægt er að greina í ýmsa flokka til að auðvelda fjöidasendingar. Hvað er PostScript? FLESTIR seni hafa unnið við tölv- ur hafa heyrt talað um PostS- cript, en fæstir hafa hugmynd um hvað það er. PostScript er aðferð til að lýsa útliti blaðsíðu (á ensku kallað page description language eða PDL). Því má skipta í tvo hluta; forritunar- mál og túlk. Blaðsíðulýsing í PostS- cript er forrit, sem skráð er með PostScript málinu. Svona forrit er búið til, flutt og túlkað yfir í ASCII texta, sem er að mestu óháður hvaða tæki er notað. PostScript býður upp á fjórar grunn leturgerðir. Síðan getur hver sem er búið til sitt eigið letur svo fremi hann/hún kunni að forrita í PostScript. Fyrirtækið Tauga- greining hf hefur hannað hugbúnað til þess að taka upp heil- arit og skoða. Umer að ræða hugbúnað fyrir venjulegar PC vélar og að sögn Sigurðar Hjálmarssonar, tölvunarfræðings, er fyrirtækið með þeim fyrstu í heiminum að hanna slíkan búnað. Hugbúnaðurinn gengur undir vinnuheitinu Nervus sem er lat- neska heitið fyrir taug. Taugagrein- ing hf selur búnaðinn eingöngu er- lendis og nú þegar hefur verið sa- mið um sölu á kerfinu til fjöl- margra aðila erlendis. Samningar standa yfir við erlent dreifmgarfyr- irtæki og segir Sigurður að ef þeir samningar gangi eftir þá sé það vendipunktur fyrir fyrirtækið. Taugagreining hf var stofnað árið 1987 og er Nervus vara númer tvö að sögn Sigurðar, áður hefur fyrir- tæk-ið selt hugbúnað til Bandaríkj- anna. mm hewlett mílrJk packard HLJÓÐLÁTIR SNILLINGAR PaintWriter/XL Laserjet IIISi Hewlett Packard prentaramir eru heimsþekktir fyrir þau gæði sem þeir búa yfir, en hafa ekki hátt um. Hægt er að velja milli fjölmargra tegunda hvort sem um geislaprentara eða bleksprautu- prentara er að ræða og henta þeir jafnt fyrir PC sem Appel tölvur. Afköst geislaprentaranna eru frá fjórum allt upp í sextán blöð á mínútu. Bleksprautuprentararnir afkasta allt að þremur blöðum á mínútu. Kynntu þér geisla- og blek- sprautuprentarana frá Hewlett Packard, prent- aramir em til í fjölmörgum gerðum, fyrir svart/hvíta- eða litaútprentun og miðast að því að geta þjónað ólíkum þörfum, allt frá einstaklingum upp í stór fyrirtæki þar sem hver mínúta er dýrmæt. Deskjet 500C - Deskwriter C Dæmi um verð: DeskJet 500 (svarthvítur) 41.500 kr. stgr. með vsk. = ÖRTÖLVUTÆKNI = Tölvukaup hf. • Skeifunni 17 • Sími 687220 • Fax 687260 Apple Machintosh höfðaði fyrir nokkr- um árum mál á hend- ur Hewlett-Pack- ard framleiðanda NewWave-notendaskila þar sem krafist var stöðvunar á útbreiðslu og sölu NewWave. Skorið var úr um málið nýverið fyrir bandarískum dómstólum og var stærstum hluta ákæranna vísað frá. Forsenda málshöfðunarinnar er að NewWave-notendaskilin eru um margt svipuð notendaskilum Apple Machintosh. Líkt er eftir venjulegu skrifstofuumhverfi á skjánum og unnið með hluti í stað forrita og gagna. T.a.m. er skráakerfið gert með mynd af skjalaskáp, þannig að notandi dregur skjal yfir mynd af prentara og þar fram eftir götun- um. Stýrikerfi vélar og uppbygging er alfarið falin fyrir notanda. I NewWave er einnig að finna svokallaðan skrifstofutækni, sem býður upp á sjálfvirkni í almennri tölvuvinnslu. Með honum má t.d. kanna birgðastöðu fyrirtækis með ákveðnu millibili. Skrifstofutæknir- inn kannar þá ákveðinn dálk í Ex- cel-töflureikninum sem sýnir stöðu birgða. Sé magnið komið niður fyr- ir ákveðin mörk býr skrifstofutækn- irinn til pöntunarbréf á viðkomandi hlut og spyr notanda hvort prenta eigi bréfið út og hversu mikið skuli pantað. NewWave-notendaskilin keyra á Hp-Ux, UNIX-stýrikerfi HP, OS/2 og DOS-stýrikerfinu og NewWave 4.0 vinnur með Windows-fórritunum. Samningur hefur nú verið undirritaður á milli Tæknivals hf. og NOVELL úm söl- uleyfi á NOVELL netstýrikerfi fyrir PC-tölvur, en NOVELL hefur rúmlega 60% mark- aðshlutdeild á heimsmarkaði. Eru þá viðurkenndir umboðs- og dreif- ingaraðilar kerfísins á íslandi orðn- ir tveir, því Microtölvan hefur einn- ig umboð fyrir NOVELL. Að sögn Kristjáns Óskarssonar, sölustjóra tölvudeildar Tæknivals stendur til að bjóða upp á nám- skeið fyrir þá sem ætla að annast viðhald og uppsetningu netkerfa og er í gangi samningur við breska aðila um kennslu og námsgögn til slíkra námskeiða. Að námskeiði loknu fá svo þáttakendur viður- kenningu og ákveðna gráðu frá NOVELL til staðfestingar á þátt- töku sinni. DISKLINGATÆKNI hefur fleygt fram síð- ustu misseri og sífellt eykst það magn upp- lýsinga sem koma má fyrir á 3'/2“ disklingum. Þróuninni hefur þo staðið nokkuð fyrir þrifum að þó sett hafí verið á markað Z'h“ drif fyrir disklinga sem geyma má á um 20 Mb, hafa þau ekki geta nýtt upplýsingar á eldri gerðum disklinga. Fyrir stuttu kom þó á markað 3‘/2“ disklingadrif fyrir disklinga sem geyma má á um 21 Mb af upplýsingum og getur líka lesið venjulega 740 Kb- og 1,44 Mb-disklinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.