Morgunblaðið - 07.05.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAI 1992
C 5
Tölvur og list
Mörgum kann að virðast fjarri lagi að
tengja tölvutæknina við listsköpun, að
minnsta kosti við það sem fellur undir
hið óræða heiti „æðri list“. Guðmundur
Oddur Magnússon fæst jöfnum höndum
við auglýsingar og myndlist og kennir
auk þess grafíska hönnun. Guðmundur
komst svo að orði að tölvan væri ekk-
ert annað en stór tómur kassi sem
gæti ekki neitt nema undir stjórn
mannsins og eftir því yrðu menn að
muna. Guðmundur segist nota tölvuna
að mestu við hönnun á merkjum, bókum
og þess háttar en listaverk hans verði
til fyrir utan tölvuna og að hans sögn
eru fáir myndlistarmenn að fást við
alvöru myndlist með hjálp tölvunnar.
Hilmar Örn Hilmarsson, tónlistarmað-
ur, segir tölvuna vera nauðsynlegt
hjálpartæki fyrir tónlistarmenn sem
vinna mikið einir. Þeir geti þá sett inn
á tölvuna fjölda hljóðfæra án þess að
þurfa að leita til annarra tónlistar-
manna en hæpið sé að semja góða tón-
list eingöngu á tölvu. Túlkunina, hinn
óræða þátt, muni skorta: „Enn sem
komið er kemur ekkert í staðinn fyrir
mannlega þáttinn.“
Starfsbróðir Hilmars, Gunn-
ar Þórðarson, tók tölvuna
í sína þjónustu árið 1985.
Hann segir það hafa verið
svolítið moð að komast upp á lagið
með að nota hana en það hafi fljót-
lega reynst mjög auðvelt. Hann
segist ekki vera með mikinn útbún-
að en auðvitað sé endalaust hægt
að bæta við.
Not Gunnars af tölvunni felast
einkum í því að setja lagið upp í
tölvunni, eins og hann orðaði það.
„Eg get sett lagið inn í tölvuna og
raðað því upp, síðan get ég keyrt
það til baka og heyrt hvernig það
kemur út. Nú og svo get ég alltaf
breytt röðuninni eða bætt einhverju
nýju inn í. Tölvan hjálpar manni
mikið við að stjórna hraðanum á
laginu sem best. Ég get hægt og
hert á laginu eftir vild í tölvunni.
Hér áður fyrr kom það fyrir að lag
reyndist kannski vera alltof hægt
þegar búið var að taka það upp í
hljóðveri. Mínusinn við tölvuna er
auðvitað sá að tónlistin vill verða
svolítið „steríl" og þess vegna er
best að nota tölvuna í bland við
hljóðfæraleikarana. Það var nú
þannig að þegar tölvurnar komu í
upphafi áttu þær að leysa allan
vanda en það var nú ekki sem bet-
ur fer.“
Gunnar segist skrifa allar nótur
sjálfur þrátt fyrir að auðvelt sé að
láta tölvuna um það en hann vill
ekki týna nótnaskrifunum niður.
Gunnar segir mörg þeirra laga sem
spiluð eru á öldum ljósvakans hrein
tölvulög og viðurkennir hlægjandi
að hann hafi líka samið slík lög og
bætir svo við „það eru ekki bara
poppararnir sem nota tölvur, þeir
eru í þessu líka karlarnir í klassík-
inni“.
Mynd sem syngur
„1984, fór ég að láta tölvur
hanna fyrir mig rýmið í myndum
mínum ... Nú nota ég tölvunet að
staðaldri við samsetningu stærri
mynda og fylgist grannt með þróun-
inni í grafískri tölvuvinnslu í von
um að rekast á eitthvað fleira sem
ég get notað í málverkinu." Svo
farast listamanninum Erró orð í
ævisögu sinni Margfalt líf. Hér á
landi er það fyrst og fremst Tryggvi
Hansen, myndlistar- og tónlistar-
maður með meiru, sem hefur nýtt
sér tölvutæknina svo einhverju nemi
og líkar það vel. Hann hefur verið
óragur við að leita nýrra leiða í list-
sköpun og þá gjarnan blandað ólík-
um listformum saman. „Þetta er
bara spurningin um tjáningu og
hvernig maður kemur því á fram-
færi sem maður vill túlka þannig
að maður nái sem bestu sambandi
við fólk og þar er tölvan mjög öflugt
tæki.“
Tryggvi neitar alfarið að tjáning-
in verði dauð í meðförum tölvu-
tækninnar. „Þótt ég máli á tölvuna
þá gerir hún ekkert fyrir mig, mað-
ur verður að fá góðar hugmyndir
til þess að geta gert gott verk.
Tölvan er fyrst og fremst spurning
um geymsluform og Mozart er ekk-
ert dauður þótt hann sé á geisla-
disk. En tölvan býður upp á svo
margt. Ég kannski teikna eitthvað,
set það svo inn í tölvuna og þá get
ég til dæmis búið til fjöldann allan
af afritum af einhverjum hlutum
úr myndinni og þannig fæ ég fullt
af nýjum afbrigðum sem ég get svo
þróað áfram. Þegar ég er svo
ánægður með einhveija mynd þá
mála ég hana í olíu til þess að festa
hana niður. Ég get líka tengt tölv-
una við myndband eða hljóð, þann-
ig að ég get búið til mynd sem
syngur! Þetta er bara ákveðið hugs-
unarferli þar sem hugmyudirnar eru
meltar og tölvan er einn liður í
þessu ferli.“
Tryggvi segir ótrúlega fáa mynd-
listarmenn nýta sér tölvutæknina
að einhveiju ráði við vinnu sína,
sumir eigi þó tölvu en nýti hana
þá helst til skipulagningar eða upp-
setningar á verkunum. Hann segist
gjarnan vilja vinna með öðrum sem
væru að fást við tölvur líkt og hann
og saknar þess að fá hvergi aðgang
að öflugum tölvumiðstöðum. „Það
væri til dæmis ekkert mál að koma
hér upp alþjóðlegu stúdíói í mynd-
list og tónlist og í kringum það
yrði áreiðanlega margvísleg geijun.
Þetta byggist allt á því að geta
nýtt sér tæknina á skapandi hátt.“
Tryggvi segir möguleikana í
tölvunotkun sífelit vera að aukast
og hægt sé að týna sér í forritaskóg-
inum en í framtíðinni vildi hann
helst geta sett rafskaut á heilann
og fá þannig hugmyndirnar beint
inn á tölvuna! gþg
Tölvur og Net
Islandi hf.
Erum fluttir í Mörkina 6f 108 Rvík, sími 681900.
Fjölnotenda tölvukerfi og UNIX vinnustöðvar.
Tölvunet, lagnavörur og netmagnarar.
Harðir diskar og segulbandsstöðvar í úrvali.
Tilboð: 40MHz UNIX vinnustöð, GSStation kr. 689.481 m. VSK.
Ráðgjöf og þjónusta í sambandi við vélbúnað, hugbúnað og tölvunet.
Morgunblaðið/Sverrir
Gunnar Þórðarson: „Best að nota tölvuna í bland við hljóðfæraleikar-
ana.“
námskeið
á vorönn 1992
- x
Eftirfarandi námskeið verða haldin hjá
HP á íslandi á næstunni:
1. HP-UX stýrikerfisumsjón.
Haldið mánaðarlega.
3ja daga námskeið sem ætlað er þeim sem annast daglegan
rekstur HP-UX kerfis. Farið verður vandlega í gegnum uppsetn-
ingu, byggingu og stækkun skráarkerfa, tengingu og frumstill-
ingu á jaðartækjum, afritatöku og endurbyggingu HP-UX kerfis.
2. HP LAN Manager.
Haldið: 7.-8. maí 1992.
11A dags námskeið sem er ætlað þeim sem annast daglegan
rekstur HP LAN Manager netkerfis. Fyrri daginn verður farið
yfir mismunandi uppsetningar á einkatölvum og HP LAN Mana-
ger fyrir OS/2 netþjón. Seinni deginum er skipt í tvennt. Fyrir
hádegi verður farið yfir HP LAN Manager/X (HP-UX) netþjón
og eftir hádegi verður farið yfir HP LAN Manager/iX og Reso-
urce Sharing/iX (MPE/iX) netþjón.
3. X-Window notkun.
Haldið: 12. mai 1992.
1 dags námskeið sem ætlað er notendum UNIX vinnustöðva
og X-skjáa sem nota X11 gluggakerfi.
4. HP-UX öryggi.
Haldið: 14. maí 1992.
1 dags námskeið sem ætlað er umsjónaraðilum UNIX tölva.
Sérstök áhersla er lögð á aðgangs- og gagnaöryggi.
5. HP-UX netumsjón.
Haldið: 18.-19. maí.
2ja daga námskeið sem ætlað er þeim sem annast daglegan
rekstur nettengdra HP-UX kerfa. Auk yfirferðar á almennum
netmöguleikum verður farið yfir NFS, NIS(YP), disklausar vinnu-
stöðvar og X-skjái.
6. HP NewWave notendaskil.
Haldið: 21. maí 1992.
1 dags námskeið sem ætlað er þeim sem vilja tileinka sér HP
NewWave notendaskilin á hraðvirkan hátt án þess að opna
handbækur.
7. HP MPE/iX Posix.
Haldið: 26.-27. maí 1992.
2ja daga námskeið sem ætlað er umsjónaraðilum og notendum
MPE/iX kerfa. Farið verður yfir Posix hlutann í MPE/iX 4,0
8. HP-UX grunnnámskeið.
Haldið: 3.-5. júní 1992.
3ja daga námskeið fyrir þá sem þekkja UNIX stýrikerfið lítið eða
ekkert en eru annars kunnugir tölvum, s.s einkatölvum með
MS-DOS. Auk almennra skipana og notkunar á UNIX stýrikerf-
inu verður farið yfir skeljaforritun.
9. HP-UX stýrikerfisumsjón.
Haldið: 9.-11. júní 1992.
3ja daga námskeið sem ætlað er þeim sem annast daglegan
rekstur HP-UX kerfis. Farið verður vandlega í gegnum uppsetn-
ingu, byggingu og stækkun skráarkerfa, tengingu og frumstill-
ingu á jaðartækjum, afritatöku og enduruppbyggingu HP-UX
kerfis.
Vinsamlegast hringið í HP á íslandi hf., í síma 67 1000, ef
frekari upplýsinga er óskað. Athugið að óskir um breytingu
á tímasetningu eða óskir um önnur námskeið sem ekki eru
nefnd hér að ofan eru sjálfsagðar og vel þegnar.
Ef næg þátttaka næst ekki í einstök námskeið á fyrirhuguðum
tíma, kann svo að fara að námskeiðið verði fellt niður eða
fært til með samþykki þeirra sem hafa skráð sig.
V_______________________________‘___________)
HEWLETT
PACKARD
H P Á Í SLANOI H F