Morgunblaðið - 07.05.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAl 1992
C 11
læra
hluti nemenda er drengir, nokkuð
sem Halldór segist ekki geta séð að
haldist í hendur við tölvuleiki, þar
sem stúlkur virðist engu síður en
strákar nota tölvu sem leiktæki á
heimilunum.
„Án þess að vera beinlínis hlynnt-
ur kynjaskiptingu erum við að íhuga
það hér að bjóða upp á námskeið
fyrir stúlkur sérstaklega, þótt náms-
efnið verði i engu frábrugðið því sem
er á unglinganámskeiðunum al-
mennt. En stúlkurnar virðast feimn-
ari við að hafa sig í frammi í
blönduðum hóp og þess vegna er
þessi hugmynd til komin.“ Þetta
virðist ekki eingöngu bundið við
námskeið, því drengir virðast í meiri-
hluta í mörgum skólum þar sem
boðið er upp á tölvunám sem val-
grein í 10. bekk og meira að segja
gætir kynskiptingar í sjálfu tölvun-
áminu. A.m.k. hefur reyndin orðið
sú með nemendur í tölvunarfræði í
Iðnskólanum í Reykjavík, að sá hluti
námsins sem snýr að forritun er
meira sóttur af strákum, en stúlkur
velja sér fremur þann hluta sem
byggist meira á almennri tölvu-
vinnslu.
Nemendum mismunað
Halldór segir mjög mismunandi
hvort og þá hvernig unglingarnir
sem koma á námskeiðin hafi kynnst
tölvum og notað í skólum. „Mér
finnst mjög umhugsunarvert að eins
og skólakerfið hefur staðið að tölvu-
væðingu, þá er nemendum mjög
mismunað eftir skólum og lætur
nærri að tala megi um stéttaskipt-
ingu í þeim efnum.
Þeim fækkar sífellt störfunum þar
sem ekki er krafist einhverrar
menntunar á tölvusviðinu og á með-
an íslenska skólakerfið býður ekki
upp á jafnt tölvunám fyrir alla nem-
endur eru málin í höndum einstakra
skóla sem eru misvel í stakk búnir
til að bjóða upp á tölvukennslu. í
sumum tilvikum hafa t.d. foreldrafé-
lögin staðið að tölvuvæðingu, á sum-
um stöðum er verið að kenna á tölv-
ur sem hvergi annars staðar eru til
og svo eru skólar þar sem engin
tölvukennsla er í boði. Þá er tölvu-
kunnátta unglinga farin að ráðast
af áhuga og efnahag foreldra og þar
með skapast skilyrði fyrir mismun-
um og stéttaskiptingu."
Dæmi um einmitt þetta kom ný-
verið upp í fyrirtæki í Reykjavík,
þegar gengið var frá ráðningu
sendils til afleysinga fyrir sumarið.
Endanlega var valið á milli tveggja
stúlkna, sem báðar höfðu lokið námi
í 10. bekk grunnskóla, en sú sem
starfið hlaut hafði það framyfir hina
að hafa lítillega lært á tölvu og unn-
ið með ritvinnslu í skóla. Vinnuveit-
andi sá sér hag í því þar sem hún
gæti notað stundir sem ekkert væri
að gera í sendilsstarfinu til að vinna
einföld ritvinnsluverkefni á tölvu.
Minnst átta tölvur í hvern
grunnskóla borgarinnar
Þróunin í þessum efnum virðist
þó vera góð í Reykjavík a.m.k. og
má ætla að önnur sveitarfélög fylgi
í kjölfarið. Þótt þess beri að geta
að vissulega er málum mjög vel far-
ið í sumum þeirra og nægir að nefna
staði eins og Raufarhöfn og Kópa-
HELDUR ÁFRAM
3.1 útgáfan erkomin
með snilldíarlausnir.
Möguieikarnir eruþínir
LJOSRITUNARVELAR ★ TELEFAX ★ FJOLRITARAR
OPTiMA
ÁRMÚLA 8 - SÍMI 67 90 00