Morgunblaðið - 07.05.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.05.1992, Blaðsíða 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAI 1992 T© © H T| ^ 11 ® olyusumarskoliim PC eða Macintosh námskeið fyrir 10 -16 ára Tölvusumarskólinn er einstakt tækifæri fyrir börn og unglinga að fá þjálfun í öllum grunnatriðum tölvunotkunar sem nýtist þeim í námi og starfi og gefur þeim góðan grunn sem þau geta síðar byggt á. Námsgreinar: • Ritvinnsla og vélritun • Tölvuteiknun og myndgerð • Tölvufræði • Gagnagrunns- og töflureiknisnotkun • Tölvugeisladiskar og alfræðisöfn • Heimsókn í tölvufyrirtæki 2ja eða 3ja vikna námskeið í júni, júlí eða ágúst. Kennt frá 9-12 eða 13-16 fimm daga vikunnar. Nemendur velja hvort þeir læra á Macintosh eða PC/Windows. FJóröa sumar Tólvusumarskðlans Ml«s hagstœtt vsr6 Tölvu- og verkfræðiþjónustan Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar fl. Grensásvegi 16*stofnuð 1. mars 1986 Gf* <Ð * TVÍ HÁSKÓLANÁM í KERFISFRÆÐI Innritun á haustönn 1992 stendur nú yfir íTölvu- háskóla VÍ. Markmið kerfisfræðinámsins er að gera nemend- ur hæfa til að vinna við öll stig hugbúnaðargerð- ar, skipuleggja og annast tölvuvæðingu hjá fyrir- tækjum og sjá úm kennslu og þjálfun starfs- fólks. Námið tekur tvö ár og er inntökuskilyrði stúdentspróf eða sambærileg menntun. Verið er að endurnýja tölvubúnað skólans. Á haustönn verður kennt á tölvur af gerðinni Vic- tor 386MX, IBM PS/2 90 með 80486 SX ör- gjörva, IBM RS/6000 340 og IBM AS/400 B45. Nemendur við Tölvuháskóla VI verða að leggja á sig mikla vinnu til þess að ná árangri. Þeir sem vilja undirbúa sig í sumar geta fengið ráðlegg- ingu hjá skólanum. Mikil áhersla er lögð á forrit- un og er því gagnlegt ef nemendur hrafa kynnst forritun áður. Á fyrsta ári eru kennd tvö nám- skeið íviðskiptafögum sem nýtast best þeim sem áður hafa lært bókfærslu. Aðrar greinar fjalla annars vegar um ýmiskonar stýrikerfi, notkun og uppbyggingu þeirra og hins vegar um vinnu- brögð við hugbúnaðargerð. Eftirtaldar greinar verða kenndar auk raunhæfra verkefna sem unnin eru í lok hverrar annar: Fyrsta önn: Forritun í Pascal Kerfisgreining og hönnun Stýrikerfi Fjárhagsbókhald Önnur önn: Fjölnotendaaumhverfi og RPG Gagnasafnsfræði Gagnaskipan með C++ Rekstrarbókhald Þriðja önn: Gluggakerfi Kerfisforritun Hlutbundin forritun Fyrirlestrar um valin-efni Fjórða önn: Staðbundin net Tölvugrafík Hugbúnaðargerð Umsóknarfrestur fyrir haustönn 1992 er til 26. júní. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða afgreiddar eftir því sem pláss leyfir. Kennsla hefst 31. ágúst. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást á skrifstofu Verzlunarskólans frá kl. 8-16 og í síma 688400. TÖLVUHÁSKÓLIVÍ, Ofanleiti 1,103 Reykjavík. Það er leikur... KRAKKAR VIÐ TOLVUl VALGERÐUR GUÐRÚN, 9 ÁRA ún Valgerður Guðrún Halldórsdóttir var ekki nema tveggja ára þegar hún snerti fyrst á tölvu foreldra sinna og byrjaði að leika sér við að gera myndir á skjáinn með teikniforriti. Ennþá kemur teikniforrit- ið að góðum notum, en hún segist líka nota tölvuna til þess að skrifa bréf til frænku sinnar og svo reyndi hún einu sinni að gera bekkjaskrá á tölv- una, en það tókst ekki alveg. Hins vegar eru allar líkur á að það takist í næstu tilraun, því Valgerður Guðrún er búin að fara á tvö tölvunám- ■ skeið og eitt af því sem hún segir að hafi verið kennt í ritvinnslunni var einmitt að gera slíka skrá. skér, en á þeim síðarnefnda eru átta tölvur fyrir um 20 nemendur í skól- anum. Að sögn Árna Sigfússonar borg- arfulltrúa var sú ákvörðun tekin fyr- ir gerð síðustu fjárhagsáætlunar að tölvuvæða grunnskóla. borgarinnar, þannig að jafnt yrði búið að nemend- um hvað tölvufjölda snertir. „í upphafi var stefnt að því að í öllum grunnskólum borgarinnar yrðu milli 8-14 tölvur, eftir eðli og stærð skólanna. En í framhaldi af þeirri ákvörðun þótti mjög freistandi að ganga lengra og tryggja skólum sem eru með eldri bekkina vel útbún- ar tölvustofur með netkerfi og net- stjórum. Allir sem að þessu standa eru sammála um að slíkt væri mjög skynsamlegt og við erum að kanna möguleika á að koma slíkum tölvu- stofum við á þessu ári,“ segir Ámi. Hann segir á hinn bóginn skiptar skoðanir á því hvort netkerfi séu hentug til tölvukennslu í yngri bekkj- unum, þar komi inn í sjónarmið eins og að kennarar telji hentugt að geta flutt tölvur á milli kennslustofa í stað þess að vera bundnir með þær í tölvustofu. Tölvustofur og netkerfi „Kostnaðurinn sem í upphafi var ráðgerður, þ.e. fyrir það að bæta tölvum við þær sem fyrir eru þannig að allir grunnskólar hefðu 8-14 tölv- ur, var talinn 8-10 milljónir króna. Með netkerfi og fullkomnari upp- bygging má auðveldlega tvöfalda þessa tölur. Svo verður að segjast eins og er, að þegar farið er að skoða þessa auknu tölvuvæðingu grunn- skólanna í Reykjavík er mjög freist- andi að ganga enn lengra og henda ýmsu af þeim búnaði sem fyrir er, eins og gömlu BBC-tölvunum, og bjóða öllum nemendum upp á PC- vélar með 386 örgjöfum. Slíkt myndi líklega kosta 30-40 milljónir króna, • en þar með værum við búin að tölvu- væða grunnskólana betur en mörg fyrirtæki og komin með búnað sem væri lausn til langs tíma,“ segir Árni Sigfússon. Annað atriði sem ýtir undir aukna tölvuvæðingu grunnskóla á landinu er að nemendum er nú ekki lengur gert skylt að útvega sjálfir tæki til vélritunarnáms, heldur ber skólun- um að útvega þau. Má því ætla að ýmsir kjósi að bjóða upp á vélritunar- kennslu með tölvum í stað ritvéla. Flest kennsluforrit tengjast stærðfræði En með aukinni tölvuvæðingu grunnskóla kemur aukin eftirspurn eftir íslenskum kennsluforritum. Slík forrit hafa til þessa verið gefin út.á vegum Námsgagnastofnunar og hófst útgáfan 1988, eftir að Náms- gagnastofnun, Reiknistofnun HÍ og menntamálaráðuneytið gerðu með sér samning um þýðingu og útgáfu kennsluforrita. Er verkaskipting þessara aðila þannig að ráðuneytið hefur veitt fé til verksins, Reikni- stofnun HÍ annast þýðingu forrita og hefur umsjón með þýðingu leið- beininga og bæklinga í samvinnu við Námsgagnastofnun, sem hefur gefið forritin og leiðbeiningamar út. Að sögn Hönnu Kristínar Stefáns- dóttur upplýsingafulltrúa Náms- gagnastofnunnar tengjast flest for- ritanna námsgreinum grunnskólans, en nokkur nýtast einnig við kennslu í framhaldsskólum, en skólar lands- ins fá forrit út á sinn kvóta hjá Námsgagnastofnun. Alls er um að ræða 27 forrit frá upphafi, mörg tengd stærðfræði- kennslu, auk forrita sem tengjast greinum eins og íslensku, ensku, náttúrufræði, mynd- og handmennt, sérkennslu og vélritun. Kennsluforritin koma flest frá svokölluðum tölvuhópi, þ.e. vinnu- hópi sem settur var á laggirnar 1984 á vegum Norrænu ráðherranefndar- innar með það sem eitt af forgangs- verkefnum að stuðla að framleiðslu kennsluforrita og forritaskipta, en Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð leggja árlega fram fjögur kennsluforrit og fá 12 til baka. For- ritunum er dreift endurgjaldslaust á milli landanna og greiðir hvert um sig aðeins fyrir þýðingu og útgáfu- kostnað í viðkomandi landi. Fjárskortur hamlar forritaútgáfu „íslendingar hafa því miður ekki staðið sig sem skyldi í þessum efn- um,“ segir Hanna Kristín. „Við höf- um fengið alls 60 forrit endurgjalds- laust, en aðeins látið tvö af hendi í staðinn, þar sem nægilegt fjármagn hefur ekki fengist hér til að greiða fyrir forritagerð í þessu samstarfi. Vonandi rætist úr því, þar sem nor- rænu forritin falla oftast mjög vel að námsefni grunnskólanna hér, enda eru skólakerfi og námsefni á Norðurlöndum lík.“ Vangaveltur um námsgagnagerð hafa einnig komið upp í tengslum við aukna tölvuvæðingu grunnskól- anna í Reykavík. „Það sem hefur verið gefið út af Námsgagnastofnun er ágætt, en stofnunin hefur ekki haft fjármagn til að vera með öfluga forritaútgáfu og þegar borgin verður komin með búnað í alla grunnskól- ana viljum við auðvitað fá meiri hugbúnað og hafa eitthvað um hann að segja,“ segir Árni Sigfússon. „Ekki síst vegna þessa er mikill áhuga á að koma á samstarfi á milli skólaskrifstofu borgarinnar, Fræðsl- uskrifstofu ríkisins, Félags tölvu- kennara og Skýrslutæknifélagsins um stefnumörkun í uppbyggingu hugbúnaðar fyrir grunnskólana og þjálfun kennara." Fleiri aðilar eru reyndar að huga að forritaútgáfu fyrir skóla. Má í þeim efnum nefna að innan Kenn- araháskóla íslands er mikill áhugi á gerð kennsluforrita og þróunarverk- efna á því sviði, í framhaldi af stór- aukinni tölvuvæðingu skólans á síð- ustu vikum og tæknilegum mögu- leikum á að útbúa kennslugögn fyr- ir tölvur með texta, hljóði, teikning- um, ljósmyndum og lifandi myndum. Hafa, að sögn Torfa Hjartarssonar, forstm. gagnasmiðju KHÍ. komið upp hugmyndir um verkefni eins og t.d. sögu Reykjavíkur, í samvinnu við Árbæjarsafn, efni um íslendinga- sögu eða sögur, nýstárlega fram- setningu á stuttum sögum, ætluðum byijendum í lestri og kennslugögn- um fyrir unglinga, um umhverfis- vernd í óbyggðum. Ljóst er að hugur manna sem starfa í íslenska skólakerfinu stend- ur almennt til stórræða á sviði tölvu- tækninnar og fátt sem hamlar nema fjárskortur. En spurningin virðist ekki vera um aukna notkun tölvu- búnaðar við kennslu og í samskipt- um á milli menntastofnana eða öflugri tölvukennslu, heldur um hversu hratt sú þróun á eftir að eiga sér stað. Þá horfa menn til margmiðlunar, eða almiðlunar, eins og „multimedia" hefur verið nefnd og sjá ýmis tækifæri opnast með þeirri tækni sem sameinar kyrr- myndir, lifandi myndir, teikningar, hljóð, texta og tónlist og getur vald- ið straumhvörfum í framsetningu efnis fyrir nám, starf og leik. VE Dæmí um kennslufomt Kennsluforrit fyrir nemendur grunnskóla eru yfirleitt þannig uppbyggð að kennslan sameinar nám og leik. Sem dæmi um upjpbyggingu forrits má nefna tölvuforrit um landafræði Islands sem Tölvu- og hugbúnaðarþjónustan hefur unnið að frá 1990 með styrk frá Námsgagnastofnun, þótt ekki hafi verið unnt að fjármagna útgáfu þess. Forritið skíptist í tvo megin- hluta, annars vegar leikinn og hins vegar gagnagrunn. Fyrri hlutinn, sem snýr að nemendum gengur út á það að nemandinn fer í hlutverk „spæjarans“ sem tekur að sér að rekja slóð óprútt- inna aðila sem eru á flótta undan honum. Nemandi fær vísbending- ar um hvert þeir fóru og getur valið úr þremur til fímm mismun- andi stöðum sem sýndir eru á einu korti. Finni hann staðinn sem hin- ir óprúttnu áttu leið um fær hann tilkynningu um það og mynd af staðnum. Nemandi sem finnur réttu staðina þrisvar sinnum í röð, á þá mögúleika á bónus í ævintýraleik sem hann má fara í eftir að hafa leyst verkefnin í landafræðileiknum. Seinni hlutinn forritsins, sem snýr að kennurum, ákveður hvar leikurinn á sér stað og hversu þungar Vísbendingar eru notaðar. Kennari velur sér kort og setur inn á það punktana ásamt upplýsing- um og vísbendingum, en auk aðal- korts er hægt að hafa kort af af- mörkuðum svæðum og láta leikinn berast í ákveðinn landsfjórðung, hrepp, þorp, fjall og þar fram eft- ir götunum. Til dæmis velur kennari heild- arkort af íslandi og setur m.a. punkt þar sem Akranes er. Hann skrifar síðan kynninguna og setur inn mynd af staðnum. Þá velur hann vísbendingar af þyngdarstigi sem hentar aldri nemenda. Ein vísbending gæti verið: Þeir fóru að syngja „Kátir voru karlar" og önnur „þeir fóru til staðar þar sem mikið er framleitt af sementi“VE

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.