Morgunblaðið - 07.05.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1992
C 13
Tölvunám
i Iðnskola
„Það sem gerir nám á tölvu-
braut nokkuð frábrugðið
mörgu öðru er að við sjáum
nemendur farna að nýta sér
það strax á fyrstu önnunum,"
segir Marteinn Sverrisson,
dcildarstjóri tölvubrautar Iðn-
skólans í Reykjavík. Á tölvu-
braut, sem er 3ja ára nám, eru
m.a. kennd undirstöðuatriði í
tölvunotkun, forritun, upp-
bygging tölvukerfa, uppbygg-
ing og notkun fjölnotenda-
stýrikerfa, samskiptabúnaður,
nettengingar og samspil hug-
búnaðar og vélbúnaðar.
Að sögn Marteins hefur þetta
nám verið að þróast í nokk-
uð langan tíma í skólanum og
tekið talsverðum breytingum frá
upphafi. Um helmingur námsefn-
is eru greinar tengdar tölvu-
fræði, en hinn helmingurinn
byggist á almennum greinum.
Fyrstu tvær annimar eru nám í
sameíginlegum kjarna, en að því
loknu skiptist námið í tvær braut-
ir, tölvubraut I, þar sem áherslur
eru meira á notendahugbúnaði
með greinum á borð við bók-
færslu, fjárhag, hugbúnað, mark-
aðsmál, rekstrarhagfræði, stjórn-
un og verslunarrétt. Á tölvubraut
II liggja áherslunar á sviði forrit-
unar og kerfisfræði með greinum
á borð við forritun, kerfisforritun,
tölvutækni, rafeindatækni o.fl.
Nám á tölvubraut er 108 einingar
og þarf 40 til viðbótar í tækni-
stúdentspróf.
Að sögn Marteins er nokkuð
um að nemendur í öðru iðnnámi,
s.s. prenttækni eða rafeindavirkj-
yn, taki til viðbótar tölvufögin,
auk nemenda með stúdentspróf
sem eingöngu taka tOlvufög.
Marteinn segir minna um að
nemendur komi beint að loknu
grunnskólanámi, þótt ekkert sé
því til fyrirstöðu. Nám á tölvu-
braut, sem er 100% lánshæft
nám, var upphaflega hugsað sem
braut til stuðnings nemendum í
námi í öðrum fögum, en þróunin
orðið sú að nú leggja um 200
nemendur stund á tölvunám í
Iðnskólanum í Reykjavík og
kennarar sem einungis sinna
tölvukennslunni eru tíu talsins.
Samningur um tölvukaup Tölvuháskóla VÍ undirritaður. F.v. Þorvarð-
ur Elíasson, skólasljóri, Jón Vignir Karlsson, frkv.slj. Nýherja, Ólaf-
ur Daðason, tölvunarfr. VÍ, Nikulás Hall, Kennslustjóri TVÍ og Gunn-
ar Sigurðsson, kerfisfræðingur VI.
Stórefldur tölvubúnaður
í Tölvuháskóla VÍ og KHÍ
TÖLVUHÁSKÓLI Verslunar-
skóla íslands festi í sl. mánuði
kaup á afkastamikilli tölvu frá
IBM, RISC System/6000 (gerð
340) sem keyrir UNIX stýrikerfi
(AIX) og getur þjónað tugum
notenda samtímis. Þá voru einn-
ig keyptar 24 tölvur af gerðinni
PS/2 með Intel 486 örgjöfum
og hugbúnaður, auk þess sem
AS/400 tölva skólans stækkuðu
verulega. Allar PS/2 tölvurnar
eru með 8MB minni, 160MB
diski og hágæða grafískum lita-
skjám og keyra þær hið nýja
stýrikerfi OS/2 2.0. Vélarnar
eru tengdar saman á neti ásamt
RISC System/6000 tölvunni og
AS/400 tölvunni.
30 kerfisfræðingar árlega
Tölvubúnaðurinn verður notaður
í kennslu nemenda í Tölvuskóla
VÍ og er um að ræða eitt öflug-
asta kennsluumhverfi landsins, en
að sögn Nikulásar Hall, kennslu-
stjóra skólans er markmið námsins
að útskrifa kerfisfræðinga sem
geta unnið við öll stig hugbúnaðar-
gerðar, skipulagt og séð um tölvu-
væðingu fyrirtækja og annast
kennslu og þjálfun starfsfólks.
Tölvuháskóli VÍ hefur útskrifað
kerfisfræðinga frá 1989, árlega
um 30 talsins, og hefur um
þriðjungur þeirra farið til starfa
hjá hugbúnaðarfyrirtækjum,
tæpur helmingur ráðið sig í tölvu-
deildir fyrirtækja, auk þess sem
nemendur frá skólanum hafa starf-
að við kennslu, tölvusölu og farið
í framhaldsnám erlendis.
Kennaraháskólinn í sókn
Tölvukostur Kennaraháskóla ís-
lands hefur tekið stakkaskiptum
sl. vikur, en í tölvustofu skólans
verða nú tíu Macintosh LC 4/80
tölvur með 12“ litaskjá frá Apple
og átta PS/2 4/70 tölvur með VGA
litaskjám, frá IBM. Þá hefur tölv-
um fyrir starfsfólk verið fjölgað
um tuttugu, frá fyrrnefndum fram-
leiðendum.
Kennaraháskólinn hefur einnig
fest kaup á RISC System/6000
220 ásamt öflugri afritunarstöð.
Vélin keyrir á UNIX-stýrikerfi og
verður netstjóri fyrir allar tölvur í
byggingu skólans við Stakkahlíð.
PS og PC vélar tengjast af ether-
neti og Macintosh vélarnar af
phone-neti. Netin tvö verða svo
samtengd með sérstöku tengiboxi.
Þá verður skólinn tengdur Reikni-
stofnun Háskólans um beina línu.
Auk almennra tölvusamskipta um
línuna er gert ráð fyrir að bóka-
safn skólans verði aðili að Gegni,
svo unnt verði að fletta upp í Þjóð-
arbókhlöðusöfnum og safni skól-
ans jöfnum höndum af neti KHÍ.
Þá gerði skólinn nýverið samning
við Apple-umboðið sem miðar að
þróun kennslugagna fyrir tölvur
til nota í íslenskum grunnskólum.
NOTENDAHANDBÆKUR
Allt það nýjasta!
M.a. WINDOWS - DOS - UNIX - EXCEL - PAGEMAKER - CLIPPER - WORD
WORDPERFECT - CORELDRAW - dBASE IV - TURBO PASCAL - C++
Líttu inn og kannaðu úrvalið bók/klfc. /t Údervt ðs.
v/Hringbraut, sími 615961
Söluaðilí á Akureyri: Tölvutæki - Bókval, Furuvellir 5, s. 96-26100.
VUQftDS
KWC
I Stetled trítíi
j Microsoft
! Excel 3
I r»r VVitalmM
KX-T 2386 BE Verð kr. 12.332 stgr.
Sími með slmsvara — Ljós i takkaborði — Útfarandi skila-
boð upp ( Vz mln. — Hver móttekin skilaboð geta verið
upp ( 2Ví mín. — Lesa má inn eigin minnisatriði —
Gefur til kynna að 15 skilaboð hafa verið lesin inn —
Hægt að ákveða hvort símsvarinn svari á 3 eða 5
hringingu — Tónval/púlsval — 15 minni, þar af 3
númer fyrir hraðval — Endurtiringing — Hægt að
geyma viðmælanda — Stillanleg hringing —
Hljóöstillir fyrir hátalara — Veggfesting.
KX-T 2365 E Verð kr. 10.349 stgr.
Skjásfmi, sem sýnir klukku, símanúmer sem val-
ið er, tlmalengd sfmtals — Handfrjáls notkun —
28 beinvalsminni — Endurhringir sjálfkrafa 4
sinnum — Hægt að setja sfmanúmer f skamm-
tlma endurvalsminni — Hægt að geyma við-
mælanda — Tónval — Stillanleg hringing —
Hægt að setja slmanúmer I minni á meðan
talað er — Veggfesting.
HEKLA
LAUGAVEGl 174
S. 695500/695550
PANAFAX UF121
Verð kr. 64.562,- stgr.
Telefaxtæki með 10 númera skammvals-
minni — Allt frá stuttum orðsendingum til
Ijósmynda — Sendir A4 slðu á aðeins 17
sekúndum — í fyrirtækiö — Á heimilið.
KX-T 2322 E
KX-T 2342 E Verð trá kr. 5.680 stgr.
KX-T 2342 E handfrjáls notkun — KX-T 2322 E hálf-
handfrjáls notkun — 26 númera minni, þar af 6
númer fyrir beinval — Endurhringing — Hægt er
að setja slöast valda númer I geymslu til endur-
hringingar, einnig er hægt að setja simanúmer I
skammtlma minni á meðan talað er — Tónval/
púlsval — Hljóðstillir fyrir hátalara — 3 stilling-
ar fyrir hringingu — Veggfesting.
FARSÍMI Veið frá kr. 96.775 stgr.
Panasonic farsíminn er léttur og meöfærilegur,
vegur aðeins 4,9 kg. og er þá rafhlaðan meötalin.
Hægt er að flytja tækið með sér, hvenær og hvert
sem er, en einnig eru ótal möguleikar á að hafa
slmtækið tast I bllnum, bátnum eða sumarbú-
staðnum.