Morgunblaðið - 07.05.1992, Blaðsíða 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAI 1992
OS/2 2.0
Stendur það undir væntingum?
IBM kemur með nýja útgáfu af
OS/2 í kjölfarið á Windows 3.1
Samkeppnin milli IBM og Micro-
soft um notendaskil heldur áfram.
Fyrir einu og hálfu ári slitnaði
upp úr samstarfi þeirra eftir að
Microsoft ákvað að snúa sér alfar-
ið að Microsoft Windows. Það
furðulega við áróðursstríð fyrir-
tækjanna er að þau unnu saman
að þróun á OS/2 og eru með leyf-
issamninga á ýmsa þætti í kerfum
hvors annars. Undanfarna daga
og vikur hef ég haft tækifæri til
að skoða bæði umhverfin. Hér á
eftir mun ég reyna að miðla les-
endum af reynslu minni og nokk-
urra dálkahöfunda í erlendum
tímaritum af OS/2 stýrikerfinu.
að fer ekkert á milli mála
að bæði OS/2 2.0 og
Windows 3.1 eru verðug-
ir þátttakendur í stríðinu
um notendaumhverfi framtíðarinn-
ar. Microsoft hefur raunar þegar
ákveðið að ný útgáfa af Windows
komi innan tíðar, sem muni bæði
koma í staðinn fyrir DOS og
Windows, þ.e. Windows NT. (Fjall-
að er um það annars staðar í blað-
inu.)
Betra Windows en Windows
og betra DOS en DOS
IBM hefur verið stóryrt í áróðri
sínum um OS/2. T.d. hafa þeir
ALLT TIL
NETVÆÐINGA
COMIKA
netstjórar og vinnustöðvar
DATEX
D-Link netkort fyrir PC-, PS-, og EISA-tölvur:
Ethernet 10BASET, 10BASE2, 10BASE5,
ArcNet coax og twisted pair
Token Ring
Twisted Pair
DATEX tengibúnaður fyrir net:
Endurvakar (,,Repeater“), brýr,
hafnir (,,HUB“) og fleira.
FTP og LANsmart hugbúnaður f/net:
Netstýrikerfi, PC/TCP, póstkerfi,
viðaukar við Novell og fleira.
AMP
Tengiefni, kaplar, lok og fleira.
TILBOÐ: Fullkomið net með hugbúnaði,
netkortum og lagnaefni fyrir tvær tölvur frá
kr. 19.290 .- stgr. án VSK.
Tölvusalan HE
SUÐURLANDSBRAUT 20,108 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-813777, MYNDRITI: 91-687495
haldið því fram, að OS/2 sé bctra
Windows en Windows og betra DOS
en DOS . Ég held að það sé algjör
óþarfi að vera með svona saman-
burð. OS/2 sker sig úr á marga
vegu. Það fer ekkert á milli mála
að OS/2 2.0 er tækniundur sem
þolir samanburð við það besta.
OS/2 útgáfa 2.0 er stórt skref
fram á við frá fyrri útgáfu. Þar ber
hæst 32 bita forritunarumhverfi,
sem hvork' Windows eða OS/2 l.x
buðu upp á. Áfram er boðið upp á
fullkomna fjölvinnslu (multitask-
ing) m.a. fyrir biðill/miðill vinnslu.
Stærsta breytingin frá fyrri útgáfu
er líklegast samhæfnin. Mun auð-
veldara er að keyra upp DOS og
boðið er upp á að vinna ýmist í DOS
glugga eða að skipt er alfarið yfir
í DOS umhverfíð. Tæknilega virð-
ast báðir kostir „betra DOS en
DOS“. Hægt er að keyra mörg DOS
forrit í einu, þar sem hvert um sig
hefur aðgang að meira minni en
undir DOS.
Windows útfærslan í OS/2 er
furðu góð. Að vísu saknaði ég þess
að geta ekki sett upp Windows 3.1
í DOSinu, en IBM hefur lofað því
fljótlega. Einnig er Windowsið sjálft
berstrípað af flestum þeim búnaði,
sem fylgir því venjulega, enda mun
betri útfærsla á honum í OS/2
umhverfinu. Þar með er hrundið
fullyrðingunni um „betra Windows
en Windows". Eitt atriði, sem fór
í taugarnar á mér, þegar ég var
að vinna í Windows, var að músin
var mjög hægvirk og uppstökk.
Það er alveg öruggt, að skilyrði
fyrir því að OS/2 2.0 nái einhverri
útbreiðslu, er að hægt sé að keyra
bæði Windows og DOS forrit sam-
hliða OS/2. Þó svo að margir hug-
búnaðarframleiðendur hafi lofað
OS/2 útgáfum af hugbúnaði sínum
er samt langt í land með að sá
hugbúnaður sé tilbúinn og að fjöl-
breytnin verði jafnmikil og fyrir
DOS og Windows.
Stærsta breytingin á OS/2 frá
fyrri útgáfu er notendaskilin. í stað
Presentation Manager er komin
Workplace Shell. Skelin er hlut-
bundið umhverfi í líkingu við það
sem Macintosh notendur eiga að
venjast. Skelin er ekki með vallínu
efst á skjánum, heldur notar maður
hægri músarhnappinn til að kalla
fram valmyndir. Mjög auðvelt er
að vinna í skelinni, þegar búið er
að átta sig á kostum hennar. „Hlut-
ir“ er lausnarorðið, sem allt snýst
um. Skrármeðhöndlun er mjög auð-
veld og raunar virkilega skemmti-
leg. Við fyrstu sýn er OS/2 rós í
hnappagat IBM, en spurningin er
bara hvort það sé ekki of seint.
Markaðurinn er þegar búinn að
snúa sér að Windows og það getur
verið erfitt að skipta yfir.
Kostir og gallar
í nýlegu tölublað af PC Magazine
er ijallað um OS/2 af mönnum, sem
hafa mun meira vit á þessum hlut-
um en ég. Þar er meðal annars lit-
ið á fimm atriði, sem mæla með
því að kaupa OS/2 2.0, og fimm á
móti. Þessi atriði eru:
Fimm atríði með:
Fimm atríði á móti:
1. Enn þá er lítið framboð af not-
endahugbúnaði.
2. UNIX býður þegar upp á 32 bita
fjölvinnsluumhverfi.
3. Ekki er hægt að keyra allan
Windows hugbúnað í OS/2 og hann
vinnur ekki eins vel.
4. Uppsetning kerfísins tekur mikið
pláss og langan tíma (30 MB og 1
klst.).
5. Það eru þijú vinnsluumhverfi í
gangi og erfítt getur verið að fylgj-
ast með hvaða forrit keyrir í hveiju.
OS/2 þarf mikið pláss og öfluga
tölvu. IBM gefur sjálft upp lágmark
386SX örgjörva, 4 MB vinnsluminni
og 60 MB harðan disk. Óháðir sér-
fræðingar segja aftur á móti að 6
MB vinnsluminni sé lágmark og
ekki skemmi að vera með öflugri
tölvu. í minni prófun var ég með
IBM PS/2 Model 90 tölvu (XP486)
með 8 MB minni og 150 MB harð-
an disk. Af þessum 150 MB fara,
að því að mér virðist, um 40 MB
undir kerfið með öllum fylgiforrit-
um, og um 5 MB undir DOS og
Windows. Samanborið við að
Windows uppsetning þarf a.m.k.
15 MB. Minnsta uppsetning á OS/2
mun þurfa 18 MB.
Er OS/2 2.0 fyrir hvern sem
er?
1. Þú ert einn af þeim sem átt fyr-
ir sérhannaðan hugbúnað fyrir
OS/2 og vilt ekki færa hann yfír í
Windows.
2. Þú ert að fara af stað með að
þróa nýjan hugbúnað, sem þarf 32
bita vinnslu og raunverulegt fjöl-
vinnsluumhverfi.
3. Þú þarft hugbúnað, sem krefst
margfaldrar samskiptarásar.
4. Þú kaupir bara IBM búnað.
5. Þú er tilbúinn að kynnast fram-
tíðinni í dag.
Tölvu- og prentaraborð frá
sis
3210
REPflÖ
Kr. 16.230,-
3240
Kr. 20.860,-
3230
Kr. 13.140,-
Tölvuborðin frá SIS eru létt og
meðfærileg á sérlega hagstæðu verði.
Borðin henta jafnt til fyrirtækja,
stofnana og heimila.
Hringið eftir myndalista, eða skoðið
borðin í sýningarsal okkar að
Hesthálsi 2-4,110 Reykjavik.
Við póstsendum samdægurs.
GAMLA KOMPANÍIÐ
KRISTJÁN SIGGEIRSSON
GKS hf., Hesthálsi 2-4
110 Reykjavík. Sími 91-672110
OS/2 2.0 hefur líkt og Windows
3.1 gengið í gegnum víðtækari próf-
anir en fyrri útgáfur. Þessar próf-
anir hafa sýnt að nær hver sem er
getur nýtt sér kerfið. Einnig' var
prófaði IBM kerfið á vélbúnaði frá
öðrum framleiðendum, þannig að
ekki þarf að einskorða sig við IBM
vélbúnað til að geta notað OS/2
2.0. Áhyggjur manna að ekki sé til
hugbúnaður sérstaklega fyrir OS/2
2.0 ættu ekki að vega jafn þungt
eftir að ljóst er að flestur DOS og
Windows hugbúnaður gengur. Ein-
hver fyrirtæki hafa þegar tilkynnt
OS/2 2.0 útfærslur af sínum hug-
búnaði (má þar nefna Borland C++)
og önnur hafa skuldbundið sig til
að gera slíkt hið sama á næstu
mánuðum.
IBM hefur heitið því að þetta sé
það OS/2, sem allir hafa beðið eft-
ir. Fyrirtækið hefur lagt sig fram
við að slípa af galla fyrri útgáfu.
Hvernig því tekst svo að markaðs-
etja vöruna mun framtíðin leiða í
ljós.
OS/2 2.0 verður formlega kynnt
hér á landi síðar í þessum mánuði.
Marinó G. Njálsson,
tölvunarfræðingur.