Morgunblaðið - 07.05.1992, Page 17

Morgunblaðið - 07.05.1992, Page 17
MORGUNBLÁÐIÐ FIMMTL'ÚAGUR 7. MÁÍ 1992 C 17 y///////////////////////////////////////// AFRIT: þriggja vikna hringrás 1. vika Á mánudag er tekið afrit af öll- um gögnum á A-disklinga 2. vika Á mánudag er tekið afrit af öll- um gögnum á B-disklinga 3. vika Á mánudag er tekið afrit af öll- um gögnum á C-disklinga 4. vika Önnur hringrás. Á mánudag er tekið afrit af öll- um gögnum á A-disklinga M M Afrit af viðbótargögnum eru tekin að kvöldi dags ■"X........... -y- •-J m NT W m. m A föstudögum eru afrit vikunnar tekin með heim X B Með því að nofa þrjú sett af disklingum, geisladiskum eða segulbandsspólum má tryggja að alltaf er fyrir hendi afrit af því sem gert var vikuna á undan. Eindregið er mælt með því að afritin séu geymd á öðrum stað en tölvan, helst í eldtraustu hólfi þar sem ekki er hætta á segultruflunum. Allt í steik Það eitt er öruggt að harði diskurinn mun gefa upp öndina; spurningin er einungis hve mikið glatast Einn veigamesti hluti hverrar tölvu er geymslurými hennar, nær alltaf harði diskurinn. Þar á er geymd sú vinna unnin er á tölv- unni, jafnvel margra vikna eða mánaða vinna. Því má svo treysta að fyrr eða síðar mun harði disk- urinn bila, enda einn viðkvæmasti hluti tölvunnar Líklega hafa allir sem vinna á annað borð við tölvur orðið fyrir því að glata einhveijum gögnum. Þó nenna fæstir að hafa fyrir því að taka afrit af harða disknum, þó það geti verið nánast rothögg fyrir lítið fyrirtæki að tapa öllu bókhaldinu eða viðskiptamannaskrám í einu vet- fangi. Helsta regla allra sem vinna við tölvu ætti því að vera að taka afrit reglulega. f þesu yfirliti verður helst fjallað um einmenningstölvur, enda fylgja yfirleitt afritunarforrit og búnaður þegar menn eru að kaupa stærri tölvunet og t.a.m er afritshugbúnað- ur innifalinn í UNIX- og OS/2-stýri- kerfunum og verður í Windows NT, sem koma á á markað með haustinu. Plássleysi ágerist í seinni tíð hafa orðið miklar breyt- ingar í PC-heiminum í átt að grafísk- um notendaskilum, en slík notenda- skil, eins og til að mynda Windows, kalla á mjög aukið rými á harða disknum og þegar við bætast forrit sem keyrð eru undir Windows er rýmið farið að skipta tugum mega- bæta. Tölvusalar segja að 80Mb di- skar séu að verða algengasta lág- markstærð í nýjum tölvum, og sumir halda því fram að 100Mb séu í raun það minnsta sem hægt sé að komast af með. Það vex því eðlilega mörgum í augum að taka afrit á diskettur, því það getur þýtt að allt upp í 90 disklinga þurfi til að taka afrit og ef vel á að vera þarf viðkomandi að hafa undir nálægt 200 disklingum. í PC-heiminum sækja segulbands- stöðvar á, en þær geyma gögn á 8 mm segulbandi og yfirleitt fylgja forrit sem sjá um að taka afrit eftir sem menn vilja, en einnig er hægt að kaupa sérstök afritsforrit. Verð á segulbandsstöðvum er misjafnt eftir framleiðendum og útfærslum, en segja má að hjá fyrirtæki sem þarf að taka afrit af t.a.m. 200Mb viku- lega og svo afrit af daglegum breyt- ingum þarf að kaupa disklinga og hugbúnað fyrir um 50.000—70.000 kr., aukinheldur sem mikill tími fer í að taka afrit og skipta um disklinga fyrir forritið. Skynsamlegt væri því að huga að því að fá sér segulbands- stöð, því þó stofnkostnaður sé nokk- ur, er það fljótt að skila sér í vinnu- sparnaði, öiyggi og disklingaverði. Segulbandsstöðvar sækja á Hjá Tæknivali varð fyrir svörum Kristján A. Óskarsson sölustjóri. Hann sagði fyrirtækið hafa til sölu Norton Backup, sem er ætlað til af- ritatöku og nýtist til að taka afrit á segulbandsstöðvar ekki síður en disklinga. Kristján segir að greinilegt sé að segulbandsstöðvar sæki í sig veðrið, enda hafi verð á þeim lækkað mjög hratt undanfarið. Hann nefnir sem dæmi Mountain-segulbands- stöðvar, sem fyrirtæki hans selur, og segir að fyrir ári hafi 40Mb-stöð kostað í kringum 29.000 kr., en nú fáist stöð á sama verði sem tekur 120Mb. Innifalið í verði er hugbúnað- ur og ein spóla, en spólan stök kost- ar 3.500 kr. Kristján segir að hug- búnaðurinn sé þannig vaxinn að hægt sé að stilla segulbandið inn á það að taka sjálfkrafa afrit, t.a.m. eftir að vinnu er lokið eða um nótt- ina, en hægt er að fá stöðvar sem þessa með allt upp í 2,2 Gb (gíga- bæti = milliarður bæta eða þúsund Mb). Hjá Örtölvutækni varð fyrir svör- um Geir Jón Karlsson sölumaður. Hann sagði fyrirtækið bjóða helst segulbandsstöðvar, enda verð á þeim orðið mjög gott. Ortölvutækni selur Emerald og Everex-segulbönd sem Geir Jón segir t.a.m. nýtast mjög vel fyrir tölvunet. Ódýrasta stöð frá Emerald eða Everex er á um 80.000 kr. Með selgubandsstöðvunum fylgir hugbúnaður til að stýra afritum; þar með talið að tímastilla afrit. Geir Jón sagði þörfina fyrir segulbandsafritun vissulega mismunandi eftir því hve stóra diska menn hefðu, en það kæmi hvað eftir annað fyrir að menn kæmu með tölvur þar sem diskurinn hefði hrunið og ekkert afrit til. Hjá Einari J. Skúlasyni, EJS, varð fyrir svörum Gunnar Þór Friðleifs- son. Hann sagði EJS hafa umboð fyrir Maynard, sem væri merki fyrir fyrirtækjasamsteypuna Archive, Irv- in og Maynard, sem býður allar hlið- ar afritunar undir einum hatti. Gunn- ar sagði samkeppni í tölvuheiminum hafa aukist og verð almennt lækkað; ekki síst á segulbandsstöðvunum. Hann mælti með því að þeir sem á annað borð væru að setja upp tölvu- net eða jafnvel minna kerfí að reyna að fá uppsetningu sem væri sniðin að kerfinu. Hvað varðaði þörfina á afritun þá væri þetta vitanlega spurning um hvað mennn verðlegðu gögnin sem þeir væru að vinna með; .ef menn væru að vinna með bókhald eða umfangsmikinn gagnagrunn væri mjög ódýr trygging að fá sér segulband til afritunar. Fyrir Macintoshunnendur eru fjöl- margar lausnir og þróunin almennt komin allmiklu lengra en fyrir PC- vélar, þó yfirleitt nýtist sama tækni báðum. Þróunin er einna lengst kom- in hvað varðar geisladrif, það er las- erdrif sem skrifa á geisladiska og hafa SyQuest-drif, sem nota geisla- diska, verið vinsæl, en Sveinn Orri Tryggvason hjá Apple-umboðinu sagði að framtíðin lægi að hans mati í nýrri gerð geisladrifa sem skrifuðu á 128Mb 3'/2“ disklinga. Bæði er að diskarnir eru ódýrir, þó þeir taki gríðarmikið af upplýsingum, og svo eru þeir afar handhægir. Sveinn Orri sagði að SyQuest-stöð fyrir 44Mb diska kostaði 68.400, en hver diskur í þá stöð kostaði 10.000. Nýju geislastöðvarnar, sem eiga eftir að lækka hratt í verði að hans mati, sagði Sveinn Orri kosta 167.000, en 128Mb diskur kostar 7.500. Hann sagði að þróun afrita fyrir Macintosh hafi verið geysihraða, enda menn þar snemma áttað sig á mikilvægi þess að geta tekið öryggisafrit, þegar þeir hafa verið að vinna með t.a.m. litmyndir eða íburðarmiklar auglýs- ingar. Hjá Apple-umboðinu fæst for- ritið Retrospect Remoté, sem nýtist til allrar afritunartöku, þar á meðal yfir net, og kostar 34.000. HVERSU TRYGG ERU GÖGNIN ÞÍN? ARCHIVE segulbandsstöðvarnar Núna með „DATA COMPRESSION" allt að 8 Gb. ARCHIVE XL, 120 Mb............Verð m/vsk. kr. 29.731,- ARCHIVE VIPER 150,250 Mb......Verð m/vsk. kr. 83.664,- ARCHIVE VIPER 525,525 Mb......Verð m/vsk. kr. 88.146,- ARCHIVE PYTH0N, DAT, 2,0 Gb...Verð m/vsk. kr. 179.280,- Ef sveigjanleiki, hraði og öryggi er það sem þú leitar eftir í öryggisafritun þá er hugbúnaðurinn frá Cheyenne svarið. ÁRCserve afritar NetWare miðlara, DOS, Windows, OS/2, Machintosh og UNIX útstöðvar á segulbandsstöð tengda NetWare miðlaranum. Verð m/vsk. frá kr. 14.567,- Komdu og kynntu þér lausnir í öryggisafritun sem duga. Frí uppsetning út maí. LANTIMES m íífl iifflW MAGAZINE«*MAGAZINE NETW0RKING X -BQÐEIND SF.- AUSTURSTRÖND 12 170 SELTJARNARNES SlMI 612061 FAX 612081 JE.\-\> „VOICE MAir SÍMSVÖRUNAR- BÚNAÐUR • Sjálfvirkt svörunar- og upplýsingakerfi til tengingar við símkerfi fyrirtækja. • Möguleiki á tengingum við ýmis konar gagnakerfi. • Frábær lausn til að bæta símsvörun. • Símsvörun utan skrifstofutíma. • íslenskur hugbúnaður sniðinn að þínum þörfum. • Símsvari fyrir hvert innanhússnúmer. • Beint samband við deildir og innanhússnúmer. • Veitum ráðgjöf varðandi notkunarmöguleika. PÓSTH0LF 53 270 M0SFELLSBÆ SÍMI: 91-668144 FAX: 91-666241 V

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.