Morgunblaðið - 07.05.1992, Blaðsíða 18
18 C
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1992
Fjölbreytt framboð af
íslenskum hugbúnaði
r■
A 2. þúsund manns starfa við hugbúnaðargerð
ALLMARGIR aðilar vinna við að
skrifa íslenskan hugbúnað fyrir
stór sem smá tölvukerfi og eink-
atölvur. Atján fyrirtæki eru í
Félagi íslenskra iðnrekenda og
milli 20 og 30 eru innan Samtaka
hugbúnaðarfyrirtækja og segir
Friðrik Sigurðsson formaður
samtakanna að talsverð gróska
sé í íslenskri hugbúnaðargerð en
nokkuð á annað þúsund manns
starfa á þessu sviði um þessar
mundir. Eru þá bæði taldir þeir
sem starfa hjá hugbúnaðarfyrir-
tækjunum og tölvunarfræðingar
hjá einstökum fyrirtækjum.
Skipta má íslenskum hug-
búnaði gróflega í tvö
flokka. Annars vegar eru
þeir sem selja svonefndar
pakkalausnir og leggja mesta
áherslu á sölu þeirra og hins vegar
eru aðilar sem búa til sérstakir
lausnir sem eru sérsniðnar fyrir
viðiskiptavininn. Mörg íslensku
hugbúnaðarfyrirtækin falla þó að
einhveiju leyti undir báða þessa
flokka.
Tölvumyndir er dæmi um fyrir-
tæki sem vinnur að hugbúnaðar-
gerð sem sniðin er hveijum við-
skiptavini. Fyrirtækið vinnur t.d.
um þessar mundir að gerð fram-
leiðslustýringar fyrir álverið í
Straumsvík sem er umfangsmíkið
verk og hófst árið 1988. Það er
dæmi um verk sem margir
tölvunarfræðingar sinna en dæmi
um minna verk sem einn maður
getur sinnt er t.d. pantanakerfi
fyrir stangveiðifélög sem fyrirtæk-
ið vinnur einnig að.
A Akureyri starfar Tölvu- og
hugbúnaðarþjónustan sem hefur í
tvö ár verið að þróa bókhaldskerf-
ið Garra og hafa nokkur fyrirtæki
notað það. Hefur það að geyma
fjárhagsbókhald, afstemmingar-
kerfi, viðskiptamannakerfi, sölu-
kerfi, tilboðskerfi og launabókhald
svo nokkuð sé nefnt. Bjarni Einars-
son aðaleigandi fyrirtækisins segir
að allt kapp hafi verið lagt á að
hafa Garra eins einfaldan og
mögulegt var. Einn helsta kost
Gara segir hann vera öflugt
kennslukerfi sem kennir bæði bók-
hald og á bókhaldskerfið Garra.
Annar aðalkostur er sá að notandi
getur fært sig milli kerfa og hægt
er að fara úr einum verklið í annan
án þess að nota valmyndir. Við
útskrift reikninga getur notandi
kallað fram viðskiptamann og séð
hversu mikið hann skuldar. Nægi
þær upplýsingar ekki getur hann
með einni aðgerð séð ailar við-
skiptahreyfingar og haldið síðan
áfram útskrift reikningsins. Segir
Bjarni Garra vera til jafns skrán-
ingar- og upplýsignakerfi. Hand-
bók er fyrir hendi hvar sem er í
kerfinu og einföld hjálparmynd
sýnir helstu aðgerðir í verkliðum.
Tölvumiðstöðin í Reykjavík hef-
ur í 10 ár boðið kerfið TM 2000
sem er alhliða viðskiptahugbúnað-
ur. Sölukerfi, pantanakerfi, brigða-
hald, tollkerfi, afgreiðslu- og laun-
akerfi eru íslensk frumsmíð en
hluti kerfísins hefur verið þýddur
og aðlagaður. Kerfið er bæði fjöl-
nota og fjölverka, þ.e. hægt er að
vera með mörg verk á einum skjá
en einnig nettengja það. Sérstaða
þessa kerfis er dagbókarkerfi sem
því fylgir, þ.e. notendur geta hald-
ið þar dagbók sína og sent póst,
skilaboðo og þ vílíkt milli annarra
notenda kerfisins.
Hugkorn heitir fyrirtæki í
Reykjavík ssem hefur unnið bæði
á almenna sviðinu og tekið að sér
sérverkefni, m.a. mikið fyrir skóla.
Fjárhagskorn heitir fjárhagshug-
búnaðurinn sem er uppistaðan í
starfsemi fyrirtækisins, frekari
þróun og þjónustu við hann. Var
það sett á markað í ársbyijun 1990
og hentar einkum minni fyrirtækj-
um. Fyrir síðustu jól var sett nýj-
ung á markaðinn, heimilisbókhald-
ið Gullkorn sem nota má einnig til
skráningar á bóka-, plötu- eða
myndbandasafni heimilisins. Verið
er nú að endurbæta Gullkorn m.a.
til að geta skráð og reiknað út
stöðu skuldabréfa.
. Þá er ónefnt svið í tölvusam-
skiptum sem snýr að telefaxi eða
myndsendum. Tölvusamskipti heit-
ir fyrirtæki sem hefur hannað
tölvuhugbúnað sem notaður er til
að senda símbréf beint af tölvunni
á myndsendi hjá móttakanda. Bún-
aðurinn heitir Skjáfax og hefur
verið settur á markað hérlendis og
erlendis. Fjórir menn starfa hjá
fyrirtækinu í Reykjavík sem eink-
anlega sinna framleiðslu og fjórir
í Bretlandi og sinna þeir markaðs-
setningu. Skjáfaxi tengist tölvu-
netum og hægt er að senda frá
öllum tölvum netsins til mynd-
sendis móttakanda.
Af öðrum hugbúnaðarhúsum
má nefna Hugbúnað hf. í Kópa-
vogi sem vinnur um þessar mundir
að stóru verkefni fyrir Flugmála-
stjórn og íslenska forritaþróun sem
hefur m.a. viðskiptahugbúnaðinn
Ópus-Allt. íslensk forritaþróun
hefur einnig hannað kerfi fyrir
samskipti milli tölva sem þeir kalla
SMT. Geta menn þá til dæmis
unnið tollskýrslu og sent hana með
einnig aðgerð í tollinn án þess að
þurfa að fara út úr því og yfir í
önnur samskiptakerfi. Þetta kerfi
er nýtt og verður sett á markað
strax og viðurkenning tollyfírvalda
er fengin en við henni er búist í
þessari viku. Þá hafa allmargar
verkfræðistofur sérhæft sig á ýms-
um sviðum hugbúnaðargerðar og
rétt er að nefna Friðrik Skúlason
sem hannað hefur leiðréttingafor-
ritið Púka og fleiri forvitnileg for-
rit.
Háhraðanet Pósts og síma 1991
2.048Klsek
Akureyri
Viðskiptavinur nr. n | 64K-2.048K
\ MÚLASTÖÐ 1 r 2.048K/sek Hvolsvöllur |
f=K
Arbær
Z048Klsek
Z048Klsek
64K-Z048K |
rd
Rauðará
Z048K/sek
2.048K/sek
Landsímahúsið
Viðskiptavinur nr. 1
■
| 64K-2 048K
Viðskiptavinur nr. 2
'~¥ \ —m- T— ——
■k V J— ILLJ m S J m “11
iimMiim imtnifH) » J&ztA i mnMiiu liUllHIM i m =
Háhraðanetið eykur hraða
í samskiptum staðameta
Á síðasta ári hófst tilraunarekstur á háhraðaneti hjá Pósti og
síma en það er ný og bætt þjónusta við staðarnet sem víða eru
fyrir hendi í fyrirtækjum. Helsta krafa notenda staðarneta er
að geta átt sem hröðust samskipti við önnur net, þ.e. að svartími
sé sem stystur. Háhraðanetið var opnað fyrir almcnna notendur
í mars og greiða áskrifendur fast ársfjórðungsgjald óháð því
hversu mikið magn þeir flytja eftir netinu.
Skýrr og Ijármálaráðuneytið
voru fyrstu notendumir sem
tengdust háhraðanetinu og stóðu
prófanir yfir í tvo mánuði áður
en netið var opnað öðrum. Prófan-
ir fóru fram með tveimur sam-
skiptareglum, IPX og AppleTalk.
Háhraðanetið er byggt upp með
svonefndum leiðstjórum og hafa
þeir verið settir upp á nokkrum
stöðum í Reykjavík, Landssíma-
húsinu, Rauðará, Múlastöð og
Árbæ og síðan á Akureyri og
Hvolsvelli. Hver notandi hefur síð-
an leiðstjóra sem tengist í símstöð
næst honum. Póstur og síma leig-
ir notendum þann búnað sem sett-
ur er upp hjá þeim. Mesti flutn-
ingshraði er 2Mb/s og verður
hann síðar aukinn í 34Mb/s og
jafnvel meira í framtíðinni.
Póstur og sími er með fyrstu
aðilurn til að setja upp slíkt há-
hraðanet en það hefur t.d. verið
gert í Svíþjóð og Finnlandi.
Foreldrar! IVemendur!
Tölvuáltugamenn!
Hefur helmilislölvan fcngiö aö kynnast
kcnnsluforrltum Námsgagnastofnunar?
Mörg kennsluforrit eiga fullt erindi
í heimilistölvuna. Þau fást í Skólavörubúðinni
og í mörgum tölvuverslunum.
Kennsluforritin þjálfa stærðfræöi - íslcnsku -
ensku - þrautalausnir o.fl. og henta börnum
og ungmennum á grunnskóla- og
framhaldsskólaaldri.
Flest forritin eru íyrir PC-tölvur.
SKÓLAVÖRUBÚÐirV
Laugavegl 166 - Síml 91-2 80 88
Sölokerfi
á aðeins 20.100 kr.
Víkurhugbúnaður hefur nú markaóssett nýtt
viðskipta-, lager- og sölukerfi fyrir smærri
aðila. Kerfió prentar út nótur, reilcningsyfirlit,
límmiða, útskattskýrslu, verðlista og skulda-
lista svo að eitthvað sé nefnt.
Kerfið er aðeins hægt að fá sem viðbót við
Ráð fjárhagsbókhald, og er því verð fjárhags-
bókhalds, viðskjptamanna-, lager- og sölu-
kerfis aðeins kr. 59.900 með VSK.
Kerfið fæst hjá öllum helstu tölvusölum.
Hringdu og við sendum þér
fritt sýningareintak.
Y VÍKURHUGBÚNAÐUR
Bœjarhraun 20. 220 HafnaifjörSur. Sími: 65 48 70. Telefax: 65 48 72.
" ------------------\
Sérhæfingí viðskipta- ogframleiðslu-
hugbúnaði er vinnur á vogarbúnaði
MAREL hf.
Samhæfður hugbúnaður þar sem
rekstur og framleiðsla vinna saman.
F ramleiðsluhugbúnaður
Matvælaiðnaður Efnaiðnaður
Viðskiptahugbúnaður
Fjárhagsbókhald - Launakerfi - Birgðabókhald
Sölukerfi - Tollakerfi - Viðskiptabókhald
Áætlanakerfi - Innkaupakerfi - Söluáætlun
Pantanakerfi - Sölu- og framleiðsluskýrslur
Hugbúnaður TN er framleiddur í 4G1 gagnagrunn-
inum DataFlex, þar sem þarfir og kröfur vandlát-
ustu notenda eru uppfylltar í hraða, notendaskilum
og rekstraröryggi.
TN. Hugbúnaðargerð í
framleiðsluiðnaði
TÖLVUNÝTING SF.
SKEIFUNNI 3G • 108 REYKjAVÍK • SÍMI 91-689949
V_____________________________________>