Morgunblaðið - 07.05.1992, Page 20

Morgunblaðið - 07.05.1992, Page 20
tölvur FIMMTUDAGUR 7. MAI 1992 WINDOWS NT Næsta skref í þróunmni Nú er réttur mánuður síðan Microsoft kynnti Windows 3.1 með mik- illi viðhöfn á COMDEX tölvusýningunni í vor. Ekkert bendir til þess að forráðamenn fyrirtækisins ætli að láta þar staðar numið. Næsta útgáfa, Windows 4.0, er væntanleg um mitt næsta ár og líka stýrikerf- isútgáfa af forritinu, sem nefnd hefur verið Windows NT (new technology). Raunar er sú nýjung í Windows 3.1 pakkanum, að forrit- ið er sagt vera stýrikerfi. Með þessu er Microsoft bara að staðfesta grun undirritaðs, að Win32 (eldra þróunarnafn á Windows NT) sé ætlað að koma í staðinn fyrir gamla DOSið og fuilkomna þar með færsluna úr stýrikerfi, sem notendur elskuðu að hata, yfir í kerfi sem jafnvel hörðustu gagnrýnendur PC-tölva geta verið ánægðir með. Windows NT er byggt á OS/2 3.0 stýrikerf- inu, sem Microsoft og IBM unnu að í sameiningu áður en slitnaði upp úr fyrir einu og hálfu ári. Það er 32 bita stýrikerfi með Windows um- hverfínu. Því er ætlað að keppa ekki bara við DOS heldur líka OS/2 2.0, UNIX, VMS og PathWorks og mun koma í þremur megin útgáfum. Einni fyrir 386 og 486 örgjörva, annarri fyrir RISC örgjörva og þá þriðju fyrir fjölgjörva tölvur. Reynsluútgáfa af kerfinu er þegar komin í takmarkaða dreifingu, en Microsoft reikna/ með að það fari í sölu fyrir lok þessa árs. Breyttar áherslur Vinnan við Windows NT byijaði hjá Microsoft fyrir þremur árum. Eins og áður segir byggir það á því sem átti að verða OS/2 3.0, 32 bita útgáfa af OS/2. Auðvelt á að vera að setja það upp á mismunandi vél- búnaði eins og RISC tölvum og fjöl- gjörva tölvum, sem kallaði á gjör- breytta uppbyggingu og er það skrif- að í C í stað smalamáls (assembly language). Haustið 1990 tók þróun Windows NT nýja stefnu. Hvorki gekk né rak með sölu OS/2 l.x á sama tíma og Windows 3.0 rokseldist. Það var til þess að IBM og Microsoft hættu samstarfi. Fyrirtækin skiptu OS/2 þróunarvinnunni á milli sín, þannig að IBM tók við OS/2 2.0 (sem fjall- að er um annars staðar í blaðinu), en Microsoft hélt eftir OS/2 3.0. I framhaldi af því ákvað Microsoft að nota ekki Presentation Manager umhverfið, sem notað var í OS/2 Hlutabréf til sölu Af sérstökum ástæðum eru til sölu hlutabréf að nafnvirði kr. 4.547.714,- í hinu ört vaxandi fyrirtæki Tæknivali hf. Söluaðili: Ihlutir hf., sími 91-668144, fax 91-666241. Tæknival hf. er almenningshlutafélag og enginn forkaupsréttur er á hlutabréfunum. VASKHUGI Meira en bókhaldsforrit... Vaskhugi er forrit fyrir þá sem stunda atvinnurekst- ur, öflugt en einfalt í notkun. Vaskhugi sér um sölu, gjöld, viðskiptamenn, félaga og birgðir. Hann er fjárhagsbókhald, ritvél, verk- efnabókhald, vitjunarkerfi, pantanakerfi og margt fleira. Þættirnir vinna sem ein heild. Meðal notenda Vaskhuga eru verktakar, arkitektar, verkstæði, iðnaðarmenn, sendibílstjórar, verkfræð- ingar, heildsölur og starfsmannafélög. Fleiri hundr- uð aðilar um allt land nota Vaskhuga með góðum árangri. Vaskhugi skrifar sölureikninga, gíróseðla, póst- kröfuseðla, víxla og reikningsyfirlit. Hann heldur utan um birgðir og stöðu viðskiptamanna. Tugir gagnlegra skýrslna fyrir rekstur og skatt koma úr kerfinu. Sölusöguskýrslur, til dæmis, svara spurningum eins og „Hver keypti hvaða vöru hvenær?“ og „Hvaða sölumaður seldi hvaða vörur, hverjum og hve- nær?“. Uppgjör vsk og ársins verður leikur einn. Verð á Vaskhuga er sambærilegt við verða á ein- staka þætti í eldri forritum og er þó Vaskhugi hlað- inn nýjungum. Vaskhugi er saminn á íslandi fyrir íslenskar aðstæð- ur. Fáðu frekari upplýsingar hjá okkur eða tölvusöl- um um allt land. VASKHIIGI HF., Grensásvegi 13, 108 Reykjavík, sími 682680. l.x, en nota í staðinn 32 bita Windows umhverfi. Windows NT mun vera með 32 bita kjarna, sem mun ráða við íjöl- gjörva og fjölvinnslu. I þessu um- hverfi verður hægt að keyra 32 bita forrit auk gömlu 16 bita Windows og DOS forritanna. Reiknað er með einhverri OS/2 samhæfni, þó svo að það ráðist bara af veðrinu á ’nveijum tíma. Sagt er að Windows NT eigi mjög margt sameiginlegt með núverandi 16 bita umhverfinu, Windows 3.1. Mesti munurinn er fjölvinnslan. Líkt og OS/2 2.0 forrit, verður hægt að skipta Windows NT forritum upp í mismunandi vinnslurásir, sem keyra samtímis. Myndrænu notendaskilin eru stórlega endurbætt (ef hægt er að gera betur) frá fyrri útgáfum með hjálp þeirrar tækni, sem gerði OS/2 notendaskilin jafn aðlaðandi og þau eru. Aðdáendut' DOSins þurfa ekki að örvænta, því 32 bita forritunarumhverfið mun líka verða til í DOS útgáfunni af Windows, en ekki fyrr en 1993. Sú útgáfa mun þurfa a.m.k. 80386 örgjörva. Microsoft lærir af reynslunni Windows NT er talandi dæmi um það, að Microsoft hefur lært af reynslunni frá OS/2. Það er hægt að biðja menn að skipta úr einu umhverfi í annað, eins og frá DOS yfir í Windows. En að ætla að koma svo nokkrum árum seinna og segja að nú sé Presentation Manager rétta umhverfið, er óraunhæft. IBM er búið að átta sig á þessu með því að gefa notendum kost á að keyra DOS forrit og 16 bita Windows forrit í OS/2 2.0. Windows NT verður að gera slíkt hið sama. IBM hefur forskot á Windows NT. Bæði hefur OS/2 2.0 slitið barns- skónum og er í vaxandi mæli farið að ná athygli notenda. Spurningin er hvort það forskot nægir eða hvort vinsældir Windows 3.0 og Windows 3.1 verði til þess að NT verði ofan á. Kannski verða bæði kerfin til þess að UNIX hverfi. Hver veit? Lokaspurningin er: Hvað verður um DOSið? Nær Windows NT að velta því úr hásætinu þar sem það hefur ríkt og stjórnað undanfarinn áratug. —mgn TOLVUVERK hefur fengið umboð fyrir ^ Motorola RlSC-tölv- J*°I l—jV ur á íslandi, en um er að ræða fjölnot- enda UNIX-tölvur, sem eru byggðar á 88000 RlSC-örgjörvanum og af- kasta frá 38 til 132+ MIPS. Moto- rola hefur lengi framleitt örgjörva, sem m.a. hafa verið notaðir af Apple Machintosh og HP. Tölvuverk mun eiga náið samstarf við Boðeind um lausnir í uppsetn- ingu netkerfa, sem innihalda bæði UNIX- og PC-tölvur. Fyrirtækin halda kynningu dag- ana 11. og 12. maí nk. á UNIX- og PC-lausnum í húsakynnum Boðeind- ar á Austurströnd og kynna m.a. RlSC-vél frá Motorola ásamt UNIX- og PC-hugbúnaði, s.s. Xwindows skjáhermi fyrir MS-Windows og MS-DOS, ásamt hugbúnaði frá Esker, sem gerir UNIX-vél kleift að hafa aðgang að prenturum tengd- um PC-vélum. OLIKT PC-markaðn- um hefur fátt verið . um Macintosh eftir- hermur. Þar kann þó ' " : : ; :—a ag verða breyting á, því á markað eru væntanlegar tölvur frá NuTek og einnig hefur Quorum sent frá sér hugbúnað sem gerir kleift að keyra Makkaforrit í UNIX á RlSC-örgjörva. Ýmis fyrirtæki hafa lýst því að þau muni vinna með Quorum, þeirra helst Sun-tölvufyrir- tækið, Silicon Graphics og hugbún- aðarfyrirtækin Quark og Aldus. // Vaskurinn U „Vaskurinn" er forrit sem heldur utanum viröisaukaskatt, skráir kostnaðarliði og veltu fyrirtækja og einstaklinga með rekstur. Forritið prentar út reikninga og geymir vöruskrá, nöfn viðskiptamanna og viðskipti þeirra yfir árið. a Uatkurlnn * s *B*j MðskipUmenn Prenta reikninga VSrur Prenta vask-yfirlit KostnaDarliOir Slxákostnað Skrá tekjur Prenta reikningalista Prenta nafnalista Sýna VASK-tölur Sýna reikninga Sýna kostnaDarliði Sýna viðskiptamenn Áramót Upplýsingar um fyrirtældð SmtllKi limma 111 >51«ia I vi&omandl *ígeiJ ^■■■^^w■^■Bg^^aB■■B■B^H■■ Með Vaskinum er að prenta út reikninga, auk þess sem færa má inn sölutölur (t.d. eftir kassauppgjöri), en sá möguleiki kemur sér sérstak- lega vel fyrir þá sem nota t.d. handskrifaðar nótur eða eru með löggilta sölukassa. Auk virðisaukaskattsskýrslu er hægt að prenta út nafnalista og lista yfir allar reikninga raðaða eftir viðskiptamönnum. Mögulegt er að skoða veltu og virðisaukaskatt hvers tímabils fyrir sig (hvert tímabil er tveir mánuðir), ásamt því að sjá hverning kostnaður skiptist á hina ýmsu kostnaðarliði. mTTTTTTli 11 TKÞ IT hTTTfffí Útskrift rtíkninga Vikmttvr: Haimilltf.: Páltitil: Kennitalt: ryidi (NSr relknlngur) ___ (Ulðtklptnmenn) ( Uörulistl ) |T^I ( Rellcno ) (Prento relknlng) Samtal*: Afalittur: Upph. rtitnlns: 255P.Q 25.Q.Q.____ /TUOO . . 4426 Komdu og skoðaðu Vaskinn... hann kostaraðeins 7.500,- kr. Apple-umboðið Skipholti 21, sími (91) 624 800

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.