Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992
23
fcj
JÖFUR
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600
Afganistan:
Skilmálum
Hekmaty-
ars hafnað
Kabúl. Reuter.
AHMAD Shah Masood, varnar-
málaráðherra í nýskipaðri ríkis-
stjórn Afganistans, hafnaði í gær
friðarskilmálum Gulbuddins Hek-
matyars leiðtoga skæruliða. Hek-
matyar setti sem skilyrði fyrir
friðarsamkomulagi að Uzbekar og
Tadzhíkar í uppreisnarhernum í
Kabúl yrðu fluttir á brott frá borg-
inni.
Masood sagði að Hekmatyar hefði
ekki lengur burði til að ógna lífi og
limum borgarbúa.
Massod, sem sjálfur er Tadzhíki,
sagði að her fyrrverandi ríkisstjórnar
og uppreisnarherinn ættu þakkir
skilið fyrir að ganga til liðs við muja-
hideen-skæruliða í baráttu þeirra við
að koma ríkisstjórn Najubullah, fyrr-
verandi forseta landsins, frá völdum.
„Það er undarlegt að Hekmatyar
skuli hafna þeim öflum sem áttu
þátt í að hrekja Kabúl-stjórnina frá
völdum og styðja fremur þá sem
stóðu fyrir utan það og bera enn
hugsjónir kommúnismans í bijósti
sér,“ sagði Masood.
Skálafell sf.
DRAUPNtSGÖTU 4
AKUREYRI • SÍMI22255
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
VESTMANNAEYJA HF.
FLÖTUM 27 • VESTMANNA-
EYJUM • SÍM112782
Það verður glæsileg bflalest sem lieldur úr bænum
um helgina. Fremstur og alls staðar í sérllokki fer
Chcrokee, jeppi og glæsivagn. Fast á ltæla hans
konta hinir lipru og kraftmiklu bræður, Peugeot
405, sern er búinn öllum þægindum og öryggi fyrir
eldb'nu umferðarinnar og Peugeot 106, S|)ameytni
bfllinn með stóru kostina. Síðast en ekki síst skal telja
hina rúmgóðu Skoda Favorit og Skoda Fonnan,
kraftinikla bfla sem fara vel á vegi. Komdu við hjá
Skálafelli sf., Draupnisgötu 4, Akureyri, (opið
laugardag og sunnudag kl. 13-17) eða hjá
Bifreiðaverkstæði Vestmannaeyja, Flötum 27,
(opið laugardag kl. 10-17 og sunnudag kl. 13-17)
um helgina. l>ar finnur þú örugglega bfl við þitt hæfi.
Reuter
Krefjast afsagnar forsætisráðherrans
Yfir 150 þúsund manns hundsuðu fyrirmæli tælensku herforingjastjórnarinnar og tóku þátt í mótmælum
gegn stjórninni í Bangkok í gær. Myndin var tekin við þinghúsið sem þúsundir lögreglumanna umkringdu
til þess að hindra að ráðist yrði þar inn. Mótmælendur lýsti stuðningi við Chamlong Srimuand leiðtoga
stjórnarandstöðunnar og krafðist afsagnar nýs forsætisráðherra landsins, herforingjans Suchinda Kraprayoon.
Milosevic, forseti Serbíu:
Serbar eiga að hluta
til sök á átökunum
Helsinki. Reuter.
SLOBODAN Milosevic, forseti
Serbíu, sagði í gær að Serbar
ættu að hluta til sök á átökunum
í Bosníu-Herzegóvinu. Hann
hvatti múslinia, Króata og Serba
til að virða vopnahlé sem komið
hefur verið á í lýðveldinu, en
stríðsátökin þar hafa kostað um
400 manns lífið.
Milosevic vísaði því á bug að Serb-
ar hefðu hrundið átökunum í Bosníu
af stað en sagði að líklegt mætti
telja að Serhar hefðu farið frá serb-
neska lýðveldinu til Bosníu til að
taka þátt í átökunum. Hann hét því
að komið hefði verið í veg fyrir slíka
liðsflutninga frá Serbíu.
Neyðarfundi embættismanna-
nefndar Ráðstefnu um öryggi og
samvinnu í Evrópu, RÖSE, um
hvernig binda eigi enda á átökin í
Bosníu-Herzegóvínu, var frestað í
gær í Helsinki nokkrum mínútum
eftir að hann hófst. Ástæðan var
ósætti um þátttöku júgóslavnesku
nefndarinnar á fundinum. Fulltrúar
Umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna:
Aðildarríki Evrópubandalagsins sam-
ræma afstöðu sína fyrir Ríó-ráðstefnuna
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópubandalagsins leggur þessa dagana
hart að aðildarríkjum bandalagsins að samræma innbyrðis afstöðu
ríkjanna fyrir umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst í
Rio de Janeiro 3. júní.
Framkvæmdastjórnin leggur til
að tekinn verði upp sérstakur skatt-
ur á eldsneyti sem svari til rúmlega
sex hundruð íslenskra króna á
hveija olíutunnu um næstu alda-
mót. Aðildarríkin hafa lýst yfir
stuðningi við markmið tillögunnar
en eru ófús að taka ákvörðun á
meðan ljóst er að hvorki Japanir
né Bandaríkjamenn eru tilbúnir í
sambærilegar aðgerðir. Innan EB
er þegar samþykkt fyrir því að út-
blástursmengun í bandalagsríkjun-
um verði sú sama árið 2000 og hún
var árið 1990.
Framkvæmdastjórnin vill og að
aðildarríkin lýsi yfir stuðningi við
tillögu Brasilíu og Argentínu um
sérstakan olíuskatt, einn banda-
ríkjadal á hveija tunnu, sem notað-
ur yrði til að stuðla að orkuspar-
andi aðgerðum í þróunarríkjum.
Innan EB eru skiptar skoðanir
um þessar tillögur og að sama skapi
eru aðildarríkin ófús að koma til
móts við hugmyndir framkvæmda-
stjórnarinnar um að ná langtíma-
markmiðum Sameinuðu þjóðanna í
þróunaraðstoð, 0,7% af þjóðartekj-
um, fyrir næstu aldamót. Einungis
Hollendingar, Danir og Frakkar
hafa náð þessu markmiði nú þegar.
Að jafnaði eru framlög EB-ríkjanna
0,43% af þjóðartekjum en saman-
lögð framlög Evrópubandalagsins
eru um það bil helmingur allra
styrkja sem veittir eru þróunarríkj-
um í heiminum. Framlög Islendinga
til þróunaraðstoðar eru nálægt
0,06% af þjóðartekjum eða innan
við 10% af settu markmiði Samein-
Bandaríkjanna hafa lagt til að full-
trúar Serba verði útilokaðir frá fund-
um embættismannaefndarinnar þar
til almennt samkomulag hefur tekist
um þátttöku þeirra.
uðu þjóðanna.
Carlo Ripa di Meana sem fer
með umhverfis- og þróunarmál inn-
an framkvæmdastjórnarinnar hefur
vísað málamiðlun Sameinuðu þjóð-
anna, sem leggja á fyrir ráðstefn-
una í Ríó, á bug með þeim orðum
að hún sé útþynningur til að þókn-
ast Bandaríkjamönnum og ekki lík-
leg til annars en að stuðla að átök-
um á milli norður- og suður-þjóða
á ráðstefnunni.
Florídabúar
ekki upp-
vægir yfir
afrekum
Columbusar
Florída. Frá Atla Steinarssyni, frétt-
aritara Morgunbladsins.
ÞO þess sé nú víða minnst að
Columbus hafi fundið Amer-
íku fyrir 500 árum halda
Floridabúar ró sinni fullkom-
lega. Eitt atriði hátiðahald-
anna af mörgum, sem gefa
átti „peninga í kassann" var
að Florídabúum var gefinn
kostur á að kaupa sérstakar
bílnúmeraplötur fyrir 15 doll-
ara eða um 900 krónur.
Á bílnúmeraplötunni er
Florída kallað „Fimm alda ríkið“
en í Florída stigu Spánveijar
fyrst á land sem nú er banda-
rískt , þó Columbus sjálfur stigi
aldrei fæti á meginland Banda-
ríkjanna.
Aðeins 2000 bílnúmeraplötur
hafa selst. Til samanburðar hafa
yfir 100 þúsund bílnúmeraplötur
selst í fjáröflun til að forða út-
rýmingu sækúa og 20 þúsund
plötur til að afla fjár í friðunar-
sjóð pardusdýra í Florída.
Ágóðanum af plötunum verð-
ur varið til að standa undir
kostnaði við menningarleg há-
tíðahöld til að minnast afreka
Columbusar.