Morgunblaðið - 08.05.1992, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992
43
SÍMI 320 75
IUIITT EIGIÐIDAHO
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11.- Bönnuð innan 16 ára.
*** „Sjaldgæflega hreinskilin lýsing á lxfi ungra
manna sem selja blíðu sína. Persónulegt verk um dap-
urlega einstæðingskennd í ömurlegri veröld" - Mbl.
EFTIR LEIKSTJÓRA „DRUGSTORE COWBOY“
pSSSSx
keanu
reeves
VÍGHÖFÐI
Stórmyndin með Robert De Niro
og Nick Nolte.
Sýnd í B-sal
kl. 5, 8.50 og 11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
HETJUR
HÁLOFTANNA
Fjörug og skemmtileg mynd
um leikara sem þarf að læra
þotuflug.
Sýnd í C-sal
kl. 5, 7, 9 og 11.
Metsölublaó á hverjum degi!
Banvæn barnagæla
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Höndin sem vöggunni
ruggar („The Hand that
Rocks the Cradle“). Sýnd
í Bíóborginni. Leikstjóri:
Curtis Hanson. Handrit:
Amanda Silver. Aðalhlut-
verk: Rebecca De-
Mornay, Annabella Sci-
orra, Matt McCoy, Ernie
Hudson, Julianne Moore.
Hollywood Pictures.
1992.
í hinni bráðgóðu og
bragðmiklu spennumynd,
Hendinni sem vöggunni
ruggar, er illinginn kona
sem glatað hefur draumn-
um um venjulegt fjölskyld-
ulíf og barneignir og hefnir
sín á þeim sem henni finnst
að beri ábyrgðina. Það er
einkar ástrík og samheldin
íjölskylda en konan sest að
á heimili hennar sem barn-
fóstra undir fölsku flaggi
og tekur að myrða hægt
og örugglega fjölskyldulífið
innan frá. Hún er einhver
óvenjulegasti illingi
spennumyndanna því glæp-
urinn sem hún ætlar að
fremja er að ræna hús-
móðurina heimilislífinu.
„Höndin" er mjög fag-
mannlega gerð sálfræðileg
spennumynd undir áhrifa-
ríkri leikstjórn Curtis Hans-
ons eftir frábæru handriti
Amöndu Silver. í upphafs-
kaflanum er lagður grunn-
ur að sögunni: Kynsjúkdó-
malæknir fremur sjálfs-
morð eftir að húsmóðirin í
áðurnefndri fjölskyldu kær-
ir hann fyrir kynferðislega
áreitni. Við fréttirnar miss-
ir eiginkona læknisins fóst-
ur og allar eignir þeirra í
lagaþjarki svo hún stendur
uppi slypp og snauð. Hún
ræður sig 'undir dulnefni
sem barnfóstra á heimili
konunnar og þar hefst sag-
an í raun fyrir alvöru.
Eiginkonan telur sig eiga
harma að hefna en það sem
rekur hana einnig áfram
er nánast dýrsleg þrá eftir
hinu fullkomna fjölskyldu-
lífi; hún berar tennurnar
oftar en einu sinni eins og
í vörn fyrir sínar illu fyrir-
ætlanir. Þetta er ein af
þessum myndum sem mað-
ur vill sífellt hrópa á fólkið
að vara sig; fóstran setur
á sig unaðslega falska
grímu, verður trúnaðarvin-
ur húsmóðurinnar en gerir
eldra barnið hennar afhuga
henni og sáir grunsemdum
í samband hjónanna, læðist
á nóttunni og gefur unga-
barni þeirra bijóst og geng-
ur þannig frá málum að
húsmóðirin verður sífellt
örvinglaðri.
Rebecca DeMornay er
stórkostleg í hlutverki
barnfóstrunnar hefni-
gjörnu. Beitt eins og rak-
vélarblað fer hún um húsið
og sker pínulítil sár í fjöl-
skylduna. Hún er falski vin-
urinn með hlýja viðmótið,
fláræðið uppmálað, og hún
er óhugnarlegur morðingi
þegar brestur í ráðabrugg-
inu. DeMornay tekur hlut-
verkið tröllatökum með
þvinguðu rólyndi, sem felur
hefnigirnina sem undir
kraumar, og svipbrigðum
sem lýsa fullkominni bijál-
semi. Sciorra er einnig
mjög góð sem húsmóðirin,
auðveld bráð því hún veit
ekki betur, asmasjúklingur
sem nær ekki andanum
þegar á bjátar en ver ríki
sitt af harðfylgi.
Hanson, sem gert hefur
ágætar spennumyndir áður
(„The Bedroom Window“,
„Bad Influence"), er orðinn
fremstur í flokki þeirra sem
haldið geta uppi góðri sál-
fræðilegri spennu. Líkt og
í „Bad Influence“ skapar
hann óhugnanlegt and-
rúmsloft í kringum leik
kattarins að músinni,
falska vináttu og stjórn-
lausa illsku og slakar aldrei
á klónni. Hann hefur gert
mjög góða spennumynd
sem á auðvelt með að halda
manni á sætisbrúninni þeg-
ar fram í sækir.
Eitt verka Tuma.
Sýnir í Ný-
listasafninu
OPNUÐ verður sýning á
málverkum og teikningum
eftir Tuma Magnússon í
Nýlistasafninu, Vatnsstíg
3b, laugardaginn 9. maí
kl. 16.
Sýningin er opin daglega
frá kl. 14-18 fram til 24.
maí. Tumi sýndi fyrst í Ás-
mundarsal árið 1978.
Sýning í
skotfimi
SKOTSÝNING verður
haldin á Kópavogsvelli í
Kópavogsdal Iaugardag-
inn 9. maí kl. 16.00.
Sýningarskyttan John
Satterwhite frá Bandaríkj-
unum kemur hingað á veg-
um Veiðihússins með milli-
göngu Benelli-haglabyssu-
framleiðandanna. Mun hann
sýna listir og hittni með
Benelli-haglabyssum. Sýn-
ingin hefst með veiðihunda-
sýningu í umsjón Ásgeirs
Heiðars.
Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
&
John Satterwhite
Stórkostleg mynd með framúrskarandi
leikurum. Paul Newman hefur tvisvar
fengið Óskarinn eftirsótta og sex sinnum
að auki verið útnefndur til þeirra verð-
launa. Hér er á ferðinni mynd sem þú mátt
ekki láta fram hjá þér fara. Myndin hefur
hvarvetna fengið frábæra dóma.
Aðalhlutverk: Paul Xewman og Joanne
Woodward. Leikstjóri: James Ivory (A Room
With a View.
Sýnd kl. 5,9 og 11.15.
LETTLYNDA
RÓSA
Sýnd kl. 5,7,9
og 11.
UPPALIFOGDAUÐA
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð i. 16ára.
KOLSTAKKUR
Sýnd kl. 5,7,9og11.
Bönnuði. 16ára.
HOMOFABER
★ ★★★ Helgarbl.
Sýnd kl. 7 og 11.
FREEJACK
Sýnd kl. 5,7,9og 11.
Bönnuðinnan16.
REGNBOGINN SÍMI: 19000
Matsölu- og skemmtistaður
Kringlan 4
CALIFORNIA cuisine
GESTUR: T* ggj
MA TREIÐSL UMEIS TARINN UJK.
LISA STALVEY 0$
J'ni ve iI ingah úsin u Spago
Um helgina
JASS OG DINNER
Jasscombó Sigurdar Flosasonar
Ellen Kristjáns föstudagskvöld
Richard Boon laugardagskvöld
Borðapantnir í síma 689686
Dimmalimm í Gerðubergi
FÉLAGIÐ Augnablik sýnir
barnaleikrit um Dimma-
Iimm í menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi laugardag-
inn 9. maí kl. 16.
Leiksýningin er unnin upp
úr sögunni um Dimmalimm
eftir Guðmund Thorsteinsson
(Mugg). Þetta er saga um litla
prinsessu sem heimsækir
svaninn sinn á hveijum degi
í heilt ár og leysir hann þann-
ig úr álögum með góðvild
sinni og hugrekki.
Tónlistin er eftir Atla
Heimi Sveinsson sem hann
samdi fyrir uppsetningu Þjóð-
leikhússins á Dimmalimm árið
1970.
Leikarar í sýningunni eru
þrír: Ásta Arnardóttir, Björn
Ingi Hilmarsson og Harpa
Arnardóttir og flautuleikari
er Kristín Guðmundsdóttir.
Björg Vilhjálmsdóttir mynd-
iistarmaður gerði leikmynd
sýningarinnar. Verð að-
göngumiða er 400 krónur.