Morgunblaðið - 08.05.1992, Qupperneq 1
VIKUNA 9. — 15. MAI
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1992
BLAÐ
Hvert verður svar
dómnefndanna við íslenska
laginu Nei eða já?
Stöð 2:
Gusu-
gangur
FYRRI mynd Stöðvar 2
laugardagskvöldið 9. maí
kl. 21.45 er Disney-mynd-
in Gusugangur eða Splash
frá 1984 og segir frá
bandarískum heildsala
sem er í sumarfríi. Hann
verður yfir sig ástfanginn
og konan í draumum hans
er með Ijóst sítt hár, dökk
augu, yndislegt bros og
heillandi sporð! Eins og
menn rennur grun í er hér
um smellna gamanmynd
að ræða og leikur Daryl
Hannah hafmeyjuna af
hreinni list, en hún lék í
myndinni Ruglukollar eða
Crazy People, sem nýlega
var sýnd á Stöð 2. Tom
Hanks leikur heildsalann
og John Candy fer einnig
með stórt hlutverk. Leik-
stjóri myndarinnar er Ron
Howard, en hann hefur
m.a. leikstýrt myndunum
Night Shift og Parent-
hood. Kvikmyndahandbók
Maltin's gefur ★★★ og
Myndbandahandbókin
gefur ★ ★'/2.
Tom Hanks horfir djúpt
í augu hafmeyjar sinn-
ar, sem leikin er af
Daryl Hannah.
Sjónvarpið:
SONGVAKEPPNIN
- úrslitin ráðast á morgun, laugardag
ÞRÍTUGASTA og sjöunda söngvakeppni
sjónvarpsstöðva í Evrópu verður haldin í
Málmey í Svíþjóð á morgun, laugardaginn
9. maí. Keppnin hefst kl. 19.00 að íslenskum
tíma og verður hún sýnd í beinni útsendingu
í Sjónvarpinu. Fyrir íslands hönd mætir
hljómsveitin Stjórnin, með söngkonurnar
Sigríði Beinteinsdóttur og Sigrúnu Evu Ár-
mannsdóttur í broddi fylkingar, og flytur
lagið Nei eða já eftir Friðrik Karlsson, Grét-
ar Örvarsson og Stefán Hilmarsson.
Fulltrúar 23 þjóða koma saman í skauta-
höllinni í Málmey og hefur fjöldi þátttakenda
aldrei verið meiri. Áhorfendur í skautahöll-
inni geta orðið 3.700, en um 250 manns
vinna við keppnina. Sænska sjónvarpið sér
um að mynda keppnina og notar meðal
annars til þess 12 myndatökuvélar, þar af
10 á sviðinu. Einnig er notast við 3 krana,
100 hljóðnema og 58 sjónvarpsskjái, svo
eitthvað sé nefnt.
Á fjórða tug (slendinga verða í Málmey
vegna keppninnar, m.a. Arni Snævarr frétta-
maður, sem sér um lýsingu.
í íslensku dómnefndinni eru 16 manns,
sem valdir voru samkvæmt þeim reglum
sem um keppnina gilda. Ekki má gefa upp
hverjir sitja í nefninni fyrr en á sjálfan keppn-
isdaginn, en vitað er að helmingur fulltrú-
anna starfar á sviði tónlistar og að jafnrétt-
is er gætt hvað varðar aldur og kyn. Dóm-
nefndirnar taka til starfa snemma á laugar-
deginum þegar aðalæfing og tilrauna-
útsending fer fram, þannig að frammistaða
keppendanna þá gildir að einhverju leyti líka.
Lagið Nei eða já kemur út á geisladiski
í íslenskri og enskri útgáfu á morgun, laugar-
dag. Enska heiti lagsins er Heart 2 Heart.
Alþjóðlegur aðdáendaklúbbur
í tengslum við söngvakáppnina starfar
alþjóðlegur aðdáendaklúbbur, sem nefnist
Organisation Générale des Amateur d’Euro-
vision (OGAE). Morgunblaðinu hefur borist
bréf frá Leif Thorsson forsvarsmanni
sænska klúbbsins, en OGAE er með útibú
í 16 löndum. Segir í bréfinu, að klúbburinn
hafi verið stofnaður 1984 og að gefið sé
út fréttabréf fimm sinnum á ári. Ennfremur
er bent á að hafi íslendingar áhuga á að
gerast félagar, fá frekari upplýsingar eða
stofna útibú geti þeir skrifað til:
OGAE-SWEDEN
c/o Leif Thorsson
Torvalla 2436
S-831 92 Östersund, Sweden
Bíóin í borginiý bls. 4
Rás 1:
RúRek ’92
DJASSHÁTÍÐ Ríkisútvarpsins, Reykjavíkurborgar og djass-
deildar Félags íslenskra hljómlistarmanna (RúRek) verður
haldin í annað sinn dagana 9.-16. maí. Hátíðin hefst kl.
17.00 laugardaginn 9. maí með beinni útsendingu úrTjarnar-
sal Ráðhússins í Reykjavík. Aðalgesturtónleikanna er Banda-
ríkjamaðurinn Richard Boone.
Andrea Gylfadóttir, Carl Möller, Gunnar Hrafnsson og
Guðmundur Steingrímsson munu einnig leika og syngja við
setningu djasshátíðarinnar.
Richard Boone hóf feril sinn sem söngvari í kirkjukór fimm
ára gamall og tólf ára var hann farinn að blása í básúnu.
Hann sló í gegn með Count Basie-bandinu, en hin síðari ár
hefur hann verið búsettur í Danmörku.
Tónleikar verða alla daga vikunnar og má sérstaklega
benda á að frá og með mánudagskvöldi verða á hverju kvöldi
leiknar kl. 0.10 hljóðritanir frá tónleikum ásamt hljóðritunum
frá fyrri djasshátíðum Útvarpsins.
Miðvikudagskvöldið 13. maí kl. 0.10 verður m.a. útvarpað
samleik Dana og íslendinga. Sigurður Flosason og danski
gítarleikarinn Karsten Houmark léku saman á djasshátíð í
Færeyjum fyrir nokkrum árum. Hér endurnýja þeir kynni sín
og með þeim leika Kjartan Valdimarsson á píanó, Torben
Westergaard á bassa, Soren Frost á trommur og Andrea
Gylfadóttir syngur.
Föstudagskvöldið 15. maí kl. 0.10 leikur íslenska „útlend-
ingaherdeildin" í djassi. Þetta eru þrír kunnir íslendingar,
sem búsettir eru erlendis: Árni Egilsson bassaleikari, Jón
Páll Bjarnason gítarleikari og Pétur Östlund trommari. Með
þeim leika gamlir félagar, Árni Scheving víbrafónleikari og
Þórarinn Ólafsson píanisti. Jón Páll og Pétur hafa heimsótt
ísland af og til, en Árni lék hér síðast á Listahátíð 1974
ásamt André Previn, Cleo Laine og Johnny Dankworth.
í Sjónvarpinu verður sýnt frá setningarhátíðinni sunnu-
daginn 10. maí kl. 17.20. Auk þess verða kynningarþættir
kl. 20.35 næstkomandi miðvikudag, “ fimmtudag
og föstudag.
Pétur Östlund
trommari er einn
gesta hátíðarinnar.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Útvarpsdagskrá bls. 2-8 V j.
Myndbönd bls. 5