Alþýðublaðið - 22.02.1933, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 22.02.1933, Blaðsíða 2
2 ALÞ ^ÐUBLAÐID / Kleppsmálið. At!irag$aseiii<lir og skýriragar. í Læknablaðinu var fyrir nokkru síðan birt árásargrein á mig sem embættismann fyrir afskifti mín af hinu svo nefnda Kleppsmáli. Fyrra sunnudag var greinin prentuð upp í Morgunblaðinu. Ég sendi Lækna- blaðinu neðanritað svar og Morgun- blaðinu samrit af því til birtingar, með þeim ummælum, að þó að ég teldi, að þessar umræður hefðu bet- ur farið fram að eins í Læknablað- inu, kæmist ég nú ekki hjá að biðja það fyrir svarið, þar sem það hefði tekið upp árásargreinina, og, að 'ég gerði ráð fyrir, með vitund og vilja höfundanna. Ritstjóri Morg- unblaðsins (V. St.) lofaði þegar að birta sv'arið og virtist telja sjálf- sagt. Dró það þó í viku og svaraði vífiiengjum, er að var spurt, hverju sætti. I dag þurfti ritstjórinn að bera sig saman við einhvern eða einhverja, áður en hann segði tij. hvenær svarið yrði birt. Og að því búnu skrifar hann mér: „Við birtum ekki greinina í Morgunblaðinu fvr en hún er komin út í Læknablað- inu“. Þá síma ég til Læknablaðsins og spyr, hvenær greinin komi þar. Svar: „Aldrei. Blaðið getur ekki birt greinina af því, að í henni erv læknar bornir saman við veður- fræðinga!“ Ég verð því að biðja Alþýðublað- ið fyrir þessa grein mína, í þvi trausti, að veðurfræðingar séu þar ekki útaf eins illa séðir. 20/2 1933. -Qt af gíeim iæknanna Valtýs Al- bert-Ssonar og Árna Péturssonar, sam birt var í síðiasta tölublaði Læknablað'sins og er um afskiíti min sem embættisimanns af Kilepps-málinii svo nefnda, þykir mér hlýða að biðja blaðáð fyrir el tirfaremdi athugasemdir og skýr- ingar: 1. Ég pyki hafa gert of lítið úr sénmentuninni I pessu sambandi. Og víða í blöðum hefir mólió verið flutt á pann hátt, sem ann- axs vegar hafi verið um að ræða sérfræðing, er ég hafi viljað hafna, en hinis vegar gersamiega ófróðan mann. Er læknarnir bera nú saman þá Helga Tómasson og Lárus Jónsson, láta þieár mjög liggja að binu sama. En \meö allri virðinigu fyrir iærdómi: Helga Tómasso'nar má ekki gleyma pví, að Lárus Jónsson er líka ekki eitaungis fullgiidur læknir, útskrif- aður úr Háiskólanum með góðri og giidri 2. einkunn (Helgi Tóm- asson fékk heklur ekki nema 2. oinkunn), he dur star'aði ha,nn síð- an á geðveikrahæliuim erlendis uxn tveggja ám tíma. Kemst „skyn- samiur læknir“ ekki hjá að hafa af því nokkurn sérlærdóm. Nú fór tillaga mín til ráðuni&ytisiins samt isem áðWr í þá átt, að Lárns Jóns- sou væri lá-tinm víkja — að vísu á!n allra ósfcapa og beiimskuCegs fyrdrgangs — og prófessor Þórði Sveiinssym falin forstaða alls sjúkrahússóns. Hann er, eins og kuinnugt er, læknir, sem hefir gert geðveikr.alækningar að lífsstarfi sín,u og stunclað þær hátt upp í mannsaldur. Að halda því fram, að hamn hafi ekki sérkunnáttu í þessari gœin, er að gefia í skyn, að hér sé um að ræða einhverja þá töfra, sem éngum nema út- völdum sé auðið aó hafa hendur á. Eða hafa þeir Matthías Einars- son, Jón Hj. Sigurðsson og Sig- urður Magnússon ekki sérkunn- ölttu’ í sinum greiinum, þó að þeir haíi ekki verið svo og svo lengi uindirlæknar á sjúkrahúsum að loknu prófi, og þó að þeir hafi ekká skrifað doktorsritgerðir? Ég ætla, að hér með sé sýnt,' að ég hafi ekki gert sjúklingunum á Kleppi það tilræði, að vdílja svifta þá ölkt sérfræðingseftirliti og meðferð. 2. Ég hefi aldrei haldið því fram, a'ð lækningatilraunir vi'ð geðveika sjúklinga hefðu cm/a, þýðingu. Ég hefi sagt, a'ð þær myndu „ijfMeitt ekki háfa ýkja- miikið gildi fyrir þá“, og væri. Jiöfiidatriðið að hjúkra þeim með nákvæmni“. Ég færði þessi almennu sannindi fram við rá’öu- neytdð á móti þeirri almennu hjá- txú um gíldi lyfjanotkunar og leyndardómsfullxa læknisaðgerða, seim svo mjög er ríkjandi, og því miður ekki að eins um geð- veikralækningar, heldur lælming- ar yfirleitt. Með aíllri hógværð verðum við læknar að játa, að gagnvart 9/10 allra sjúkdóma stöndum við eins og veðurfræðingarnjr gagnvart veðrinuu Þeir segja hvar lægðin er og hverrar áttar er von, en færa ekki til lægðina og breyta ekki áttinni. En eins og veður- fræðingarnir séu ekki miklix þarfamenn fyrár því. Ég á að taka vonir frá fjölda óhamingjusamra manna með því að segja frá þessm En hver er vonlaus um að veörið batni, þó að Veðurstofan láti ekki meðul vdð þvi? Ég er sannfærður urn — og veit það af reynd — að flieiri eru óhamingjusamir fyrir að trúa því, að enginin sjúkdómur geti batnað nema hann sé lcekn- ísðíir, heldur en. vera þyrfti, ef þau sannindi væru gerð almenn, að hin trylta leit að hinum eina ilækni og réttc\ lyfi er langoftast þýðingarlaus, og að flestir sjúk- dóimar, sem á annað borð batna, batna áln allra kraftaverka, á svipaðan hátt og vont veður snýst í gott. Ég er ekki fróður um geðsjúkdóma, en ég ætla, að þeir séu sízt undiantiekning fiá öðr- um sjúkdómum að þessu leyti. Þýzkir læknar henda á milli sín. þessari fjarstæðiu: Diie Mediziner wissen et\Vas, können aber nichts. Ðie Chirur.gen wissen nichts, können aber etwas. Die Psychiat- ren wissen nichts und können nichts. (Lyflæknar vita dálítið en geta ekkert. Handlæknar vita ekk- ert en geta dálítið. Géðveikra- læknar vita ekkert og geta ekk- ] ert), Þó að fjarstæða sé, ætla >ég, að í nokkur sannindi skíni á bak við hana og í þá átt, að öllum okkur læknum beri að gæta nokkurrar hógværðar og forðast oflæti — og að geðveikxalæknar megi þar vel vera með í iðkun lítilJætisins. 3. Með ummælum mí'num um, að alið hafi verið á framan- greindri hjátrú al'mennings., að þvi er gieðveikra'lækningar snertir, á1 ég við hinar endalausu skrum- greinar blaðanna um Helga Tóm- asson og afrek hans. Hann er útskrifaður ímeð ágætiseinkuun! Hann er frægur um alla Evrópu, ef ekki állan heim! Enginn geð- veikur sjúkHngur getur átt von á bata hér á landi án hans hjálp- ar! (Jafnvel Guð getur nú ekki lengur hjálpað!) O. s, frv., o. s. frv., blað eftir blað, á.r eftir ár. Og að alið hafi verið á þessu „jafnvel af þeim, er sízt skyldi", ber að skilja svo, að læknar og Læknafélagið hafa látið þetta af- skiftalaust — og gera enn, jafn- vel eftir að þáð varðar við lög að ski'fta sér ekki af því. Þvert á móti hafa iæknar stutt að þessu ógeðslega sknumi með ýmsum skrifum og siamþyktum. 4. Þegar réttvísin þarf að láta rannsaka menn, siem hún grunar um geðveiki, er hún engan veg- inn buindin við að láta þá rann- sókn fara fram á Kleppi. En það, að læknarnir minna á þetta, gef- UiT mér tilefni til að segja það, sem fyrir lömgu hefði útt aö vem sagt gf lœknt, — en fremur af öðxum en mér — helzt af Lækna- félaginu eða fleiri eða færri meö- limum þess: Helga Tómassyni hefir einmitt orðið á óheijrð lœknisyfirsjón í þessuin efnum og á þess vegna — að sérmientuniinni frátalinná — skilið allTa lækna minsta tiltrú, þegar um slíka úrskurðá er að raeða. Hann hefir lýst mann geð- veákan án þess að hafa haft hann til rannsóknar. En allar læknis- yfMýsingar að órannsökuðu máli varða nú við landslög með fuláu samþykki Læknafélagsins, og þó að urn þýðingarminni yfirlýsing- ar sé að ræða en að úrskurða menn geðveika. Og slík yfirsjón vexðnr siðferðilega þvi þyngri og óafsakanlegii, sem sérmentunin er meiri. Helgi Tómasson hefir síð- an Ieitast við að gera opinberlega nokkra grein fyrir ástæðum sín- um, en á þann hátt, sem enginn læknix getur tekið gilt. Og það, sem mieina er, þó að hann hefði haft fullar sannanir fyrir máii sínu, var framkoma hans í þessu sambandi sú, sem lækni var með öllu ósamboðin, og verður með engu móti réttlætt, hvorki út frá almennum og viðurkendum siða- regiluim lækna né beilbrúigðri skyn- semi. Mér er ánægja að taka það fram, að þrátt fyrir aila póli- tík, sem frá öndverðu hefír veriö nærri óaðskiJjanleg þessiu máli, eru læknar yfirleitt svo óblind- aðilr, að allir hinir mörgu þeirra, sem ég hefi rætt máliö við, mega heita hafa verið á einu máli um, að áminst framkoma Helga Tóm- assonar sem læknis hafi veriö fyrir ueðan allar hellur, og bók- staflega enginn viljað réttlætu hana með einu orði. Ég hefi einn- ig borið málið undir erlendan sér- fræðing, ge'öveikralækni, sem jafnframt er doktor í lögum, og er úrskurður hans alveg emdnégið á sömu leið. Það mun vera hið margniefnda „si'ðleysi' kun nings ska paráns í litlu stéttarfélagi, sem á sök á því, að Læknafélagið hefir ekki krafið þenna meðlim sinn til reiknin,gsskapar fyrir þettadæma- lau&a athæfi, en ekki algert skyn- leysi á réttu og röngu — og mun það ef ti!l vill verða því tii nokk- urrar réttlætingar þegar siöari tímar feiia sína dóma. Og þó er réttlætingin vafasöm. Á heilu stéttarféiiagi Lækna og hverjum einstökum lækni, sem eitthvað kveðiuir að, hvíiir mikil ábyrgð, að stimpla ekki slíka læknisftam- koim'u góða og gilda fyrir allB framtíð, og er engu betra ,að gera það mieð þögninni en opin- berri samþykt, nemai síður sé. Því að „þau eru verst hin þöglu svik, að þegja við öllu röngu“. 5. Ég er en’ginm máisvari Lár- usar Jónssonar, og fer því fjarrí. Og sízt réttlæti ég það, ef hann hefir svikið félagsskap sinn. En eins og meðlimir í félagi geta ekki ætiast til, að félagið taki jieim fraim, getur ekkert félag ætl- ast til, að hver einstalmr með- hmur sé betri en það sjálft. Og mér er spunn: Hefir Lárus Jóns- son brotið meira gegn félaginu en félagið á ýmsan hátt gegni sjáifu sér, og meðal annars með' því að elta Lárus Jónsson með hvers konar óhróðri, þvert ofan í sínar eigin siðaregiur, sem það prentar upp einu sinni á ári, og exu á þá leið, að „í viðurvist . . - annara en læknis skal enginn læknir fana niðrandi orðum um stéttarbræður sína, jafnvel póti ástœour kgnm að vera til slíks“„ 12/2 1933. Vilm. Jánsson. Kostnaðurinn við ríkis- lögreginna. Er fjármálaráðherra hafði lokiö lestii fjárlagaræðu sinnar em dag- inn, spurði Héðirrn Valdimarsson hann hvar væri færður kostnað- urinn við hvíta herimn og hve mikiil hann væri. Fjármálaráðh. kváð kostnaöinn vera færðan und- ir „dómgæzlu og lögreglustjórn" og hefði kos'tna&uránn á siðast liðnu ári humiö 52 þús. kr.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.