Morgunblaðið - 14.05.1992, Qupperneq 1
LOTTÓ: íslendingar spiluðu fyrir 5,3 milljarða á 5 árum /6
FLUG: Flugleiðir herða markaðssóknina á meginlandinu /8-9
Mengiumrvíirimrhúnaður
selst fyrir hundruð milljóna
AIR Purificaton Inc., sem selur íslenska mengunarvarnarbúnaðinn
Rotorfilter, hefur undanfarið náð samningum við fyrirtæki víðs-
vegar um heim um sölu á búnaðinum. Air Purification var stofnað
í apríl 1989, en sala á búnaðinum hefst opinberlega 1. júlí nk.
Kjartan A. Jónsson, eigandi fyrirtækisins, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að varlega væri áætlað að sölutekjur á fyrsta ári yrðu
um 2,6-3,0 milljónir dollara eða um 150-180 milljónir íslenskra
króna. Þegar hefði verið samið um trygga sölu fyrir um 120 millj-
ónir króna. Mengunarvarnarbúnaðurinn er framleiddur í Vél-
smiðju Sigurðar H. Þórðarsonar í Kópavogi.
Rúm 20 ár eru síðan umræddur
mengunarvarnarbúnaður var
hannaður hér á landi af Jóni Þórð-
arsyni, framleiðslustjóra á Reykja-
lundi. Hann stofnaði fyrirtækið
Lofthreinsun hf., setti búnaðinn
víða upp til reynslu og seldi þrjú
tæki til fyrirtækisins Lýsi og mjöl
í Hafnarfirði. Vegna breytinga á
mengunarvarnarlögum hér á landi
fór markaðurinn út um þúfur fljót-
lega eftir það eða undir lok 8.
áratugarins.
Kjartan komst í kynni við málið
í heimsókn til íslands fyrir þremur
árum, en hann hefur verið búsett-
ur í Bandaríkjunum í áraraðir og
rekið þar verkfræðistofu. „Það tók
mig ekki langan tíma að sjá að
þama var um að ræða mjög góðan
búnað sem með áframhaldandi
þróun er nú orðinn besti mengun-
arvamar- og lofthpeinsibúnaður
sem völ er á,“ sagði Kjartan.
Vorið 1989 keypti hann fyrir-
tækið af Jóni Þórðarsyni og gerði
í kjölfarið samning við Vélsmiðju
Sigurðar H. Þórðarsonar um smíði
á tæki til reynslu. „Fyrsta tækið
var sent vestur um haf til mín í
desember 1989 og sett upp til
reynslu í sorpbrennslu fyrir stórt
sjúkrahús þar sem í ljós kom að
það hreinsaði mjög vel agnir úr
lofti og einnig salt- og brenni-
steinssýru,“ sagði Kjartan. „Þessi
reynsla varð til þess að ég ákvað
að fara út í markaðssetningu á
tækjunum og hef nú þegar sett
upp sölukerfi í 25-30 fylkjum í
Bandaríkjunum.“
Air Purification hefur nú sett
Rotorfilter mengunarvarnarbúnað
upp \dð sorpbrennslur tveggja
sjúkrahúsa í Bandaríkjunum.
Sjálfstæðar rannsóknarstofur í
hvora fylki hafa tekið búnaðinn
út og komist að þeirri niðurstöðu
að hann uppfylli fullkomlega allar
kröfur yfirvalda varðandi mengun-
arvamir. Kjartan segir að nú liggi
fyrir til viðbótar pantanir á átta
tækjum sem eigi eftir að afgreiða
til Bandaríkjanna. Þá hafi eitt
kerfi verið selt til Tékkoslóvakíu.
„Það má segja að notkunar-
möguleikar þessa búnaðar séu
nánast ótakmarkaðir,“ sagði
Kjartan. „Við erum með pöntun
frá aðila í Danmörku og þar era
menn einnig að kanna hvort sú
fullyrðing okkar standist að Ro-
torfilter eyði lykt eins og tækin
hjá Mjöl og lýsi gerðu. Þá má
nefna að við eram í samningavið-
ræðum við japanskt stórfyrirtæki
sem hefur mikinn áhuga á að selja
þessi tæki þar. Samningar eru að
ganga saman við annað þarlent
fyrirtæki um kaup og sölu á
mengúnarvamarbúnaði fyrir stóra
sorpbrennslu og kemur aðili frá
því til íslands seinna í þessum
mánuði. Þarna er um að ræða
sölu fyrir um hálfa milljón dollara
eða 30 milljónir króna.“
Kjartan sagði ennfremur að ein
af rannsóknarstofum Southem 111-
inois University hefði valið Rotor-
filter úr hópi ijölda hreinsunar-
tækja til að staðfesta hve vel Ro-
torfilter hreinsaði brennisteinssýra
og önnur brennisteinsefni úr reyk
sem félli til við kolabrennslu.
BifreiðainnfEutningur
janúar - aprfl 1991 og 1992 NY,R °s
2,801
NÝIR
FÓLKSBÍLAR
2.1®
NÝIRog
NOTAÐIR
VÖRUBÍLAR
NOTAÐIR
SENDIBÍLAR
632 )
363
NOTAÐIR
FÓLKSBÍLAR
123
73
1991 i 1992
1991 1992
mest seldu fólks-
bílategundirner
I jan.- apríl 1992
Fjöldi %
1. TOYOTA 384 18,0
2. DAIHATSU 380 17,8
3. MITSUBISHI 277 13,0
4. NISSAN 210 9,9
5. AE-LADA 131 6,1
6. MAZDA 100 4,7
7. VOLKSWAGEN 95 4,5
8. SUZUKI 82 3,8
9. SUBARU 79 3,7
10, RENAULT 63 3.0
Aðrir 330 15,5
SAMDRÁTTUR íinnflutrmgi á nýjum bílum var tæp 36% I apríí si. þegar fluttir
voru inn 894 nýir bílar samanborið við aprílmánuö í fyrra þegar þeir voru 1.391
talsins. Þegar litið er á tjóra mánuði þessa árs hafa afls verið fluttir inn 2.539 nýir
bílar samanborið við 3.363 í fyrra, sem er um 23% samdráttur, Jónas Þór
Steinarsson tramkvæmdastjóri Bilgreinasambandsins segir þennan sam-
drátt vera f samræmi við það sem menn höfðu reiknað með t upphafi ársins.
Hinn mikla samörátt í april megi að nokkru ieyíi skýra með óvissu i efnahags-
máium en etnnig verði að taka tillit tii þess að innftutningur í apríi i fyrra hafi verið
sérstakiega mikilt. Það sem af er árinu hefur mest verið fiutt inn af Toyota-öbílum,
en athygli vekur að næstmest er flutt inn af Dáhatsu sem kominn er með 17,8%
markaðshiutdeild mióað við 4,4% á sama tima í fyrra. Að sögn forsvarsmanna
Brimborgar sem fiytur inn Daihatsu má skýra þessa auknu markaðshlutdeiid að
mestum hluta með bilasendingu sem átti að fara til Júgóslavíu en Brimborg náði
samningum um. Alls voru þetta um 200 bílar sem nú er búið að selja. Þrtðju 1
röðinni eru Mitshubishi bílar með 13% af markaðshlutdeildinni.
mmr
♦Tilboð þetta gildir til 31. maí og á hótelum sem Flugleiðir hafa samning við.
EITT FARGJALD
FYRIRBÆÐI
SAGA Ánægjunnar, sem þú nýtur á Saga Business Class, nýturðu best með
BUSINESS 1>V' ^e*‘a henni með þeim sem þér þykir vænst um. Þess vegna
/Ái A*CC kj°ða ITugleiðir farþegum, sem greiða fullc Saga Business Class far-
^—■V'jD gjald, sérstök vildarkjör: frímiða fýrir maka til New York og Balti-
more og til allra áfangastaða í Evrópu utan Norðurlanda og 90% afslátt af fargjaldi
til áfangastaða á Norðurlöndum. Auk þess bjóðum við á Norðurlöndum 8000 kr. upp
í hótelkostnað í sömu ferð.* - Gefðu maka þínum tækifæri til að kynnast kostum þess
að fljúga með Saga Business Class.
Breyttu venjulegri viðskiptaferð
í einstaka upplifun fyrir ykkur bæði. FLUGLEIÐIR
Traustur fslenskur ferdafélagi