Morgunblaðið - 14.05.1992, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNOLÍF FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
Morgunblaðið/Emilía
TOLVUSAMIMINGUR - í gær var gengið frá samkomulagi um að Örtölvutækni yfirtæki tölvu-
deild KÓS, sem er með umboð fyrir Digital. Á myndinni eru Stig Orloff og Jan Friis Pedersen frá Digital
í Danmörku, Jónína G. Jónsdóttir, stjórnarformaður Kristjáns 0. Skagfjör, Werner Rasmusson, stjórnar-
formaður Örtölvutækni, Karl Wernersson, ljármálastjóri Örtölvutækni og Heimir Sigurðsson, framkvæmda-
stóri Örtölvutækni
Hlutabréfasala
Vaxandi áhugi á hluta-
bréfum í Samskipum
ÁHUGI á kaupum á hlutabréfum
í Samskipum hf. hefur farið mjög
vaxandi eftir að Ijóst var að fyrir-
tækið fengi 65% sjóflutninga varn-
arliðsins, en þeir samningar voru
ekki hafðir til hliðsjónar þegar
gengi bréfanna var ákveðið 1,12
í sl. mánuði. í gær seldust bréf
fyrir um 10 milljónir króna sem
einn aðili keypti að mestu leyti.
Gengi bréfanna verður reiknað
að nýju eftir að hlutabréfin í
fyrsta áfanga hlutafjárútboðsins
hafa verið seld, en alls eru það
100 milljónir króna.
Nú hafa hlutabréf í Samskipum
hf. verið seld fyrir um 60 milljónir
að nafnvirði þegar óafgreiddar
pantanir eru teknar með í reikning-
inn, að sögn Skúla Gunnars Sigfús-
sonar fyrirtækjaráðgjafa hjá Lands-
bréfum, sem sjá um hlutabréfasöluna
í Samskipum.
„Við reiknuðum með að það tæki
um 3 mánuði að selja þessar fyrstu
100 milljónir en nú hefur helming-
urinn verið seldur á aðeins hálfum
mánuði. Þá hefur hefur áhuginn á
kaupum bréfann aukist mjög und-
anfama daga eftir fréttir bárust af
því Samskip fengu samningana við
varnarliðið. Við hjá Landsbréfum
erum því mjög ánægðir með við-
brögðin, en sala bréfanna hefur
dreifst bæði á stofnanafjárfesta og
einstaklinga," sagði Skúli Gunnar
Sigfússon.
Fyrirtæki
Örtölvutækni tekur við
Digital-umboðinu af KÓS
GENGIÐ var frá samkomulagi í gær um að Örtölvutækni yfirtæki
tölvudeild Kristjáns Ó. Skagfjörð sem hefur umboð fyrir Digital
tölvur. Þetta er gert í samráði við Digital í Danmörku og tekur
samkomulagið formlega gildi um næstu mánaðamót. f því er gert
ráð fyrir að starfsmönnum tölvudeildarinnar verði boðin störf í
hinu nýja fyrirtæki.
„Kristján Ó. Skagfjörð er að
endurskipuleggja reksturinn og
styrkja fjárhagsstöðu sína og þessi
aðgerð er liður í því,“ sagði Áðal-
steinn Helgason, framkvæmda-
stjóri í samtali við Morgunblaðið.
„Fyrirtækið þarf að lækka sínar
skuldir og draga úr áhættu en
tölvudeildin hefur verið langá-
hættusamasti hluti rekstrarins.
Við munum í framtíðinni leggja
áherslu á heildverslun og þjónustu
SUUUÉl
i ‘ - j
bBBHH
SOLUAÐILAR:
E. TH. MATHIESEN HF.
PENNINN SF., HALLARMÚLA 2
E.TH.MATHIESEN HF,
?í JAHHRAUN! 14 • HAFNARFIRi)! • Sl'MI bSíOOO
við útgerð en þetta eru þeir þætt-
ir sem Kristján Ó. Skagfjörð hefur
verið með í 80 ár. Tölvureksturinn
hefur verið hér í 15 ár.“ Hann
sagði að tölvudeildin hefði verið
með 30% af veltu fyrirtækisins eða
um 300 millj. króna og þar hefðu
starfað 18 manns.
Heimir Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Örtölvutækni, sagði
að mikils væri vænst af þessu
samkomulagi fyrirtæksins við einn
stærsta tölvuframleiðanda heims.
,;Það er rétt að taka það fram að
Ortölvutækni stendur alfarið eitt
að þessari yfirtöku. Hins vegar
sjáum við ekki að hún breyti for-
sendum um sölu okkar á jaðar-
tækjum frá HP þar sem um hefur
'verið að ræða gott samstarf á
báða bóga. Samningur okkar við
HP byggir á því að við seljum ein-
menningstölvur og jaðartæki. Við
erum ekki að selja stærri kerfin
frá HP.“
Heimir sagði hins vegar að það
samstarf sem Örtölvutækni hefði
átt við HP á íslandi hf. varðandi
tilboð í stærri verkefni myndi
breytast þar sem fyrirtækin vær
nú komin í beina samkeppni á því
sviði.
Jan Friis Pedersen, frá Digital
í Danmörku, sagði í samtali við
'Morgunblaðið, að ákvörðunin um
að ganga til samstarfs við Örtölvu-
tækni hefði verið tekin að vand-
lega athuguðu máli. „Um síðustu
helgi hittum við viðskiptavini
tölvudeildar KÓS, þ.e. notendur
Digital hér á landi, og þá aðila sem
höfðu áhuga á Digital umboðinu
og í kjölfarið tókum við þá ákvörð-
un að besta lausnin yrði að ganga
til samninga við Örtölvutækni. Við
höfum átt langt og gott samstarf
við tölvudeild KÓS sem yonandi
verður framhald á hjá Örtölvu-
tækni. Starfsmenn tölvudeildar
KÓS hafa mikla reynslu og þekk-
ingu á tölvubúnaði frá Digital og
það er mikilvægt að Örtölvutækni
nýti sér hana,“ sagði Jan Friis
Pedersen.
HP á íslandi tók ákvörðun í gær
um að endurskoða einkasölusamn-
ing sinn við Örtölvutækni sem
hefur um árabil selt Hewlett Pack-
ard jaðartæki. Frosti Bergsson,
framkvæmdastjóri HP á íslandi,
sagði að viðræður hefðu átt sér
stað um sameiningu við Örtölvu-
tækni en niðurstaðan orðið sú að
slík sameining þjónaði ekki
hagsmunum HP á Islandi. Fleiri
aðilar yrðu nú fengnir til að selja
Hewlett Packard jaðartæki enda
þótt Örtölvutæki yrði áfram sölu-
aðili og sagði Frosti að m.a. hefði
verið rætt við Tæknival um sam-
starf.
Fyrirtæki
Gosan í nýtt
húsnæði
GOSAN hf. hefur keypt nýtt
4.000 fermetra húsnæði að Við-
arhöfða 4-6 á Höfðabakka und-
ir starfsemi fyrirtækisins. Að
sögn Björgúlfs Guðmundsson-
ar, framkvæmdastjóra Gosan,
er þarna verið að stíga fyrstu
skrefin í viðamiklum skipu-
lagsbreytingum í gos- og bjór-
framleiðsludeild Pharmaco hf.
sem á bæði Gosan og dótturfyr-
irtækið Viking Brugg hf.
„Undanfarið hefur starfsemi
fyrirtækisins farið fram í algjör-
lega ófullnægjandi húsnæði
þannig að hér er um að ræða
geysilega hagræðingu að loknum
breytingum á húsnæðinu sem
nauðsynlegar eru,“ sagði Björg-
úlfur í samtali við Morgunblaðið.
Aðrar breytingar eru í undirbún-
ingi, en eins og áður hefur komið
fram er stjórn Pharmaco að skip-
uleggja sameiningu Gosan og
Vikings Brugg.
Björgúlfur sagði að með nýja
húsnæðinu væri kominn grund-
völlur fyrir sókn Gosan á gos-
drykkjamarkaðnum. „Við höfum
tekið því rólega undanfarið, en
munum nú við láta til okkar taka
á þessum markaði. Þá eru ýmsar
nýjungar í framleiðslunni vænt-
anlegar."
Fyrirtæki
Sæplast eykur ú t-
flutning stórlega
SÆPLAST hf. á Dalvík jók útflutning á fiskikerum og trollkúlum
um rúmlega 50% fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tíma í
fyrra. Nemur útflutningsverðmætið um 58 milljónum króna á þessu
tímabili samanborið við 38 milljónir i fyrra og er það um 51% af
heildarveltu fyrirtækisins. Á innanlandsmarkaði varð á hinn bóginn
um 22% samdráttur í sölu fyrstu fjóra mánuði ársins. Þessi aukni
útflutningur hefur gert fyrirtækinu kleift að fullnýta afkastagetu
verksmiðjunnar en frá áramótum hefur framleiðslan verið í gangi
allan sólarhringinn fimm daga vikunnar. I apríl var einnig fram-
leitt um helgar til að anna mikilli eftirspurn.
Sæplast hefur selt íiskkör til
Frakklands, Hollands og Danmerk-
ur. Kaupendur eru m.a. tvö stór
Þú svalar lestrarþörf dagsir
ó sjöum Moggans!
ins
or
Eft
RAÐSTEFNA
NAMSKEIÐ EÐA FUNDIR Á DÖFINNI?
í Múlalundi færð þú fundarmöppur, barmmerki
(nafnmerki), álefranir, merkingar og
annað sem auðveidar skipulag og eykur
þægindi og árangur þátttakenda.
Allar geiÖir, margar stærðir, úrval
lita og áletranir aS þinni ósk!
Haf&u samband vió sölumenn okkar
í síma 68 84 76 e&a 68 84 59.
Múlalundur
Vinnustofa S(BS - Hátúni 10o
Slmar: 68 84 76 og 68 84 59.
útgerðarfyrirtæki í Frakklandi sem
hafa ráðist í að breyta skipum sín-
um fyrir fiskiker, að sögn Kristjáns
Aðalsteinssonar, framkvæmda-
stjóra Sæplasts. Hafa þegar verið
teknar ákvarðanir um breytingar á
10 fiskiskipum. „Við finnum fyrir
mjög miklum áhuga á fiskikerunum
því þau skila fyrirtækjunum bæði
~íægri löndunarkostnaði og betra
hráefni auk mikillar hagræðingar.
Salan í Frakklandi hefur farið fram
úr okkar björtustu vonum og við
sjáum ekki fyrir endann á því
hversu stór markaðurinn er,“ sagði
hann.
Sæplast hefur nú hafið fram-
leiðslu á rotþróm og er henni ætlað
að vega upp á móti sölusamdrættin--
um innanlands á fiskkörum og
trollkúlum. Kristján sagði að mikil
þörf væri á þessari framleiðslu því
bróðurparturinn af íslenskum
sveitabæjum væri ekki tengdur við
rotþrær. Hin nýja rotþró væri bæði
einföld í sniðum og auðveld í niður-
setningu.