Morgunblaðið - 14.05.1992, Page 4

Morgunblaðið - 14.05.1992, Page 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992 kOHLI SKRIFBORÐSSTÓLAR í MIKLU ÚRVALI (uovos S E R I A N 1200 BW6 / fii? r!,.: Kr. 25.300,- 1200 BW10m/örmum Kr. 31.700,- VANDAÐIfí STÓLAfí Á HAGSTÆÐU VEfíÐI GAMLA KOMPANllÐ KRISTJÁN SIGGEIRSSON GKS hf., Hesthálsl 2-4______ 110 Reykjavík. Slmi 91-672110 Ríkisfyrirtæki Við getum lært af einkavæðingu erlendis Rætt við Þór Sigfússon hagfræðing og einn af höfundum bókarinnar „Privatisation Yearbook 1992“ BÓKIN „Privatisation Yearbook 1992“ kom nýlega út í Bretlandi. í henni er rakin einkavæðing í yfir 40 löndum, þar sem sérstakur kafli er um hvert þessara ríkja. Þór Sigfússon, hagfræðingur, tók saman kaflann um Island þar sem hann gerir grein fyrir áformum ríkisstjórn- arinnar. Einnig lítur Þór til stöðunnar hérlendis eins og hún er nú. Meginniðurstaða hans er sú að lítið hafi verið gert og íslenska ríkið eip hlutfallslega fleiri fyrirtæki en almennt tíðkast í hinum vestræna heimi. En hver telur Þór muninn vera á undirbúningi einkavæðingar hérlendis og því sem annars staðar gerist? „Þegar bókin „Privatisation Year- book 1992“ er lesin þá vekur at- hygli að mjög margar þjóðir eru að velta fyrir sér einkavæðingu, hafa nú þegar selt mjög mörg ríkisfyrir- tæki og hafíð útboð. Þessar hug- myndir tengjast almennri fijálsræð- isbylgju sem gengur yfír þjóðfélög, bæði hvað snertir erlendar fjárfest- ingar og efnahagslífíð í héild. Munurinn á því sem við íslending- ar höfum verið að gera í sambandi við einkavæðingu og því sem víða er að gerast felst í fyrsta lagi í því að víða er mun meiri pólitísk sam- staða um einkavæðingu, a.m.k. í sambandi við atvinnufyrirtæki. í öðru lagi höfum við ekki náð að koma á eins hagkvæmu sölukerfi ríkisfyrir- tækja og mörg önnur lönd hafa gert, t.d. var ekki kveðið nægilega skýrt á um þennan grundvöll í stjórnarsátt- mála núverandi ríkisstjórnar. í þriðja lagi er lagaþátturinn víða mun skýr- ari en hérlendis. Mjög mörg lönd eru með heilstæð einkavæðingarlög, í staðinn fyrir að vinna við eitt og eitt fyrirtæki í einu stefna þau á að vera með ein lög þar sem ráðherrum er gefín heimild til að einkavæða innan tiltekins ramma, þetta á t.d. við um Nýsjálendinga. í fjórða lagi hafa stjórnvöld ekki staðið sem skyldi að kynningu á einkavæðingu, en hún er mjög mikilvæg þar sem eðlilega skortir skilning á því af hveiju eigi að selja ríkisfyrirtæki sem t.d. ganga vel. Því er eðlilegt að andstaðan við einkavæðingu sé jafn mikil og hún virðist því miður vera hérlendis. En það sem skiptir mestu máli í sam- bandi við sölu ríkissfyrirtækja er að ákveðin valddreifing og pólitísk af- skipti af atvinnulífínu minnka, en þau hafa verið einn helsti dragbítur á framþróun. Sem dæmi um velheppnaða sölu ríkisfyrirtækja má nefna að árið 1987 var símafyrirtæki og póstburð- arfyrirtæki á Nýja Sjálandi breytt í hlutafélög og að mati ríkisstjómar landsins er árangur hlutafélagavæð- ingarinnar m.a. aukin afköst og bætt þjónusta við viðskiptavini. Sem dæmi má nefna að 20% raunlækkun hafí verið á símakostnaði árið 1989, afköst á hvern starfsmann jukust um 19% og t.d. var New Zealand Post tímanlega með 95% af hrað- pósti árið 1990 en um 80% árið 1987.“ Nútímavæðing ríkisfyrirtækja — Nú hefur mikið verið rætt um einkavæðingu ríkisfyrirtækja á Is- landi og fyrstu skrefin hafa verið tekin, hvernig horfír staðan við þér? „Vissulega hafa verið teknar ákvarðanir um sölu einstakra ríkis- fyrirtækja en við megum ekki gleyma okkur og einblína einungis á þessa sölu, hpn er af hinu góða en það er ekki hægt að einkavæða allan ríkis- rekstur. Danir hafa t.d. litið á þetta í víðara samhengi en við, þeir leggja meiri áherslu á útboð og einnig hafa þeir velt fyrir sér hvort ekki sé hægt að nútímavæða eða markaðsvæða ríkisfyrirtæki eða ríkisstofnanir. í því felst að valkostir í ríkiskerfínu eru auknir, ekki bara með sölu ríkisfyrir- tækja heldur einnig með því að gera ríkisfyrirtæki sjálfstæðari. Sem dæmi um það er stefnt á að bjóða almenningi upp á fleiri valkosti í heilbrigðis- og skólamálum. Höfuð- atriðið er að stjórnendur fái aukið svigrúm til sjálfstæðra ákvarðana og jafnframt er fjárhagur stofnanna gerður sjálfstæðari, m.a. í sambandi við launastefnu þannig að góðum starfsmönnun sé umbunað. Hvatarn- ir eru í þá átt að starfa í takt við það sem neytendur vilja. Um leið fá neytendur aukið valfrelsi og rétt gagnvart opinberum stofnunum. Æskilegt er að þetta verði einnig gert hérlendis, t.d. í skóla- og heil- brigðiskerfinu. Þetta á ekki síður við hjá sveitarstjórnum. Það eru opinber- RIKISFYRIRTÆKI — Samkvæmt útreikningum Þórs Sigfússonar eru ríkisfyrir- tæki um 20% af landsfram- leiðslu hérlendis sem er mun meira en víðast annars staðar. Undanfarin ár hafa mörg ríki selt stóran hluta ríkisfyrirtækja sinna og t.d. eru þau núna ein- ungis rúmlega 7% af landsfram- leiðslu Breta samanborið við 11,5% árið 1979. ar stofnanir á Íslandi og þær koma margar til með að vera hér áfram, við verðum að gera okkur grein fyr- ir því. Bretar eru t.d. farnir í gang með einhvers konar „borgaraskipu- lag“, til að bæta ríkisstofnanir en það er komið svo stutt áleiðis að árangurinn er ekki enn kominn í ljós. Þetta er ekki enn komið inn í umræð- una hérlendis en ég tel það vera vegna þess að við heyrum lítið já- kvætt um ríkisstofnanir og því er mest megnis rætt um að nauðsynlegt sé að selja þær eða leggja þær niður. Systurnar einkavæðing og sú nú- tímavæðing, sem ég ræddi um, fara vel saman og geta skilað neytendum bættum hag, fleiri valkostum og betri þjónustu,“ segir Þór Sigfússon. ÁHB Ekki ráðlegt að selja Póst & síma Rætt við Philip Bowyer, aðalritara alþjóðasamtaka póst- og símamanna um einkavæðingu REYNSLAN af einkavæðingu póst- og símafyrirtækja er slæm að mati Philips Bowyer, aðalritara alþjóðasamtaka póst- og símamanna, og ráðleggur hann íslenskum stjórnvöldum frá því að breyta Pósti & síma í almenningshlutafélag. Bowyer segir einkavæðingu bresku síma- málastofnunarinnar árið 1984 hafa leitt til þess að innarbæjarsímtöl á dagtaxta hafi farið hækkandi og bitnað mest á hinum almenna neyt- anda á meðan samkeppnin hafi frekar komið fyrirtækjum í miklum samskiptum við erlend fyrirtæki til góða. Þá telur hann engar tölur sanna að einkarekin símafyrirtæki séu hagkvæmari en opinber. Bowyer kom hingað til lands og hélt fyrirlestur á vegum BSRB um reynsluna af einkavæðingu póst- og símafyrirtækja á liðnum árum og flallaði hann m.a. um áhrif einka- væðingar á launþega. Hann segir starfsmenn símans hafa tapað mikið á einkavæðingu og stórlega hafí dregið úr atvinnuöryggi. Starfs- mönnum hafí verið fækkað stórlega og um fjórðungi af 250 þúsund starfsmönnum hafí nú verið sagt upp störfum eða verði sagt upp á næsta eina og hálfa ári. Þá hafí samskipti fyrirtækisins við stéttarfélög versnað stóriega. Aðspurður hvað einkavæðingin í Bretlandi hefði sýnt fram á sagði Bowyer að fyrirtæki hefðu ekki orð- ið skilvirkari, þjónusta hefði ekki batnað og verð hefði ekki endilega lækkað. „Opinber fyrirtæki eru jafn- vel með lægra verð á sinni vöru en einkarekin. Það að breska símaþjón- ustan var seld til einkaaðila leiddi til þess að verð á langlínusímtölum, viðskiptasímtöium og þjónustu við atvinnulífíð lækkaði töluvert, en verð á þjónustu til heimilisnota hækkaði. Þeir sem græða á þessu eru því stærri aðilar í viðskiptalífínu en þeir sem tapa er meirihluti notenda, hinn venj- ulegi neytandi. Eg mæli því alls ekki með einka- væðingu og allra síst á Islandi. Síma- kerfið á íslandi er mjög þróað, ekki síst með tiiliti til þess hversu margir eru með síma miðið við önnur lönd. Þá er þjónusta Pósts & síma lægri en víðast annars staðar og ef það er reyndin hver eru þá rökin með breyttu fyrirkomulagi? Ef að kvartað er yfír einhveijum þáttum kerfísins þá þarf að líta á hvert vandamál fyrir sig og reyna að lagfæra þann þátt. Það þarf ekki að breyta öllu kerfinu heldur hveijum og einum þætti sem gæti verið betri.“ Bowyer minntist á að þar sem símaþjónusta hefði verið seld, t.d. á Nýja Sjálandi, hefðu erlendir fjár- festar og þá aðallega Bandaríkja- menn, keypt hluta í fyrirtækjunum. Það taldi hann það einnig geta orðið reyndina með Póst & síma. í flestum þeim löndum þar sem verið sé að einkavæða símaþjónustu er hún ákaflega vanþróuð og efna- hagur landanna þoli ekki þá ijárfest- ingu sem til þurfi. Einkavæðing í þessum ríkjum er talin nauðsynleg til að ná í útlenda tækniþekkingu og fjármagn. Það sé hins vegar ekki nauðsynlegt hérlendis. Betri framleiðni í ~ ríkisfyrirtækjum Bowyer telur að engar tölur sanni að eipkarekin símafyrirtæki séu hag- kvæmari en opinber. Staðreyndin sé sú að til séu vel rekin fyrirtæki og illa rekin, það breyti engu hvert eign- arformið sé. „Það ríki sem mesta reynslu hefur af einkavæðingu er Bretland. Sé litið til. rekstrarhag- kvæmni er gaman að líta á tvær staðreyndir. I fyrsta lagi jókst hagn- aður og framleiðni meira í fyrirtækj- unum fyrir einkavæðingu en eftir. í öðru lagi var framleiðni meiri í TISKUFYRIR- BRIGÐI — Phiiip Bowyer segir hugmyndina um einka- væðingu vera eins og hveija aðra tískubólu, sem hann býst við að hjaðni og raunveruleikinn fái aftur hljómgrunn. 7 7 ÁRMÚLA13A IÐISILAIMASJÓÐUR fyrir íslenskt atvinnulíf 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950 ____i_Jvl_lA____________ fyrirtækjum sem ekki voru einka- vædd. Á árunum 1979 til 1990 juk- ust afköst um 4,2% á mann á ári í ríkisreknum fyrirtækjum meðan samsvarandi tala var 3,5% í einka- geiranum. Frá 1974 er samanburðurinn ríkis- fyrirtækjum enn frekar í hag með 6,5% aukningu í afköstum á ári mið- að við 3,7% í einkafyrirtækjum. Þetta á við um afköst vinnuaflsins. Niðurstöður rannsóknar á vegum London Business School sýna að heidlarafköst í ríkisrekinni póstþjón- ustu jukust um 3,7% á ári á níunda áratugnum samanborið við 2,4% hjá British Telecom eftir einkavæðingu,“ sagði Philip Bowyer.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.