Morgunblaðið - 14.05.1992, Side 6

Morgunblaðið - 14.05.1992, Side 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNÐLÍF FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992 Happadrætti íslendingar „lottuðu “ fyrir 5,3 milljarða fyrstu fínun árin FRÁ því að íslensk getspá, sem rekur lottóið, tók til starfa í nóvem- ber 1986 og til ársloka 1991 „lottuðu" íslendingar fyrir 5.364 milljón- ir króna á verðlagi síðasta árs. Fjöldi vinningshafa með fimm rétta er orðinn rétt tæplega fimm hundruð og af þeim hafa um 250 hlotið eina milljón króna eða meira í vinning. Heildarupphæð greiddra vinn- inga á þessum tíma er 2.145 milljónir króna á verðlagi 1991. fþrótta- samband íslands er stærsti eigandi íslenskrar getspár með 46,67% hutafjár. Öryrkjabandalag íslands á 40% og Ungmennafélag íslands 13,33%. Frá upphafi hefur um 1.800 milljónum króna verið úthlutað til eignaraðila í hlutfalli við hlutafjáreign. Vilhjálmur B. Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri íslenskrar get- spár, sagði í samtali við Morgun- blaðið að menn hafi í byijun rennt alveg blint í sjóinn með viðtökum- ar. Það hafi hins vegar fljótlega komið í ljós að lottóið átti vinsældum að fagna meðal íslendinga. Sú stað- reynd að fyrsti vinningur gekk ekki út í fyrstu tilraun hafði mjög hvetj- andi áhrif á fólk að slá til í vikunni þar á eftir og þar með hafi boltinn farið að rúlla. Strax í annarri viku hafi salan verið tæplega tuttugu milljónir á verðlagi þess árs. „Það skemmdi heldur ekki að fyrsti millj- ónavinningurinn fór á stað þar sem hans var virkilega þörf. Þetta gaf okkur fljúgandi start,“ sagði Vil- hjálmur. „Renndum blint í sjóinn með viðtökurnar“ „Þar sem við höfðum litla hug- mynd um viðtökumar í upphafi var ákveðið að hafa umgjörðina eins ódýra og mögulegt væri. Við þjöpp- uðum okkur þannig saman í 100 fm húsnæði hér í kjallaranum," sagði Vilhjálmur, en íslensk getspá hefur frá byijun verið til húsa í byggingu íþróttasambands íslands í Laugard- al. Að sögn Vilhjálms leið ekki á löngu þar til starfsemin óx hús- næðinu yfír höfuð og fermetrunum fjölgaði í kjölfarið. Strax í upphafí var ákveðið að notast við svokallað beinlínutengt sölukerfí. „Sú ákvörðun fól í sér mikla undirbúningsvinnu, en á end- anum völdum við þann aðila sem er langstærstur á þessu sviði, bandaríska fyrirtækið GTECH Corp., sem er með mörg tölvuvædd lottókerfí í heiminum á sínum snær- um. Við höfum fengið mjög góða þjónustu hjá þessum aðilum, enda litu þeir á Island sem nokkurs kon- ar stökkpall inn á Evrópumarkað- inn,“ sagði Vilhjálmur. Hver sala tímasett upp á einn hundraðasta úr sekúndu Tölvukerfíð sem íslensk getspá notar er mjög fullkomið enda eru F J Á R M A G T I L Við fjármögnum að fullu eða lánum til kaupa á hvers konar vélum, tækjum og búnaði til atvinnurekstrar. Lánstími eða leigutími er oftast 3 - 7 ár. Einnig bjóðum við fjármögnun á atvinnuhúsnæði, þar sem leigutími er á bilinu 10 -15 ár. Upplýsingabæklingar eru í öllum útibúum Landsbanka og Búnaðarbanka um land allt, en nánari upplýsingar veita starfsmenn fyrirtækisins í síma: 68 90 50 Sumartími )um-)uh-dgust kl 8:00-16:00 Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík, Sími: 689050 gerðar þarna gífurlegar kröfur um öryggi. „Menn átta sig almennt ekki á því þegar þeir sjá sölukassa úti í bæ hvað liggur á hinum endan- um, þ.e. hversu stórt og umfangs- mikið þetta dæmi í rauninni er,“ sagði Vilhjálmur. „Við keyrum t.d. alltaf með tvær tölvur í einu. Síðan er sú þriðja til staðar ti! að setja í samband ef önnur hinna bilar.“ Að sögn Vilhjálms eru allar færsl- ur færðar á mörgum stöðum, disk- um og segulböndum til að koma í veg fyrir að sú staða komi upp að ekki sé á hreinu hvaða viðskipti hafi átt sér stað hveiju sinni. Þann- ig er hver sala tímasett upp á einn hundraðasta hluta úr sekúndu. „Ef einhver vafaatriði koma upp getum við því skoðað nákvæmlega hvern sölustað, þ.e. hve margar afgreiðsl- ur hafa átt sér stað á ákveðnum degi á ákveðnum tíma, hvaða tölur voru seldar o.fl,“ sagði Vilhjálmur og bætti við að sú staða hefði kom- ið upp að gott var að hafa þessar upplýsingar nákvæmlega skráðar og aðgengilegar. Sölukassarnir voru ekki eftirsóttir í upphafi Starfsmenn íslenskrar getspár eru 18. Þar af eru starfa sjö í tölvu- deild og þrír sjá um viðgerðir á sölu- kössunum og alla þjónustu við sölu- staðina. Síðan eru sölu- og markaðs- menn og fólk í bókhaldi og inn- heimtu. Við upphaf starfseminnar voru sölukassamir 79 en í dag eru 183 tengdir kassar á sölustöðum víða um land. Umboðsmenn Is- lenskrar getspár eru hins vegar 172 þar sem þeir tíu söluhæstu eru með tvo kassa. Bjarni S. Bjamason, sölustjóri hjá íslenskri getspá, sagði að sölukass- amir hefðu ekki verið eftirsóttir í upphafi. „Við auglýstum eftir um- boðsmönnum í öllum dagblöðum en fengum engin viðbrögð, enginn sótti um. Við vomm búnir að áætla að 70-80 aðila þyrfti til að koma þessu af stað og að lokum fór ég á stað- ina til að reyna að leiða mönnum fyrir sjónir að það væri eftirsóknar- vert fyrir þá að gerast umboðsaðilar okkar. Til þess notaði ég dæmi er- lendis frá sem sýndu svart á hvítu að svona sölukassar auka flæði fólks um viðkomandi sölustaði sem síðan Morgunblaðið LOTTÓIÐ — Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, framkvæmda- stjóri íslenskrar getspár. njóta góðs af því með annarri sölu,“ sagði Bjarni. Þessir byijunarörðugleikar vom fljótlega að baki og nú em um 300 aðilar á biðlista eftir sölukössum. „Það hefur verið lítil sem engin fjölgun í sölukössum hjá okkur und- anfarin tvö ár. Nú emm við með um 1.400 viðskiptavini á bak við hvem kassa og það er álitið hæfí- legt,“ sagði Vilhjálmur, en bætti við að auðvitað væri þó reynt að setja sem fyrst upp sölukassa í nýjum íbúðarhverfum. Hann sagði enn- fremur að umboðsmönnum væri haldið vel við efnið og þeim sýnt mikið aðhald. Þannig væri lokað fyrir sölu hjá þeim umboðsmönnum sem ekki stæðu í skilum á réttum tíma. Rútufarmar af fólki á vinsæla sölustaði lottósins Hjá íslenskri getspá sögðu menn það ekki vera neitt launungarmál að sölukassar íslenskrar getspár hefðu reynst mörgum umboðsmönn- um hinn mesti bjargvættur og mætti tala um allt að 20-30% sölu- aukningu á einstaka stöðum þegar best léti. Bjami tók dæmi um sölustað sem seint á síðasta ári seldi miða sem á kom vinningur upp á 16 milljónir króna. Viðkomandi sölustaður jók söluna til muna eftir þetta og rauk úr 16. sæti í það efsta. Vilhjáimur tók undir þetta og sagði spumir hafa borist af því að næstu vikur á eftir hefðu komið heilu rútufarm- arnir af fólki til að kaupa þama lottómiða, enda hefði salan nífaldast þar á skömmum tíma. HKF VIÐURKEIMNING — Söluturninn Skalli í Hraunbæ er með- al þeirra staða sem hefur haft lottósölukassa frá upphafi. Nú em 183 sölukassar víðs vegar um landið, en af þeim 79 sem settir vom upp í byijun eru 30 eftir. í tilefni fímm ára starfsafmælis íslenskrar get- spár er hveijum umboðsmanni sem hefur verið með frá upphafí veitt sérstök klukka að gjöf. Þeir umboðsmenn sem hér eftir ná fímm ára áfanganum fá einnig klukku. Á myndinni veitir Guðlaug Steingríms- dóttir í Skalla klukkunni viðtöku úr hendi Bergsveins Sampsted, mark- aðsstjóra Islenskrar getspár og Bjama S. Bjarnasonar, sölustjóra í fyrirtækinu. Guðlaug hefur ásamt öðmm umboðsmanni verið með flestu 1. vinningana í Reykjavík frá upphafí, en hún hefur tólf sinnum selt miða með fyrsta vinning. Söluturninn Allrabest í Stigahlíð hefur líka selt tólf fyrstu vinninga. í Skalla hafa hins vegar verið 19 Bónusvinn- ingar miðað við tíu í Allrabest. Nætursalan á Akureyri hefur selt flesta 1. vinninga á landsvísu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.