Morgunblaðið - 14.05.1992, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.05.1992, Blaðsíða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992 Flug Flugleiðir herða markaðs- sóknina á meginlandinu Umfangsmikil markaðssetning Norður-Atlantshafsflugsins á Lúxemborgarsvæðinu ISLANDSKYNNING — Flugleiðir stóðu fyrir íslandskynningu í Miinchen í lok apríl þar sem áætlanafíug félagsins til Islands í sumar var kynnt fyrir mörgum af helstu ferðaheildsölum í Þýskalandi. Það er Steinn Logi Björnsson, forstöðumaður austursvæðisins sem ávarpar gesti en með honum á myndinni eru m.a. starfsmenn Flugleiða og Ferðamálaráðs. FLUGLEIÐIR hafa á síðustu þremur árum unnið að fram- kvæmd nýrrar markaðsstefnu á meginlandi Evrópu sem skil- greint er sem austursvæði. A þessu svæði eru Þýskaland, Frakkland, Sviss, Austurríki, Belgía, Holland, Lúxemborg og Itaiía auk Austur-Evrópu. I flugi milli meginlandsins og Banda- ríkjanna ieggur félagið annars- vegar höfuðahersiu á að bjóða gæðaþjónustu á markaðsverði fyrir bæði farþega á viðskiptafar- rými og venjulegu farrými. Hins vegar hefur félagið að markmiði halda forystu í flugi til og frá íslandi með nýjum vélum, góðri tíðni og þjónustu fyrir alla hluta markaðarins. Þessi stefna ásamt nýjum vélum og auknum ferða- mannastraumi frá meginlandinu hefur átt þátt í því að fjöldi far- þega sem ferðast þaðan tii Is- lands með félaginu hefur tvöfald- ast frá árinu 1988. Tókst að upp- fylla markmið um 50% markaðs- hlutdeild á öllum mörkuðum svæðisins á árínu 1991. Það kom í hlut Steins Loga Björnssonar, forstöðumanns austursvæðisins, að stýra markaðssókninni á þessu svæði en hann tók við þessu starfi árið 1988. Það ár var Steinn Logi aðeins 28 ára gamall og er hann langyngstur þeirra sem gegnt hafa þessu starfi. Á austursvæðinu starfrækja Flug- leiðir skrifstofur í Frankfurt, París, Amsterdam, Brussel, Ziirich og Lúx- emborg en jafnframt hefur félagið aðalumboðsmenn á Spáni, Suður- Afríku, Ítalíu, Grikklandi o.fl. Þá eru uppi hugmyndir um að opna skrif- stofur í Barcelona á Spáni og Mílanó á Ítalíu á næsta ári. Áuk hefðbund- inna áætlanastaða á meginlandinu munu Flugleiðir nú í sumar í fyrsta sinn efna til áætlanaflugs til Miinch- en einu sinn í viku en það mun þó einungis standa yflr í tvo mánuði. Á næsta ári hafa Flugleiðir síðan í hyggju að hefja áætlanaflug milli borga í Evrópu eins og raunar kom fram í viðtali við Sigurð Helgason, forstjóra félagsins í Morgunblaðinu sl. laugardag. að slík aukning getur ekki haldið áfram endalaust." Mikill áhugi á íslandi á Ítalíu Um 7 þúsund svissneskir ferða- menn komu hingað til lands á sl. ári sem er tiltölulega há tala miðað við fólksfjölda í landinu. Þá fer ferða- mönnum frá Austurríki fjölgandi en þeir voru alls um 4 þúsund á sl. ári. Frá Ítalíu komu um 4.800 manns og telur Dieter að unnt sé að fjölga þeim í 10 þúsund á ári á fáeinum árum með beinu flugi þangað. ít- alskt leiguflugfélag flýgur til íslands einu sinni í viku en að öðrum kosti verða ítalskir ferðamenn á leið til íslands að fljúga fyrst til Frankfurt eða Kaupmannahafnar. „Við tókum eftir því á sýningu í Mílanó í febr- úar hversu mikill áhugi var á ís- landi. Hins vegar er aðalmarkmið okkar að lengja ferðamannatímabilið og möguleikarnir eru ekki svo mikl- ir á Ítalíu eða á Spáni. Til að lengja ferðamannatímabilið þurfum við að einbeita okkur að því að fá ráðstefnur til íslands og svo- kallaðar hvatningarferðir. Við höf- um unnið töluvert í því og m.a. boð- ið ritstjórum frá tímaritum sem fjalla um hvatningarferðir og ráðstefnu- mál til íslands. Ég held að vöxturinn muni ekki halda áfram nema við komum fram með nýjar hugmyndir um ferðamennsku utan háanna- tímans." En hefur Dieter fengið góð við- brögð frá því fólki sem hefur ferð- ast til íslands. „Við tökum eftir því að Þjoðverjar taka langan tíma í að undirbúa sig fyrir ferð til íslands og eru allt að 2-3 ár að ákveða sig Til marks um þýðingu austur- svæðisins fyrir félagið má nefna að gjaldeyristekjur frá því voru í fyrra u.þ.b. 40 milljónir dollara eða um 2,5 milljarðar króna. Þetta er ein- vörðungu vegna millilandaflugsins og er því ótalin ýmis eyðsla ferða- manna í gistingu, bílaleigubíla og aðra ferðaþjónustu á íslandi. Horfur eru á að fjöldi farþega frá og e.t.v. að safna fyrir ferðinni. Þetta fólk kaupir mikið af bókum og útgef- andi sem ég ræddi við kvaðst telja að hér Þýskalandi væru seldar 50-60 þúsund ferðahandbækur árlega um Island. Það sýnir hversu vel áhuga fólks og hversu vel það er undir- búið. Fólk veit það áður en það kem- ur til landsins að ísland er dýrt land þannig að lítið er kvartað. Við reyn- um að fá fólk í skipulagðar ferðir og bendum á að ef ferð er keypt fyrirfram með fullu fæði þá geti ferðin ekki verið mikið dýrari fyrir utan vasapeninga o.fl.“ Vantar kynningarefni frá íslenskum framleiðendum Dieter telur það gagnrýni vert meginlandinu verði svipaður á þessu ári og á sl. ári en bókanir eru þó ætíð háðar talsverðri óvissu. „Bók- anir 5 Evrópufluginu fyrir fjórum vikum voru langt umfram bókanir en á sama tíma í fyrra en síðustu vikur hefur dregið verulega úr bók- anainnstreyminu,“ segir Steinn Logi. „Engu að síður eru bókanir í júlí og ágúst vel yfir því sem var í fyrra, bókanir í júní eru undir því sem var í fyrra og í apríl og maí stefnir í svipaðan íjölda farþega. í Norður-Atlantshafsfluginu eru bók- anir langt yfír því sem var á sama tíma í fyrra. Hins vegar sjáum við fram á það að bókunarinnstreymið á næstu vikum verður lakara þannig að hugsanlega verður endanlegur heildarfjöldi farþega í N-Atlants- hafsflugi og Evrópuflugi svipaður og í fyrra. Ástæðurnar þess eru fyrst og fremst efnahagsástandið á meginlandinu og mikil samkeppni á N-Atlantshafsleiðinni en einnig hef- ur veðurfarið í Evrópu haft áhrif á sölu íslandsferða." Mikil samkeppni einkennir austursvæðið Á austursvæðinu í heild var 25% fjölgun farþega til Islands á sl. ári sem skilaði 27% tekjuaukningu. Hlutur þessa svæðis er einnig stærstur í N-Atlantshafsfluginu, aðallega frá Lúxemborg. Steinn Logi bendir á að helstu möguleikarnir á að selja flug yfír hafið frá Þýska- landi og Sviss felist í því að bjóða stutta dvöl á íslandi Ekki sé um að ræða möguleika á tengiflugi um Keflavíkurflugvöll á. sama hátt og frá Lúxemborg vegna gífurlegrar samkeppni Lufthansa og bandarísku flugfélaganna. „Það er eitt helsta sérkenni aust- ursvæðisins að hér ríkir meiri sam- keppni en á öðrum mörkuðum. Hér er einnig hátt hlutfall ferðamanna sem fara til íslands en aftur á móti lítill ráðstefnumarkaður. Alls eru hversu lítið íslenskir framleiðendur leggi af mörkum til gerð kynningar- efnis um ísland og ætlað er ferða- fólki. „Ég tel að að ferðamenn fái ekki nægar upplýsingar um hvaða minjagripi sé hægt að kaupa á ís- landi. Við fáum ekkert kynningar- efni, hvorki frá t.d. íslenskum mark- aði né frá Rammagerðinni. I bækl- ingum okkar er eingöngu íjallað um náttúruna. Norðmenn, Finnar og Svíar fjalla alltaf í sínum bæklingum um eigin framleiðslu t.d. reyktan fisk, peysur og húsgögn. í íslensku bæklingunum er þessa aldrei getið. Mér finnst að íslensku fyrirtækin ættu að vera aðilar að skrifstofunni eins og tíðkast hjá hinum Norður- löndunum. Hvernig eiga útlendingar að vita hvað við höfum á boðstólum ef við sýnum þeim það aldrei? Landa- kortin sem kostuð eru með auglýs- ingum eru dæmigerð fyrir þetta en ferðamennirnir fá ekki þessi kort fyrr en þeir koma til íslands. Af hverju er ekki hægt að prenta svona kort þegar við förum á sýningar? Hver einasti maður sem kemur til okkar spyr um kort af íslandi. Með korti fengi fólk einnig hugmyndir urp framleiðsluvörurnar. í Þýska- landi hafa Landmælingar veitt einni ferðaskrifstofu einkaumboð fyrir sín kort þannig að ekki er hægt að kaupa þau nema frá þessari skrif- stofu. Þegar menn skrifa okkur get- um við því eingöngu vísað á hana sem er mjög slæmt. Einnig vantar upplýsingar um t.d. Listahátíð og jazzhátíð sem verða haldnar á næst- unni. Við fengum nýlega upplýs- ingar um Listahátíðina en þær voru allar á íslensku." Varðandi aðstöðu fyrir ferðamenn á íslandi kveðst Dieter telja að nóg framboð sé af gistirými. „Ég held að það sé nóg af gistirými á alfara- leiðum ef menn eru tilbúnir að vera á Edduhótelum og bændagistingu. Það er einnig spurning hvort við viljum að fólk haldi áfram að fara þessar alfaraleiðir eða viljum við opna fleiri svæði. Það er augljóst að hálendið tekur ekki við fleiri ferðamönnum,“ sagði Dieter Wendl- er Jóhannsson. Landkynning Ítalía og Spánn gætu orðið okkar bestu markaðir í ferðaþjónustu - segir Dieter Wendler Jóhannsson, framkvæmdastjóri landkynningarskrifstofu íslands í Frankfurt FERÐAMÁLARÁÐ hefur frá árinu 1985 starfrækt sérstaka landkynn- ingarskrifstofu í Þýskaiandi í samstarfi við nokkra aðila í ferðaþjón- ustu. Skrifstofan var starfrækt í Hamborg 1985—1986 en hefur síðan verið í Frankfurt. Hún þjónar beint Þýskalandi, Austurríki og Ítalíu en í Sviss, Frakklandi, Hollandi og Lúxemborg eru Flugieiðir umboðsað- ili Ferðamálaráðs. Augu manna hafa á síðustu misserum beinst í æ ríkari mæli að Ítalíu og Spáni en talið er að þaðan megi vænta auk- ins ferðamannastraums til Islands á næstu árum. Það er Dieter Wendl- er Jóhannsson sem veitir skrifstofunni í Frankfurt forstöðu. „Hlutverk okkar er að veita al- menningi upplýsingar um ísland og við fáum um 18—20 þúsund fyrir- spurnir árlega," sagði Dieter Wendl- er í samtali við Morgunblaðið. „Flug- leiðir, umboðsmaður Smyrils og helstu ferðaheildsalar hér í Þýska- landi, taka þátt í sérstakri sameigin- legri útsendingu bæklinga á tímabil- inu janúar til maí árlega. Einnig sendum við út fréttatilkynningar reglulega til 460 blaðamanna, aðal- lega í Þýskalandi en einnig í Austur- ríki, Sviss, Hollandi og Belgíu. Síðan styrkjum við blaðamenn sem vilja fara til íslands og ef okkur finnst efnið nógu spennandi þá er þeim boðið. Við þjónum ferðaheildsölun- um með því að láta þá fá upplýsinga- efni, bjóðum þeim á Vest-Norden ferðakaupstefnuna og reynum að aðstoða þá með ýmis konar upplýs- ingar. Stærsta alþjóðlega kaupstefn- an hér er t.d. haldin í Berlín og þar eigum við samstarf við hinar Norð- urlandaþjóðirnar." Vantar meira fjármagn til auglýsinga Dieter kveðst telja að Ítalía og Spánn gæti orðið okkar bestu mark- aðir fyrir ferðaþjónustu því þaðan sé unnt að Iaða efnað fólk til íslands sem vilji fá fyrsta flokks þjónustu á betri hótelum. „Það gerir okkur hins vegar erfítt fyrir að allir ítalir fara í sumarfrí í ágúst og svipað gildir um Spánveija. Því veitist okkur erf- itt að lengja ferðatímabilið sem við verðum nauðsynlega að gera.“ Landkynningarskrifstofan er ijár- mögnuð þannig að Ferðamálaráð íslands leggur til 56% af kostnaðin- um, Flugleiðir 25%, Samband veit- inga- og gistihúsa 4%, Félag ís- lenskra ferðaskrifstofa 4%, BSI 2% og Ferðaskrifstofa bænda 2%. Verið er að vinna að því að fá inn nýja aðila til að fjármagna þau 7% sem á vantar. „Við höfum til ráðstöfunar um 500 þúsund þýsk mörk (18 millj. kr.) sem er allt of lítið þegar til Iitið er til þess að Norðmenn og Danir hafa margar milljónir til ráðstöfunar í þessu skyni. Ef við ætlum að gera átak til að lengja ferðamannatíma- bilið og koma fólki á nýjar slóðir á Islandi þurfum við meira fjármagn til auglýsinga.“ Dieter telur ekki að um aukningu á ferðamönnum verði að ræða í sum- ar frá Þýskalandi og bendir á hversu mikil hún hafi verið á undanförnum árum. „Landkynningarskrifstofan var opnuð 1985 og þá voru þýskir ferðamenn 9.500 en á sl. ári voru þeir 22.500. Aukningin hefur verið að meðaltali 12% nema árið þegar Tsjernobyl-slysið varð en þá varð 44% aukning. Það er alveg augljóst T

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.