Morgunblaðið - 14.05.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
);
B 9
skráðir níu þúsund þátttakendur á
norrænum ráðstefnum á íslandi á
þessu ári en á alþjóðlegar ráðstefnur
eru skráðir 1.400 þátttakendur. Þá
er hér lítill markaður vegna fjöl-
skylduheimsókna þar sem einungis
1.362 íslendingar eru búsettir á
meginlandinu. Ennfremur er hér lít-
ill viðskiptamannamarkaður þar sem
viðskiptum íslendinga er í miklum
mæli stýrt frá Bretlandi og Norður-
löndurn."
Keflavíkurflugvöllur nýttur
sem skiptistöð
Hinar nýju áherslur í áætianaflugi
yfir N-Atlantshafið sem Flugleiðir
tóku upp árið 1988 þegar hafist var
handa um að framfylgja stefnunni
„The New Icelandair" fólust í að
draga úr sætaframboði yfír sumarið,
fljúga daglega allt árið og bjóða
nýjar flugvélar og góða stundvísi.
„Við tókum upp þá stefnu að líta á
Lúxemborg sem heimamarkað en
fylgjum jaðarstefnu á fjarlægari
mörkuðum. T.d. erum við hættir að
markaðssetja N-Atlantshafsflugið í
Austurríki og á Ítaiíu erum við að
reyna að byggja upp markaðinn með
Luxair í stað lestartengingar eins
og áður var. Einnig erum við að
þreifa okkur áfram með tengiflug
frá Italíu til Amsterdam með því að
nýta okkur flug KLM.“
Saga Class farrýmið hefur verið
notað sem merkisberi Flugleiða í
Lúxemborg og nágrenni við kynn-
ingu á NA-fluginu. Sala á sætum á
því farrými hefur aukist mjög mikið
og er orðin rúmlega 10% af sölunni
í Lúxemborg.
Lykilinn að árangri í N-Atlants-
hafsfluginu telja Flugleiðamenn
jafnframt felast í því að nýta Kefla-
vík sem skiptistöð. „Keflavíkurflug-
völlur mun eflast ennfrekar ef við
fáum þriðju Boeing 757 vélina á
næsta ári,“ segir Steinn Logi. „Þá
mun annað vandamál leysast sem
er ójafnvægi í sætaframboðinu vest-
an og austan megin við skiptistöð-
ina. Það þýðir að sætaframboð er
miklu meira til Evrópu en Bandaríkj-
anna sem kemur' fram í því að
hleðslunýting er miklu verri í Evr-
ópufluginu. Þetta þýddi t.d. að
stundum var ekki hægt að selja
sæti til Bandaríkjanna frá Skandi-
navíu eða Lúxemborg vegna þess
að flugið frá Keflavík til Bandaríkj-
anna var orðið fullbókað enda þótt
laus sæti hafi verið á leiðinni til ís-
lands.“
Markaðsrannsókn
Lögð hefur verið mikil áhersla á
MllÍíM
STÁLSKÁPAR FYRIR
VINNUSTAÐI O.FL.
— tei
I
0 1
I
Stálskápar með 1 -2-3-4 og 5
hólfum með læsingu
Staðlaðar stærðir á einingu:
hæð: 170sm, dýpt: 55sm
breiddir: 25-30 og 40sm.
>4ó auki smíðum við aðrar
stærðir eftir pöntunum
HF.OFNASMIOJAN
HÁTEIGSVEGI 7, S: 21220
að markaðssetja N-Atlantshafsflug-
ið á svæðinu kringum Lúxemborg
og réðist félagið í umfangsmikla
markaðsrannsókn til að afla upplýs-
inga um stöðu sína á markaðnum.
„Við söfnuðum saman nöfnum tíu
þúsund fyrirtækja í Lúxemborg,
Þýskalandi, Frakklandi og Belgíu
sem voru innan ákveðins radíus frá
Lúxemborg. Síðan fengum við þýskt
markaðsrannsóknafyrirtæki til að
gera könnun fyrir okkur á ímynd
og þjónustu félagsins. Einnig spurð-
um við um óskir þessara aðila og
hvaða þægindum þeir óskuðu eftir
um borð. Niðurstaðan var m.a. sú
að fargjaldið skiptir ekki höfuðmáli
vegna þess að fyrirtæki greiða að ’
jafnaði kostnaðinn en farþeginn vel-
ur flugfélagið. Þess vegna ákváðum
við að halda okkur við IATA-far-
gjöld á viðskiptafarrými en láta far-
þegana fremur njóta ýmissa fríð-
inda. Núna fær sá sem ferðast á
Saga Class ókeypis miða fyrir maka
og þeir sem ferðast einir fá ókeypis
farmiða sömu leið á venjulegu far-
rými sem unnt er að nota síðar.
Ennfremur er innifalin í miðanum
gisting í tvær nætur á Flugleiðahót-
eli í Reykjavík ásamt skoðunarferð
eða bílaleigubíl. Þetta fargjald er nú
um 170 þúsund krónur til New
York.“
Aðildin að ísland Tours
leggur okkur skyldur á
herðar
Flugleiðir eiga 25% hlutafjár í
einu stærsta ferðaheildsölufyrirtæki
í Þýskalandi, ísland Tours; sem
raunar er að öðru leyti í eigu Islend-
inga. „Samstarfið við ferðaheildsala
þarf ekki endilega að fela í sér eigna-
raðild,“ segir Steinn Logi. „Við erum
með samstarf við fleiri aðila eftir
en við gerðumst aðilar að ísland
Tours heldur en áður. Auðvitað ger-
um við okkur fulla grein fyrir því
að aðildin að ísland Tours leggur
okkur miklar skyldur á herðar að
sinna vel samstarfinu við hina ferða-
heildsalana.
Samstarfið getur falist í sameigin-
legu markaðsátaki eins og sameigin-
legum auglýsingum. Við leggjum
áherslu á að ferðaheildsalarnir bjóði
upp á ferðir utan háanna- tímans
og ef um mjög víðtækt samstarf er
að ræða gerum við að skilyrði að
þeir skipti eingöngu við Flugleiðir.
Það er t.d. ákveðið samkomulag við
ísland Tours um að þróa upp ferðir
utan háannatímans og á nýjum
mörkuðum, t.d. í Hollandi.
Dæmi um ferðir utan háanna-
tímans em haust- og vorferðir í eina
viku, hvatningarferðir og helgar-
ferðir til Reykjavíkur en einnig höf-
um við reynt að láta háannatímann
byija aðeins fyrr en áður og enda
aðeins seinna." Að sögn Steins Loga
hefur ferðamönnum frá austursvæð-
inu sem koma til íslands utan háann-
atímans fjölgað um 63,8% frá árinu
1988 á meðan ferðamönnum í heild
frá svæðinu hefur fjölgað um 46,5%.
„Ég tel að við séum búnir að tryggja
það að okkar markaðshlutdeild eigi
eftir að haldast óbreytt eða jafnvel
að aukast þó það fari auðvitað eftir
því hvernig salan þróast hjá einstök-
um ferðaheildsölum,“ sagði Steinn
Logi Björnsson.
KB
EUROCLASS EUROCLASS EUROCLASS
Tylltu þér
áður en þú skodar
þetta tilboð!
SAS Euroclass þægindin
byrja helma í stoful
Þiö eruö flutt með límósínu
frá útidyrum út á flugvöll.*
90% afsláttur fyrir maka.
Hóteldvöl kostar 100 kr.
fyrstu nóttina á SAS hóteii
og síðan er 50% afsláttur.
Tilboðið gildir til allra
áfangastaða SAS á
Norðurlöndum
Að auki eru í fullu gildi
önnur hlunnindi
Euroclass.
/S4S
EuroClass
SAS á íslandl - valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 - Sími 62 22 11
*Gildir fyrir Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík.