Morgunblaðið - 14.05.1992, Blaðsíða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992
NÁMSKE3Ð ÍMAÍOG JÚNÍ
Krítarkort
TOLVUSAMSKIPTI
Námskeiösdagar: 2. - 4. júní, kl. 8.30 -12.30
Leiöbeinandi: Dagný Halldórsdóttir rafmagnsverkfræöingur
Mjög örar framfarir eru nú á sviöi tölvusamskipta og þörfin fyrir
þekkingu á þessu sviöi veröur æ brýnni. Með þessu námskeiöi
er komiö til móts við þau fjölmörgu fyrirtæki og einstaklinga sem
þurfa aö geta hagnýtt sór tölvusamskipti.
Fjallaö verður um:
- Skjávinnslu - SMT (EDI)
- Skráarflutning - Vlönet og nærnet
- Biölara - miölara - Netstýringu
- Samvinnslu - Virðisaukanet (VAN)
- Tölvupóst - Þjónustu Pósts og síma viö tölvunotendur
Á námskeiöinu veröa þessi atriði skýrö og sett í samhengi hvert
viö annað. Þátttakendur gera hagnýtar æfingar meö skjáhermi-
forrit og mótöld, og tengingar veröa settar upp við ýmis kerfi.
WINDOWS KERFISSTJÓRNUN
Námskeiösdagar: 25. - 27. maí kl. 8.30 -12.30
Leióbeinandi Arni Gunnarsson rafeindaverkfræöingur M.S.
Hagnýtt námskeiö fyrir þá sem þurfa aö hafa umsjón meö
Windows uþpsetningum. Gert er ráð fyrir góöri almennri þekk-
ingu á Windows og Windows forritum, svo og DOS stýrikerfinu.
Eftirfarandi efni verðurtekið fyrir á námskeiöinu:
- Yfirlit yfir helstu forrit Windows og notendaskilin
- Uppsetning á Windows og uppfærslum
- Mismunandi 'Setup" aöferöir
- Afköst og áreiðanleiki, m.a DOS aölögun
- Uppsetning á forritum og jaðartækjum
- Nýir möguleikar I margmiölun (Multimedia)
- Hagnýtar ábendingar og ráö
ÖNNUR NÁMSKEIÐ
Excel3.0 töflureiknir 19. - 22. mal kl. 8.30- 12.30
PageMaker umbrot 19. - 22. mal kl. 8.30- 12.30
UNIX kerfisstjórnun 25. - 27. mal kl. 9.00- 16.00
OS/2 2.0 stýrikerfi 2. - 5. júnl kl. 8.30- 12.30
CorelDraw auglýsingagerö 9. -12. júnl kl. 13.00- 17.00
* NOVELL netstjórnun 9. -12. júnf kl. 13.00- 17.00
AS/400 Kerfisstjórnun 1 haldið t júnl kl. 9.00- 16.00
*Alh. breytta dagsetningu
Námskeiöin veröa haldin í húsnæöi Nýherja, Skaftahliö 24.
Skráning og frekari upplýsingar í sfmum 697700 og 621066.
Nýtt viðskipta-
kort frá VISA
VIÐSKIPTAKORT, sem einkum er ætlað kaup- og stjórnsýslumönn-
um og aðilum í einkarekstri, verður sett á markað hérlendis seinni-
hluta þessa mánaðar eða í byrjun júní, að sögn Einars S. Einarsson-
ar framkvæmdastjóra VISA íslands. Hin nýju kort verða bæði gefin
út í silfri og gulli. Korthafar koma til með að njóta meiri fríðinda
og forgangs á ferðalögum en áður var. Hægt er að velja um hvort
VISA reikningarnir verði gjaldfærðir á viðkomandi fyrirtæki eða
korthafa.
Auk umfangsmikilla trygginga
sem fylgja viðskiptakortunum er
einnig aðild að tveimur erlendum
fríðindaklúbbum. Annars vegar
„The Executive Club Intemation-
al“, en markmið hans er að þjóna
þeim sem ferðast mikið og tryggja
þeim hagstæð afsláttarkjör og auk-
in þægindi á betri hótelum víða
erlendis, auk sérkjara hjá ýmsum
bílaleigum. Hins vegar fá korthafar
aðgang að „Priority Pass Club“ sem
veitir þeim aðgang að betri stofum
á mörgum helstu flugvöllum heims,
gegn aðgangsgjaldi upp á um 1.000
krónur.
Einnig fylgir kortunum VISA—
PHONE kort, í tengslum við banda-
ríska símafyrirtækið Sprint Intehi-
ational sem felur í sér að hægt er
að láta gjaldfæra símtöl víða erlend-
is frá yfir á viðskiptakortið, hvort
sem hringt er frá hótelum eða ann-
ars staðar frá. Að sögn Einars S.
Einarssonar mun gjaldskrá Sprint
International vera lág og munu
korthafar fá fyrstu símtöl sín í
gegnum fyrirtækið án endurgjalds.
VIÐSKIPTAKORT
7— Hin nýju kort hjá VISA
Island eru bæði gefin út í silfri
og gulli. Á þeim er áletrað „Visa
Business Card“, svo og nafn
fyrirtækisins og korthafans.
Árgjald silfurkortsins verður
4.500 krónur og gullkortsins 7.500
krónur. Úttektarheimild gullkorts
er mánaðarlega um 300.000 krón-
ur en silfurkorts rúmlega 200.000
krónur.
Tölvur
Pappírslaus tollaf-
greiðsla að hefjast
RÍKISTOLLSTJÓRI og íslenska
álfélagið undirrituðu nýlega
samskiptasamning um pappírs-
lausa tollafgreiðslu. Þetta er
fyrsti samningurinn um slíka af-
greiðslu og er hann gerður í
framhaldi af sérstökum tilrauna-
verkefnum sem embættið ásamt
SKÝRR og tíu völdum fyrirtækj-
um hafa unnið að frá því í nóvem-
ber á sl. ári. Á sýningu EDI fé-
lagsins á þeim tíma var sýnt með
hvaða hætti pappírslaus sam-
skipti gætu verið við tollyfírvöld.
Að loknum frumtilraunum var
þessum fyrirtækjum boðið í byijun
febrúar að hefja pappírslausar toll-
afgreiðslur í að ákveðnum skilyrð-
um uppfylltum m.a. um prófanir
og úttekt embættisins ásamt undir-
skrift samskiptasamnings. íslenska
álfélagið hefur lokið prófunum á
sendingum og embætti ríkistoll-
stjóra lokið úttekt á tollafgreiðslu-
kerfi fyrirtækisins. Er þess vænst
að fleiri innflytjendur fylgi í kjölfar-
ið.
Aukin framleiðni er forsenda aukins Interroll hefur í áratugi framleitt og þróað
hagvaxter. I framleiðsluiðnaði faest aukin færibandamótora, flutningsrúllur,
hagræðing með vel hönnuðum lager- og flutningskerfi og lagerkerfi sem eru
flutningskerfum. viðurkennd gæðavara.
Auktu framleiðnina með INTERROLL.
Pappírslaus tollafgreiðsla hefur í
för með sér að fyrirtæki geta tollaf-
greitt vörur gegnum eigin tölvu en
samhliða er gengið frá sendingu
pappírslausra afhendingarheimilda
til farmflytjenda. Lokið er undir-
búningi að pappírslausum sam-
skiptum milli Eimskips, Flugleiða
og Samskipa annarsvegar og tollyf-
irvalda hins vegar og hafa þau ver-
ið í gangi um nokkurt skeið.
Með þessu nýja fyrirkomulagi
munu fyrirtæki spara sér ferðir í
tollinn og mjög dregur úr því vafstri
sem fylgt hefur því að leysa út
vörur úr tolli. Þetta þýðir einnig
hagræðingu fyrir tollyfirvöld þar
sem með þessu fyrirkomulagi þarf
ekki að færa upplýsingar inn í tölvu-
kerfí tollssins við tollafgreiðslur.
Hins vegar munu tollyfírvöld eftir
sem áður hafa möguleika á eftirliti
með innflutningi viðkomandi fyrir-
tækja.
Pappírslausar tollafgreiðslur
verða kynntar nánar þegar reglu-
gerð um þær verður sett og almenn-
ur aðgangur opnaður fyrir þá sem
uppfylla tiltekin skilyrði. Er jafnvel
búist við að 50-100 fyrirtæki verði
búin að fá heimild tollyfírvalda til
að tollafgreiða á þennan hátt undir
lok ársins.
Tryggingafélag
Hagnaður Tryggingamið-
stöðvarinnar 24 milljónir
HAGNAÐUR Tryggingamiðstöðvarinnar hf. á sl. ári nam alls um
24 milljónum króna samanborið við 35 milljónir árið áður. Bókfærð
iðgjöld ársins námu alls um 1.912 milljónum og hækkuðu um 15,3%
frá árinu áður. Stærsta tjón félagsins varð þegar ms. Steindór GK-
101 strandaði og fórst þann 20. febrúar 1991 og nam það 165 milljón-
um.
Þegar tekið hefur verið tillit til
breytinga á iðgjaldasjóði námu ið-
gjöld ársins 1.898 milljónum og
höfðu hækkað um 16%. Bókfærð
tjón ársins námu 1.502 milljónum
og höfðu hækkað um 50,7% frá
árinu áður. Þegar tillit hefur verið
tekið til breytinga á bótasjóði námu
tjón ársins 1.878 milljónum og
höfðu hækkað um 27,3%.
Afkoma félagsins fyrir fjár-
magnsliði og óreglulega liði var
neikvæð um 231 milljón og vegur
þar þungt slæm afkoma ökutækja-
trygginga en afkoman í þeirri grein
var neikvæð um 196 milljónir. Enn-
fremur var slæm afkoma í slysa-
og sjúkratryggingum en afkoman
var aftur á móti jákvæð f eigna-
tryggingum og sjó- og farmtrygg-
ingum.
Hlutfall skrifstofu- og stjómun-
arkostnaðar svo og aðstöðugjalds
var 10,4% en var 9,9% árið áður.
Á aðalfundi Tryggingamiðstöðv-
arinnar þann 6. maí sl. var sam-
þykkt að greiða 15% arð vegna
ársins 1991 og að hækka hlutafé
um 10% með útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa. Stjóm félagsins var endur-
jörin en hana skipa þeir Gísli
lafsson, starfandi stjomarformað-
ur, Haraldur Sturlaugsson, varafor-
maður, Guðfínnur Einarsson, Jón
Ingvarsson og Sigurður Einarsson.
Forstjóri félagsins er Gunnar Felix-
son.
kj
01
Word fyrSi; Windows2J
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2, SlMI 624260
VERSLUN - RÁÐGJÖF
15 klukkustunda námskeið fyrir þá sem gera kröfur um góða ritvinnslu.
Höfiim kennt á Word fra árinu 1987.
Tölvu- og verkfræöiþjónustan .íP
Verkfræðlstofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986 ®