Morgunblaðið - 14.05.1992, Page 13

Morgunblaðið - 14.05.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992 B 13 Greiðslukort Símaþjónusta í boði fyrir Euro- card gullkorthafa EUROCARD á íslandi gerði nýlega samning við bandaríska fyrirtæk- ið Executive TeleCard Ltd. um símaþjónustu við Eurocard gullkort- hafa. Þessi þjónusta gerir korthöfum kleift að hringja sjálfvirkt úr tónvalssíma frá yfir 30 löndum til nánast allra landa í heiminum svo og innan landanna. Kostnaðurinn er færður á greiðslukortið samkvæmt taxta viðkomandi lands að viðbættri þóknun Executive TeleCard Ltd. Öll fyrirmæli í þessari þjónustu eru á íslensku og unnt er að hringja beint án þess að hafa hafa samband við erlenda talsímaverði. Samkvæmt upplýsingum frá Eurocard felur hin nýja þjónusta í sér að korthafi hringir í svokallað „grænt númer“ í viðkomandi landi og slær inn landsnúmer, svæðis- númer og númer móttakanda, ásamt upplýsingum um kortnúmer og leyninúmer. Búnaðurinn hringir sjálfvirkt í viðkomandi númer og skuldfærir síðan kostnaðinn á greiðslukortið. Notendur þjón- ustunnar geta m.a. laékkað sím- kostnað sinn á hótelum þar sem há álagning er að jafnaði á síma- töxtum. Executive TeleCard þjónustan Fyrirtæki Þróunarfé- lagið vill selja hlut í tveimur fyrirtækjum ÞRÓUNARFÉLAGIÐ áformar að selja hlut sinn í malbikunarfyrir- tækinu Hlaðbær-Colas hf. og í Yleiiiingu hf. í Biskupstungum. Söluverðmætið í þessum tveimur fyrirtækjum mun samtals vera á bilinu 50-60 milljónir króna. I stað- inn hyggst Þróunarfélagið fjár- festa í fyrirtækjum sem byggja starfsemi sína á þekkingu og tækni. Að sögn Gunnlaugs M. Sigmunds- sonar framkvæmdastjóra Þróunarfé- lagsins var ákvörðun tekin um sölu fyrirtækjanna í samræmi við nýja stefnumörkun Þróunarfélagsins um að félagið einbeitti sér að fyrirtækj- um sem byggja starfsemi sína á þekkingu og tækni. Þróunarfélagið á nú 25% í Hlaðbæ-Colas hf. að nafnvirði 17,5 milljóna króna og 33,3% af hlutafé Yleiningar hf. að nafnvirði 16,7 millj- óna króna. verður fyrst í boði í þessum mán- uði fyrir EuroCard gullkorthafa en kortinu fylgja einnig ferðatrygg- ingar, háar úttektarheimildir og ýmis önnur þjónusta fyrir þá sem ferðast oft. Viðskiptavinir í þessari þjónustu eru nú alls 35 milljónir talsins og fer hratt fjölgandi. Unnt er að velja um 13 tungumál vegna leiðbeininga og verður íslenska 14. tungumálið. Hvað er það sem gerir BMW bíla áhugaverðari en aðra? Þaðgeturverið hagstættverð, lægri rekstarkostnaður, minnaviðhald, háþróuð tækni, fyrsta flokks þjónusta eða hámarks öryggi. Nýja BMW 3 línan sameinar alla þessa kosti, en býður jafnframt upp á hinn "klassíska" stíl . «■* . - Dilaumbooio ni sem ávallt er að finna í BMW. BMW - bíll sem vekur athygli Krókháisi 1-110 Reykjavik-simi 686633 o Engum líkur Flugleiðir flytja frakttil og frá Evrópu í stórum stíl Fraktvélar Flugleiða fljúga á sunnu- dögum, og oftar ef þarf, til og frá Evrópu, nánar tiltekið Oostende í Belgíu. Burðargeta fraktvélanna er 45 tonn og því eru þessar ferðir tilvaldar fyrir þá sem þurfa að flytja vörur í stórum einingum eða miklu magni. Starfsfólk Flugleiða aðstoðar viðskipta- vini sína fúslega við að koma fraktinni á endanlegan áfangastað ef á þarf að halda. Daglegt áætlunarflug Flugleiða er síðan til 15 landa og þangað flytja Flugleiðir að sjálfsögðu einnig frakt. Nánari upplýsingar í síma 690 101. FLUGLEIDIR F R A K T Á METTÍMA TIL ÍSLANDS íslendingar flytja mikið inn af vörum frá Taiwan. Leiðin frá Taiwan til íslands er löng og ströng en víðtækt og öflugt flutninganet Samskipa tryggir að þú fáir vörumar þínar heim að dyrum, fljótt og örugglega. Innflytjendur geta treyst á Samskip í flutningum, alla leið frá Taiwan. t^SAMSKIP Traustur valkostur Holtabakka við Holtaveg • 104 Reykjavík • Sími (91) 69 83 00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.