Morgunblaðið - 14.05.1992, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.05.1992, Qupperneq 16
VIÐSKIPn AMNNUIÍF FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992 IMYNDIN —— Anna M. Gunnarsdóttir, lita- og fatastílisti, segir að fólk í viðskiptum eigi að gera sér grein fyrir þeim áhrifum sem klæðaburður þess og framkoma hefur á viðskiptavinina. Er toppurinn að vera í teinóttu? í HINUM harða heimi viðskiptanna þar sem fyrirtækin keppa um hyili viðskiptavinanna eru menn í sifellt ríkari mæli að gera sér grein fyrir því hve útlitið getur haft mótandi áhrif á viðhorf fólks við fyrstu kynni. „Aðalmálið í viðskiptum er að mynda eina heild með klæðaburði og framkomu," segir Anna M. Gunnarsdótt- ir sem rekur Módclskólann Jönu. Hún er með kennarapróf í lit- greiningu og fatastfl frá The Academy of color and style, hefur atvinnu af þvi að aðstoða fólk við að klæða sig á viðeigandi hátt og er sérhæfð í því að útfæra einkennisklæðnaði. Að sögn Önnu eru ráðamenn í íslenskum fyrirtækum að vakna til vitundar um mikilvægi þeirra hefða sem víðast hvar eru ríkj- andi í sambandi við klæðaburð í viðskiptum. Hún tekur sem dæmi að í Englandi sé það útbreidd skoðun að karlmaður sem klæðist stökum jakka og gráum buxum sé kominn stutt á framabraut- inni, stundi hann viðskipti á annað borð. Ef hann er klæddur einlitum jakkafötum er hann kominn að- eins lengra og ef fötin eru teinótt er tekið ofan fyrir honum. „Nú þegar Evrópa er að opnast jafn mikið og raun ber vitni er mjög mikilvægt að íslendingar geri sér grein fyrir þessum hefðum sem gengið er út frá í fjölda landa og má raunar sumar kalla alþjóðleg- ar,“ segir Anna. Viðskiptalitirnir eru að sögn Önnu helst grátt sem er tákn jafn- vægis, blátt sem táknar heiðar- leika og olívugrænt sem táknar rólyndi. „Þetta er auðvitað mjög gróf flokkun," segir Anna, „en stendur þó fyrir sínu. Þeir sem vilja eiga viðskipti við Japani ættu t.d. að forðast að vera klæddir í rauðar flíkur. Það fellur ekki í kramið þar og er ekki einu sinni vel séð að einkaritari forstjóra sem Japani ætlar að eiga við- skipti við. Þeim japanska þætti það langt frá því að vera traust- vekjandi." Þegar Anna vinnur með fyrir- tækjum og stofnunum fer ráðgjöf- in venjulega þannig fram að hún heldur fyrirlestur fyrir starfshóp- inn og talar síðan við hvern ein- stakling í einrúmi. Þá á viðkom- andi að vera búinn að skipuleggja fataskáp á 60 mismunandi vegu svo Anna geti gengið úr skugga um að það hafí skilið leiðbeiningar hennar. Síðan á það m.a. að segja henni frá hugmyndum sínum um viðskiptaímyndina út frá viðkom- andi vinnustað. Þáttur í ráðgjafa- vinnu Önnu er að þefa af fólkinu sem hún er að vinna með til að komast að raun um hvort það angi af svitalykt, táfýlu eða and- remmu og síðan vinnur hún á við- komandi þáttum með fólkinu ef vandamálin eru til staðar. Anna kom heim úr námi árið 1990. Fyrsta fyrirtækið sem hún var með ráðgjöf hjá var íslands- banki, en þar var hún aðallega með ráðgjöf á fyrirlestrarformi. Síðan vann hún með Vífilfelli hf., Pósti og síma, Eimskip hf. og nú síðast Landsbréfum hf. Þá hefur' Anna verið með fyrirlestur í Bún- aðarbanka og hjá Kaupmanna- samtökunum. „Eg er upppöntuð tvo til þtjá mánuði fram í tímann í fyrirtækjaráðgjöfinni. Síðan fylgi ég hveiju fyrirtæki fyrir sig eftir og í hvert sinn sem nýr starfskraftur er ráðinn tek ég hann í gegn svo hann falli í þann hóp sem fyrir er.“ Anna segir að einfaldasta leiðin sé að koma starfsfólki þjónustu- fyrirtækja í einhvers konar ein- kennisklæðnað. Þannig myndist auðveldlega sú heildarmynd sem verið er að sækjast eftir, þó fleiri leiðir séu færar. Þá sé mikilvægt að hver og einn velji sér klæðnað sem henti vaxtarlaginu. „Síðan getur hvert fyrirtæki fyrir sig verið með nokkrar mismunandi gerðir af fylgihlutum í gangi, s.s. slæður og bindi. Ég get tekið sem dæmi að starfsfólk Pósts og síma er nú komið i einkennisklæðnað eftir minni ráðgjöf. Þar eru í gangi sex tegundir af slæðum og bind- um sem fólk velur út frá því hvernig ég hef litgreint það,“ seg- ir Anna. ■iUiHU.IU.llll Nýr viðskiptafulltrúi í Bandaríkjunum ÚTFLUTNINGSRÁÐ hefur ráð- ið Jón Sigurdsson viðskiptafull- trúa í New York, þar sem önnur af tveimur viðskiptaskrifstofum ráðsins er en hin er í Berlín. Markmið fulltrúans er að að- stoða íslensk fyrirtæki við að koma vöru og þjónustu á mark- að í Bandaríkjunum og Kanada. Einnig mun hann aðstoða við að koma á samvinnu milli ís- lenskra og erlendra fyrirtækja. Jón Sigurðsson segir útflutning til Bandaríkjanna hafa minnkað verulega undanfarin ár og sé það miður í ljósi þess að auknum hag- vexti verði ekki náð með aukinni sókn í sjávarútvegi, sem borið hafi uppi hin góðu lífskjör hér á landi í áratugi. „Annars vegar er það vegna gengisþróunar og einnig vegna þess að áhersla á markaði í Evrópu hefur verið mikil,“ segir Jón. Áður en Jón fór til New York heimsótti hann á bilinu 40-50 fyr- irtæki hérlendis og segir hann að mörg þeirra hafa sýnt áhuga á að komast inn á markað í Bandaríkj- unum eða auka markaðsstarf sitt þar. „Þó bjóða ekki öll þessi fyrir- tæki sem vöru og þjónustu sem er líkleg til að finna hljómgrunn á þessum markaði. Hins vegar eru hér allnokkur fyrirtæki sem stunda mjög öguð vinnubrögð og hafa þróaða vöru og þjónustu í boöi. Þessi fyrirtæki geta án efa náð árangri með markvissu markaðs- starfi enda hafa íslendingar mjög staðgóða þekkingu á Bandaríkjun- um. Tiltölulega margir íslendingar eru menntaðir þar og hefð er fyrir miklum samskiptum landanna. Þessi tiltölulega miklu samskjpti og þekking okkar á þessu mikla markaðssvæði ætti að koma okkur til góða og gefa örlítið forskot sem við getum nýtt okkur. Með þessu VIÐSKtPTAFULL- TRÚIIMN — Jón Sigurðs- son, viðskiptafulltrúi Útflutn- ingsráðs í New York. er ég alls ekki að draga úr mikil- vægi annarra markaða og leggja til að markaðsstarf þar verði minnkað heldur einungis að benda á mikilvægi þess að veðja ekki á einn hest. Ég mun leggja áherslu á að aðstoða þau fyrirtæki sem eru helst megnug að markaðsfæra sína vöru og þjónustu í Bandaríkjunum og Kanada, bæði stórum fyrirtækjum og smáum. Mikilvægt er að ein- blína ekki á sjávarafurðir heldur kanna einnig möguleika á að flytja héðan út þjónustu og hugvit. Skrif- stofa Útflutningsráðs í New York mun ekki vinna sigrana heldur fyrirtækin sjálf, þó vissulega geti hún orðið góður liðsauki og þarf- ur,“ segir Jón Sigurðsson viðskipt- afulltrúi. T o r g i ð Langþráð f rumvarp til samkeppnislaga FRUMVARP til samkeppnislaga var lagt fyrir Alþingi hinn 3. apríl síðastliðinn og bíður nú fram- halds fyrstu umræðu. Með frum- varpinu er stefnt að því að efla virka samkeppni á íslandi þar sem hún tryggir best hag neyt- enda, atvinnulífsins og þjóðfé- lagsins í heild, líkt og segir í greinargerð frumvarpsins. í síð- astliðinni viku stóð Verslunarráð íslands fyrir fundi um frumvarpið, þar sem framsögumenn voru Björn Friðfinnsson ráðuneytis- stjóri og Vilhjálmur Egiisson framkvæmdastjóri Verslunar- ráðs. Björn gerði grein fyrir efni frumvarpsins og reifaði helstu breytingar sem það felur í sér. í frumvarpinu er lögð höfuðá- hersla á að efla samkeppni og að draga úr verðlagsafskiptum. Því er m.a. lagt til að nafni Verðlagsstofnunar verði breytt í Samkeppnisstofnun og nafni Verðlagsráðs í Samkeppnisráð. Gert er ráð fyrir að banná- kvæðum við samkeppnishömlum sem taldar eru skaðlegar fjölgi, en jafnframt verður misbeitingar- reglan áfram í gildi gagnvart þeim hömlum sem nauðsynlegt er að leggja sérstakt mat á hvort hafi skaðleg áhrif í för með sér. í greinargerðinni segir að frá bannákvæðunum séu und- anþáguheimildir, t.d. ef þær geta leitt til aukinnar samkeppni, auk- innar framleiðni eða þegar sér- stakar aðstæður er varða al- mannaheill eru fyrir hendi. Það nýmæli er í frumvarpi til samkeppnislaga að heimild er til að banna samruna fyrirtækja eða yfirtöku fyrirtækis á öðru fyrir- tæki ef það dregur verulega úr samkeppni. Þá er einnig mögu- leiki á að ógilda samruna eða yfirtöku sem þegar hefur átt sér stað. Vilhjálmur Egilsson lýsti yfir ánægju sinni með að frumvarpið væri komið fram en taldi þó að ýmsu þyrfti að breyta áður en það yrði að lögum, t.d. gagnrýndi hann mikið vald Samkeppnisráðs og Samkeppnisstofnunar. Varp- aði hann fram þeirri spurningu hvort ekki væri verið að fela þeim verkefni sem almennirdómstólar ættu að sinna. í frumvarpinu er kveðið á um að móðurfyrirtæki og dótturfyrir- tæki í sömu grein eða fyrirtæki innan sömu'fyrirtækjasamstæðu geti gert með sér samninga, eða haft með sér samvinnu, enda þótt af því leiöi takmörkun sam- keppni. í þessu sambandi telur Vilhjálmur að í frumvarpið vanti ákvæði um að fyrirtæki sem út- hlutað hefur verið sérréttindum á einhverju sviði eigi ekki að geta notað þann hagnað sem þau hafa af verndaðri starfsemi til þess að niðurgreiða samkeppn- isstarfsemi. Hann nefndi sem dæmi Póst og síma, sem hefur. einkaleyfi á fjarskiptum hérlend- is, jafnframt reki fyrirtækið sölu- deild á notendabúnaði. Nauðsyn- legt væri að stofna hlutafélag um vernduðu starfsemina sérstak- lega og hins vegar samkeppnis- starfsemina. Samningar á milli slíkra félaga ættu að vera skrif- legir og sýnilegir, t.d. um skipt- ingu á kosthaði. Miklar breytingar eru fram- undan á íslensku viðskipta- og atvinnulífi, þ. á m. er fyrirhuguð sala á mörgum ríkisreknum fyrir- tækjum og ætla má að í ýmsum greinum eigi fyrirtæki eftir að sameinast. Við það munu öflugri en hugsanlega færri fyrirtæki keppa á markaði. Samkeppnis- lögin, sem líklega taka gildi um næstu áramót, koma ekki af- dráttarlaust í veg fyrir fákeppni að sögn Vilhjálms Egilssonar, en ef fyrirtæki misnota aðstöðu sína gefa lögin heimild til að komið só í veg fyrir það. Hinum nýju lögum er ætlað að koma í staðinn fyrir núgild- andi samkeppnislög frá 1978, en þau hafa aldrei gegnt því hlut- verki sem þeim var ætlað. Að margra mati eru þau lög ómark- viss og jafnvel óframkvæmanleg. Mikilvægt er að nú takist betur til, lögin séu skýr og samkeppnis- hömlur séu eins takmarkaðar og unnt er. Til að stuðla að því er mikilvægt að frumvarpið fái ítar- lega og vandaða umfjöllun í at- vinnulífinu, sem endurspeglist hjá löggjafarvaldinu, ekki síst í Ijósi þess að samkeppnislögin koma til með að hafa mikil áhrif á atvinnulífið næstu árin eða ára- tugi. ÁHB

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.