Morgunblaðið - 24.05.1992, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992
Breyllur
hkniefnaheimnr
hvarf því að mestu þótt það gerði
vart við sig að nýju um miðjan
síðasta áratug í nokkrum mæli.
Nú er hins vegar kominn fram
stór hópur af ungum neytendum
sem þekkir ekki til LSD og man
ekki hvaða skaða það olli hér á
árum áður enda virðist framboðið
nú nægt.
Kókaín hefur alltaf verið til hér
á landi í einhveijum mæli frá miðj-
um síðasta áratug. í stóra kókaín-
málinu sem svo var kallað, fluttu
þrír liðlega tvítugir menn inn mik-
LSD er sagt áberandi
um þessar mundir eft-
ir að hafa ekki verið
fáaniegt að heitið geti
svo árum skiptir. Und-
anfarin misseri hefur
lögreglan heyrt orð-
róm, sem húntelur
ástæðu til að taka
mark á, um að heróín
sé hér f umferð.
ið magn að kókaíni en lentu í erfið-
leikum með að dreifa því. Sumir
sem Morgunblaðið hefur rætt við
telja það sönnun þess að markaður
fyrir það efni sé í raun lítill hér á
landi en aðrir segja að innflytjend-
urinir hafí ekki kunnað á markað-
inn og því ekki snúið sér til réttra
aðila. Heróín hefur fundist tvíveg-
is hér í sögunni, í annað skiptið
0,1 gramm og í hitt skiptið 0,3
grömm en Bjöm Halldórsson segir
nýlegan og endurtekinn orðróm
um að efnið sé í dreifingu hér
þess eðlis að taka beri hann alvar-
lega.
Þá hefur „ecstacy", alsæla, sem
er bæði ofskynjunarefni og ör-
vandi lyf og breiðst hefur ört út
í pakkhúsasamkvæmum í Evrópu
og Bandaríkjunum borist til lands-
ins og er í umferð að talið er. Það
hefur ekki fundist í umferð hér
þrátt fyrir að fundist hafí þijár
töflur á einum manni við komu til
landsins í fyrrasumar og í septem-
ber í fyrra var hindraður innflutn-
ingur á 20 pillum í pósti sem nú
nýlega fékkst staðfest með efna-
greiningu að innihéldu þetta efni.
Um þessar mundir er talið að efn-
ið sé til hér á landi og neysla á
alsælu tengist samkomuhaldi á
ákveðnum stöðum í borginni þess-
ar vikurnar.
Ólafur Guðmundsson segir að
alsælan sé „markaðssett“ af sölu-
mönnum sem hið nýja hættulausa
vímuefni framtíðarinnar, sem geri
menn káta og óþreytandi, án þess
að vera ávanabindandi en slíkt sé
alrangt þar sem efnið hafí meðal
annars alvarlegar geðrænar auka-
verkanir. Hins vegar sé efnið svo
nýtt að dæmi um alvarlegar auka-
verkanir séu ekki enn á almanna-
vitorði eins og dæmin um hættur
af heróínneyslu.
Rökstuddur grunur er um að
þessa efnis sé nú neytt í ákveðnum
hópum hér á Iandi. Eitt af því sem
leiðir af því að fíkniefnamarkaður-
inn hér á landi hefur ekki verið
kortlagður er að ekki er með
nokkru móti unnt að fullyrða um
stærð þess hóps sem prófar fíkni-
efni eða neytir þeirra nokkrum
sinnum án þess án þess að ánetj-
ast. „Það virðist þó vera býsna
stór hópur sem prófar einu sinni,
tvisvar, þrisvar en ekki aftur,“
segir Björn.
„Það má skipta „undirheimun-
um“ hér á landi í tvennt, annars
vegar fíkniefnamál og hins vegar
annars konar afbrot,“ segir Björn
Halldórsson aðspurður um tengsl
afbrota og ofbeldis við fíkniefna-
misnotkun. „Þarna á milli er mikil
skörun en það er óvíst og órann-
sakað hversu mikil hún er. Það
er enginn vafi á að tékkasvik,
greiðslukortasvik, og hvers konar
fjársvik eins og útgáfa falsaðra
víxla og skuldabréfa, tengist oft
neyslu fíkniefna eða afleiðingum
fíkniefnaneyslu," segir hann.
Þýfi flutt úr landi
Ólafur Guðmundsson segir orð-
róm í gangi um innbrotagengi sem
selji þýfí til manna með skipulögð-
um hætti og fái jafnvel greitt fyr-
ir í fíkniefnum. Björn Halldórsson
segir að fíkniefnalögreglan hafí
fengið sterkar vísbendingar um
að hér á landi sé í gangi skipulögð
starfsemi um að flytja þýfi úr landi
og selja og að sú starfsemi tengist
fíkniefnaheiminum. Um geti verið
að ræða hvers konar varning sem
auðvelt sé að flytja úr landi og
koma í verð, svo sem skartgripir,
úr, myndbandstæki og hvaðeina.
„Hvað ofbeldisbrot varðar þá
er það vitað að beiting ofbeldis er
hluti af lífsstíl og ímynd fíkniefna-
neytandans og tengist jafnvel
þeim breytingum sem efnin valda
á persónuleika manna,“ segir
Björn. Hann segir að margt af því
fólki sem varð áberandi í fíkna-
neyslu hér á landi upp úr 1970
þegar þessi efni bárust til landsins
sé enn að, orðið rútínerað, forhert
og skemmt af neyslunni, og auk
þess hafí á undanförnum áratug
orðið til, hér kjarni af forhertum
og skemmdum fíkniefnaneytend-
um. Innan þessa hóps s'é ofbeldi,
barsmíðar og nauðganir viður-
kennd aðferð í samskiptum til
dæmis við innheimtur skuida. Oft-
ast bitni það ofbeldi á öðrum innan
hópsins og þótt alþekkt séu dæmi
um tilefnislausar ofbeldisárásir
fíkniefnafólks gegn saklausu fólki,
sé erfitt að segja fyrir um slíkt
eða korteggja það. Einnig segir
Björn að vændi sé orðið orðið allút-
breitt hér meðal stúlkna sem eigi
við fíkniefnavanda að stríða og
geri hvað sem er til að ná sér í efni.
Kortleggja þarf neysluna og
markaðinn
Þau um það bil 20 á,r sem skipu-
lega hefur verið unnið að fíkniefn-
Hann segist gera sér
grein fyrir því að fyrir
allan þorra almenn-
ings hljómi lýsingar
eins og út úr kvikmynd
en segir að þeim sem
vinni við fíkniefnamál
sé Ijóst að það sé
ómögulegt fyrir þá
sem ekki séu í návígi
við þennan heim að
gera sér grein fyrir þvf
hvernig ástandið er.
amálum á vegum lögreglu hér,
hafa um 4.000 manns komist á
skrár yfír neytendur fíkniefna. Á
skrárnar hafa undanfarið bæst um
300 manns á ári og meðalaldur
nýliðanna fer lækkandi^ að sögn
Ólafs Guðmundssonar. Ymsar töl-
ur heyrast um umfang fíkniefna-
markaðarins en Ólafur og Björn
telja útilokað að giska á hve stórt
hlutfall af fíkniefnum sem koma
til landsins það er sem lögreglan
nær í, en telja þó nær að miða við
fjölda tilvika sem lagt er hald á
fíkniefni, fremur en magn sem
vísbendingu um hvernig markað-
urinn sé hveiju sinni.
Þeir telja brýna þörf á því að
reynt verði í alvöru með vísinda-
legum, en óhjákvæmilega óhefð-
bundnum hætti, að kortleggja
fíkniefnamarkaðinn á íslandi og
svara spurningum eins og hve
margir neytendur eru, á hvaða
aldri þeir eru, hvaða efna þeir
Nú er hins vegar kom-
inn fram stór hópur
af ungum neytendum
sem þekkir ekki til
LSD og man ekki
hvaða skaða það olli
hér á árum áður enda
virðist framboðið nú
nægt.
neyta, hversu oft og svo framveg-
is. Björn Halldórsson segist telja
mikilvægt að hlutlausum aðila á
borð við félagsvísindastofnun Há-
skólans verði fengin umsjón með
þessu verkefni til að ekki sé unnt
að halda því fram að sá sem kann-
ar eigi einhverra hagsmuna að
gæta í því að ná fram ákveðinni
niðurstöðu. Á grundvelli slíkrar
könnunar vill hann að ákveðið
verði hvað gera þurfi í málinu og
það s’iðan gert, til að hefta út-
breiðslu þessara efna.
Ársskýrsla SÁÁ um þá sem leitað hafa sér meðferðar vegna fíkniefna:
155 í meðferð vegna
amfetamíns í lyrra
í ársskýrslu SÁÁ fyrir árið 1991 er ítarlega fjall-
að um þá tölfræði sem vinna má úr skýrslum
samtakanna um neyslu þeirra sem þar hafa leit-
að sér meðferðar vegna ofneyslu. Meðferðar
vegna ofneyslu amfetamíns leituðu í fyrra 155
manns manns, flestir undir 25 ára aldri. Þetta
er um 10% af heildinni en flestir voru amfet-
amínneytendur 217 manns, eða 14,5% árið 1985.
Alls hafa um 300 einstaklingar greinst stórneyt-
endur amfetamíns, að sögn Þórarins Tyrfingss-
onar yfirlæknis. Hann sagði að tölur samtakanna
yfir neytendur sem leitað hefðu meðferðar sýndu
að ástandið hefði heldur lagast árið 1991 og
árin tvö þar á undan, bæði hvað varðar amfetam-
ín en einkum varðandi kannabisefni. í skýrslu
SÁÁ kemur fram að einstaklingar sem misnot-
uðu kananbis við komu í meðferð á Vog hafa
undanfarin þrjú ár verið færri en árin þar á
undan, eða um 15% af þeim sem Ieita meðferðar
í stað þess að vera uni 18-21%. I sérstökum kafla
er fjallað um unglinga á aldrinum 15-19 ára.
Það segir að ekki verði séð að þeir unglingar
em leiti sér meðferðar vegna vímuefnaneyslu
byiji fyrr að nota vímuefni en var fyrir um 10
árum síðan. Flestir þeirra noti áfengi í fyrsta
skipti 12-14 ára. „Hitt er áberandi að unglingar
virðast geta orðið reglulegir neytendur ólöglegra
vímuefna eins og kannabisefna mun fyrr en áður
var eða um 16 til 17 ára. Hér munar líklega um
ein 2 til 3 ár frá því sem var fyrir 10 árum.
Þannig halda þeir yngri sínum hlut í fjölda til-
fella af ólöglegri vimuefnaneyslu meðan ólögleg
vimuefnaneysla minnkar hjá þeim sem eru 25
ára eða eldri,“ segir þar.
Einnig kemur fram að alls
hafí 106 piltar og stúlk-
ur, 15-19 ára, leitað með-
ferðar á Vogi á síðasta ári en
innlagnir í þeim aldurshópi hafí
verið 123 talsins. Síðan segir: „Nú
eru á íslandi um 21.000 ung-
menni á aldrinum 15-19 ára og
má ætla [... ] að rúmlega þijú
hundruð þeirra muni leita sér
Hlutfallslega færri
koma til meðferðar
vegna amfetamíns
og kannabisefna en
áður, en þeiryngri
halda sfnum hlut
meðferðar fyrir 20 ára aldur. Það
er ekki þar með sagt að „öll þessi
300 ungmenni séu nú djúpt sokk-
in í fíkniefnaneyslu.“ Hið raun-
verulega er að um 70 til 80 ung-
menni munu leita sér meðferðar
vegna vímuefnaneyslu í fyrsta
skipti á hveiju ári og flest þeirra
munu vera eldri en 17 ára.“
Þá segir í skýrslu SÁÁ: „Þegar
meta á ... ólöglega vímuefna-
neyslu meðal þeirra sem eru
yngri en 20 ára verður að hafa
í huga að sum þessara ungmenna
finna sig í því að gera meira úr
sinni vímuefnaneyslu heldur en
efni standa til. Einkum er vara-
samt að treysta á þær upplýs-
ingar sem þeir allra yngstu eða
15-17 ára gefa upp. Með þetta í
huga reyna læknar að sannreyna
og safna nákvæmum upplýsing-
um um neyslu þessara ungmenna
á Vogi.
Þeir yngstu halda sínum hlut
og vel það
Árið 1991 komu 106 einstak-
lingar á Vog sem voru 19 ára eða
yngri. Af þessum unglingum
höfðu 15 stúlkur og 34 piltar
______ notað kannabisefni viku-
■■■ lega í 1 ár eða oftar og
lengur eða 45%. Árið
1990 var þeta hlutfall
44%. I þeim hópi sem
misnota kannabis eru
fíknir neytendur sem
nota efnið nær daglega
og hafa gert í 6 mánuði
eða lengur. Árið 1991
greindust 9 stúlkur og
25 piltar fíknir með þess-
um hætti eða 30%. Árið
1990 voru hlutfallstölur
hinna fíknu 28%. Meðan
greindum kannabismis-
notenda og þó einkum fíkinna
fækkar í heild meðal þeirra sem
leita sér meðferðar, halda þeir
allra yngstu sínum hlut og vel það.
Misnotkun amfetamíns er
nokkur algeng í þessum hópi.
Þannig reyndust 9 stúlkur og 16
piltar hafa notað amfetamín viku-
lega í 6 mánuði eða lengur eða
20%. Amfetamínneysla kemur
.alltaf í kjölfar kannabisneyslu og
venjulega hafa ungmennin notað
kannabisefni reglulega í nokkra
mánuði áður en þau reyna amfe-
atmín í fyrsta sinn. Þannig voru
allir þeir sem greindust amfetam-
ínmisnotendur úr hópi kannabis-
misnotendanna.
Kókaínneysia er lítil meðal
þessara ungmenna, 3 stúlkur og
8 piltar kváðust hafa notað kóika-
ín í eitt eða nokkur skipti. Erfitt
er að átta sig á því hvort þetta
er rétt. Sex stúlkur og 8 piltar
höfðu notað sveppi, flest í nokkur
skipti en þó höfðu tveir piltar
notað þá reglulega með hassreyk-
ingum í nokkum tíma. Neyslu á
heróíni, LSD eða krakki verður
ekki vart í þessum hópi. Nokkuð
virðist algengt að þessir unglingar
fikti við að sprauta sig í æð. Sem
betur fer láta þó flestir duga að
reyna þetta í eitt eða örfá skipti.
Þannig kváðust 9 stúlkur og
12 piltar, 20%, hafa sprautað sig
í æð og flestir kváðust hafa notað
til þess amfetamín. Af þessum
einstaklingum var einungis ein
stúlka og einn piltur sem höfðu
sprautað sig reglulega í hálft ár
eða lengur og 5 stúlkur höfðu
sprautað sig reglulega í hálft ár
eða iengur og 5 stúlkur höfðu
sprautað sig oftar en í örfá skipti.
Hinir, 3 stúlkur og 11 piltar, höfðu
einungis sprautað sig í eitt eða
örfá skipit.
Mikið er hér í hýfi að slíkum
tilvikum fjölgi ekki' frá því sem
nú er. Árið 1989 fór víruslifrar-
bólgufaraldur af B gerð af stað
meðal þeirra sem sprauta sig í
æð. Helmingur þeirra sem, hefur
sprautað sig reglulega í einhvern
tíma hafa fengið þetta smit. Aðr-
ir fylgikvillar, eins og bólgur í
æðum, eru algengar og dæmi eru
um stóralvarlega fylgikvilla eins
og hjartaþelsbólgu. Alnæmi virð-
ist enn ekki smitast með því að
fólk sprautar sig í æð með vímu-
efnum hér á Islandi þó að þetta
sé ein algengasta smitleiðin í sum-
um stórborgum vestan hafs. Ekki
hafa fundist ný tilfelli af alnæmi
undanfarin tvö ár á Vogi,“ segir
í skýrslu SÁÁ.