Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 15
MORQUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992
15
Slysasjóði leik-
ara áskotnast fé
UPPGJÖR fór fram miðvikudag-
inn 20. maí vegna sölu á hljóð-
snældum með leiklestri á sögunni
Jólasveinarnir eftir Iðunni
Steinsdóttur og þrettán stuttum
jólalögum sem komu út fyrir jólin
1991. Þeir sem stóðu að útgáf-
unni voru Félag íslenskra leikara,
Starfsmannafélag Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands og Steinar hf.
Allir aðilar sem að verkinu stóðu
gáfu vinnu sína, svo og höfundur
sögunnar, en sagan Jólasveinarnir
samanstendur af þrettán köflum og
fjallar hver kafli um sig um einn
hinna þrettán íslensku jólasveina og
ævintýri sem þeir lenda í er þeir
koma til byggða hver af öðrum rétt
fyrir jólin.
Allur ágóði af sölu hljóðsnæld-
unnar rennur í Slysasjóð Félags ís-
lenskra leikara og Starfsmannafé-
lags Sinfóníuhljómsveitar íslands,
en sjóðurinn var stofnaður lokadag-
inn 11. maí 1973. Tilgangur sjóðsins
er að styrkja fjárhagslega þá sem
orðið hafa fyrir slysum, og/eða að-
standendur þeirra sjómanna, er lát-
ist hafa af slysförum. Sérstakt tillit
er tekið til þeirra sem lítið eða ekk-
ert eru tryggðir hjá tryggingarfé-
lögum. Sjóðurinn er í vörslu Slysa-
varnarfélags íslands sem jafnframt
annast fjárreiður hans.
Frá afhendingunni. Sæbjörn Jónsson frá Starfsmannafélagi Sinfóníuhljómsveitar íslands, Lilja Þórisdótt-
ir frá Félagi íslenskra leikara, Guðbjörg Þorbjarnardóttir fyrir hönd sjóðsstjórnar og Jónatan Garðar-
son útgáfustjóri Steina hf.
MEIRIHATTAR
OPID IDAG
- sunnudag kl. 13-17
model
sýna það nýjasta frá París - London - Italíu Töff - fínt - fríkað og ferskt
Sýnum breiða línu ífatnaði og skóm.
Nýja baðlínan frá Ný* LjÓSmyndasýníng
sérum RalphLauren \V/ [| g § QO § ÍCafé17
hárgreiðsluna orv.SfswxlMHLsíw A^|Björn Blöndal sýnir landslagsmyndir
T7. . -rarleilri f
Girnilegir smáréttir í Café 17
WARNEH undirfatnaður - lifandi gínur í glugganum
Láttu sia þig
Allir velkomnir.
Sautján,
símar 17440/29290