Morgunblaðið - 24.05.1992, Qupperneq 31
|tl mrpm Wai) ííi
ATVINNURAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVIN N %MAUGL YSINGAR
Sölumaður
25-45 ára
Getum bætt við sölumanni í verslun til að
selja fallegar og auðseljanlegar vörur. Vel
launað framtíðarstarf fyrir áhugasaman og
duglegan sölumann.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „Metnaður - 1347“.
Framtíðarstörf
Lögfræðistofa
Óskum eftir góðum starfsmanni til skrifstofu-
starfa, 30 ára eða eldri. Æskilegt að viðkom-
andi sé kunnugur innheimtukerfi lögmanna
og geti unnið á Word Perfect. Fullt starf.
Kvenfatadeild
Óskum eftir góðum og þjónustusinnuðum
starfsmanni til sölustarfa nú þegar.
Vinnutími frá kl. 13-18.
Umsóknarfrestur er til 28. maí.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
fást á Ráðningarstofunni frá kl. 9-13.
^áinvmrstofm
STARFS- OG ”NÁMSRÁÐCJÖF
KRINGLUNNI 4, (BORGARKRINGLUNNI), ® 67744B
m BORGARSPÍTALINN
Hjúkrunar-
framkvæmdastjóri
Staða hjúkrunarframkvæmdastjóra á skurð-
lækningadeildum og endurhæfinga- og tauga-
deild Borgarspítalans er laus til umsóknar.
Krafist er þekkingar og reynslu í stjórnun og
hjúkrun skurðlækninga- og endurhæfinga-
sjúklinga.
Hjúkrunarframkvæmdastjóri vinnur að skipu-
lagningu hjúkrunar 150 sjúklinga í samvinnu
við deildarstjóra og hefur með höndum um-
fangsmikið mannahald og fjármálaábyrgð.
Hann þarf áð hafa góða skipulagshæfileika,
eiga gott með samstarf við aðra og sýna
frumkvæði varðandi þróun og verkefnavinnu
í hjúkrun.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Sigríður
Snæbjörnsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma
696350.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 1992.
Hjúkrunarfræðingar
Vegna aukinnar starfsemi á hjartadeild Borg-
arspítalans getum við boðið hjúkrunarfræð-
ingum störf nú þegar eða eftir nánara sam-
komulagi.
Vinsamlega leitið upplýsingar hjá Dagbjörtu
Þyrí Þorvarðardóttur, hjúkrunarstjóra, í síma
696567.
„Au pair“
„Au pair" vantar í úthverfi Kölnar sem fyrst
til að gæta þriggja barna í eitt ár.
Upplýsingar gefur Margrét á mánudaginn í
síma 9049-220-586444.
Sumarafleysingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til sumarafleys-
inga á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
(heimahjúkrun). Vinnutími eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri og
hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 22400.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Kerfisfræðingur
Óskum að ráða kerfisfræðing til starfa hjá
stóru þjónustufyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið: Kerfissetning og forritun nýrra
verkefna, ásamt viðhaldi eldri kerfa á IBM
AS/400 tölvu fyrirtækisins.
Við leitum að manni með a.m.k. 3ja ára
starfsreynslu. Reynsla af störfum við IMB
AS/400 er nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „Kerfisfræðingur 195“ fyrir 30. maí
nk.
Hasvaneur h f
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Heilsustofnun NLFÍ, Hveragerði
Hjúkrunarfræðingar
Tvær stöður hjúkrunarfræðinga við Heilsu-
stofnunina eru lausartil umsóknar, önnurfrá
1. júlí og hin frá l.ágúst nk.
Æskileg er starfsreynsla í hjúkrun endurhæf-
ingasjúklinga og áhugi fyrir þátttöku í fag-
legri uppbyggingu hjúkrunarinnar.
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði skiptist í
endurhæfingadeild 100 rúm og heilsuhælis-
deild 60 rúm.
Heilsustofnunin stendur í fögru umhverfi,
með ótal möguleikum til útivistar og er í 40
km fjarlægð frá höfuðborginni. Möguleiki er
á íbúðarhúsnæði á staðnum.
Nánari upplýsingar um stöðurnar gefur Gróa
Friðgeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma
98-30300.
Málmiðnaður
Rótgróið málmiðnaðarfyrirtæki óskar eftir
manni til þess að vinna í ryðfríu efni (Tig-
suða). Hann þarf að vera vanur vinnu úr ryð-
fríu efni, geta unnið sjálfstætt og hafið störf
strax.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „P - 2216“ fyrir 30. maí.
Deildarstjóri
fjármáladeildar
Laust er til umsóknar starf deildarstjóra fjár-
máladeildar dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
isins. Á starfssviði deildarinnar eru m.a. fjár-
lagagerð fyrir dóms- og kirkjumálasvið, um-
sjón með framkvæmdum, starfsmannahald,
tölvumál o.fl.
Æskilegt er að deildarstjóri fjármáladeildar
hafi viðskiptafræði/tölvumál og reynslu af
talnavinnslu í tölvureiknum.
Umsóknum skal skilað til ráðuneytisins fyrir
15. júní nk.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
24. maí 1992.
Háskólinn
á Akureyri
Umsóknarfrestur um eftirtaldar stöður við
Háskólann á Akureyri er framlengdur til
20. júní nk.
Staða forstöðumanns við sjávarútvegs-
deild.
Ráðið er í stöðuna frá 1. janúar 1993.
Deildarfundur kýs forstöðumann deildar úr
hópi umsækjenda. Forstöðumaður skal full-
nægja hæfniskröfum, sem gerðar eru til
fastráðinna kennara við skólann, sbr. 16. gr.
reglugerðar nr. 405/1990 fyrir Háskólann á
Akureyri. Háskólanefnd staðfestirtilnefningu
deildar og ræður forstöðumann til þriggja
ára.
Staða dósents/prófessors í hagfræði við
sjávarútvegsdeild.
Staða dósents f hjúkrunarfræði við
heilbrigðisdeild.
Staða dósents í iðnrekstrarfræði við
rekstrardeild.
Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 1992 eða
eftir nánara samkomulagi.
Til greina kemur að ráða lektora tímabundið
í ofangreindar þrjár stöður.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum opin-
berra starfsmanna.
Umsóknum skal fylgja rækileg skýrsla um
vísindastörf, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
greinargerð um námsferil og fyrri störf.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
háskólans í síma 96-11770.
Umsóknir skal senda skrifstofu Háskólans á
Akureyri fyrir 20. júní nk.
Háskólinn á Akureyri.
I