Morgunblaðið - 24.05.1992, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMÁ
SUNNUDAGUR 24. MAI 1992
33
ATVINNUAUGl YSINGAR
Framtíðarstarf
Tvítug stúlka óskar eftir framtíðarstarfi. Hef
gott próf úr Skrifstofu- og ritaraskólanum.
Upplýsingar í síma 44364 í dag og næstu
daga.
ra
Kennarar
Kennara vantar við Snælandsskóla í Kópa-
vogi til forfallakennslu á yngsta- og miðstigi
vegna barnsburðarleyfa skólaárið 1992-’93.
Upplýsingar gefa skólastjóri eða aðstoðar-
skólastjóri í síma 44911.
Skólafulltrúi.
Tannsmiður óskast
Starfsmaður óskast á tannsmíðastofu.
Um er að ræða hlutastarf sem þóast gæti í
fullt starf í framtíðinni.
Uppl. um menntun og fyrri störf sendist auglýs-
ingadeild Mbl., merktar: „Ö -19“, fyrir 31/6.
ra
Laus staða
við Digranesskóla
Staða ritara er laus til umsóknar.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 40290.
Starfsmannastjóri.
Kennarar
Við Alþýðuskólann á Eiðum eru lausar eftir-
farandi stöður:
íslenska, danska, íþróttir.
Nemendur skólans eru í 10. bekk grunn-
skóla, ásamt 1. og 2. ári framhaldsskóla.
Upplýsingar gefur skólastjóri í símum
97-13821 og 97-13814.
Æ
KENNARA-
HÁSKÓU
ISLANDS
Laus staða
við Kennaraháskóla íslands
Staða prófessors í uppeldis- og kennslu-
fræði við Kennaraháskóla íslands er laus til
umsóknar.
Auk fullgilds háskólaprófs skal umsækjandi
hafa viðurkennd kennsluréttindi eða hafa að
öðru leyti nægilegan kennslufræðilegan und-
irbúning.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá
1. janúar 1993.
Umsókn skal fylgja ítarleg skýrsla um rann-
sóknir, kennslu, stjórnunarstörf og ritsmíðar
ásamt upplýsingum um námsferil og önnur
störf. Þau verk, sem umsækjandi æskir að
dómnefnd fjalli um, skulu einnig fylgja.
Umsóknir berist Kennaraháskóla íslands
v/Stakkahlíð, 105 Reykjavík, fyrir 22.júní nk.
Rektor.
Skrifstofustarf
Félag íslenskra bókaútgefenda óskar að ráða
skrifstofumann (karl eða konu) í hálft starf á
skrifstofu félagsins frá og með 1. ágúst nk.
Umsækjandi þarf að hafa góð tök á almennum
skrifstofustörfum (bréfaskriftum og lítilsháttar
bókhaldi), vera sjálfstæður og treysta sér til
að koma fram fyrir hönd stjórnar ef þörf kref-
ur. A.m.k. eitt erlent mál nauðsynlegt.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist skrifstofu Félags íslenskra
bókaútgefenda, Suðurlandsbraut 4A, fyrir
1. júní nk. -
Tölvudeild
Stórt deildaskipt fyrirtæki í borginni óskar
að ráða starfsmann til starfa í tölvudeild.
Algjört skilyrði er þekking á AS/400 og þó
nokkur starfsreynsla. Starfið er laust strax.
Laun eru samningsatriði og taka mið af
reynslu.
Umsóknarfrestur er til 30. maí nk.
Gijðnt Tónsson
RAÐCJÖF & RAÐNI NCARÞJON LISTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Fóstra
Áhugahópur um stofnun skóladagheimilis í
húsahverfi fyrir börn utan forgangshópa
Dagvistunar barna í Reykjavík, óskar eftir
dugmiklum aðila með tilheyrandi menntun.
Um er að ræða undirbúningsvinnu fyrir stofn-
un og mótun skóladagheimilis og væntan-
lega forstöðu þess.
Svör legginst inn á auglýsingadeild Mbl. fyr-
ir 5. júní, merkt: „M - 322“.
Grunnskóli Skútu-
staðahrepps auglýsir
Staða skólastjóra við Grunnskóla Skútu-
staðahrepps er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Upplýsingar veitir formaður skólanefndar,
Stefán Þórhallsson, í símum 96-44285
(heima) og 96-44181 (vinna).
Auglýsingateiknari
Verslunarfyrirtæki óskar eftir að ráða strax
auglýsingateiknara tímabundið í hlutastarf,
Starfið er fólgið í uppsetningu og teiknun
auglýsinga fyrirtækisins á tölvu. Viðkomandi
þarf að hafa reynslu í auglýsingateiknun og
þarf að geta unnið sjálfstætt.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf leggist inn á auglýsingadeild
Mbl. merktar: „A - 13540" fyrir 29. maí nk.
Sambýli
Nýlegt sambýli í Reykjavík óskar eftir að ráða
áhugasamt fólk til starfa.
Laus er staða deildarþroskaþjálfa frá 1. júní
nk. eða eftir samkomulagi.
Auk þessa staða meðferðarfulltrúa frá
1. ágúst nk.
Við leitum að starfsfólki með haldgóða
menntun og/eða reynslu í málefnum fatl-
aðra. Um er að ræða vaktavinnu í fullu starfi
en möguleiki er á hlutastarfi.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 678177 virka daga frá k. 9.00 til 13.00.
Blindrafélagið,
Hamrahlíð 17.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur, þroskaþjálfar og fólk með uppeldis-
menntun óskast til starfa á neðangreinda
leikskóla:
Ægisborg v/Ægissíðu, s. 14810.
Hlíðarborg v/Eskihlíð, s. 20096.
Bakkaborg v/Blöndubakka, s. 71240.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi
leikskólastjórar.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Siglufjörður
Leikskólastjóri og
fóstrur
Leikskólastjóra vantar til afleysinga í eitt ár
frá og með 1. september nk. Að þeim tíma
loknum býðst viðkomandi staða yfirfóstru á
nýjum leikskóla sem verður opnaður haustið
1993.
Óskum einnig eftir að ráða deildarfóstru.
Spennandi störf fyrir áhugasamar fóstrur við
uppbyggingu og skipulag á nýjum leikskóla.
Upplýsingar um starfið gefa félagsmálastjóri
í síma 96-71700 milli kl. 10-12 daglega og
leikskólastjóri í síma 96-71359.
Tónlistarkennari og
kirkjuorganisti
Starf tónlistarkennara og kirkjuorganista er
laust til umsóknar. Um er að ræða 60% starf
við kirkjuna og a.m.k. 50% starf við tónlistar-
skólann. Ýmsar kennslugreinar eru í boði
(hljóðfærakennsla, söngur og tónfræði).
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi til
að starfa með áhugasömu fólki að eflingu
tónlistarlífs í bænum.
Upplýsingar um starfið veita Jón Dýrfjörð,
formaður sóknarnefndar í síma 96-71484,
skólastjóri tónlistarskóla í síma 96-71224 og
skrifstofustjóri bæjarins í síma 96-71700.
Kennarar
Tvær almennar kennarastöður og ein staða
sérkennara í grunnskólanum á næsta skóla-
ári eru lausar til umsóknar. Bæði er um fram-
tíðar- og afleysingarstörf að ræða. Á Siglu-
firði er auk grunnskólans starfrækt fullorðins-
fræðsla og kennsla á framhaldsstigi.
Upplýsingar veita skólastjóri í síma 96-71184
og Kristján L. Möller, formaður skólanefndar,
í síma 96-71866.
Leikfimikennari
pilta
Staða leikfimikennara pjlta í grunnskólanum
er laus til umsóknar. Möguleiki er á íþrótta-
þjálfun með kennslustarfinu.
Á Siglufirði er mjög góð aðstaða til íþróttaiðk-
unar t.d. nýtt íþróttahús, sundhöll og gott
skíðasvæði. v
Upplýsingarveita skólastjóri ísíma 96-71184
og Kristján L. Möller, formaður skóalnefnd-
ar, í síma 96-71866.
Siglufjarðarkaupstaður býður flutnings-
styrk, aðstoð við útvegun húsnæðis og
önnur fríðindi.
Bæjarstjórinn á Siglufirði.