Morgunblaðið - 24.05.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
SUNNUDAGUR 24. MAI 1992
43
Fjögur mót,
Qórir sigrar
Ástralinn Michael Doohan hefurunnið
öll mót ársins
Keppnislið gæti ekki fundið
betri keppenda en Ástralann
Michael Doohan. Hann hefur útlit
sem selur og fær kvenfólk til að
kikna í hnjánum, er vingjarnlegur
og ræðinn við blaðamenn og ein-
staklega hugdjarfur en jafnframt
öruggur ökumaður á mótorhjóli.
Hann var að vonum ánægðir með
fjórða sigurinn í fjórum mótum á
brautinni í Jerez.
„Þetta lítur allt vel út eftir
þennan sigur. Hjólið var eins gott
og hugsast gat og Michelin dekk-
in hentuðu þessari braut mjög
vel. Ég náði strax forskoti á Rain-
ey, en aðal vandamálið þegar
svona staða kemur upp er að
halda einbeitingunni í þá tæpu
klukkustund, sem keppnin stend-
ur,“ sagði Doohan við Morgun-
blaðið eftir keppnina. „Það mun-
aði litlu að ég dytti af hjólinu
þegar ég náði einum keppenda
sem var farinn að dragast aftur-
úr, ég hentist upp í loft en tókst
að halda mér í stýrið eins og góð-
ur kúreki á ótemju. Þó það sé
gott að vera búinn að vinna ijög-
ur mót, þá þarf að halda áfram
að þróa hjólið og halda öllu í horf-
inu, því andstæðingarnir reyna
alltaf sitt besta. Það eru níu mót
eftir og það á eftir að vera slagur
í þeim öllum,“ sagði Doohan, sem
keppir í dag á Mugello brautinni
á Italíu.
„Doohan og keppnislið hans
hafa sannarlega náð að pússa sig
saman af viti,“ sagði heimsmeist-
arinn Waine Rainey um árangur
Doohans, „en við eigum eftir að
bíta frá okkur. Ég vann ítalska
kappaksturinn í fyrra og vona að
ég nái að saxa á forskot Doohans
á Ítalíu [í dag], ekki veitir af.“
Doohan var nálægt því að vinna
heimsmeistaratitilinn í fyrra, en
Rainey hafði betur. Þegar Doohan
kom fram á sjónarsviðið var strax
ljóst að hann var mikið efni, en
engan óraði fyrir því hve skjótur
frami hans yrði. Á fyrsta keppnis-
ári fór hann að slást við þá bestu.
Hann vann þrjú mót í fyrra og
hafði forystu í heimsmeistara-
keppninni, þar til að hann féll af
hjóli síni í keppni í Hollandi. „Ég
gerði hvað ég gat í fyrra og í ár
er stefnan sett á plötuna með
rásnúmer eitt, sem þýðir heims-
meistaratign." sagði Doohan.
Sjarminn sem hann gefur af sér
ásamt ótrúlegum ökumannshæfi-
lekum hafa heillað milljónir áhorf-
enda, sem fylgjast með mótor-
hjólakappakstri á mótum og tugi
milljóna í sjónvarpi. Líklegt er
miðað við stöðuna í dag að titilinn
verði hans, þó veit enginn enn.
Michael Doohan er ósigraður það sem af er árinu. Fagnar hann fimmta
sigrinum í röð í dag?
Staðan
Staðan í heimsmeistarakeppni ökumanna mótorhjóla með 500 rúms-
entimetra vélum er nú, þessi, eftir að keppta hefur verið í Japan,
Ástralíu, Malasíu og á Spáni. 20 stig eru gefin fyrir sigur, 15 fyrir
annað sæti, 12 fyrir þriðja sæti og síðan 10, 8, 6, 4, 3, 2 og 1.
1. Michael Doohan Ástralíu................20 20 20 20
2. Wayne Rainey Bandaríkjunum............. 0 15 15 15
3. DougChandler Bandaríkjunum.............15
4. Kevin Schwantz Bandaríkjunum......... 12
5. Daryl Beattie Ástralíu................. 0
6. Randy Mamola Bandaríkjunum............. 8
20 20 20 80
. 0 15 15 15 45
.15 8 8 1 32
.12 10 0 0 32
. 0 12 6 0 18
. 8 3 4 3 18
P A L L H Ú S
Hjartans þakkir til barna, tengdabarna, barna-
barna og barnabarnabarna, œttingja og vina
jyrir aÖ gera mér ógleymanlegt 90 ára afmceliö
þann 16. mai.
GuÖ blessi ykkur öll.
Svanfríður Guðmundsdóttir,
Hrafnistu, Reykjavík.
Hin einu og sönnu Sun-Lite
pallhús komin. Glæsileg h.ús í
háum gæ&aflokki, meb öllum
aukabúnabi. Sýningarhús í
Síbumúla 1 7.
Sun-lite umboöiö.
Síbumúla 1 7, sími 985-37333.
Hjartanlegar þakkir flyt ég öllum þeim, sem
heiÖruÖu mig á sjötugsafmœli mínu, 19. mai
1992, meÖ heimsóknum, skeytum, rœÖum og
margs konar gjöfum, sem ekki verða metnar
til fjár.
GuÖ blessi ykkur öll.
Sighvatur Jónasson.
m ta^nniiífifrtfr
| Meira en þú geturímyndað þér!
STJORNUBIO
THE PRINCE OF TlDES
ÓÐUR TIL HAFSINS
Einstaklega vönduð mynd sem unnendur góðra kvikmynda
ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
ÓÐUR TIL HAFSINS er áhrifamikil hágæða kvikmynd með afburðaleikurum.
ÓÐUR TIL HAFSINS er mynd í þeim gæðaflokki sem alltof sjaldan sést á hvíta tjaldinu.
Nick Nolte og Barbra Streisand vinna leiksigur í ÓÐITIL HAFSINS. Mynd sem gleymist seint.
„ Afar vel gert og leikið stórdrama um uppgjör fólks við fortíðina. Nolte er fimasterkur að vanda.“
★ ★ ★*/ 2 Morgunblaðið
„ÓÐUR TIL HAFSINS er einstaklega vel heppnuð útfærsla á skáldverki með tveimur afburðaleikurum í
aðalhlutverkum. “ ★ ★ ★ FI Bíólínan.