Morgunblaðið - 24.05.1992, Síða 48
% . ^ ^ ^ ^ tir iir _ a* ^
■mmmmmm 3Em iS|333 ^Xm^ ummmt f Mmttmm mm w mm 'wmmmmP l$fáttnHwío Grunnur
FORGANGSPÓSTUR
UPPLÝSINGASÍMI 63 71 90 m Landsbanki Mk íslands mt Banki allra landsmanna 1
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1653 /^AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Tálknafjörður;
50 trillur
lönduðu
"“60 tonnuin
af þorski
ÞRÖNG VAR á þingi í höfninni á
Tálknafirði aðfaranótt laugar-
dagsins því þá lágu þar við
bryggju 50 trillur sem landað
höfðu tæplega 60 tonnum af
þorski. Þetta mun vera mesti fjöldi
af trillum sem komið hefur að
bryggju í plássinu en trillukarl-
arnir eru víða af landinu og stunda
nú veiðar á Vestfjarðamiðum.
___, Flestar af þessum trillum lögðu
upp afla sinn hjá Fiskmarkaði
Tálknafjarðar. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Helgu Jónasdóttur starfs-
manni Fiskmarkaðarins myndaðist
biðröð við viktina um nóttina og
skortur var á fiskkörum til að taka
á móti þessum afla. Helga segir að
aflinn hafi að mestu verið fallegur
þorskur. „Þessir trillukarlar hafa
verið að mokfiska hér rétt fyrir utan
að undanförnu og venjulegast sigla
þeir með aflann í land þar sem styst
er á fiskmarkað," segir Helga. „Við
——^erum að vonum ánægð að fá þá í
viðskipti því þetta er góð búbót fyrir
plássið."
Helga segir að venjulega fari
trillukarlarnir út um klukkan 5-6 að
morgni og komi inn um kvöldmatar-
leytið en dæmi séu um að menn sem
farið hafi um klukkan 11 að morgni
hafi verið komnir með fullfermi síð-
degis. Frá Fiskmarkaði Tálknafjarð-
ar er aflinn sendur bæði norður um
land og suður á Suðurnesin og dæmi
um að fiskverkunarfyrirtæki á þess-
um stöðum séu komin í föst við-
skipti við markaðinn.
Slökkvilið-
ið kallað út
í grillveislu
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kallað út í grillveislu um klukkan
21.30 á föstudagskvöldið í hús við
Framnesveg. Þeir sem voru að
grilla munu ekki hafa gætt að sér
við uppkveikju kolanna og mynd-
aðist mikill reykur af grillinu.
Nágranni þeirra sem héldu grill-
veisluna sá svo mikinn reyk leggja
af grillinu að hann kallaði slökkvilið-
ið ti! og tilkynnti um að eldur væri
laus á þriðju hæð hússins, en þar var
grillið staðsett út á svölum. Er
slökkviliðið kom að var búið að leysa
vandann að mestu.
-----» ♦ ♦
Morgunblaðið/Júllus
SUMARGLEÐI
Ríkisskatta-
nefnd hætt-
ir störfum
Yfirskattanefnd á
að afgreiða 1.200
mál á 6 mánuðum
MEÐ stjórnarfrumvarpi sem
samþykkt var á síðustu dögum
þingsins í vor var ríkisskatta-
nefnd lögð niður og skal yfir-
skattanefnd taka við hlutverki
hennár. Samkvæmt frumvarp-
inu ber yfirskattanefnd að af-
greiða öll mál ríkisskattanefnd-
ar á sex mánuðum frá þvi hún
tekur við sem verður 1. júlí nk.
Fyrir ríkisskattanefnd bíða nú
um 1.200 mál afgreiðslu og bú-
ast má við að þau verði orðin
mun fleiri 1. júlí því nefndinni
berast stöðugt mál frá ríkis-
skattsljóra. Frumvarpið gerir
sem sagt ráð fyrir að yfirskatta-
nefnd afgreiði að meðaltali um
8 mál á dag fyrstu sex mánuði
starfsferils síns.
Hjá ríkisskattanefnd hafa starf-
að sex menn. þar af fjórir í hluta-
starfi en tveir í fullu starfi. Með
samþykkt frumvarpsins lögðust
hlutastörfin niður og varð nefndin
þar með óstarfhæf þar sem þijá
þarf til að kveða upp úrskurði.
Nefndinni er hinsvegar ætlað að
starfa áfram þar til yfirskatta-
nefnd tekur við. Það er ljármála-
ráðherra sem á að skipa menn til
bráðabirgða fram að þeim tíma
og segir Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra að það verði gert
mjög bráðlega. Þetta frumvarp
hafi verið eitt af mörgum sem
samþykkt voru í þinglok og honum
hafi enn ekki gefist tækifæri til
að athuga þetta mál.
í ákvæði frumvarpsins um
gildistöku þessarar lagabreyting-
ar, 23. grein, segir að þann 1.
júlí skuli ríkisskattanefnd ljúka
störfum. Síðan segir: „Yfirskatta-
nefnd ber að taka við öllum ólokn-
um ágreiningsmálum fyrir ríkis-
skattanefnd og sektarnefnd stað-
greiðslu og skal hún hafa lokið
afgreiðslu þeirra eigi síðar en sex
mánuðum eftir gildistöku laga
þessara."
Framboð af fíkniefnum er
meira og stöðugra en áður
Hassneysla eykst í efri bekkjum grunnskóla
FRAMBOÐ af fíkniefnum er nú meira hér á landi en áður, að
mati fíkniefnalögreglu. Hassneysla er nú orðin meiri og almennari
meðal unglinga en áður og orðin vel þekkt í efri bekkjum ýmissa
grunnskóla. Framboð af amfetamini hefur verið svo stöðugt undan-
farið að aldrei verður núorðið vart við skort á því. Afleiðingin er
sú að neytendur fá sterkara efni í hveiju grammi sem þeir kaupa.
Einnig er talið mikið framboð af LSD um þessar mundir enda sé
kominn upp hópur yngri neytenda sem sé sér ekki meðvitaður um
þann skaða sem neysla þess efnis olli hér og annars staðar á 8.
áratugnum. Fíkniefnalögreglan hefur undanfarin misseri heyrt ít-
rekaðan orðróm um að heróín sé í dreifingu hér á landi og segir
Björn Halldórsson Iögreglufulltrúi orðróminn þess eðlis að rétt sé
að taka hann alvarlega.
Gripnir við
að stela trjám
LÖGREGLAN í Reykjavík greip
tvo menn við fþróttahúsið í Aust-
urbergi í fyrrakvöld þar sem þeir
__yoru að rífa upp tré sem gróður-
sett höfðu verið á svæðinu og
stafla þeim á kerru.
Aðspurðir um þetta háttarlag sitt
sögðu þeir lögreglunni að þeir hefðu
talið þetta vera drasl sem þeir mættu
hirða.
Lögreglan kom þeim í skilning um
hið rétta í málinu og að því búnu
var þeim gert að gróðursetja trén,
sem þeir höfðu rifið upp, að nýju.
Eiturlyfið alsæla eða ecstasy,
sem er tískuefni víða erlendis, hef-
ur borist hingað til lands. í fyrra-
sumar lagði lögregla hald á 3 töfl-
ur sem piltur reyndi að smygla til
landsins og í september sl. fundust
20 töflur í póstsendingu sem nýleg
efnafræðirannsókn hefur leidd í
ljós að var alsæla. Það er efni sem
hefur bæði ofskynjunaráhrif og
örvandi áhrif á neytendur og hefur
verið markaðssett, ranglega að
sögn lögreglu, sem hið skaðlausa
fíkniefni framtíðarinnar sem engin
ávanahætta fylgi. Lögreglan telur
að um þessar mundir sé þetta efni
notað í tengslum við samkomuhald
ákveðinna hópa í borginni, en
vegna þess hve efnið sé nýtt séu
skaðleg áhrif þess ekki á vitorði
almennings eins og áhrif efna eins
og heróíns.
í efri bekkjum grunnskóla meðal
einhveiTa hópa í borginni er hass
að öðlast aukna útbreiðslu og eiga
táningar auðvelt með að nálgast
efnið, auk þess sem slík víma er
þeim mun ódýrari en áfengisvíma.
Fíkniefnalögreglunni hafa borist
sterkar vísbendingar um að héðan
úr landi sé skipuleg starfsemi sem
snúist um að kaupa þýfi, flytja og
selja það til útlanda og tengist
þessi starfsemi fíkniefnamálum.
Um sé að ræða hvers konar varn-
ing sem auðvelt er að koma í verð,
svo sem skartgripi, úr, myndbands-
tæki og fleira.
Sjá „Breyttur fíkniefnaheim-
ur“ á bls. 10-12