Morgunblaðið - 16.06.1992, Page 5
5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1992
Skar stúlku
á höndum
með fiskihníf
UNGUR maður var handtekinn
á iaugardagsmorgun, eftir að
hann hafði lagt til stúlku með
hnífi og skorið hana á höndum.
Maðurinn hélt því fram, að um
sjálfsvörn hefði verið að ræða,
en stúlkan var óvopnuð.
Þegar lögreglan kom á vettvang
í Hafnarstrætinu kl. rúmlega 7 á
laugardagsmorgun var þar fyrir
sextán ára stúlka, alblóðug um
hendur. Hún vísaði lögreglu á 22
ára mann, sem kunningi hennar
hélt föstum skammt frá. Maðurinn,
sem var með fiskihníf á sér, var
handtekinn og færður á lögreglu-
stöðina.
Maðurinn mun hafa talið sig eiga
eitthvað sökótt við vinkonu stúlk-
unnar. Hún gekk hins vegar á milli
þeirra og lagði hann þá með hnífn-
um til hennar. Stúlkan bar fyrir sig
hendurnar og skarst töluvert. Við
yfirheyrslur hjá lögreglunni hélt
maðurinn því fram, að hann hefði
verið í sjálfsvörn. Hann var mjög
ölvaður og svaf úr sér vímuna í
fangageymslum. Gert var að sárum
stúlkunnar á slysadeild.
-----»-»-♦-----
Trúður að
tjaldabaki
fjölleikahúsið Arena frá Danmörku
tók til starfa í Laugardal í Reykja-
vík sl. sunnudag og verður þar
margt til skemmtunar fyrir unga
jafnt sem aldna. Meðal annars verða
þar til sýnis sæljón sem leika listir
sínar, auk hefðbundinna atriða fjöl-
leikahúsa, svo sem skrípalæti trúða,
línudans, hjóla- og boltalistir og
aðrar jafnvægiskúnstir. Myndin var
tekin þegar einn trúður fjölleika-
hússins var að undirbúa sig fyrir
sýningu.
MAZDA 323
ODYRASTUR
í REKSTRI!
Þyrla sótti
vélsleðamann
ájökulinn
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
náði í slasaðan vélsleðamann upp
á Vatnajökul í gærmorgun. Mað-
urinn reyndist lítið slasaður.
Þoku létti yfir slysstaðnum rétt
á meðan áhöfn þyrlunnar var að
athafna sig.
Landhelgisgæslunni barst beiðni
um aðstoð um kl. 1.30 í fyrrinótt,
frá hópi fólks sem staddur var á
Grímsfjalli, 1.700 metra háum tindi
á jöklinum. Vélsleðamaður hafði
orðið fyrir óhappi og slasast, en
sleði hans skemmst töluvert. Vegna
mikillar þoku og snjókomu á jöklin-
um gat þyrlan ekki farið í loftið
fyrr en kl. 7 í gærmorgun. Þegar
hún kom yfir jökulinn var enn
svartaþoka, en skyndilega rofaði til
yfir slysstaðnum og höfðu Land-
helgisgæslumenn á orði að einhver
vélsleðamannanna hlyti að vera í
nánu sambandi við almættið. Greið-
lega gekk að ná vélsleðamanninum
upp í þyrluna og var komið með
hann til Reykjavíkur um kl. 9.30.
Hann mun ekki vera mikið slasaður.
--------» » »--
Oskemmtileg
aðkoma í
ráðhúsinu
EINHVER taldi ástæðu til að úða
úr tveimur slökkvitækjum í bíla-
geymslu ráðhússins um helgina
og var aðkoman fremur
óskemmtileg.
Tölva, sem skráir umgang um
húsið, gerði engar athugasemdir við
mannaferðir þessa nótt og er því
talið að viðkomandi hafi annað
hvort komist inn með lykli eða
laumast inn um leið og einhver með
lyklavöld gekk um.
----» ♦ ♦---
127 spraut-
ur fundust
127 EINNOTA sprautur fundust
við fjölbýlishús við Háaleitis-
braut á föstudag. Finnandinn
kom sprautunum til lögreglu.
Sprauturnar voru í plastpoka sem
hafði verið falinn í steypuröri á bíla-
stæði við húsið. Þær höfðu ekki
verið notaðar. Ekki er vitað hver
kom þeim fyrir þarna.
Hið virta þýska bílatímarit AUTO MOTOR UND SPORT hefur
verið með MAZDA 323 í langtímaprófun síðastliðin 2 ár. Nú
nýlega hafði honum verið ekið 100.000 kílómetra og reyndist
hann hafa lægstan rekstrar- og viðhaldskostnað allra þeirra bíla,
sem tímaritið hefur tekið í slíka prófun. Ennfremur var haft
samband við fjölda eigenda og luku þeir einróma lofi á bílinn,
einn sagði m.a.:
„Ánægðari getur maður ekki verið!“
Við bjóðum MAZDA 323 í 4 misstórum útgáfum, sem hafa
gjörólíkt yfirbragð, útlit og eiginleika. Þær eru allar með
vökvastýri og ríkulegum staðalbúnaði. Hægt er að velja um 4
mismunandi vélar, sem eru með bensíninnspýtingu og
mengunarvörn, sjálfskiptingu eða handskiptingu og flestar gerðir
fást nú með ALDRIFI.
MAZDA 323 kostar frá 885 þúsund krónum.
(3 dyra hlaðbakur LXi, staðgreiðsluverð með ryðvöm og skráningu.)
MAZDA endist iengur!
RÆSIR HF
SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK S.61 95 50
Almenno auglýsingaslofan hf.