Morgunblaðið - 02.07.1992, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1992
Hlutabréf
Landsbréf hefja útreikning
á nýrri hlutabréfavísitölu
LANDSBRÉF hf. hófu í gær útreikning á nýrri hlutabréfavísitölu
sem hlotið hefur nafnið Landsvísitala hlutabréfa. Tilgangurinn er
að veita aðilum sem stunda viðskipti með hlutabréf hér á landi,
haldgóðar upplýsingar um verðþróun hlutabréfa á markaðnum.
Helstu notkunarmöguleikar vísitölunnar felast í þeirri nýjung að
hún er reiknuð út fyrir einstakar atvinnugreinar og félög, auk
þess að vera reiknuð út fyrir markaðinn í heild.
Landsvísitölu hlutabréfa er ætl-
að að vera breiður og marktækur
mælikvarði á þróun hlutabréfa-
verðs á íslandi óháð því hvert verð-
bréfafyrirtækjanna annast við-
skiptin. Inn í vísitöluna eru tekin
verð allra almenningshlutafélaga
sem almenn viðskipti eiga sér stað
með á markaði hérlendis þar sem
viðskiptaverð er tilkynnt.
Hægt er að reikna út þijú mis-
munandi stig innan Landsvísi-
tölunnar, en hún er byggð upp
með þeim hætti að hlutabréfum
er skipt í nokkra atvinnugreina-
flokka. Þannig má reikna út vísi-
tölu einstakrar atvinnugreinar auk
vísitölu einstaks hlutabréfs og
Landsvísitölunnar í heild. Vísitalan
er reiknuð í lok hvers viðskipta-
dags og byggir á því verði sem
síðast var skráð í viðskiptum með
viðkomandi hlutabréf, annað hvort
á Verðbréfaþingi íslands eða Opna
tilboðsmarkaðnum. Gildi vísi-
tölunnar á upphafsdegi var 100
stig.
Landsvísitala hlutabréfaverðs,
svo og vísitölur einstakra atvinnu-
greina eru vegnar miðað við mark-
aðsverðmæti hlutabréfa. Verð-
breytingar á hlutabréfum stærri
félaga hafa því meiri áhrif á vísi-
töluna en verðbreytingar hluta-
bréfa smærri félaga. í vísitölunni
eru verðbreytingar hlutabréfa
mældar að teknu tilliti til útgáfu
jöfnunarhlutabréfa sem hefur því
ekki áhrif á hana til lækkunar.
Greiðsla arðs, að svo miklu leyti
sem hún leiðir af sér lækkun á
gengi viðkomandi hlutabréfa, leið-
ir hins vegar til lækkunar vísi-
tölunnar.
Jafnframt útreikningi á Lands-
vísitölu íilutabréfaverðs munu
Landsbréf einnig reikna út reglu-
lega arðsemivísitölu þar sem tekið
verður mið af verðbreytingum
hlutabréfa auk þess sem tekið
verður tillitt til arðgreiðslna af
hlutabréfum.
Sjóflutningar
Ameríkuflutningar lítill
hluti hjá Eimskip og Samskip
Aukin samkeppni stuðlar að hagstæðari flutningsgjöldum
FLUTNINGAR Samskipa og Eimskips á milli íslands og Bandaríkj-
anna eru nyög lítill hluti af heildaráætlanaflutningum fyrirtækj-
anna. Fyrirhuguð er aukin samkeppni á þessari flutningaleið þar
sem hollenska skipafélagið Van Ommeren hyggst hasla sér þar
völl. Ómar Jóhannsson framkvæmdastjóri Samskipa segir að fyrir-
tækið hafi verið að auka sína hlutdeild í Ameríkuflutningum en
þrátt fyrir það séu þeir einungis um 10-20% af heildargámaflutn-
ingum Samskipa. Ómar segir alltaf einhverjar verðbreytingar eiga
sér stað í flutningunum en aukin samkeppni ætti að stuðla að
hagstæðari flutningsgjöldum.
Van Ommeren er fjölþjóðlegt
fyrirtæki með skrifstofur í 50 lönd-
um og þ.á.m. í Bandaríkjunum og
sér um 35% af sjóflutningunum
fyrir vamarliðið.
Hjörleifur Jakobsson forstöðu-
maður áætlanaflutninga Eimskips
segir flutninga á milli íslands og
Bandaríkjanna vera um 10% af
áætlanaflutningum fyrirtækisins.
Að mati Hjörleifs eru heildarsjó-
flutningar á milli íslands og
Bandaríkjanna eitthvað innan við
100 þúsund tonn á ári. „Sam-
keppnin er alltaf af hinu góða,
erlend skipafélög hafa áður verið
í siglingum á milli íslands og
Ameríku og slík samkeppni er því
ekki ný fyrir Eimskip."
Samskip eru nú í sinni annarri
ferð á milli íslands og Bandaríkj-
anna fyrir varnarliðið. Ómar Jó-
hannsson segir Ameríkuflutning-
ana hafa gengið mjög vel og í
samræmi við það sem gert hafí
verið ráð fyrir. Hann segir að
lengst af hafí samkeppni vantað
í þessa flutninga og sú samkeppni
sem nú sé hafi gert það að verkum
að verð séu oft lægri en almennar
verðskrár segi til um.
Þar sem stutt er síðan ákvörðun
um almenna flutninga á milli ís-
land og Bandaríkjanna var tekin
hjá Van Ommeren er ekki hægt,
að svo stöddu, að fá upplýsingar
um hvaða verð þeir hyggjast bjóða
á þessari flutningaleið.
SAMSTARF —Tæknival hf. hefur samið við HP á ís-
landi um sölu á einkatölvum og jaðartækjum. Frá vinstri á
myndinni eru Birgir Sigurðsson, fjármálastjóri HP á Islandi,
Guðfinna Hákonardóttir, sölumaður fyrir HP vörur hjá
Tæknivali, Frosti Bergsson, framkvæmdastjóri HP á Is-
landi, Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Tæknivals, And-
ers Herlov, sölustjóri hjá Hewlett Packard A/S í Danmörku
og Jónas Hreinsson, sölustjóri hjá Tæknivali.
Tölvur
Tæknival semur við HP
um sölu á jaðartækjum
TÆKNIVAL hf. hefur samið
við HP á íslandi um sölu á eink-
atölvum og jaðartækjum, s.s.
geislaprenturum og bleksp-
rautuprenturum frá Hewlett
Packard. HP er þannig komið
með tvo söluaðila þar sem sö-
lusamningur við Örtölvutækni-
Tölvukaup hf. var endumýjað-
ur í júní.
Frosti Bergsson, fram-
kvæmdastjóri HP á íslandi, sagð-
ist í samtali við Morgunblaðið
telja að samstarfið við Tæknival
myndi auka markaðshlutdeild
Hewlett-Packard búnaðar á ís-
landi. „Tæknival seldi um 3.400
einkatölvur á síðasta ári og var
þá söluhæsta fyrirtækið á einkat-
ölvumarkaðnum á íslandi. Þá
hefur fyrirtækið sölunet um allt
land auk sérstaks sölusamnings
við Innkaupastofnun ríkisins.“
HP á íslandi hefur einnig end-
umýjað sölusamning við Örtölvu-
tækni-Tölvukaup hf. þannig að
fyrirtækið mun halda áfram að
selja einkatölur og jaðartæki frá
Hewlett Packard. Frosti sagði að
hér væri um að ræða sambæri-
lega sölusamninga þannig að nú
fengju kaupendur HP búnaðar
aukinn valkost varðandi söluaðila
og þjónustu.
llUJ.I-ll
Eldur-ís vodka
Yfir 100 Hobart hrærivélar enn í notkun,
framleiddará árunum 1919-27.
Þetta köllum við endingu!
VhobartV
í FARARBRODDI
HEILDVERSLUN HF.
Fákafeni 9-108 Reykjavík - sími 678200.
aftur á markað
íslenska brennivínið framleitt óbreytt
FYRIRHUGAÐ er að hefja framleiðslu um mánaðamótin júlí-
ágúst á áfengi því sem Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins seldi
framleiðslurétt á nú í vikunni. Að sögn Halldórs Krisljánssonar
sem keypti framleiðslurétt, framleiðslutæki, lager, vöruheiti og
uppskriftir fyrir rúmar 15 milþ'ónir króna verður engum upp-
skriftum breytt og íslenska brennivínið því framleitt óbreytt. Hins
vegar sagði Halldór að Eldur-ís vodka verði aftur sett á markað
og ýmsar hugmyndir væru um vöruþróun og umbúðir sem ættu
eftir að skýrast betur á næstunni.
Fyrirtæki
Greiðslu-
stöðvun
Asiaco
runnin út
TYEGGJA mánaða greiðslu-
stöðvun Asiaco hf. rann út I
gær. Að sögn Baldvins Haf-
steinssonar, hdl, tilsjónarmanns
fyrirtækisins var ekki sótt um
framlengingu á greiðslustöðv-
uninni.
Páll Þorgeirsson, framkvæmda-
stjóri Asiaco, vildi fátt eitt um
málið að segja á þessu stigi annað
en að stefnt væri fram á veginn
að lokinni fjárhagslegri endur-
skipulagningu í rekstrinum.
Halldór rekur ásamt konu sinni,
Kristínu Stefánsdóttur, heildversl-
unina Rek-ís hf. sem flytur aðal-
lega inn snyrtivörur með vöruheit-
inu No Name. Framleiðslan á
áfenginu verður aðskilin eining og
sagði Halldór að hann ásamt föður
sínum, Kristjáni Halldórssyni, ætli
að reka starfsemina. Halldór sagði
að í byijun verði farið rólega af
stáð og tíminn notaður til að stilla
og undirbúa framleiðsluna. „Byij-
að verður á að framleiða þessar
hefðbundnu tegundir, íslenskt
brennivín, Kláravín, Tindavodka,
Dillon-gin, Gamalt brennivín, Óð-
alsbrennivín og Hvannarótar-
brennivín. Þá kaupum við upp-
skriftina af Eldur-ís vodka erlend-
is frá og framleiðsla verður hafin
á því á ný.“
Leigt verður húsnæði undir
starfsemina og verða 3 starfsmenn
í framleiðslunni.