Morgunblaðið - 02.07.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNIJLÍF FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1992
B 3
Bankamál
Nýtt skipulag á útibúa-
neti Landsbankans á
höfuðborgarsvæðinu
NÝTT skipulag á útibúaneti
Landsbankans á höfuðborgar-
svæðinu tekur gildi í haust. Er
það sambærilegt á við skipulagið
sem verður tekið upp á lands-
byggðinni. Stofnuð verða þijú
umdæmisútibú á höfuðborgar-
svæðinu, þ.e. aðalbanki, Austur-
bæjarútibú og Breiðholtsútibú.
Landsbankinn er nú að undirbúa
stofnun útibús á Seltjarnarnesi
og er stefnt að opnun þess þann
10. júlí. Ennfremur er stefnt að
opnun útibús í Kópavogi fyrri-
hluta ágústmánaðar en bæði þessi
nýju útibú verða lítil og munu
fyrst og fremst sinna þjónustu við
einstaklinga. Þá er gert ráð fyrir
að loka vegamótaútibúi á Lauga-
vegi 7 fyrir næstu áramót og selja
þá fasteign sem að öllu leyti er í
eigu bankans.
útibúið í aðalbanka munu heyra
Bankastrætisútibú, Vesturbæjar-
útibú og Seltjarnarnesútibú. Undir
Austurbæjarútibú munu heyra
Múlaútibú, Miklubrautarútibú, Suð-
urlandsbrautarútibú og Háaleytis-
útibú. Undir Breiðholtsútibú munu
heyra Árbæjarútibú, Höfðabakka-
útibú, Langholtsútibú og útibúin í
Hafnarfirði og Kópavogi. Afgreiðsl-
ustaðir á Hótel Loftleiðum og í Toll-
vörugeymslu munu áfram heyra
undir aðalbanka og afgreiðslan í
Sundahöfn heyra undir Langholts-
útibú.
MIÐBÆRINN - Fleiri verslanir í miðbænum hafa opið á laug-
ardögum í sumar en síðasta sumar.
Verslun
Fleiri verslanir í miðbænum
með opið á laugardögum
MEIRIHLUTI verslunareigenda í miðborginni eða 55% eru reiðubún-
ir að hafa opið á laugardögum í sumar. Þetta kemur meðal annars
fram í niðurstöðum skoðanakönnunar sem birtar eru í fréttabréfi
Þróunarfélags Reykjavíkur. Pétur Sveinbjarnarson framkvæmda-
stjóri félagsins segir að ekki sé hægt að fyrirskipa verslunareigend-
um í iniðborginni að hafa opið á ákveðnum tíma en nú virðist sem
fleiri verslanir hafi opið á laugardögum þetta sumarið en í fyrra.
„Breytingamar mun ekki hafa
mikil áhrif á þjónustu við viðskipta-
vini. Með þessu er verið flytja
ákveðna verkþætti úr útibúum í
umdæmisútibú og jafnframt er gef-
inn möguleiki á því að vera með
takmarkaða þjónustu á ákveðnum
stöðum. í nýju útibúunum í Kópa-
vogi og á Seltjamamesi verður helst
veitt einstaklingsþjónusta en ekki
gert ráð fyrir þjónustu á staðnum
við stór fyrirtæki þó það sé hægt
að þjóna fyrirtækjum með ákveðna
hluti með því að senda á milli
útibúa," sagði Brynjólfur Helgason,
aðstoðarbankastjóri Landsbankans.
Eins og á landsbyggðinni mun
ákvarðanataka á höfuðborgarsvæð-
inu færast að einhverju leyti frá
aðalbanka til umdæmisútibúa. Undir
í könnuninni voru spumingar
lagðar fyrir 218 verslunareigendur
og verslunarstjóra við Laugaveg,
Skólavörðustíg, Bankastræti og í
Kvosinni. Þegar spurt var um æski-
legan opnunartíma voru flestir sem
svömðu kl. 10-14 en athygli vekur
að stór hluti svaraði að það ætti
að vera lokað á sumrin. Einnig var
spurt um opnun yfir vetrartímann
og var meirihlutinn sem vill hafa
opið kl. 10-14. Tæp 60% svarenda
svara þeirri spurningu játandi hvort
þeir myndu fylgja meirihlutanum
varðandi opnunartíma á laugardög-
um.
Pétur segir að ætlunin hafi verið
að niðurstöður könnunarinnar yrðu
leiðbeinandi fyrir verslanir og von-
ast hefði verið til að góð samstaða
næðist um ákveðinn opnunartíma á
sumrin. „Mér sýnist að slík sam-
staða sé að nást þannig að almennt
verði opið kl. 10-14 á laugardögum.
En á þessu svæði er mikið af litlum
verslunum þar sem fátt starfsfólk
er og því er það freistandi að hafa
lokað á laugardögum yfir sumarið
til að starfsfólk fái frí um helgar
en slíkt er auðvitað bagalegt fyrir
ferðamenn og þá sem ætla að versla
í miðborginni."
Iðnaður
Bíró Stein-
ar og GKS
í viðræðum
Leitað eftir hag-
kvæmni í rekstri
VIÐRÆÐUR hafa verið milli for-
svarsmanna Biró hf. Steinar og
GKS hf. um sameiningu á fyrir-
tækjunum en þau fást bæði við
húsgagnaframleiðslu. Að sögn
Rafns Rafnssonar framkvæmda-
stjóra Bíró hf. Steinar er verið
að skoða ýmsar leiðir sem aukið
gætu hagkvæmni í rekstri en á
þessu stigi málsins væri ekki
hægt að skýra frá efnisatriðum
viðræðnanna. Framkvæmda-
stjóri GKS, Þorsteinn Jóhanns-
son, vildi ekki láta neitt eftir sér
hafa um málið.
Rafn sagði að allar forsendur
gæftr tilefni til að fyrirtæki í hús-
gagnaiðnaði gætu haldið þeirri hlut-
deild sem þau nú hafa en auðvitað
væru menn að skoða leiðir sem
gætu leitt til enn meiri hagkvæmni
í rekstri og þá sérstaklega með til-
liti til nýtingar á fastaíjármunum.
„Menn í þessari grein og væntan-
lega í öðrum greinum eru að skoða
allar mögulegar leiðir til að ná sem
mestri framleiðni miðað við nýjar
forsendur og framtíð. Við viljum
láta fagleg og viðskiptaleg sjónar-
mið ráða ferðinni en þetta er fyrst
og fremst spuming um að ef þessi
leið kemur til með að skila hag-
kvæmari rekstri er hún áhugaverð."
Hjá Bíró hf. starfa 16 starfsmenn
og í Stáliðjunni sem er undirverk-
taki eru um 35 manns. Hjá GKS
hf. eru 50 starfsmenn.
Ferðamál
Nú eru 0§BQ=Dlg(LD -bílarnir
á mjög hagstæöu veröi.
ISUZU-NKR, 5.5 tonna heildarþyngd, kr 1.910.000.-
ISUZU-NPR, 7 lonna heildarþyngd, kr. 2.265.000.-
ISUZU-FSR, 9 tonna heildarþyngd, kr. 3.200.000.-
Ryðvörn, skráning og virðisaukaskattur eru innifalin í verði.
Árleg ókeypis þjónustuskoðun frá framleiðendum í Japan
fylgir öllum ISUZU bílum.
ISUZU verksmiðjurnar eru stærstu útflytjendur vörubíla í
heiminum, enda eru ISUZU bílarnir viðhaldslágir,
sparneytnir vinnuþjarkar.
EIGUM BÍLA TIL AFGREIÐSLU STRAX
Ævwm
TíltiðsOrffq
HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVlK, SlMI 634000 - 634060.
Atlantsflug hagræddi flugi eftir
samstarfsslit við Flugferðir
Flugfélagið með næg verkefni í sumar
ATLANTSFLUG hf. er með næg
verkefni í sumar og fram að ára-
mótum þrátt fyrir að fyrirtækið
hafi misst farþegaflutninga á
vegum Flugferða-Sólarflugs sem
gert hafði verið ráð fyrir í sum-
ar. Halldór Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri félagsins sagði í
samtali að þvi væri ekki að neita
að erfiðleikar hefðu orðið í
rekstrinum eftir að samningum
var rift við Flugferðir-Sólarflug
en nú væri fyrirtækið að komast
úr þeirri dýfu. „Við hagræddum
fluginu í sumar og tókum inn
minni flugvél í flutninga frá ís-
landi en við ætluðum okkur f
upphafi,“ sagði Halldór.
Atlantsflug rekur nú tvær flug-
vélar, 170 sæta Boeing-727 og 124
sæta Boeing-737. Félagið flýgur
fyrir Samvinnuferðir-Landsýn til
Benidorm, Korfu, Dublin og Palma.
Þá er flogið vikulega til Barcelona
fyrir Heimsferðir og síðan eru er-
lendir ferðamenn fluttir hingað til
lands á vegum þýskra ferðaskrif-
stofa frá 5 borgum í Þýskalandi.
Stærri vélin er notuð í flug frá
Bretlandi til Ítalíu og Grikklands
fyrir einstök bresk flugfélög. Hall-
dór sagði að þeir væru með fast-
bundna samninga í allt sumar.
„Hlutimir hafa bjargast en urðu
aðeins öðmvísi en við áttum von
á. Því er ekki að neita að þegar við
misstum út svo stóran bita sem
farþegaflutningamir fyrir Flugferð-
ir-Sólarflug áttu að vera hafði það
áhrif. En eftir riftun samninga við
þá um mánaðamótin aprfl-maí hag-
ræddum við í rekstrinum þannig
að áfallið varð ekki eins mikið þeg-
ar við síðan misstum aftur flutnjng-
ana nokkmm vikum síðar. En því
er ekki að leyna að það var erfítt
fyrstu tvær vikumar eftir að þeir
hurfu en við emm að komast úr
þeirri dýfu núna. Við emm með nóg
af verkefnum í sumar og alveg fram
til áramóta fyrir báðar vélamar,"
sagði Halldór.
Hlutabréf
Til sölu eru nokkur hlutabréf í
Softis hf. á genginu 10.
Nafnverð einstakra bréfa er 10.000,- kr.
Þeir sem hafa áhuga, vinsamlegast sendi
tilboð sín til Morgunblaðsins,
Aðalstræti 6, Rvk. fyrir 6. júlí n.k.
merkt: „Softis LS-1000“
Ath. Fyrir liggur heimild ríkisskattstjóra um frádrátt
frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestinga
einstaklinga í atvinnurekstri.
V^terkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!