Morgunblaðið - 02.07.1992, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 02.07.1992, Qupperneq 8
XJöfðar til VZterkurog A JLioiks i oilum starfsgreinum! pter0mMufoifo VIÐSKIFn AMNNUIÍF kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1992 Fyrirtæki Nýráfangi ráðgjafarverkefnis- ins Frumkvæði-framkvæmd IÐNTÆKNISTOFNUN og Iðn- lánasjóður hafa tekið upp að nýju ráðgjafarverkefnið Frumkvæði- framkvæmd sem hófst fyrir rúmu ári síðan. Tilgangur verkefnisins er að veita iðnfyrirtækjum ráð- gjöf við stefnumótun, fjárhags- lega endurskipulagningu og fjár-. málastjórnun, vöruþróun og markaðsaðgerðir, fraraleiðslu- skipulagningu og gæðastjórnun. Þau fyrirtæki sem taka þátt í verkefninu skilgreina þarfir sínar með aðstoð verkefnisstjóra sem velur ráðgjafa og skipuleggur samskipti þeirra við viðkomandi fyrirtæki. í ársbyrjun hófst nýr áfangi ráð- gjafarverkefnisins og hafa töluverð- ar breytingar átt sér stað á fram- kvæmdinni. Þær fela m.a. í sér að umsóknartíminn er opinn allt árið svo lengi sem fjármagn leyfir þátt- töku nýrra fyrirtækja. Þetta gerir kleift að fyrirtæki geta sótt um að- gang að verkefninu ef aðkallandi vandamál koma upp sem þarf að leysa með ráðgjöf. Þá hefur sú breyt- ing orðið að fyrirtækjum gefst að- eins kostur á að sækja um ráðgjöf á tveimur sviðum í einu í stað þriggja áður. Breytingin byggir á fenginni reynslu að fyrirtækin hafa yfirleitt ekki nógu mikinn mannafla eða getu til að vinna þrjú verkefni samhliða. Karl Friðriksson er verkefnis- stjóri, en í stjóm Frumkvæði-fram- kvæmdar sitja Þórður Valdimarsson frá Iðnlánasjóði, Ingvar Kristinsson frá Iðntæknistofnun og Kristján Guðmundsson frá Landssambandi iðnaðarmanna. Leðuriðjan Atson setur nýja vöru á markað Leðuriðjan Atson er meðal þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í ráðgjaf- arverkefninu Frumkvæði-fram- kvæmd á síðastliðnu ári. Þar var lögð áhersla á vöruþróun og mark- aðsaðgerðir ásamt stefnumótun sem er enn í vinnslu. Fyrirtækið byggir á gömlum merg og hefur framleitt seðlaveski, buddur og margs konar smáleðurvöm auk þess að reka versl- un. Að sögn Nönnu Mjallar Atladótt- ur, framkvæmdastjóra Leðuriðjunn- ar Atson, hefur fyrirtækinu tekist með þátttöku í verkefninu að koma með nýja vöru á markaðinn sem nefnist dagskinna. Þetta er dagbók- arkerfi með nokkrum tegundum eyðublaða sem fólk getur notað til að setja upp sitt eigið kerfi. Dag- skinna er leðurvara úr kálfskinni í þremur litum. Nanna sagði að meginmarkmið fyrirtækisins með þessari endurskip- ulagningu væri tvíþætt. Annars veg- ar að ná fram betri árangri í fram- leiðslunni með bættum vinnubrögð- um og nýjum vélum og hins vegar betri skipulagningu í markaðs- og sölumálum. „Þrátt fyrir mjög mikla sam- keppni við erlendan innflutning höf- um við sterka stöðu á markaðnum. í fyrra var 35% söluaukning hjá fyrirtækinu sem er talsvert miðað við aðstæður í þjóðfélaginu og við áætlum að það verði 25% söluaukn- ing í ár“, sagði Nanna Mjöll. „Það er svolítið erfítt að segja hversu mikill árangurinn hefur verið með tilliti til markaðshlutdeildar þar sem við erum komin inn á nýjan markað með tilkomu dagskinnu". Nanna Mjöll sagði að það ríkti almenn ánægja með verkefnið Frumkvæði-framkvæmd sem hefði virkað sem mikil vítamínsprauta á starfsemi fyrirtækisins. Fólk Framkvæmda- stjóri Lífeyris- sjóðs Vestur- lands MJÓNAS Dalberg Karlssonheíuv tekið við starfí framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Vesturlands á Akra- nesi. Hann mun hafa umsjón með stjómun almenns rekstrar, ráðning- um starfsfólks og málefnum Lífeyr- issjóðs Vesturlands í samráði við stjóm. Jónas útskrifaðist sem stúd- ent frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð árið 1983, búfræðingur frá Menntaskól- anum á Hvann- eyri árið 1985 og rekstrarfræðingur fráSamvinnuhá- skólanum á Bi- , fröst nú í vor.' Hann starfaði hjá Sparisjóði Reykjavíkur á ámnum 1988-1990. Jónas er 29 ára og er í sambúð með Ásrúnu Kristjánsdóttur, dans- kennara og eiga þau eitt bam. Jónas Nýr starfsmað- urhjá Gatna- málasljóra MBENEDIKT M. Aðalsteinsson hefur hafíð störf hjá Gatnamála- stjóranum í Reykjavík. Hann mun einkum hafa umsjón með innsetn- ingu á verk- og kostnaðarbókhaldi ásamt öðrum störfum. Benedikt út- skrifaðist með verslunarpróf frá Samvinnuskólan- um á Bifröst árið 1977, stúdentspróf frá Fjölbrauta- skólanum í Breið- holti árið 1987 og mun útskrifast sem viðskiptafræð- mgur frá Háskóla íslands í október á þessu ári. Hann starfaði hjá Kaup- félagi Eyfirðinga á árunum 1977- 1985, í Samvinnubankanum í Reykjavík með námi á árunum 1985- 1987 og sem dæmakennari við Við- skiptadeild Háskóla íslands á þessu ári. Benedikt er 34 ára og kvæntur Benedikt Jóhönnu Davíðsdóttur, hjúkmnar- fræðinema og eiga þau 2 börn. Framkvæmda- stjóri Blikk- smiðjunnar hf. M ÓLAFUR Eggertsson hefur tek- ið við starfi framkvæmdastjóra Blikksmiðjunnar hf. tæknideild Ó.J. & Kaaber. Hann útskrifaðist sem kennari frá Kennaraháskóla íslands árið 1966 og rekstrartækni- fræðingur frá Östfold Tekniske Höyskole í Sarpsburg í Noregi árið 1976. Ólafur kenndi við Iðnskólann í Reykjavík á tímabilunum 1969- 1973 og 1976-1978 og var sölu- stjóri hjá Olíu- félaginu Skejj- ungi á áranum 1978-1986. Þá var hann einnig deild- arstjóri hjá Byggingavöru- deild Sambands- ins á áranum 1986-1987 og markaðsstjóri hjá Sindrastáli hf. á árunum 1987- 1991. Ólafur er kvæntur Málfriði Gunnarsdóttur, sérkennara og eiga þau þijú böm. Framkvæm da- sijóri Banda- lags íslenskra farfugla MKJARTAN Steinsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Bandalags íslenskra farfugla. Hann mun hafa umsjón með rekstri Bandalags íslenskra farfugla og far- fugia í eigu þess, ferðaskrifstofu farfugla auk samskipta við alþjóða- hreyfíngu farfugla. Kjartan útskrif- aðist sem stúdent úr Verzlunar- skóla íslands árið 1984 og viðskipta- fræðingur frá Há- skóla Islands um síðustu áramót. Hann hefur einnig séð um fjármál hjá Hótel Valhöll samhliða námi. Kjartan er 27 ára og í sambúð með Magndísi M. Sigurðardóttur. KJartan Ólafur ð Umhverfisvernd hluti af rekstri fyrirtækja UMHVERFISMÁL eru ofarlega í hugum manna þessa dagana. Mikið hefur verið ritað og rætt um málefni tengdu umhverfinu og kapp lagt á að gera öllum Ijóst mikilvægi umhverfisvernd- ar til að tryggja örugga framtíð. Stjórnendur fyrirtækja verða ekki undanskildir þeirri ábyrgð sem lögð er á herðar allra íbúa jarðarinnar. Aukinn þrýstingur er á fyrirtæki að haga starfsem- inni á þann hátt að það skaði ekki umhverfið eða í það minnsta að dregið sé úr skaðan- um eins og kostur er. Nú hefur verið gefið út frum- varp að íslenskum staðli um stjórnun umhverfismála í fyrir- tækjum. Svo virðist sém fljótt hafi verið brugðist við í þessu efni hér á landi því staðallinn er þýðing á nýjum breskum staðli, BS7750, sem gefinn var . út á þessu ári. í frumvarpinu eru tilteknar kröfur sem þarf að upp- fylla til að hægt verði að byggja upp, koma á og viðhalda um- hverfismálakerfum innan fyrir- tækja, kerfum sem hafa það að markmiði að tryggja að yfirlýstri stefnu í umhverfismálum sé fylgt. s ( Jafnt stór sem smá fyrirtæki hafa tækifæri til að nýta sér staðalinn til að koma á ákveð- inni og markvissri umhverfis- stefnu. í frumvarpinu eru þó ekki settir fram sérstakir mæli- kvarðar á frammistöðu í um- hverfismálum. Staðlinum er meira ætlað að vera viðmið eða leiðbeiningar fyrir fyrirtæki sem vilja taka upp markvissa um- hverfisstefnu sem hluta af heild- arstefnu. Því verður ekkert fyrir- tæki skyldugt að hafa umhver- fiskerfi en gera má þó ráð fyrir að markaðurinn krefjist þess að fyrirtæki sýni aukna umhyggju fyrir umhverfinu þannig að þau sjá sig knúin til að sinna um- hverfismálum til jafns við önnur málefni er snerta reksturinn. Ekki er gert ráð fyrir opinberu eftirliti, því er það í höndum stjórnenda hvernig til tekst og hvernig eftirlitsstarfi verður háttað. Búast má við að fyrir- tæki sem taka mið af staðlinum gefi gott fordæmi og bæti þann- ig ímynd sýna út á við þegar það getur sýnt fram á að umhverfis- mál eru stjórnendum þess hug- leikin og skipta máli í rekstrin- um. Líkt og gæðastaðall hefur áunnið sér fastan sess má bú- ast við að umhverfisstaðall geri slíkt hið sama - og ekki líði á löngu þar til viðskiptavinir krefj- ist þess að fyrirtæki sýni fram á að vel sé gætt að umhverfinu í allri starfseminni. Gefinn er kostur á að gagn- rýna frumvarpið þar til 1. septe- mer nk. en þá verður það lagt fyrir og ef það verður samþykkt er ætlunin að selja staðalinn þeim sem áhuga hafa að taka upp umhverfiskerfi í fyrirtækj- um. Þess má geta að 2.700 ein- tök af staðlinum hafa þegar ver- ið seld í Bretlandi. Þegar og ef gefinn verður út slíkur umhverf- isstaðall hér á landi má búast við að næsta skref verði vottun, þ.e. líkt og í gæðamálum verði það ábyrgir aðilar sem gegna því hlutverki að votta að vel sé staðið að umhverfismálum inn- an fyrirtækisins. Á næstu árum 'gæti verið hugsanlegt að fyrir- tæki gæfu út sérstaka umhverf- isskýrslu sem sett yrði fram sem fylgirit ársskýrslu. Fyrirtækjum verður í sjálfs- vald sett hvort þau tileinka sér umhverfisvæn vinnubrögð, en spurning er hvort til álita komi að sett verði upp opinbert eftir- litskerfi og þá gæti komið til sekta ef ekki er staðið við fyrir- fram mótaða stefnu og umhverf- inu á einhvern hátt stefnt í voða með starfseminni. Þegar viðskiptavinirnir fara í auknum mæli að krefjast þess að fá vitneskju um hversu „grænt" fyrirtækið er gæti það orðið til þess að stjórnendur sjái ekki annað fært en að koma upp ákveðinni umhverfisstefnu og eftirlitskerfj til að mæta sífellt kröfuharðari neytendum. Til að vernda markaðinn og halda í viðskiptavinina þyrftu fyrirtækin þá um leið að leggja sitt af mörkum til að vernda umhverfið. Ekki verður horft fram hjá því að stjórnendur verða á næst- unni að gefa umhverfismálum gaum til að styrkja samkeppnis- stöðu fyrirtækja sinna í heimi þar sem æ meiri áhersla er lögð á verndun umhverfisins. MSig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.