Morgunblaðið - 09.07.1992, Side 2

Morgunblaðið - 09.07.1992, Side 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1992 Gosdrykkir Iðnaður Verðbréfamarkaður Þjónusta Tveir lítrar á svipuðu verði og hálfur lítri TVEGGJA lítra Pepsí- og kókflöskur kosta rétt um og yfir hundrað krónur út úr búð þessa dagana á meðan sömu drykkir í hálfslítra flöskum kosta um 90 krónur. Björgúlfur Guðmundsson, forsljóri Gosan, sagði aðspurður að þar byðu menn sérstakt sumar- og kynn- ingarverð á tveggja lítra flöskunum í tilefni þess að Pepsi kynnti nýlega nýtt vörumerki. Bæring Ólafsson, sölustjóri Vífilfells, sagði hins vegar að aðeins væri um að ræða hluta af markaðssetningu á ársgrundvelli. „Það er ekki það að framleiðslu- kostnaður hafí lækkað svona mikið hjá okkur,“ sagði Björgúlfur. „í kjölfar þess að nýja vörumerkið var kynnt hér, var hins vegar samið við Pepsi um að við fengjum ákveðna upphæð til kynningar. Okkur var síðan í sjálfsvald sett hvort við notuðum þá upphæð til auglýsinga eða til að lækka verð á ákveðnu magni af framleiðslunni. Við ákváð- um að fara þá leið frekar og láta neytendur njóta þess,“ sagði Björg- úlfur. „Til samræmis við þá upphæð sem við sömdum um við Pepsi gát- um við lækkað verðið á ákveðnum lítraijölda. Við eigum enn eftir eitt- hvað magn á þessu lága verði, en það mun þó ekki endast eins lengi og við áætluðum í upphafi vegna mikillar sölu,“ sagði Björgúlfur. Að sögn Bærings var Vífilfell með svipað tilboð í fyrrasumar þar sem verðlækkun var á kóki í tveggja lítra flöskum. „Það var mjög vin- sælt og grilltilboð okkar nú er í beinu framhaldi af því sem hluti af fyrirfram ákveðinni markaðs- setningu okkar á ársgrundvelli." Grænn Tuborg á markað hérlendis Morgunblaðið/Kristján SAMSTARFSSAMNINGUR — Rafn Rafnsson (t.h.) formaður Félags húsgagna- og inn- réttingaframleiðenda og Pétur Pálsson hjá Birninum hf. handsala samninginn. Á myndinni er einnig Krist- ján Guðmundsson viðskiptafræðingur hjá Landsambandi iðnaðarmanna. Húsgagnaframleiðendur kaupa af Birninum SAMSTARFSSAMNINGUR um vörukaup var undirritaður milli Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda og byggingavöru- verslunarinnar Björninn hf. síðastliðin þriðjudag. Samningurinn nær til spónapiatna og allra annarra vara sem Björninn hf. selur. Að sögn Kristjáns Guðmundssonar viðskiptafræðings hjá Landsambandi iðnaðarmanna og framkvæmdasljóra Félags hús- gagna- og innréttingaframleiðenda markar þessi samningur tímamót í innkaupum fyrirtækja í þessari iðngrein. I Félagi húsgagna- og innréttingaframleiðenda eru um 40 fyrirtæki. Undirbúningur samstarfs fyrirtækja í húsgagna- og inrétt- ingaiðnaði um sameiginleg inn- kaup á spónaplötum hefur staðið frá því sl. haust þegar gerð var könnun meðal aðildarfyrirtækja félagsins um hverjir hefðu áhuga á að vera með í slíku samstarfi. Kristján sagði að undirtektir hefðu verið góðar og gefíð ástæðu til að vinna frekar í mál- inu. „Hráefniskostnaður vegur mjög þungt í húsgagna- og inn- réttingaframleiðslu og öll lækkun á verði aðfanga leiðir til aukinnar hagræðingar. I samningnum felst að hvert aðildarfyrirtæki getur valið um að kaupa spóna- plöturnar af lager seljanda eða flytja þær beint inn með milli- göngu Bjarnarins. Einnig er um umtalsverðan afslátt að ræða sem kemur fyrirtækjum vel og lækkar hráefniskostnaðinn enn meira.“ Sunkist - nýr appelsínugosdrykkur TUBORG Gron er væntanlegur í verslanir ÁTVR fyrir mánaðarlok. Olgerðin Egill Skallagrímsson bruggar bjórinn samkvæmt einkaleyfasamningi og verður hann seldur í dósum og margnota flöskum. Leópold Sveinsson markaðssljóri hjá Ölgerðinni sagði að áhersla verði frekar lögð á flöskurnar því í markaðssetningu Tu- borg Gron í Danmörku er tekið mið af umhverfissjónarmiðum. Öl- gerðin hefur einnig sett á markað nýja tegund af appelsínugosdrykk sem kemur frá Bandaríkjunum og nefnist Sunkist. Nýi appelsínu- gosdrykkurinn nefnist Sunkist. Tuborg Gron er með 4.6% alkóhól- innihald miðað við rúmmál. Leópold sagði að fyrir um 5 árum hafi verið farið af stað með kynningarherferð á Tuborg Gron í Danmörku og nú væri bjórinn einn sá vinsælasti þar í landi. Tuborg Gron verður seldur í ÁTVR og á veitingastöðum og er búist við að leyfi fáist til að vera með bjórinn á krana. Ölgerðin hefur hafið framleiðslu á appelsínugosdrykknum Sun-kist með einkaleyfi frá Sunkist Groswer Inc. í Bandarikjunum. Drykkurinn inriiheldur 5% appelsínusafa og er léttkolsýrður. Fyrst um sinn verður drykkurinn fáanlegur í 33 og 50 cl dósum, en eftir nokkrar vikur verður hann í hálfs og tveggja lítra plastflöskum. En tekur þessi nýi appelsínu- drykkur ekki af sölu Egils appels- íns? „Við teljum að svo verði ekki. Samkvæmt þeim könnunum sem við höfum gert virðast neytendur gera skýran greinarmun á milli rauðra og appelsínugulra appelsínu- drykkja. Framleiðsla á Sinalco hef- ur verið hætt og er búist við að Sunkist komi í staðinn. Svo virðist sem hræringar á markaðnum hafi ekki áhrif á Egils appelsínið," sagði Leópold. Skuldabréfaútgáfa eignaleiga nálgast 1,6 milljarða á árinu EIGNALEIGURNAR fjórar hafa það sem af er árinu staðið fyrir skuldabréfaútboðum fyrir samtal nálægt 1,6 milljarða króna að nafnverði. Þar vegur þyngst útgáfa Glitnis sem gefið hefur út markaðsskuldabréf fyrir 890 milljónir. Þá hefur Lýsing verið með útboð að fjár- hæð samtals um 350 milljónir og seldust þau bréf upp á skömmum tíma. Nýlega voru Kynning og markaður annast alþjóðalega ráðstefnu íÞýskalandi FYRIRTÆKIÐ Kynning og markaður hf. (KOM) sem sérhæfir sig í kynningarstarfsemi af ýmsu tagi og ráðstefnuhaldi hefur að undanförnu unnið að undirbúningi alþjóðlegrar ráðstefnu um fisk- sölumál í Hamborg í Þýskalandi. Ráðstefnan sem ber yfirskriftina Groundfish Forum verður haldin dagana 28-30. október nk. og verður þar sérstaklega fjallað um sölu á bolfiski. Hún er ekki opin heldur er eingöngu boðið sérstaklega til hennar en búist er við 110-140 þátttakendum. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt kynn- ingarfyrirtæki tekur að sér ráðstefnuhald erlendis eftir því sem næst verður komist. Ráðstefnan er haldin í kjölfar SIAL matvælasýningarinnar í Par- ís og er fyrst og fremst ætluð stjómendum fisksölufyrirtækja. Svipuð ráðstefna heíur verið haldin árlega en að sögn Jóns Hákons Magnússonar, framkvæmdastjóra KOM, þótti hún of stór og umræðu- efnið ekki nægilega afmarkað. „Upphafsmennirnir að ráðstefn- unni voru þeir Friðrik Pálsson, hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Johann C. Lindenberg frá Nordsee Frozen Fish í Þýskalandi og Peter Hyldoft hjá Paul Agnar Seafood í Danmörku. Friðrik taldi að hægt væri að skipuleggja ráðstefnuna hér á landi og fékk mig í lið með sér til þess. Þetta er útflutningur á íslensku hugviti þar sem við sjáum um allar bókanir, dag- skrána, samninga við hótel, kynn- ingu o.fl. Þátttakendur koma frá Japan, Nýja-Sjálandi, Kína, Rúss- landi, Bandaríkjunum, Kanada, Grænlandi og Suður-Ameríku. Með síma, tölvum og telefaxi getum undirbúið ráðstefnuna hér þannig virðisaukinn verður eftir í landinu. Það skiptir verulegu máli í þessu sambandi að búið er að lækka síma- og telefaxgjöldin og póst- þjónustan er mjög góð enda þótt hún sé ennþá dýr,“ sagði Jón Há- kon. Hann kvaðst telja að ef ráðstefn- an gengi vel yrði hún hugsanlega haldin árlega og þá mætti búast við að hún yrði haldin hér á landi innan fárra ára. „Bókanir hafa verið mjög góðar en okkur þykir ennþá merkilegra að við fáum mik- ið af bréfum frá mönnum sem ekki var boðið. Þeir vilja komast á ráðstefnuna sem er merki um að hún er eftirsótt. Hún er aðallega ætluð fyrir þá sem eru í sölu á botnfiskafurðum og framleiðendur sem selja fisk til veitingahúsa." síðan gefin út skuldabréf Lindar að fjárhæð 150 milljónir sem vel hefur gengið að selja og Féfang hefur sömuleiðis gefið út bréf að fjárhæð 100 milljónir. Loks má nefna að Samvinnusjóðurinn sem stundar ýmiskonar fjár- mögnun gaf út skuldabréfaflokk að fjárhæð 100 milljónir í mars sem nú er uppseldur. Þetta kemur fram í nýju frétta- bréfi frá Landsbréfum um fjármál og fjárfestingar lífeyrissjóða. Kaupendur skuldabréfa eignaleig- anna og Samvinnusjóðs hafa aðal- lega verið einstaklingar og ýmsir sjóðir en aðeins að litlum hluta líf- eyrissjóðir. Skuldabréf eignaleiganna eru í flestum tilfellum aðeins með ábyrgð fyrirtækjanna sjálfra en þau eru öll efnahagslega sterk, í eigu banka eða annarra fjármála- fyrirtækja og hafa flest skilað hagnaði undanfarin ár. Ávöxtun bréfa þessara fyrirtækja er að jafn- aði 1,5-2 prósentustigum yfír bankabréfum. Fréttabréfíð vekur athygli á því að fáir lífeyrissjóðir hafí fjárfest í bréfunum þar sem heimildir til þess vanti í reglugerð- um sjóðanna. Nokkrir lífeyrissjóðir hafí þó að undanförnu endurskoð- að reglugerðir sínar m.a. um heim- ildir til fjárfestinga og í framhaldi af því fjárfest í skuldabréfum eignaleiga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.