Morgunblaðið - 09.07.1992, Qupperneq 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1992
Prentiðnaður
Rætt við Hálfdán Steingrímsson forstjóra nýs sameinaðs fyrirtækis
Steindórsprent-Gutenberg hf.
„Ég er ánægður með kaupin en það þarf töluverðan kjark til að
fara út í slíka sameiningu nú þegar verið er að spá öllu norður og
niður,“ segir Hálfdán Steingrímsson forsljóri en fyrirtæki hans
Steindórsprent keypti allt hlutafé í Prentsmiðjunni Gutenberg hf.
fyrir tæpar 85 milljónir. Hálfdán hefur ásamt fjölskyldu sinni rekið
Steindórsprent hf. frá árinu 1951 með góðum árangri. Fyrirtækið
er skuldlaust og skrifstofu- og stjórnunarkostnaður er aðeins 5%
af veltu. Hálfdán er ánægður með kaupin en segir að hann sé auðvit-
að að fórna hluta af sínu frelsi þegar fyrirtækið stækkar svo mikið
sem raun er við sameiningu fyrirtækjanna tveggja. Eignaform á
nýja fyrirtækinu sem nefnt verður Steindórsprent-Gutenberg hf.
verður óbreytt og því áfram fjölskyldufyrirtæki. Húsnæði Steindórs-
prents í Ármúla verður selt og starfsemin flutt í 2.300 fm húsnæði
Gutenberg í Síðumúla.
Steindórsprent var stofnað árið
1934 af Steindóri Gunnarssyni,
Eggerti Kristjánssyni, Kristjáni
Ágústssyni og Einari Jónssyni.
Hálfdán tók við rekstrinum af
tengdaföður sínum, Steindóri, 1.
apríl árið 1951. Ingibjörg Steindórs-
dóttir, kona Hálfdáns, hefur starfað
í prentsmiðjunni alla tíð með manni
sínum og nú starfa þar sonur þeirra,
Steindór, og tengdadóttir, Sólrún
Björnsdóttir. Fyrirtækið er í eigu
þeirra hjóna og þriggja bama
þeirra. Prentsmiðjan var fyrst til
húsa í Aðalstræti 4, þá flutti hún
í Kirkjustræti 4 og síðan í Tjarnar-
götu 4 þar sem Happdrætti Háskól-
ans hefur nú aðsetur en árið 1969
var starfsemin flutt í húsnæðið að
Ármúla 5.
Var með hagstæðasta tilboðið
Gutenberg er fyrsta ríkisfyrir-
tækið sem selt er samkvæmt einka-
væðingaáætlun ríkisstjórnarinnar.
Tilboð Steindórsprents í Gutenberg
hljóðaði upp á 84.900.000 krónur
og segir Hálfdán að hann hafi ver-
ið búinn að gera sér grein fyrir
hvers virði Gutenberg væri og til-
boðið hafi byggst á því mati. Guten-
berg var hins vegar bókfært á 148
milljónir en fasteignir fyrirtækisins
voru ofmetnar um 25 milljónir og
vélar um 23,7 milljónir. Þá hvíldu
á fyrirtækinu óbókfærðar skuldir
upp á 10 milljónir.
Tvö önnur tilboð bárust í prent-
smiðjuna. Tilboð frá Prentsmiðjunni
Odda var svipað að upphæð og til-
boð Steindórsprents en ísafoldar-
prentsmiðja bauð 119 milljónir sem
var 80.900 þúsund krónur að nú-
virði. Hálfdán segir að sér hafi ver-
ið sýnt mikið traust því að það
hafi verið vilji starfsfólksins í Gut-
enberg að Steindórsprent keypti
fyrirtækið frekar en hinir aðilarnir.
Þá var það mat Landsbréfa að til-
boð Steindórsprents væri hagstæð-
ast fyrir seljandann.
Eiginfjárstaða Steindórsprents
er talin það góð að kaupverðið verð-
ur greitt fyrir júlílok. Þegar Hálfdán
er spurður hvort ekkert mál verði
að greiða 85 milljónir á svo skömm-
um tíma svarar hann því til að
hann geymi peningana ekki undir
koddanum heldur verði eignir seldar
til að losa fjármagn. „Enda gæti
ég varla sofið almennilega með svo
hátt undir höfði ef það væri allt
undir koddanum."
Þarf á þekkingu
starfsmannanna að halda
Gutenberg var í 2.300 fm hús-
næði í Síðumúla og er ætlunin að
selja um 700 fm húsnæði Steindórs-
prents í Ármúla 5 og hafa alla starf-
semina undir einu þaki í Síðumúlan-
um. Hálfdán segir að bestu tækin
á báðum stöðum verði valin þannig
að prentsmiðjan verði sem fjölhæf-
ust til að þjóna viðskiptavinum sem
best.
I Steindórsprenti störfuðu 15
manns en í Gutenberg um 60
manns. Öllu starfsfólki varð að
segja upp og segir Hálfdán að það
hafi verið það erfiðasta í sameining-
unni en jafnframt að það hafi verið
nauðsynlegt formsins vegna.
„Starfsfólkið í Gutenberg býr yfir
mikilli þekkingu í prentiðnaði og
sömuleiðis það starfsfólk sem ég
hef haft í Steindórsprenti. Ég þarf
á allri þeirri þekkingu að halda og
vonast til að viðskiptin vaxi þannig
að þörf verði fyrir allt starfsfólkið.“
Hálfdán á von á því að sameiningin
blessist en taka verði tillit til mann-
legra tilfinninga sem þar spili inn
í. Stefnt er að því að í lok mánaðar-
ins verði sameiningin gengin yfír
að mestu og að starfsmenn fái að
vita s.em allra fyrst um störf sín.
Ná hagræðingu í stjórnun
fyrirtækisins
Hálfdán segir að fyrsta verkefnið
verði að ná fram hagræðingu í
stjórnun fyrirtækisins. „I Steindórs-
prenti höfum við verið að þróa síð-
SAMEINING Á myndinni sem tekin er í húsnæði Stein-
dórsprents í Ármúlanum eru, talið frá vinstri, Steindór Hálfdánar-
son, Sólrún Björnsdóttir, Guðmundur Kristjánsson, Hálfdán og eigin-
kona hans Ingibjörg Steindórsdóttir. Búast má við að í nógu verði
að snúast hjá þessu fólki næstu vikurnar meðan sameiningin er að
ganga yfir en stefnt er að því að henni verði að mestu lokið fyrir
mánaðamótin.
astliðin 6 ár stjórnunarkerfi sem
hefur leitt til þess að skrifstofu- og
stjórnunarkostnaður er innan við
5% af veltu. Stjórnunarkerfið hefur
reynst okkur mjög vel því Stein-
Morgunblaðið/Kristján
STEIIMDÓRSPRENT-GUTENBERG HF.
Hálfdán Steingrímsson sem rekið hefur fjölskyldufyr-
irtækið Steindórsprent hf. í rúm 41 ár segir að nýja
fyrirtækið þurfi á þekkingu starfsmanna beggja fyrir-
tækjanna að halda og vonast hann til að viðskiptin
vaxi þannig að þörf verði fyrir allt starfsfólkið.
Efst er Tjarnargata 4, þar sem Steindórsprent var
lengi til húsa, og er húsnæðið enn í eigu Hálfdáns.
Ármúli 5 þar sem Steindórsprent hefur verið síðan
1969 en húsnæðið verður nú selt þegar prentsmiðjan
verður flutt.
Síðumúli 18 þar sem Gutenberg hf. hefur verið með
starfsemi sína. Þar verður Steindórsprent-Gutenberg
hf. með alla starfsemina undir einu þaki.
dórsprent var algjörlega skuldlaust.
í Gutenberg var skrifstofu- og
stjórnunarkostnaður 9-10% af veltu
og ef næst sú hagræðing sem stefnt
er að þá blasir við að spara megi
um 1 milljón á mánuði eða 10-12
milljónir á ári. Nái ég þessum tökum
á fyrirtækinu þá þróast áframhald-
ið.“
Hálfdán sem verður 72 ára nú í
haust sér fram á tíma þar sem
mikið verður að gera og segir hann
að sonur hans, Steindór, og Guð-
mundur Kristjánsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Gutenberg, komi til
með að starfa að sameiningunni og
að koma stjórnunar- og skrifstofu-
haldi í það horf sem stefnt er að.
„Sameiningin hvílir aðallega á
þeirra herðum enda finnst mér mig
skorta nægilegt þrek í þetta. Þegar
maður skuldar engum neitt þá er
maður afskaplega frjáls. En nú
fórna ég hluta af mínu frelsi og ef
ég stend mig ekki þá má búast við
að ég verði sendur í fjárhagslega
gjörgæslu," segir Hálfdán og brosir
í kampinn.
Ekki er að efa að Hálfdán og
hans fóik hafi í nógu að snúast
næstu mánuðina og leikur blaða-
manni forvitni á að vita hvers vegna
hann fór út í að stækka fyrirtækið
og kaupa Gutenberg?
„Eftir sameininguna verður í
fyrsta lagi hægt að veita viðskipta-
vinunum enn betri þjónustu. Einnig
styrkir þetta samkeppnisstöðu okk-
ar á markaðnum og gefur mögu-
leika á að ná hagræðingu í rekstrin-
um. Er ekki alltaf verið að segja
að maður eigi að skila landinu aftur
því sem maður hefur tekið frá því.
Nú er ég að skila prentverkinu enn
stærra en það var og er þá í raun
að skila landinu aftur,“ segir Hálf-
dán að lokum.
MSig.
Hlutabréf
Fyrsta einkavæðingin tekist vel
- segir Albert Jónsson ráðgjafi hjá Landsbréfum hf.
FYRSTU einkavæðingu ríkisfyrirtækis samkvæmt einkavæðingaáætlun
ríkisstjórnarinnar lauk þegar allt hlutafé í Prentsmiðjunni Gutenberg
hf. var selt í síðustu viku. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu fól
Landsbréfum hf. að sjá um sölu allra hlutabréfa ríkissjóðs í Gutenberg
hf. í april síðastliðnum. Stefnt var að sölu fyrir lok júní og gekk það
eftir þegar Steindórsprent hf. keypti Gutenberg hf. 29. júní sl. fyrir
85 miHjónir króna. En hvernig gekk einkavæðingin fyrir sig séð frá
sjónarhóli ráðgjafana hjá Landsbréfum? Albert Jónsson ráðgjafa í fyrir-
tækjadeild Landsbréfa varð fyrir svörum og er það mat hans að einka-
væðingin hafi tekist mjög vel.
Albert sagði að töluverður hluti
verkefnis þeirra í Landsbréfum hafi
verið að finna út verðmæti fyrirtæk-
isins til að ríkissjóður hefði viðmið
þegar tilboðin myndu berast. Farið
var í gegnum alla ársreikninga Gut-
enbergs, atvinnugreinina sem slíka
og allan rekstur fyrirtækisins. Þá var
iöggiltur fasteignasali fenginn til að
meta fasteignir fyrirtækisins og sér-
fróðir aðilar mátu vélar og tæki.
„Þessar upplýsingar voru síðan not-
aðar til að finna út það verð sem við
töldum líklegt að seija ætti fyrirtæk-
ið á. Mat Landsbréfa á Gutenberg
var trúnaðarmál og var einungis fyr-
ir einkavæðinganefndina."
Landsbréf auglýstu fyrir hönd rík-
issjóðs bréfin í Gutenberg í kringum
20. maí sl. Þá var kallað eftir að
þeir sem áhuga hefðu skiluðu inn
skriflegri yfirlýsingu um áhuga á
viðræðum án skuldbindinga. Lands-
bréf útbjó sölulýsingu þar sem komu
fram helstu upplýsingar um fyrir-
tækið sem talið var nauðsynlegt að
þyrfti til að byggja tilboð á. I iok
maí höfðu 8 aðilar lýst yfir áhuga á
kaupum en þeim fækkaði niður í 3
þegar að tilboðum kom um 20. júní.
„Tilboðin voru mismunandi og til að
gera þau sambærileg voru þau núv-
irt. Síðan var því tilboði tekið sem
hagkvæmast þótti og var það tilboð
Steindórsprents hf. Þeir sem gerðu
tilboð fengu ekki að vita hvert mat
okkar á Gutenberg var en tilboðin
voru raunhæf og nálægt því sem við
mátum fyrirtækið á.“
Albert sagði að vinnan við upplýs-
ingaöflunina hafi skilaði sér vel.
„Upplýsingamar hafa eflaust auð-
veldað vinnuna fyrir væntanlega
kaupendur að komast að rétta tilboð-
inu. Einnig kom það seljandanum vel
að hafa viðmið um verðmæti fyrir-
tækisins."
En hvemig er ísland frábrugðið
öðrum löndum þegar kemur að
einkavæðingu? „Island er lítill mark-
aður og kaupendur færri en gerist
erlendis. En við getum notað viður-
kenndar erlendar aðferðir sem gefa
góðar vísbendingar um verðmæti
fyrirtækja. Þó verður að hafa í huga
RÁÐGJAFI — Albert
Jónsson hjá Landsbréfum.
að reikningsverðið er enginn heilagur
sannleikur. Það sem skiptir máli er
að forsendurnar sem notaðar er í
útreikningana séu réttar þannig að
niðurstaða dæmisins verði rétt. Ég
tel að þessi fyrsta einkavæðing hafi
tekist mjög vel og endirinn á þessu
dæmi hafi verið góður,“ sagði Albert.
MSig.
Þekking starfsmanna
mikilvæg fyrir fyrirtækið