Morgunblaðið - 09.07.1992, Síða 5

Morgunblaðið - 09.07.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1992 B 5 Könnun Lánstraust Islend- inga hefur aukist síðustu sex mánuði LÁNSTRAUST íslendinga hefur aukist síðustu sex mánuði, skv. könnun tímaritsins Institutional Investor’s sem birtist í síðasta tölublaði. Miðað við lönd Vestur-Evrópu þykir lánstraust íslend- inga þó ekki mikið. Þar erum við í 17. sæti af 19 löndum eins og sést á meðfylgjandi korti, og sem fyrr eru það aðeins Grikkir og Tyrkir sem þykja verri skuldarar. Hins vegar hafa aðeins þijár þjóðir Vestur-Evrópu aukið lánstraust sitt meira en ísland á þessu tímabili. Sem fyrr nýtur Sviss mesta lánstrausts í Vestur-Evrópu og hefur nú skotist upp fyrir Japan sem traustasti skuldari heims. Japan er í öðru sæti og Þýskaland í því þriðja. ísland er í 31. sæti heimslistans. Könnun Institutional Investor’s er framkvæmd meðal alþjóðlegra banka, en hver þeirra má ekki leggja mat á heimaland sitt. Bank- arnir gefa löndum stig frá 0 til 100 allt eftir lánstrausti viðkom- andi lands. Því fleiri stig sem land fær, því traustari skuldari er það. Skv. niðurstöðum úr síðustu könn- un er lánstraust íslendinga 54,2 stig og hefur það aukist um eitt stig frá síðustu könnun. Í tímarit- inu segir að skýra megi þessa hækkun með þeim ávinningi sem EFTA löndin hljóta af því að tengj- ast Evrópubandalaginu nánar með samningnum um Evrópskt efna- hagssvæði. Islendingar eru nokkrir eftirbát- ar annarra Norðurlanda hvað láns- traust varðar, en eru þó eina Norð- urlandaþjóðin að Danmörku und- anskilinni sem jók lánstraustið frá síðustu könnun. Hin Norðurlöndin innan EFTA lækkuðu öll, Svíþjóð Vestur Evrópa Svsoðisröð Sept Mare 1991 1992 Heims- röð Bnkunn Institutional Investore Sex mán. breyting Áre- breyting 1 1 Sviss 1 92,5 0,1 -0,6 2 2 Þýskaland 3 90,4 0,5 -0,2 3 3 Holland 4 88,0 0,4 0,2 4 4 Frakkland 5 87,2 0,1 -0,1 6 5 Austurríki 7 84,7 0,4 0,4 5 6 Bretland 8 83,7 -1,1 -0,9 7 7 Lúxemborg 9 83,3 0,6 - 8 8 Belgia 11 79,8 0,2 -0,1 9 9 Ítalía 13 78,5 -0,6 -1,0 10 10 Noregur 14 77,1 -1,3 -1,1 11 11 Svíþjóð 15 77,0 -1,4 -2,3 13 12 Spánn 17 76,2 0,6 0,2 14 13 Danmörk 18 73,5 1,3 0,7 12 14 Finnland 19 72,9 -2,6 -4,2 15 15 íríand 20 69,1 1,5 1,1 16 16 Portúgal 24 64,9 1,6 1,4 17 17 ÍSLAND 31 54,2 1,0 -0,2 18 18 Gríkkland 36 47,6 0,5 -0,1 19 19 Tyrkland 41 43,7 1,0 0,9 Svæðismeðaleinkunn 75,0 0,2 0,2 um 1,4 stig, Noregur um 1,3 stig og Finnland um 2,6 stig. Sviss hækkaði hins vegar um 0,1 stig og Austurríki um 0,4. Könnunin, sem er gerð á sex mánaða fresti nær til 119 landa og skv. henni er meðaltals láns- traustið á heimsvísu 37,5 stig. Þegar meðaltalslánstraustið er skoðað eftir heimsálfum er N- Ameríku hæst með 84,4 stig og V-Evrópa kemur næst með 75 stig. Málningar límband sem aldrei bregst J.S.Helgason Draghálsi 4 S: 68 51 52 Apple kynnir áætlanir um nýja tölvu T --- NÚ Á fyrstu vikum sumars kynnti Apple fyrirtækið nýja tölvu sem það hefur hafið hönnun á. Fyrirtækið vonast til þess að nýja tölvan, sem nefnd er Newton, verði til þess að færa tölvunotkun frá skrif- borðunum og í vasa notenda. Áætlanirnar um Newton hljóma vissulega vel. Vélin verður drifin af nýjum örgjafa frá RISC, knúin af rafhlöðu og verður á stærð við myndbandsspólu. Áætlanir ganga út frá því að fyrstu vélarnar komi á markað fyrri hluta næsta árs. Apple telur að tölvan muni geta tekið við hlutverki minnisblaða og myndrita og að auki gegnt hlut- verki hefðbundinnar tölvu við gagnavinnslu og fleira. Vélin mun skara fram úr eldri gerðum, einkum á fjórum sviðum: Newton á að geta lesið handskrif- uð skilaboð. Vélin á að ráða við að lesa vel skrifaðan texta af svo til öllum gerðum og stærðum. Hún getur einnig geymt teikningar og handskrift á tölrænu formi. eiga að fara af fornafninu einu sam- an, fundið töivunúmer hans, nýjustu skilaboðin frá notandanum og sent þau. Samskiptamöguleikar verða auknir. Sumar vélar verða færar um að tengja sig inn á netkerfi. Aðrar vélar geta tekið á móti og lesið útvarpsmerki. Aðgangur að gögnum verður bættur. Hugbúnaður verður hann- aður með það í huga að mjög auð- velt verði að finna og fá fram upp- lýsingar, óháð því hvenær eða hvernig þær hafa verið færðar inn. Allt hljómar þetta nú vel, en eft- ir á að koma í ljós hvort Apple getur staðið við stóru orðin. Ef svo verður á líka eftir að koma í ljós hvort Apple getur fylgt því eftir. Bæði má búast við að margir keppi- nautar muni kynna svipaðar vélar áður en langt um líður, og enn minnast menn þess hve illa Apple gekk að fylgja eftir velgengni Mac- intosh-vélanna. Þá voru forsvar- menn fyrirtækisins svo ánægðir með árangurinn að þeir huguðu ekki að því að lagfæra þá galla sem trufluðu notendur. Forsvarmenn Apple ætla ekki að láta sömu mis- tökin henda sig aftur. Á endanum má búast við því að sú vél fari með sigur af hólmi sem mest notagildi hefur. Af þeim sök- um hefur Apple lagt mikla áherslu á að afla sér góðra samstarfsaðila. Nú þegar er tryggð samvinna Sky- Tel sem ábyrgist að unnt verði að senda tölvupóst um allan heim, svo og samvinna útgáfufélagsins Ran- dom House sem hefur forystu í út- gáfu notendahandbóka fýrir tölvur. LOKUN VEGNA SUMARLEYFA Skrifstofa Útflutningsráðs verður lokuð frá 13. júlí til 3. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Þó verða ATA-Carnet skírteini afgreidd og svarað verður í síma milli kl. 9 og 11 árdegis. Við biðjum þá sem þurfa á þjónustu okkar að halda á næstunni vinsamlega að taka mið af ofangreindum upplýsingum ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS ÍSLENSKT VELTÁ GOTT LÁGMÚLA 5 108 REYKJAVÍK SlMI 91 688777 MYNDSÍMI 91 689197 Newton mun einnig verða fær um að þekkja síendurtekin verk. Til dæmis ef notandi sendir mjög oft skilaboð til sama aðila, þá mun vélin geta áttað sig á hvert skilaboð C'STÖiD j Þ.ÞORGRfMSSON &C0 Ármúla 29, Reykjavík, simi 38640 -bilarmr á mjög hagstæöu veröi. ISUZU-NKR, 5.5 tonna heildarþyngd, kr 1.910.000.- ISUZU-NPR, 7 tonna heildarþyngd, kr. 2.265.000.- ISUZU-FSR, 9 tonna heildarþyngd, kr. 3.200.000.- Ryðvörn, skráning og virðisaukaskattur eru innifalin í verði. Arleg ókeypis þjónustuskoðun frá framleiðendum í Japan fylgir öllum ISUZU bílum. ISUZU verksmiðjurnar eru stærstu útflytjendur vörubíla í heiminum, enda eru ISUZU bílarnir viðhaldslágir, sparneytnir vinnuþjarkar. EIGUM BÍLA TIL AFGREIÐSLU STRAX <jj©utiMD HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK, SÍMI 634000 - 634050.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.