Morgunblaðið - 09.07.1992, Side 6

Morgunblaðið - 09.07.1992, Side 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1992 Tryggingar Muiiuni innleiða nýjungar að erlendri fyrirmynd - segir Gísli Örn Lárusson, forstjóri Skandia á íslandi ÆÐSTU stjórnendur norrænu tryggingasamsteypunnar Skandia hafa gefið út afdráttarlausar yfir- lýsingar um að stefnt sé að því að fyrirtækið verði leiðandi á sviði vátrygginga- og fjármálaþjónustu á Norðurlöndunum. Þar er Island engin undantekning og var þessi stefna áréttuð í ræðu aðalfor- stjóra Skandia, Björns Wolrath, á aðalfundi fyrirtækisins þann 26. maí sl. Umsvif Skandia á íslandi eru nú orðin allnokkur eftir kaup- in Verðbréfamarkaði Fjárfesting- arfélagsins og má nefna að hjá fyrirtækjunum starfa nú um 50 manns. Ýmsar breytingar eru áformaðar hjá fyrirtækjunum, s.s. samræming í húsnæðismálum og stefnt er að því innleiða nýjungar í vátryggingar- og fjármálaþjón- ustu að erlendri fyrirmynd. Skandia keypti sem kunnugt er meirihluta í Reykvískri tryggingu um mitt sl. ár og síðan öll hlutabréf í Verðbréfamarkaði Fjárfestingarfé- lagsins snemma í vor. Þriðja fyrir- tækið er síðan Líftryggingafélagið Skandia en þessi þijú félög mynda Skandia ísland samsteypuna sem tók formlega til starfa í lok júní. Á aðalfundi Vátryggingarfélags- ins Skandia ísland kom fram að um 34 milljóna hagnaður varð af vá- tryggingarstarfseminni á sl. ári. Endanleg afkoma félagsins varð hins vegar 22 milljóna tap. Má rekja ástæður þess til umsvifa Reyk- vískrar tryggingar í fiskeldistrygg- ingum og undirbúningskostnaðar vegna kaupa Skandia í Svíþjóð á meirihluta fyrirtækisins þann 27. júní á sl. ári. Sú stefna hefur verið mörkuð inn- leiða nýjungar að erlendri fyrirmynd þannig að viðskiptavinir fyrirtækis- ins eigi kost á vátryggingar- og fjár- málaþjónustu á einum stað. Forráða- menn Skandia ísland vilja hins veg- ar ekki greina mjög náið frá þeim nýjungum sem þeir hafa í undirbún- ingi. „Skandia-samsteypan kemur hingað inn á markaðinn með það að markmiði að verða leiðandi á sviði vátiygginga og fjármálaþjón- ustu,“ segir Gísli Örn Lárusson, for- stjóri Skandia á íslandi. „Við erum núna að gera úttekt á því hvernig við náum sem mestri hagræðingu í rekstri fyrirtækjanna. Erlendis hefur þjónusta í meira mæli en hér á landi verið afgreidd gegnum síma og póst sem þýðir einfaldlega að fyrirtæki þurfa ekki að leggja í jafnmikinn kostnað við skrifstofuhald. T.d. get- um við afgreitt bflatryggingu á 2-5 mínútum gegnum síma sem myndi taka 20-30 mínútur ef viðskiptavin- urinn kæmi hingað fyrir utan þann tima sem það tæki hann að koma á staðinn, leita að bílastæði o.frv. Við stefnum þannig að því að mynda hagkvæmari rekstrareiningu en ver- ið hefur til þessa með því að draga úr kostnaði vegna hvers viðskipta- vinar." Nýjungar frá Skandia Investment Management Gísli Örn segir að stefnt sé að því innleiða nýjungar hjá fyrirtækinu á haustmánuðum m.a. á sviði líftrygg- inga. „Það er stefnt að því að bjóða neytendum svipaða þjónustu og stendur til boða annarsstaðar í Evr- ópu. T.d. vakir fyrir okkur að geta boðið líftryggingar þeim sem greiða í Fijálsa lífeyrissjóðinn. Þá verða settar á markað nýjungar frá Skan- dia Investment Management hjá Fjárfestingarféiaginu." Fyrirtæki Skandia eru nú með aðsetur á fimm stöðum í Reykjavík og er talið brýnt að koma starfsem- inni undir sama þak í nánustu fram- tíð. „Það er auðvitað æskilegast að vera með alla starfsemina á einum stað og við erum núna að líta í kring- um okkur eftir nýju húsnæði,“ sagði Gísli Öm. „Við þurfum hins vegar ekki að bæta við fastráðnu fólki, þar förum við aðrar leiðir." Skandia Group er alþjóðlegt al- menningshlutafélag sem fæst við hvers konar vátryggingarstarfsemi, fjármálaþjónustu og eignaumsýslu. Skandia sem er með höfuðstöðvar í Stokkhólmi er opinberlega skráð fyr- irtæki á verðbréfamörkuðum erlendis og voru hluthafar þess tæplega 28.000 um síðustu áramót. Dóttur- fyrirtæki og útibú eru í 23 löndum og starfsmenn rúmlega 11.000. Heildarvelta samsteypunnar var 488 milljarðar íslenskra ícróna á síðasta ári. Hlutafé í árslok var 3,8 milljarð- ar og eigið fé 145 milijarðar. Leif sem er forstjóri Skandia á Norðuriöndunum sagði að ekki yrðu gerðar stefnumótandi breytingar á stjómun fyrirtækjanna hér á landi á næstunni en það yrði skoðað hvemig henni verði háttað með tilliti til þess hvernig viðskiptavinum á íslandi verði þjónað á sem bestan máta. Ákvarðánir um starfsmannafjölda og húsnæðismál hafa ekki verið teknar en Leif sagði það myndi skýrast á næstu mánuðum. Ætlunin er að bjóða íslendingum nýjungar í þjón- ustu en aðspurður vildi Leif ekkert láta uppi að svo stöddu. — Á hvern hátt myndi Skandia móðurfyrirtækið standa við bakið á íslensku dótturfyrirtækjunum t.d. ef á bjátaði í rekstri þeirra? „Það segir auðvitað sína sögu þegar Skandia gefur út þá yfirlýs- í Skandia er litið á ísland sem hluta af heimamarkaði fyrirtækisins. „Starfsemin í Noregi, Svíþjóð og Danmörku styrkir starfsemina hér á landi. Við viljum bjóða góða fjár- málaþjónustu, líftryggingar og vá- tryggingar á Norðurlandamarkaðn- um og getum flutt þekkingxi yfir landamærin þannig að starfsmenn geta farið á milli landa til ráðlegging- ar og viðræðna ef upp koma málefni sem þarfnast lausnar." Leggja sitt af mörkum til að auka sparnað Leif sagði að ein af ástæðunum fyrir því að Skandia keypti verð- bréfafyrirtækið hér á landi væri að samsteypan vilji leggja sitt af mörk- um til að auka spamað. „í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og á íslandi hafa aðstæður verið þannig að auðvelt var að fá lán. Þetta er að breytast núna og það er nauðsynlegt að fólk fari að spara. Við teljum okkur hafa þekkingu á fjármagnsmarkaðnum og getum notað þá þekkingu á ís- lenska markaðnum." Leif telur að almennt sé þörf á breytingum á trygginga- og fjár- ingu að öll Norðurlöndin séu heima- markaður fyrirtækisins. Það er vert að vekja athygli á þeirri staðreynd að ísland er eina landið fyrir utan Svíþjóð þar sem Skandia nafnið er notað. Skandia myndi því tvímæla- magnsmarkaðnum á Norðurlöndun- um þar sem heimamarkaðirnir hafi verið verndaðir. ,,Nú verður sam- keppni lykilorðið. Áður var það sam- vinna milli fyrirtæki en nú er það samkeppni milli fyrirtækja. Það þýð- ir ekki að veita mótspyrnu. Ef fyrir- tæki vilja vera á markaðnum verða þau að venjast samkeppninni." Kemur Skandia ísland til með að hafa mikil áhrif á trygginga- og fjár- magnsmarkaðinn hér á landi? „Það er ekki markmið okkar í sjálfu sér. En við erum hér til að þjóna íslenskum viðskiptavinum á sem bestan máta og ef okkur tekst það hljótum við að hafa áhrif á markað- inn.“ Leif sagði að aðalmunurinn á ís- landi og hinum Norðurlöndunum væri auðvitað að íslandsmarkaður- inn væri miklu minni. „Það er minni samkeppni hér en mér sýnist hún vera að aukast.“ Ekki tryggingastríð Skandia fyrirhugaði kaup á hluta- bréfum í danska tryggingafyrirtæk- inu Hafnia fyrir nokkru en af þeim kaupum varð ekki. Leif sagði að ekkert nýtt væri að gerast núna milli Skandia og Hafnia en ekki væri hægt að segja hvað yrði í fram- tíðinni. „Einhver kallaði þetta hið mikla tryggingastríð milli Hafnia, Skandia, UNI Storebrand og Baltica en ég held ekki að þetta sé stríð. Hafnia er núna að koma fjármálum sínum í lag og síðan er að sjá hvað gerist." Leif sagði að Baltica væri laust standa við bakið á dótturfyrir- tækjum sínum auk þess sem fyrir- tækið væri varia að ieggja tæpar 200 milljónir í Verðbréfamarkað Fjárfestingarfélagsins nema því væri full alvara.“ Um 2% markaðshlutdeild í bUatryggingum — Hver hefur árangur ykkar ver- ið á tryggingamarkaðnum hingað til t.d. í bílatryggingum og hver er stefna ykkar á þeim markaði? „Sá markhópur sem við erum að sækjast eftir eru eigendur um 60 þúsund einkabíla á landinu en þar af höfum við þegar náð um 3.160 bílum eða 2% markaðshlutdeild á hálfu ári. Það er stöðugur straumur bíla til okkar í tryggingu þannig að við erum á mjög góðri leið. Mér sýn- ist að markmið okkar fyrir þetta ár muni nást nokkuð örugglega. Um 25% af ökumönnum eru á aldrinum 17-30 ára en þeir valda hins vegar 60-70% af tjónunum. Við bjóðum því ökumönnum lægri iðgöld sem eru eldri en 30 ára. Hér áður voru svo til engin frávik milli aldurs- hópa. Það sem hefur einkennt vátrygg- ingamarkaðinn er fremur ásókn í markaðshlutdeild en arðsemi. Enn- fremur hafa tryggingasjóðir verið notaðir til að kaupa viðskipti þar sem tryggingafélög hafa veitt lán til fyr- irtækja eða keypt hlutabréf til að tryggja sér viðskipti. Þetta hefur leitt til þess að útlán hafa tapast og tryggingafélög orðið að afskrifa hlutabréf. Skandia ísland hefur hins vegar markað þá stefnu að skilja á milli tryggingarstarfseminnar og ávöxtunar tryggingarsjóða. Við höfum fengið hingað til lands tryggingastærðfræðing frá Skandia í Svíþjóð til að reikna út iðgjaldaþörf- ina í bílatryggingum. Á þennan hátt munum við tileinka okkur þau vinnu- brögð sem hafa tíðkast erlendis til þess að vera færir um að bjóða okk- ar viðskiptavinum sambærilega þjónustu. sterkt fyrirtæki og einn af aðalsam- keppnisaðilum Skandia. Með tilkomu væntanlegs Evr- ópsks efnahagssvæðis má búast við aukinni samkeppni á trygginga- markaðnum. Hvernig hyggst Skandia mæta þessari auknu sam- keppni? „Eitt af aðalverkefnum Skandia Group síðustu 4-5 ár hefur verið að aðlaga sig að þessum breyttu að- stæðum þegar við á einn eða annan hátt verðum hluti af evrópska mark- aðnum. Stefnan í Svíþjóð er að opna markaðinn þar fyrir samkeppni frá öðrum löndum þannig að við verðum samkeppnishæfari. Ein leiðin er að horfa á Norðurlöndin sem einn heimamarkað. Það gefur okkur tækifæri til að flytja kunnáttu og hæfni á milli landa i svo litlum hluta af Evrópu eins og Norðurlöndin eru. Sem dæmi þá eru Norðurlöndin að- eins 10% af heildartryggingamark- aðnum í Evrópu og hlutur hvers lands er því aðeins 2-3% af Evrópu- markaðnum. En ef við getum unnið saman yfir landamærin þá ættum við að vera með um 10%.“ En hvernig sér Leif trygginga- markaðinn á Norðurlöndunum fyrir sér á næstu árum? „Eftir 5-10 ár verða líklega um 5-10 stór tryggingafyrirtæki sem verða ráðandi á öllum Evrópumark- aðnum. Markmið okkar er auðvitað að verða eitt af þessum fyrirtækjum sem halda velli. Þess vegna meðal annars erum við að styrkja okkur á Norðurlandamarkaðnum og vera með starfsemi á íslandi." MSig. Morgunblaðið/Bjami SKANDIA Á ÍSLANDI — Leif Victorin forstjóri Skandia Norden (í miðjunni). Með Leif á myndinni eru Gísli Örn Lárusson forstjóri Skandia ísland (t.h.) og Ragnar Aðalsteinsson stjórnarformaður í Vátryggingaféiaginu Skandia hf., Líftryggingarfélaginu Skandia hf. og Verðbréfamarkaði Fjárfestingarfé- lags Skandia hf. KB Stefnan að vera leiðandi fyrirtæki hér á landi Rætt við Leif Victorin forstjóra Skandia Norden „Skandia stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki hér á landi á trygg- inga- og fjármagnsmarkaðnum. Það næst væntanlega smám saman ef við verðum með bestu vörumar fyrir markaðinn og ef rekstrinum verði hagað á þann hátt að hluthafar fái arð,“ sagði Leif Victorin for- stjóri Skandia Norden i samtali en hann var staddur hér á landi til að sitja aðalfundi félaganna sem tilheyra norrænu Skandia samsteyp- unni. Nöfnum fyrirtælqanna þriggja var breytt í síðustu viku og nefn- ast nú Fjárfestingafélagið Skandia hf., Líftryggingarfélagið Skandia hf. og Vátryggingarfélagið Skandia hf., en þau eru öll sjálfstæð hluta- félög og heyra undir Skandia á Islandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.