Morgunblaðið - 09.07.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKflPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1992
B 7
Tölvur
Marinó G. Njálsson
Ortölvutækni tekur
yfir Digital-umboðið
í annað sinn á hálfu ári tók
Örtölvutækni-Tölvukaup hf. upp
pyngjuna og keypti keppinaut á
tölvumarkaðnum. í desember var
það Tölvutækni Hans Petersen
hf., en nú tölvudeild Kristján Ó.
Skagfjörð (KÓS) eða Digital-
umboðið. Það verður að segjast
eins og er, að þetta var óvænt.
Ég, eins og margir aðrir sjálfskip-
aðir sérfræðingar, hafði frekar átt
von á meiri samvinnu og síðar
samruna Örtölvutækni og HP á
íslandi. En málin tóku heldur bet-
ur aðra stefnu.
Eftir að IBM á íslandi og Skrif-
stofuvélar - Sund hf. ákváðu að
sameinast, hófust viðræður á milli
annarra fyrirtækja um sams konar
sameiningu. Um tíma hljóðaði sag-
an að Tæknival, Sameind, tölvu-
deild KÓS og eitthvert eitt fyrir-
tæki ætluðu í samstarf. Sam-
kvæmt mínum heimildum báðu
forráðamenn KÓS Tæknival um
að gera tilboð í tölvudeildina og
því tilboði var síðan hafnað. Næsta
skref var að stjórnendur tölvu-
deildarinnar reyndu að kaupa
deildina með að stoð fjármögnun-
arfyrirtækis. Og svo öllum á óvart
var Digital-umboðið komið til Ört-
öivutækni.
Með kaupunum á Digital-
umboðinu skaut Örtölvutækni enn
einni sterkri rót undir starfsemi
sína. Digitla Equipment Corporati-
on (eða DEC) er eitt sterkasta og
virtasta tölvufyrirtæki í heimi.
Fyrirtækið hefur verið í farar-
broddi í framleiðslu millitölva og
nýlega kynnti það nýjan RISC-
örgjörva, s.k. Alpha-örgjörva.
DEC bindur miklar vonir við þenn-
an nýja kubb, sem er mjög hrað-
virkur. Margir spá því að þarna
sé kominn sá örgjörvi, sem beri
tölvuiðnaðinn inn í 21. öldina.
Ársvelta yfir 800 milljónir
Örtölvutækni hefur verið ört
stækkandi fyrirtæki. 1989 velti
fyrirtækið um 190 milljónum krón-
um, 1990 um 250 milljónum og á
síðasta ári var veltan orðin um 400
milljónir krónur. Örtölvutækni
hefur gengið í gegnum miklar
breytingar síðan um áramót, fyrst
vegna yfirtöku á Tölvutækni og
nú síðast tölvudeildar KÓS. Á árs-
grundvelli þýðir þessi viðbót heild-
arveltu á bilinu 8-900 milljónir
króna. Þó það sé ekki endilega
markmiðið að vera stórt, heldur
miklu fremur að bjóða lausnir, þá
hefur Örtölvutækni nú skipað sér
óvéfengjanlega í hóp hinna stóru
með u.þ.b. 15% markaðshlutdeild.
Ótrúleg fjölbreytni
Örtölvutækni virðist nú geta
boðið upp á alla tölvuflóruna, frá
minnstu tölvum til þeirra stærstu.
Digital-umboðið gaf fyrirtækinu
beinan aðgang að stærri tölvun-
um, sem fyrirtækið áður vantaði.
í samtali við forráðamenn Örtölvu-
tækni kom fram að fyrirtækið tel-
ur að slíkar tölvur verði í ríkari
mæli notaðar í samblandi við PC-
tölvur. Ýmis konar dreifð vinnsla
krefst vélarafls, sem tölvur með
Intel-örgjörva ráða ekki við, en
RlSC-tölvur og þaðan af öflugri
(t.d. Alpha) henta vel.
DEC í Bandaríkjunum er í for-
ystu varðandi opin kerfi. Það er
með í Open Software Foundation
og raunar byrjað að þróa hugbún-
að fyrir OSF/1. Þá hefur fyrirtæk-
ið opnað VMS, þannig að það er
jafn opið og t.d. UNIX frá Sun.
Einnig hefur DEC forskot á aðra
í þróun á Alpha-tölvum. Mikilvæg-
ast er fyrir þá að koma með hug-
búnað fyrir Alpha. Stór sigur í
þeirri baráttu var þegar Microsoft
tilkynnti að fyrirtækið væri að
þróa Windows NT fyrir Alpha.
Tölvudeild KÓS hafði hér áður
fyrr umboð fyrir mikinn fjölda af
erlendum fyrirtækjum. Má þar
nefna NEC, ALR, Ericson In-
formation System og Nokia svo
einhver séu nefnd. NEC fór á sín-
um tíma til Sameindar og er núna
hinu megin við ganginn hjá
Tæknival, ALR er dottið upp fyrir
og Nokia náði aldrei fótfestu.
Helstu nýjungarnar hjá Ört-
ölvutækni, fyrir utan Digital-
umboðið, er úr búri Tölvutækni,
þar sem fer tölvubúnaður frá Si-
emens-Nixdorf Information Sy-
stem. Það fyrirtæki er stærsti
tölvuframleiðandi Evrópu og jafn-
framt einn sá stærsti í heimi. Alls
konar afgreiðslukerfi frá fyrirtæk-
inu hafa verið sett upp í bönkum,
pósthúsum og verslunum um alla
Evrópu og nú hefur ísland bæst
í hópinn.
Þó svo að ekki hafi gengið að
sameina Örtölvutækni og HP á
íslandi í þessari atrennu, er ekki
því að neita að samvinna þessara
tveggja fyrirtækja er þeim báðum
mjög mikilvæg. Órtölvutækni hef-
ur selt gífurlega mikið af HP-
jaðartækjum undanfarin ár, þó svo
að HP tölvur hafi átt erfitt upp-
dráttar. HP geislaprentarar munu
t.d. vera með um 60-70% markaðs-
hlutdeild hér á landi: Hugsanlegt
er að yfirtakan á Digital-umboðinu
geti enn frekar aukið á þessa hlut-
deild.
Samtök tölvuseljenda
Forráðamenn Örtölvutækni
telja að mikil þörf sé á því, að
tölvuseljendur myndi með sér sam-
tök. Þessi samtök gætu stuðlað
að því að koma útboðum á staðlað
form og bætt vinnureglur í kring-
um þau, einnig mundu þau semja
með sér siðareglur um samskipti
seljenda og kaupenda. Slíkar siða-
reglur gætu stuðlað að betra við-
skiptasiðferði og einnig væri þá
hægt að vísa ágreiningsefnum,
eins og þeim sem risu upp í kring-
um ríkissamninginn, til siðanefnd-
ar sem hefði þá úrskurðarvald.
Síðast en ekki síst gætu samtökin
komið á sölueftirliti með tölvubún-
aði.
Útlitið á tölvumarkaðnum
Breytingarnar á tölvumarkaðn-
um hafa orðið miklar á síðustu
mánuðum. Hafa þær verið svo
örar, að erfitt hefur verið að fylgj-
ast með. En er þessu lokið? For-
ráðamenn Örtölvutækni halda að
svo sé. Nú sé komið að því að stóru
fyrirtækin þurfi að sanna sig.
Hafið er gríðarlegt auglýsinga-
stríð, þar sem stóru fyrirtækin
reyna eftir megni að ná athygli
kaupenda. Þá hafa þijú minni fyr-
irtækjanna tekið sig saman um
auglýsingar, vegna óánægju með
afgreiðslu Innkaupastofnunar rík-
isins á ríkissamningnum.
Þegar tölvumarkaðurinn er
skoðaður í ljósi síðustu hreyfinga,
virðist sem þokkalegt jafnvægi sé
komið á. Áppel-umboðið heldur
áfram sérstöðu sinni í sölu Macint-
osh-tölva, en á hinum vængnum
eru línurnar orðnar skarpari en
áður. Fækkað hefur um fjögur
fyrirtæki á síðasta hálfa ári og
Nýherji hf„ EJS hf„ Tæknival hf.
og Örtölvutækni-Tölvukaup hf.
gnæfa hátt yfir samkeppnina með
70-75% af markaðnum. Búast má
við að einhver minni fyrirtækjanna
verði undir í verðstríðinu, sem nú
er í gangi, og þá er eins víst að
umbrotin haldi áfram.
Höfundur er tblvunarfræðingur.
ŒM tekur upp beina sam-
keppni við einkatölvuhermana
IBM-tölvurisinn bandaríski hefur stofnað sjálfstæð dótturfyrirtæki
í Bretlandi og Kanada og eiga þau að taka upp beina samkeppni
við ódýru hermana á einkatölvumarkaðinum. Verður um að ræða
ýmsar gerðir undir vöruheitinu Ambra.
Breska fyrirtækið, Individual
Computer Products, sér um söluna
í Evrópu og verður verðið á Ambra-
tölvunum frá því allt frá 1.000 sterl-
ingspundum eða 105.000 ÍSK. Hjá
kanadíska fyrirtækinu, ExperComp
Services, verður söluverðið lægra,
um 76 þús. ÍSK„ og að auki munu
fylgja með í kaupunum ýmis forrit.
Breska fyrirtækið hóf starfsemi
sína í júníbyijun en það kanadíska
tekur til starfa í ágúst.
Segja má, að með þessu hafi IBM
tekið upp nýja stefnu en hún felst
í því að gefa dótturfyrirtækjunum
og einstökum deildum fijálsari
hendur í sölustarfseminni. Hingað
til hefur IBM átt lítið erindi á „ódýra
einkatölvumarkaðinum" en nú á að
verða breyting þar á og sölustarf-
semin verður sniðin að aðstæðum
í hveiju landi fyrir sig.
Talið er, að IBM muni beita öðr-
um aðferðum í Bandaríkjunum þar
sem hermarnir kosta minna en
1.000 dollara í tölvumörkuðunum.
Kemur meðal annars til greina að
kaupa hlut í fyrirtækjum, sem eru
í þessari framleiðslu.
Að undanförnu hefur hallað mik-
ið á stóru tölvuframleiðendurna í
samkeppninni við hermana og má
nefna sem dæmi, að í Evrópu hefur
„ódýri markaðurinn" vaxið um 45%
en tölvumarkaðurinn í heild um
21%.
Ambra-tölvurnar verða fram-
leiddar í ónefndu Asíulandi og bún-
ar 386-örgjörvum frá Advanced
Micro Devices en ekki frá Intel eins
og venjan hefur verið.
HUGBÚNAÐUR — Á myndinni má sjá starfsmenn Rögg-verkfræði-
þjónustu, Helga Geirharðsson (t.v.) og Örn Tryggva Johnsen.
Fyrirtæki
Rögg setur ný
forrit á markað
RÖGG-verkfræðiþjónusta er nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í
gerð hugbúnaðar og þjónustu vegna afkomuáætlana. Hugbúnaður-
inn er aðallega gerður í Microsoft-Excel sem gerir kleift að útbúa '
lausnir á ákveðnum vandamálum. Að sögn Helga Geirharðssonar,
eiganda Röggs, býður fyrirtækið m.a. upp á forrit sem leysa vanda-
mál sem hafa ekki verið leyst áður hér á landi t.d. Skattafjölva
og Arðsemilíkan. Markmið fyrirtækisins er einkum að ná til ein-
staklinga, fyrirtækja, endurskoðenda, iðnaðarmanna og þeirra sem
selja út þjónustu sína.
Rögg hefur hannað forrit sem
nefnt er Skattafjölvi og sagði
Helgi að þetta væri fyrsta forritið
til framtalsgerðar hér á landi.
Skattafjölvi heldur utan um framt-
öl fyrir einstaklinga og rekstrarað-
ila auk þess sem forritið reiknar
sjálfkrafa álagningarseðil.
Rögg hefur einnig hannað svo-
kallað Verkbókhald sem sér um
eftirlit með allri starfsemi fyrir-
tækis, nýtingu starfsmanna, efnis
og véla í mismunandi verkþáttum
og fyrir mismunandi verk í vinnslu.
Þá má nefna tvö forrit sem sér-
staklega eru hönnuð fyrir afkomu-
og greiðsluáætlanir. Það er forritið
Straumur sem er einfölduð útgáfa
af forritinu Arðsemilíkan. Straum-
ur skilar fyrst og fremst fjár-
streymisáætlun til skamms tíma
og hentar jafnt fyrir heimili sem
og stór og smá fyrirtæki. Arðsemi-
líkan skilar niðurstöðum í formi
rekstrar-, fjárstreymis- og efna-
hagsreikninga til lengri eða
skemmri tíma.
Kaplakriki
Vöru- og sölusýning
haldin íágústmánuði
STÓR vöru- og sölusýning verð-
ur haldin dagana 21.-23. ágúst í
íþróttahúsinu í Kaplakrika í
Hafnarfirði. Stjórn handknatt-
leiksdeildar FH sér um sýning-
una.
Sýningarsvæðið innan dyra verð-
ur 700-900 fermetrar, en undir
beru lofti verður hægt að koma
fyrir stærri og þyngri sýningargrip-
um. Samkvæmt upplýsingum frá
FH verður vandað til allrar aðstöðu
og geta væntanlegir sýnendur valið
um ýmsar stærðir og gerðir sýning-
arbása. Þá er áformað að bjóða upp
á skemmtiatriði og veitingasölu á
sýningunni.
Til leigu
Til leigu er hluti af nýrri vélvæddri starfsemi, þar
sem umhverfissjóðarmið eru höfð að leiðarljósi.
Miklir tekjumöguleikar fyrir atorkusaman einstakl-
ing. Upplýsingar, varðandi aldur, fyrri störf og fjár-
hagslega stöðu, sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „Stæður 92", fyrir 1jS. júlí ’92.
s
Lokun vegna sumarleyfa
Iðntæknistofnun verður lokuð vegna sumarleyfa frá
13. júlí til og með 3. ágúst 1992.
Áríðandi prófanir og gæðaeftirlit á sviði suðutækni
verða starfrækt meðan á lokun stendur, sími 687 004
frá kl. 8:30-9:00, annars í síma 985-33448.
M
Iðntæknistof nun 11
Keldnaholti, 112 Reykjavík.
sími 687000.