Morgunblaðið - 10.07.1992, Blaðsíða 1
VIKUNA 11. - 17. JÚLÍ
PRENTF MTÐJA MORG UNBLAÐSINS
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1992
Hr. Humphries,
frú Slocombe og
frk. Brahms eru
meðal persóna í
þáttaröðinni Á
grænni grein.
Sjónvarpið:
Á GRÆIMIMIGREIIM
Á þriðjudagskvöid kl. 20.35 sýnir
Sjónvarpið nýjan, breskan gaman-
myndaflokk. Starfsfólk stórverslunar
verður fyrir þeirri óskemmtilegu
reynslu að missa vinnuna þegar versl-
uninnni er lokað. Eftirlaunasjóður fyr-
irtækisins er rýr, ekkert eftir í honum
nema hótel úti á landi. Starfsfólkið
tekur saman pjönkur sínar og heldur
upp í sveit en þar bíður þess gamalt
hótel í niðurníðslu þar sem allri starf-
semi er löngu hætt. Starfsfólkið hefur
afar takmarkaða reynslu af öðru en
verslunarstörfum og því gengur ýmis-
legt á þegar það reynir að koma sér
fyrir og takast á við nýjar aðstæður.
Með aðalhlutverk fara John Imman,
Mollie Sugden, Nocholas Smith, Jo-
anna Heywood, Wendy Richards,
Frank Thornton, Billy Burden og Fleur
Bennett. Þýðandi er Jóhanna Þráins-
dóttir.
Aðalstöðin:
Fyrstur á fætur
Á hverjum laugardags-
morgni kl. 9.00 vekur Jón
Atli Jónsson hlustendur
Aðalstöðvarinnar með Ijúfri
danstónlist, kannar við-
burði helgarinnar, lítur með
þeim í blöðin, spilar lögin
þeirra og leikur brot úr dag-
skrá liðinnar viku. Cestur
Jóns Atla á morgun, laugar-
daginn 11. júlí, verður Bo-
gomil Font, betur þekktur
sem Sigtryggur Baldursson
tónlistarmaður. Hann og
Jón munu snæða saman
morgunverð og spjalla
saman um suður-ameríska
og afríska tónlist. Þarna
gefst hlustendum tækifæri
til að fræðast um mambó,
merengue, cha, cha, cha
og fleira.
Jón Atli Jónsson
Sjónvarpið:
Sniglar
Sjónvarpið sýnir á mánudags-
kvöld kl. 21.25 nýsjálenska
heimildamynd um snigla. Líf
snigilsins er alls ekki eins ein-
falt og það virðist vera í fljótu
bragði. Með því að nota mjög
fullkomin tæki til Ijósmyndunar
sjá áhorfendur snigilinn í nýju
Ijósi og kynnast lifnaðarhátt-
um þessa smáa dýrs.
Stöð 2:
RIDDARAR
NÚTÍMANS
Nú er að hefjast ný 6 þátta röð í breska
gamanmyndaflokknum Riddurum nútímans (El
C.I.D.) um hina háðsku uppgjafa-leynilögreglu-
menn Douglas og Frank. I fyrsta þættinum
gerist það helst að dóttir Douglasar er alkomin
til hans eftir að hafa verið langdvölum í Ástral-
íu. Annar aðili og ekki eins velkominn skýtur
upp kollinum eftir langa fjarveru. Það er Merc-
er, einhenti glæpamaðurinn sem félagarnir
komu á bak við lás og slá í fyrstu þáttaröð-
inni. Frank hefur nú snúið sér að pizzubakstri
og lagt leynilögreglustarfið á hilluna með sorg-
lega slæmum árangri. Stöð 2 sýnir Riddara
nútímans á þriðjudagskvöldum kl. 21.35.
Douglas með dóttur sinni.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Utvarpsdagskrá bls. 2-8
Sjónvarpið:
TINA
TURNER
f heimildarmynd um Tinu Turner sem
sýnd verður á miðvikudagskvöld kl.
21.00 er fjallað um lif hennar allt frá
því er hún sleit barnsskónum í Ten-
nessee til þess er hún sló í gegn og
varð ókrýnd drottning rokksins á nfunda
áratugnum. Tina man svo sannarlega
tímana tvenna. Hún vann á bómullarekrum
er hún var lítil stúlka og bjó við takmörkuð
réttindi eins og aðrir svertingjar. Þegar hún
komst til fullorðinsára giftist hún manni sem
kom henni á framfæri sem söngkonu en
misnotaði hana herfilega bak við tjöldin.
f myndinni er rætt við hana sjálfa, fyrrum
eiginmann hennar, vini og samstarfs-
fólk eins og t.d. Cher, Mick Jagger,
David Bowie, Elton John o.fl.
Myndbönd bls. 3