Morgunblaðið - 14.07.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.07.1992, Blaðsíða 1
Mest byggt á lliiii- landi Töluverðar sveiflur hafa ver- ið í íbúðarbyggingum á öllum Norðurlöndunum á tíma- bilinu 1975-1991, einsog teikn- ingin hértil hliðar ber með sér. Mestarvoru íbúðarbygg- ingar hér á landi á árunum 1977 og 1978, en þau ár voru fullgerðar liðlega 10 íbúðir á hverja 1.000 íbúa. í fyrra voru þær ekki nema tæplega 6. í Noregi voru íbúðarbyggingar mestar á árunum 1975 og 1976. Sömu sögu er að segja um Danmörku, en þar hefur minnst verið byggt af Norður- löndunum á þessu tímabili. í fyrra voru þar byggðar tæplega 4 íbúðir á hverja 1.000 íbúa og er það mun minna en á nokkru hinna Norðurlandanna. Athygli vekur, hvað íbúðarbyggingar hafa verið miklar í Finnlandi, enda þótt þær hafi verið sveiflukenndar þar líkt og á öðrum Norðurlöndum. Á und- anförnum árum hafa verið byggðar þar fleiri íbúðir á hverja þúsund fbúa en hinum Norðurlöndunum. í Svfþjóð hafa íbúðabyggingar líka farið vaxandi undanfarin þrjú ár. Orlofsvöktuti í heimahúsum Nú þegar sumarleyfi standa sem hæst, virðast inn- brotsþjófar ganga á það lagið að notfæra sér fjarveru fólks til þess að brjótast inn í hús. Sem betur fer er fólk nú meira á verði gagnvart þessu vandamáli en áður og margir gera raunhæfar ráðstafanir, ef þeir þurfa að skilja húsið eða íbúðina eftir mannlausa, þegar þeir fara í frí- ið. Þetta kemur m. a. fram í við- tali við Svavar G. Jónsson, þjón- ustustjóra hjá Öryggisþjón- ustunni Vara. Hann segir, að eftirspurn eftir orlofsvöktun í heimahúsum hafi aukizt mjög að undanförnu. Þessi vöktun fer fyrst og fremst fram með ör- yggiskerfum, sem komið er upp í húsnæðinu. Þau vaka allan sól- arhringinn. Vistþorp i iiiMlirbúniiigi Senn verður tekið til skipu- lags fyrsta vistþorpið hér á landi, en það á að standa skammt fyrir neðan Lögberg um 15 km frá Reykjavík. Þar verða 44 hús og öll með sérstöku, nýju hálfkúlulagi. Lóðir verða mjög stórar eða 2.500-3.500 fermetr- ar og jafnvel enn stærri. Þetta hverfi verður byggt í fjórum áföngum, ellefu hús í hverjum áfanga. Höfundur og hönnuður þessarar byltingarkenndu byggðar er arkitektinn og hug- vitsmaðurinn Einar Þorsteinn, sem þegar hefur hannað nokkur hálfkúluhús hér á landi, sem öll hafa vakið mikla athygli. í viðtali hér í blaðinu ídag fjallar Einar Þorsteinn um þessa húsagerð og vistræn sjónarmið í tengslum við húsagerðarlist almennt og segir, aðtaka verði meira tillit til líðan fólks við hönnun húsa. — Við húsagerð hefur verið lögð geysilega áherzla á formið, segir Einar. — Nú er vistfræðin farin að hafa afar mikil áhrif á húsa- gerðina víða um lönd og vega jafnvel þyngra en sjálf leitin að nýjum stflbrögðum innan húsa- gerðarlistarinnar. 12 Fullgerðar fbúðir á Norðurl 1975-1991 Á hverja 1000 íbúa ÍSLAND DANMORK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.