Morgunblaðið - 14.07.1992, Page 2

Morgunblaðið - 14.07.1992, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992 2 B Meiri efnrspiini eilir «i- lofsvöktiui í lieiiiialiíisum — Fólk er meira rakandi nú gagnvarl innbrotsliællu, segir 8vavar G. lónsson lija Vara. Svavar G. Jónsson tekur við lyklum frá húsráðanda, skömmu áður en fjölskyldan fer í orlof. INNBROTUM á heimili hefur fjölgað mjög, bæði á síðasta ári og það sem af er þessu ári. Nú stendur tími sumarleyfa sem hæst og innbrotsþjófar virðast ganga á það lagið að notfæra sér fjarveru fólks til þess að brjótast inn í hús, þar sem þeir ekki bara stela öliu sem stela má heldur eyðileggja kannski enn meira. Þetta kom þetta fram í viðtali við Svavar G. Jónsson, þjónustu- stjóra hjá öryggisþjónustunni Vara. Við þekkjum mörg dæmi um, að hringt er í hús til þess að kanna, hvort nokkur svari, sagði Svavar. — Ef einhver svarar, þá er bara lagt á. Þess eru líka dæmi, að menn gangi í hús og banki upp á og spyrji eftir einhverjum, sem svo er hvergi til í húsinu eða blokk- inni. Þá hefur þjófurinn verið að leita að mannlausum íbúðum eða húsum. Svo fréttist af innbroti í mannlausu húsi eða íbúð, þar sem fólkið var íjarverandi vegna sumar- leyfa eða af öðrum ástæðum. Ég get sagt frá fólki, sem skrapp í sumarbústað um hálf eitt leytið á laugardegi og var komið aftur heim um sjöleytið sama kvöld. Þegar heim kom, var búið að stela öllum borðbúnaði, silfurmunum og dýr- indis munum úr gulli. Sumt af þessu voru gamlir ættargripir, sem geng- ið höfðu mann fram af manni í fleiri kynslóðir. Þarna var því um mikið óbætanleg tjón að ræða, ekki bara vegna þeirra verðmæta, sem þarna fóru forgörðum, heldur líka sökum þess að þarna á meðal voru dýrgrip- ir, sem höfðu mikið minjagildi fyrir þessa fjölskyldu og miklar tilfínn- ingar voru bundnar við. Sem betur fór upplýstist þetta mál að lokum, þannig að eitthvað af þessum mun- um náðust til baka en alls ekki allir. Oft er skemmt miklu meira en því sem stolið er. Innbrotsþjófarnir fara hamförum, bijóta húsgögn, skera í sundur málverk, eyðileggja hljóðfæri, tölvur og tilheyrandi bún- að svo að nokkuð sé nefnt. Sem betur fer er fólk orðið miklu meira vakandi gagnvart innbrots- hættunni en var. Það sézt m. a. af því að það leitar í vaxandi mæli eftir aðstoð okkar, þegar það hyggst fara að heiman í frí. Við höfum vart haft undan að sinna þeim beiðnum, sem okkur hafa bor- izt að undanförnu. Fólk fer að von- um miklu öruggara og ánægðara í fríið, þegar það veit, að það hefur gert nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir innbrot. Auk þess léttir þetta áhyggjum af fólk varðandi mörg önnur atriði. Hver á að taka póstinn, á meðan fólk er í fríinu. Hver á að vökva blómin, hvað á að gera við fugla og fiska og margt fleira. Öryggiskerfin vaka allan sólarhringinn Orlofsvöktunin fer fram fyrst og fremst með öryggiskerfum, sem komið er upp á staðnum. Þau vaka allan sólarhringinn og eru bein- tengd við öryggismiðstöðina í aðal- stöðvum Vara, sem eru í því gamla og virðulega húsi, Þóroddsstöðum við Skógarhlíð í Reykjavík. Þar er vakt allan sólarhringinn og hún sinnir útköllum, þegar þau koma upp. Inni í orlofsvöktuninni er þjófa- vörn, vatns- og brunaviðvörun og einnig aðvörun um rafmagnsleysi í húsinu eða íbúðinni. Síðastnefnda aðvörunin er mjög mikilvæg, því að fari rafmagn t. d. af frystikist- um, eyðileggst ekki einungis það, sem í þeim er, heldur geta þær einn- ig skemmt mikið út frá sér. Svavar segir, að það sé ekki síð- ur þörf á öryggiskerfum í fjölbýlis- húsum með mörgum tugum íbúða en í einbýlishúsum, enda þótt þau síðarnefndu kunni að vera í meiri hættu, ef þau eru skilin eftir mann- laus. Kostnaður við venjulega ör- yggisgæzlu í tvær vikur er frá 7.500 kr., en fer annars eftir þeim bún- aði, sem fenginn er, en hann tekur að sjálfsögðu mið af því húsnæði, sem um er að ræða. Innifalið í or- lofsvöktun eru tvær heimsóknir ör- yggisvarða í hverri viku og þeir sinna auk beinnar gæzlu ýmss kon- ar verkum, sem falla undir öryggis- mál svo sem að fjarlægja póstinn og vökva blómin. En ef um viðbót við mannaða gæzlu er að ræða, fer kostnaðurinn að sjálfsögðu einnnig eftir því, hve umfangsmikil hún er. Svavar kvaðst að sjálfsögðu ekki vilja skýra frá, hvernig aðvörunar- kerfin væru útbúin að öðru leyti en því, að þau væru byggð upp af sérstökum skynjurum, sem komið væri fyrir á vissum stöðum. Sérþjál- faðir tæknimenn kæmu á vettvang til þess að setja viðvörunarbúnaðinn upp og tækju hann svo niður aftur, þegar þar að kæmi. Að sjálfsögðu væru íbúðirnar eða húsin merkt með merki Vara, sem auðvitað yrði til þess að hræða hugsanlega inn- brotsþjófa frá. Oft færi svo, að fólk, sem einu sinni væri búið að fá ör- yggisbúnað, kysi að hafa hann áfram, svo mikið væri öryggið og ekki síður öryggistilfinningin við að hafa þennan búnað heima hjá sér. — Það er ekki miklum örðugleik- um bundið að setja upp öryggisbún- að af þessu tagi í nánast hvaða húsnæði, sem er, sagði Svavar G. Jónsson að lokum. — En það er æskilegt, að beðið sé um hann með nokkurra daga fyrirvara, því að ein- hvern tíma þarf til þess að setja hann upp. Eitt sinn hringdi hingað maður kl. 9 að morgni og bað um öryggiskerfi, því að hann og fjöl- skyldan væru að fara erlendis með flugi kl. 12. Skyndiúrlausn af þessu tagi er því miður erfitt að veita á háannatíma, þegar flestir eru að fara í sumarfríin. Við leystum þó úr þessu máli, en vissulega væri það æskilegast, að fyrirvarinn væri lengri. SMIÐJAIM Eldöiim gamlar gölur LÍKAST til hefur verið vandalítið að aka um götur Reykjavíkur á þeim árum sem ég var lítill hnokki að alast upp i bænum. Bílarnir voru að vísu ekki eins fullkomnir að gerð í þá daga en þeir voru færri en nú. Ég átti þó ekki við þetta er ég sagði að vandalítið muni hafa verið að aka um göturnar. í þá daga mátti yfirleitt aka eftir götunum til beggja átta, það var bara tilskilið að lialda sig vinstra megin á götunni. Nú er talað um einstefnu akstur og tvístefnu akstur á götum margra bæja hérlendis. I Reykjavík er hægt að komast í hinar mestu ógöngur í sumum hverfum af því að akstursleiðir eru gerðar svo flókn- ar. Auk þess sýnist mér vera gert of mikið af að breyta um stefnu á sömu götum. Við erum mörg þeirrar skoðunar að hér sé ekki háþróuð né góð umferðarmenning. Oft heyrist spurt hvað sé til ráða. Ég treysti mér ekki til að gefa ráð í þeim efnum en vil hins vegar spyrja hvort ekki sé mögulegt að ein- falda akstursleiðir, draga úr boðum og bönnum en láta reyna betur á ,. hæfni og kunnáttu Óiofsson™ ökumanna. Einstefna — bíll á móti Gömlu göturnar í bænum eru skilj- anlega þröngar til aksturs nú er bíla- eign okkar er svo mikil. Það er þó mesta furða hve miklu þessar götur anna, því að um leið og þær skila flestar umferð til einnar áttar eru þær notaðar til geymslu á bílum. Mér þykir samt æði klaufalegt þegar ekið er eftir götu í gamla bænum þar sem einstefna er skylda, að sjá allt í einu bíl koma á móti mér úr gagnstæðri átt. Báðir bílamir reyn- ast þó vera á réttri leið því að við þvergötu sem famundan er skiptir um aksturs stefnu á götunni, þannig að hvorugur bílanna má halda áfram akstri eftir götu þessari. Þeir sem eiga heima í slíkum hverfum bæjar- ins, þar sem göturnar líkjast helst gestaþraut, völundarhúsi, venjast þessu og læra að velja sér leið til og frá heimili sínu. Oðru máli gegn- ir aftur á móti með þá sem ekki eru heimavanir í viðkomandi hverfí. Að ofleika Oft er vandinn að finna hófíð í því sem gert er. Leikari má ekki ofleika. Rithöfundurinn má ekki nota of mörg orð. Hið sama má segja um foreldra og kennara sem uppalendur. Of mörg orð og endurtekningar leiða til þess að barnið og unglingurinn hætta að heyra það sem sagt er við þau. Þá verður ekki farið eftir leið- beiningum. Reynt hefur verið að halda niðri aksturshraða í gömlum bæjarhverfum. Það tel ég vera af hinum góða, en ég tel að margar þeirra gatna sem nú eru einstefnu aksturs götur mættu vel vera tví- stefnu götur. Umferð um þær marg- ar hveijar er það lítil, en það þarf að gera oftar átak til að kenna öku- Grettisgata 11. Húsið var byggt 1907 af Jens Eyjólfs- syni trésmíða- meistara. mönnum að fara að settum reglum um hraða. Óþægindi íbúa götunnar Við sumar þessara gatna verða íbúarnir fyrir töluverðum óþægind- um og jafnvel fjárhagslegum kostn- aði, ef þeim er gert að greiða leigu á bílastæði framan við hús sitt. Margar þeirra ráðstafana sem gerðar eru í skipulagningu umferðarinnar eru þó auðvitað fyrst og fremst gerð- ar beinlínis í þeim tilgangi að bjarga mannslífum og forða slysum. Mun það eiga við í nágrenni barnaskól- anna. Eg tel að töluvert mætti draga úr allri þeirri umferð sem skapast á vetrum þegar foreldrar aka bömum til skólanna. Það mundi draga úr mengun, spara bensín, fækka slysum og veita börnum holla útivist með göngu þeirra í skólana. Ekið eftir Grettisgötu Ein af þessum gömlu götum er Grettisgatan. Sú gata var um ára- tugaskeið lokuð umferð til vesturs. Nú hefur þessu verið snúið við að hluta til. Vesturendi Grettisgötu er með akstursstefnu til austurs frá hegningarhúsinu og að Klapparstíg, þar mætir gatan sjálfri sér í þeim skilningi að ekki má aka lengur til austurs. Akstursstefna til vesturs gildir á Grettisgötu alla leið frá Rauð- arárstíg að Klapparstíg. Á tveimur götum lokast gatan, þ.e. við Snorra- braut, sem ekki má aka þvert yfír og einnig við Klapparstíg, þar sem aksturs stefnan snýst við. Að ganga um bæinn Sennilega erum við mörg sammála um að það er mun yndislegra að anga um bæinn en að aka um hann. gamla hlutanum sér maður húsin öðruvísi og betur með því að vera fótgangandi. Akandi fer athyglin að miklu leyti í það að gæta að umferð- inni. Grettisgatan er ein af þeim gömlu götum sem skemmtilegt og athyglisvert er að skoða raðir hús- anna sem standa við götuna. Þar gefur að líta mörg gömul hús. í Árbæjarsafni hefur verið unnið að rannsóknum og samantekt á riti um gömul hús á þessu svæði og hefur Hrefna Róbertsdóttir safnvörður annast það verk. Mörg þessara húsa láta lítið yfir sér en eru falleg þar sem þau standa í sínu umhverfí. Skrautlegast Skrautlegast þeirra timburhúsa sem standa við Grettisgötu er húsið nr. 11. Það var byggt árið 1907 af Jens Eyjólfssyni trésmíðameistara. Þeir sem götuna fara hljóta að taka eftir þessu skrautlegu timburhúsi sem þar stendur með háu risi og bogadregnum gluggum. Jens Ey- jólfsson var merkis byggingarmeist- ari á sínum tíma. Næsta hús austan við eða nánar tiltekið nr. 13 við Grett- isgötu var lengi eign Þorsteins Sig- urðssonar húsasmíðameistara og rak hann þar verkstæði og húsgagna- verslun. Húsin við Grettisgötu voru mörg byggð af iðnaðarmönnum sem einnig stunduðu vinnu sína heima. Viðauki við síðustu Smiðju, þ. 7. júlí sl. í síðustu grein gaf ég nokkur ráð til vamar smádýrum er sækja á að komast inn um kjallaraglugga. Ágætur maður, Þór- arinn Björnsson forstjóri, hringdi til mín og gaf mér upplýs- ingar um enn eina góða lausn við frágang á kjallara- glugga. Þá eru settar tvær rúður í gluggann með svo sem 20 mm. millibili. Ytri rúðan er ekki látin ná alla leið nið- ur. Innri rúðan er hins vegar látin ná alveg niður á undirstykki gluggans. Opnu rifunum er síðan lokað með fínriðnu kopar- neti. Með slíkum frágangi loftar hæfílega um gluggann og meindýr komast ekki inn. Þetta er ágæt lausn á máli þessu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.