Morgunblaðið - 26.07.1992, Page 10

Morgunblaðið - 26.07.1992, Page 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992 Verkstjóri Fisktæknir óskar eftir framtíðarvinnu. Ýmis- legt kemur til greina. Er með góða reynslu sem verkstjóri í frystihúsi sem framleiðir á neýtendamarkaði í Evrópu. Upplýsingar sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „V - 10346" fyrir 5. ágúst. Fasteignasala - meðeigandi Fasteignasala á besta stað í miðborginni óskar eftir meðeiganda, sem jafnframt yrði sölumaður. Reynsla æskileg. Miklir mögu- leikar fyrir dugmikinn og kraftmikinn aðila. Fullum trúnaði heitið. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 30. júlí merktar: „Fasteignasala - 14331". Svæðisstjórn Reykjaness Starfsmaður við þjónustuíbúð í Keflavík Starfsmaður óskast við þjónustuíbúð, sem verið er að taka í notkun í Keflavík. Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingac veittar á aðalskrifstofu Svæðisstjórnar Reykjaness s. 91-641822 og hjá Guðnýju Sigfúsdóttur á sambýlinu Lyngmóa 10, Njarðvík s. 92-12643 eða 92-16960. Sjúkraþjálfari Staða sjúkraþjálfara við Sjúkrahús Vestmanna- eyja er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 15. ágúst 1992 eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst nk. Umsóknir sendist stjórn Sjúkrahúss og Heilsugæslustöðvar Vestmannaeyja. Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Pálsson, framkvæmdastjóri, sími 98-11955. Stjórn Sjúkrahúss og HeilsugæslustöðvarVestmannaeyja. Forritari Vegna aukinna verkefna óskar íslensk forrita- þróun hf. eftir starfsmanni í hugbúnaðar- deild. Verkefnin eru margvísleg og krefjandi. Unnið er í forritunarmálunum Pascal, C og C++ undir DOS og Windows. Hjá íslenskri forritaþróun hf. starfar harðsnú- ið lið forritara. Aðeins þeir, sem hafa brenn- andi áhuga, eru fljótir að tileinka sér nýjung- ar, geta unnið sjálfstætt og vilja vinna í farar- broddi hugbúnaðartækninnar, koma til greina sem nýir liðsmenn. Umsækjandi þarf að hafa háskólagráðu í tölvunarfræði eða sambærilega menntun. Hann þarf einnig að gjörþekkja a.m.k. eitt ofangreindra forritunarmála. Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja þekkingu á forritun í gluggaumhverfi, s.s. Presentation Mana- ger, MS-Windows eða X-Windows. Innsýn í hlutbunda for/itun verður talin til tekna. Helsta verkefni ísienskrar forritaþróunar hf. er smíði ÓpusAllt viðskiptahugbúnaðar. Fyrirtækið var stofnað árið 1983 og starfs- menn eru nú 25. Nánari upplýsingar veita Örn Karlsson eða Vilhjálmur Porsteinsson. Umsóknir skulu vera skriflegar. Dlslensk forrítaþróun hf. Engjateigur 3 • 105 Reykjavík • sími 91-671511 Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur, þroskaþjálfar og fólk með uppeldis- menntun óskast til starfa á neðangreinda leik- skóla: Fellaborg v/Völvufell. s. 72660 Hálsakot v/Hálsasel. s. 77276 Lækjarborg v/Leirulæk. s. 686351 Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik- skólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. Fóstra óskast til barnagæslu frá kl. 8.00 til 19.00 fjóra daga í viku. Heimilið er miðsvæðis í Reykjavík. Góð laun í boði. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „Fóstra - 111“ fyrir 30. júlí. Hárgreiðslusveinn! Hárgreiðslusveinn óskast á hárgreiðslustof- una Permu, Hallveigarstíg 1. Upplýsingar leggist inn á auglýsingadeild Mbl. merktar: „H - 14054“ fyrir 5. ágúst. Sölufulltrúi Tölvufyrirtæki óskar að ráða sölufulltrúa með þekkingu á tölvum. Umsókn, ásamt upplýsingum um fýrri störf, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 30. júlí merkt: „Sölufulltrúi - 1234“. Fullum trúnaði heitið. Kennarar, kennarar Kennara vantar að Grunnskólanum í Hrísey næstkomandi skólaár. Æskilegar kennslugreinar íþróttir og hand- mennt. Kjörið tækifæri fyrir þann, sem lumar á dugn- aði, frumkvæði og metnaði og vill taka þátt í uppbyggingu skólastarfs í litlu þorpi. í Hrís- ey er nýlegt og gott skólahús, fáir nemend- ur, ágætt mannlíf, eyjafriður og kyrrð, sem bætir allt og alla. Ferja gengur í land á tveggja klukkustunda fresti. Flutningsstyrkur og niðurgreidd húsa- leiga í boði. Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Einar Georg Einarsson í síma 96-61076. Verkstæðisformaður Traust fyrirtæki óskar að ráða verkstæðis- formann fyrir 15 manna bifreiðaverkstæði sitt. Starfið felst í að: ★ Sjá um allan daglegan rekstur verkstæð- isins. ★ Taka við verklýsingum frá viðskiptavinum. ★ Skipuleggja tíma og verk bifvélavirkja. ★ Vera tengiliður milli fyrirtækis, viðskipta- vina og starfsmanna. ★ Skrifa skýrslur og greinargerðir eftir því sem þörf krefur. Nauðsynleg reynsla og þekking umsækjenda. ★ Meistarapróf í bifvélavirkjun og þekking á rekstri. ★ 'Góð enskukunnátta og reynsla af skrif- stofustörfum. ★ Reynsla í mannlegum samskiptum og hæfileiki til að geta leiðbeint öðrum. ★ Góð tölvukunnátta. Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist auglýs- ingadeild Mbl. merktar: „VF -10325“ fyrir 10. ágúst nk. Er ekki kominn tími til að tengja? Alhliða rafverktakar óska eftir verkefnum. Tökum að okkur nýlagnir, breytingar, við- gerðir, dyrasímaþjónustu o.fl. Upplýsingar í símum 91 -76083 og 985-27447. Afgreiðslustarf Viljum ráða nú þegar starfskraft á aldrinum 20-30 ára til afgreiðslustarfa í sérvöruversl- un HAGKAUPS í Kringlunni. Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri á staðnum (ekki í síma). HAGKAUP Organisti óskast til starfa Söfnuðir ísafjarðarprestakalls auglýsa stöðu kirkjuorganista. Um fullt starf er að ræða. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra organleikara. Allar nánari upplýsingar veita formaður sókn- arnefndar ísafjarðar, Björn Teitsson, í síma 94-4119 eða 94-4540 og varaformaður, Elísa- bet Agnarsdóttir, í síma 94-3391. Sóknarnefndirísafjarðarprestakalls. Bókari óskast Stórt þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða starfskraft sem vanur er bókhaldi og afstemmingum. Leitað er að töluglöggum og jákvæðum ein- staklingi, sem er vanur að vinna sjálfstætt. Æskileg menntun er nám úr verslunarskóla eða sambærileg menntun og aldur 25 til 35 ára. Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Þ - 10345“ fyrir 4. ágúst. Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahúsið í Keflavík óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa á öldrunardeild sjúkrahússins í Víðihlíð, Grindavík. Hér er um að ræða nýja 14 rúma deild með prýðilegri starfsaðstöðu. Grindavík er notalegur og fallegur bær með Bláa lónið við bæjardyrnar. Aðstoð við húsnæði. Upplýsingar gefur Sigríður Jóhannsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í vinnusíma 92-14000 og heimasíma 91-30955. Reyklaus vinnustaður. Framtíðarstörf Vant starfsfólk óskast til eldhússtarfa. Framtíðarstörf. Eingöngu vant fólk kemur til greina. Upplýsingar milli kl. 8-11 alla virka daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.