Morgunblaðið - 31.07.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.07.1992, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Þorkell Nýr Lancer kynntur um aðra helgi NYR Mitsubishi Lancer verður kynntur hjá Heklu hf. helgina 7. til 9. ágúst, og er það frumkynning bílsins utan heimalandsins, Jap- an. Lancer er fáanlegur í tveimur aðalgerðum, stallbakur og langbakur, og verður um tvær vélarstærðir að ræða, 1300 rúmsentimetra vél með 12 ventlum, og 1600 rúmsentimetra vél sem er 16 ventla og 113 hestöfl. Nýi Lancer- inn er stærri en fyrri gerðir, hefur lengra hjól- haf og meiri sporvídd. Stallbakurinn verður fáanlegur með 1300 og 1600 vélinni, og kost- ar ódýrasti bíllinn nokkuð innan við 900 þús- und krónur. Langbakurinn er fáanlegur bæði með eindrifi ög sítengdu aldrifi og kostar al- drifsgerðin kringum 1.300 þúsund krónur. Bæði stallbakur og langbakur eru boðnir með fimm gíra handskiptingu og sjálfskiptingu, al- drifsgerðin þó aðeins með handskiptingu. ■ Morgunblaðið/Ámi Sæberg Spergil- blómkál á markað Hafir þú hugsað þér að kaupa blómkál og spergilkál hvern- ig væri að sameina hvoru- tveggja og kaupa spergil- blóm- káí? tilefni grænmetisdaga í Hagkaup fyrir nokkru var haf- inn innflutningur á spergil- blómkáli sem upprunalega er frá Kaliforníu. Lárus Óskarsson innkaupastjóri sagði að fyrir- tækið verði með spergils-blóm- kál áfram og líklega mun kílóið kosta um 300 kr. Þessa daga er kálið á tilboðsverði, það er 199 krónur kílóið. ■ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1992 D ARABISKUR MATUR 6 -í!’ jA, Margir ósáttir við viðgerðir á húsum Á HVERJUM degi berast Neytendasamtökunum kvartanir og fyrir- spurmr vegna viðgerða a husum enda oft háar upphæðir í húfi. „Kvartanir af þessu tagi eru fyr- irferðarmiklar á sumrin,“ segir Málfríður Gísladóttir hjá Neytenda- samtökunum. „Allir bera ábyrgð á verkum sínum, hvort sem þeir eru sérmenntaðir eða ekki. Hins vegar er grundvallaratriði að gera verk- samning áður en verkið hefst.“ Neytendasamtökin geta útvegáð staðlaðan verksamning af þessu tagi. „Sumir eru ragir að gera slík- an samning og finnst hann jaðra við móðgun, nánast vantraustsyfír- lýsing. Hann minnkar aftur á móti möguleika á að upp komi ágreining- ur eða vandamál.“ Neytendasamtökunum berast kvartanir af ýmsu tagi og sumar eða dýrum hlutum, svo sem bilum, léttvægari en aðrar. Fyrir skömmu leitaði kona til samtakanna eftir að hafa keypt agúrku í stórmarkaði í Reykjavík. Þegar heim kom, komst konan að því að verð og þyngd gúrkunnar fór ekki saman. Hún reiknaði út að einn metra vantaði á gúrkuna til að verðið stæðist. Fulltrúi samtakanna leitaði skýringa hjá versluninni. í ljós kom að ef tölvuvigtin fær ekki nægan tíma til að vigta, á hún til að gera vitleysur. Umrædd kona fékk einn metra af agúrku í sárabætur, en Neytendasamtökin vilja benda fóiki á að skoða vel verðmiða á vigtuðum vörum. ■ Tultugasti hver laföi atvinn al lerðabjúaustu 1990 Á ÍSLANDI hafa um 5.500 manns eða 4,3% atvinnu af þjónustu við ferðamenn, og lætur nærri að vera 20. hver landsmanna þegar miðað er við heildarvinnuaflsfjölda. Þessi tala er frá Þjóðhagsstofn- un fyrir árið 1990 og inni í henni eru ekki opinberir starfsmenn, svo ætla má að fjöldinn sé allnokkru hærri. Þegar litið er á skýrsl- ur um áætluð störf í ferðaþjónustu frá 1973-1990 sést að prósentu- tala hefur hreyfst tiltölulega lítið í 20 ár. Þannig var hún 4,1% árið 1973 og 10 árum síðar hefur hún lækkað og er 1983 3,66%. í ársskýrslu Evrópsku ferða- málanefndarinnar sem er birt frá- sögn af á bls. 8 segir að þjónusta við ferðamenn skapi fleiri störf en nokkur annar atvinnuvegur í heim- inum. Sextándi hver maður hefur í einni eða annarri mynd framfæri sitt af ferðaþjónustu. Spáð er að á næsta áratug muni verða umtalsverð aukning manna í langferðum, áframhaldandi vöxtur í flugi nema járnbrautakerfin verði snarlega endurskipulögð, leyft verði í ríkari mæli að bóka seint í flug og afsláttur verði auðfengnari. Þá er búist við meiri ásókn í hvataferð- ir og stuttar ferðir, þar með taldar viðskiptaferðir. ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.