Morgunblaðið - 31.07.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.07.1992, Blaðsíða 2
2 D MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1992 Sefur þú á góðri dýnu eða ertu stirður og skakkur VARIST að látn gærdag- inn fá of miki6 al degin- um í dng. WILL ROGERS þegar þú skríður framúr á morgnana? þannig að hvort um sig geti fengið dýnu sem hentar. Á markaðnum eru líka til eggja- bakkadýnur sem hafa verið notaðar sem yfirdýnur. Náttúrugúmmídýnur eða Latex dýnur hafa ágæta fjöðrunareigin- leika og eru með loftgötum til að hleypa raka frá og lofti að. Vatnsdýnur Fyrir nokkrum árum var úrvalið mjög fjölbreytt af vatnsdýnum. Til eru flæðihólfsdýnur það er að segja dýnumar eru hólfaðar til að dema. Trefjafylltar dýnur em líka á mark- aðnum en það veltur þá á þyngd viðkomandi hversu miklar trefjar eru í dýnunni. Mismunurinn á trefja- og flæðihólfsdýnum felst því í stífleika. Trefjafylltu dýnurnar eru mun stífari. Það má síðan fá mis- munandi útgáfur af trefjafýlltum VIÐ eyðum um það bil einum þriðja ævinnar í rúminu svo líklega borgar sig að spara við sig annað en góða dýnu. Urvalið er mikið og oft veit fólk hreinlega ekki hver gæðamunurinn er og hvað því hentar. Dýnur er líka hægt að fá á mjög mismunandi verði, í gam- alt hjónarúm er hægt að kaupa nýjar dýnur fyrir tuttugu og fimm þúsund krónur og auðveldlega hægt að fara yfir hundrað og tvö hundruð þúsund. Það var ekki fyrr en á síðasta áratug að Islending- ar fóru virkilega að velta því fyrir sér á hverju þeir svæfu og eins og Ingvar Þorsteinsson hjá Ingvari og sonum bendir réttilega á sofa líklega margir ennþá á gömlum, hörðum beddum í sumarbústöð- unum sínum þó þeir séu búnir að endurnýja dýnuna heima. En áhug- inn er vaknaður og Ingvar telur að næsta skrefið hjá sér verði að fara heim til viðkomandi og segja hvað ami að, hvernig dýna henti í herbergið og hvernig hann eigi að búa um sig þægilega. Við á daglegu lífi fórum á stúfana og kynntum okkur hvað er á boðstólum. ■gp Af nógu er að taka það er víst en það eru tískusveiflur í .5% dýnum sem og öðru. Vatns- dýnurnar sem fólk rauk upp til handa og fóta fyrir nokkr- 52 um árum og keypti upp í versl- J unum eru á undanhaldi og margir eru nú orðið með tak- markað úrval af slíkum dýnum. Svampdýnur, eggjabakkadýnur, fjaðradýnur, náttúrugúmmí og und- ir, yfir og kelidýnur, það er allt til. Fljótt á litið virðist svokallað amer- ískt kerfi vinsælast um þessar mundir, þ.e.a.s. tvær stórar dýnur óg sumir bæta síðan við einni þunnri og laufléttri ofan á. Sérfræðingum ber hinsvegar saman um að allar þessar dýnuteg- undir geti verið ágætar hver með sínu lagi séu þær nógu vandaðar og það sem skiptir máli auk inni- haldsins er frágangurinn. Fjaðradýnur Fjaðradýnur eða ' svokallaðar springdýnur eru mismunandi að gæðum. Fjöldi fjaðra skiptir máli og Þjóðveijar telja til dæmis að rúm sem er metri á breidd og tveir metrar á lengd skuli að minnsta kosti hafa 200 fjaðrir. Þessi tala segir þó ekki alla söguna því sver- leiki fjaðra skiptir líka máli og lengd vírsins sem notaður er í fjaðrirnar. Nauðsynlegt er að frágangur fjaðradýnu sé vandaður. Svampdýnur Þegar svampur er annarsvegar skiptir þykkt svampsins máli og því þykkari sem svampurinn er því mýkri og endingarbetri er dýnan. Lágmarksþykkt svampdýnu fyrir fullorðna manneskju er 12 senti- metrar. Ef viðkomandi er þungur borgar sig hafa stinnari dýnu en annars. Botninn undir dýnunni er líka mikilvægur. Svampdýnan þarf að láta lofta um sig. Hver meðalmaður getur framleitt allt að hálfum lítra af svita á nóttu og ef botninn er ekki réttur getur svitinn safnast í dýnuna. Þetta á reyndar við allar dýnutegundir. Réttur rúmbotn fyrir svampdýnu eru fjalir með þriggja sentimetra bili á milli. Hentugt er líka að riota fjaðrandi rúmbotna. í Evrópu er notaður RAL staðall sem gefur til kynna að rúmtak dýn- unnar eigi ekki að vera minna en 35kg/m3. Náttúrugúmmídýnur Halldór Snæland hjá Lystadún- Snæland hf. segist ráðleggja fólki tveggja laga dýnu og vinsælastar hjá honum eru náttúrugúmmídýn- urnar. Þær fást reyndar víða í versl- unum sem selja dýnur. Meðalstíf dýna er þá blanda af stífum svampi og náttúrugúmmíi. Halldór segir að oftast borgi það sig fyrir hjón að taka tvær dýnur Notkun vélbáta er oft illa séð í nágrenni við sumarbústaði Ekki búa um rúmið um leið og þú ferð á fætur. Loft þarf að fá að leika um dýnuna á hverjum degi. Hagnýt ráð fyrir fólk sem er að kaupa dýnu Þegar farið er af stað í dýnu- leit borgar sig að kynna sér vel allt sem í boði er. Sumir lána heim dýnur en þá verður við- komandi líklega að sjá sjálfur um flutningskostnað. Einhveij- ar verslanir bjóðast til að taka vöruna til baka henti hún ekki og finna hentugri dýnu í stað- inn. Það borgar sig að skoða hve lengi ábyrgð er tekin á dýnun- um. Hikið ekki við að spyrja og láta sýna ykkur. Reyndar fannst undirritaðri á ferð sinni um bæinn sölumenn vera vel að sér og vilja ailt fyrir við- skiptavinina gera. Þegar heim er komið með dýnuna borgar sig að láta ioft leika um svefnherbergið í nokkra daga þvi nýjum dýnum fylgir ævinlega framandi lykt. ÁHUGI á siglingum virðist vera að aukast hér á landi og að sögn þeirra sem til þekkja, stækkar bátafloti landsmanna sífellt. Undarfarna blíðviðrisdaga hafa menn notið þess að sigla út, bæði á vélbátum og seglskútum, en notkun vélbáta er misvel liðin, sérstaklega á vötnum sem sumarbústaðir umlykja, eins og Þingvallavatni og Hafravatni. Ekki þarf sérstök réttindi til að sigla bátum sem eru innan við sex metra langir, en víða eru þó haldin námskeið í meðferð vélbáta og segl- báta. Að sögn Páls Guðmundssonar deildarstjóra hjá Siglingamálastofn- un, eru nokkur brögð að því að notað- ir séu bátar sem ekki standast reglur um styrk og stöðugleika. Sagðist hann telja að hinar kraftmiklu vélar sem oft væru settar á tiltölulega litla báta byðu hættunni heim. „Af þeim hlýst ekki bara hávaðamengun, held- ur stóraukin slysahætta. Þá eru oft á ferð aðilar sem hafa litla sem enga þekkingu á meðferð slíkra báta,“ sagði hann. I mörg ár voru litlir vélbátar ekki fluttir til landsins, því þeir samræmd- ust ekki innflutningsreglum, en í vor varð breyting þar á og innflutningur hafinn að nýju. Vatnaköttur heitir nýtt farartæki, en það er eins konar vélsleði fyrir vatn. Útbreiðsla vatna- katta er óveruleg hér á landi þó endrum og eins sjáist þeir. Notkun þeirra er bönnuð sums staðar, til dæmis á Þingvallavatni. Vélbátar raska ró Hjá Siglunesi, siglingaklúbbnum í Nauthólsvík, sem um margra ára skeið hefur haldið námskeið í segl- skútusiglingum, fengum við þær upplýsingar að aðsókn í sumar hefði verið allgóð. „Áhuginn er nokkuð stöðugur," sagði Guðjón Guðjónsson hjá Siglunesi. „Þegar menn eru orðn- ir leiðir á vélbátum, koma þeir til okkar og læra að sigla seglskútu. Þá læra þeir að meta hversu gaman er að fara hljóðlaust um vötn og sjó.“ Sumir vilja sigla hljóðlega um sjó og vötn með því að láta vindinn þenja seglin, en aðrir kjósa vélknúna og hraðskreiða báta. Sumarbústaðaeigendur sem eiga bústaði við vötn, eru ekki sammála um ágæti vélbáta og kvarta sumir undan hávaðamengun. Aðrir njóta þess að þeysa um vötnin á hinum vélknúnu farkostum sínum. Svein- björn Einarsson bóndi á Heiðabæ í Þingvallasveit er formaður Veiðifél- ags Þingvallavatns. Hann sagði að félagið hefði samþykkt að banna notkun svokallaðra vatnakatta á Þingvallavatni. „Bæði vegna slysa- hættu og hávaðamengunar," sagði hann og bætti við að félagið hefði áhuga á að settar yrðu reglur um notkun báta á vatninu og komið yrði á einhvers konar skoðanaskyldu, jafnvel í tenglsum við slysavamar- samtök. „Ég hef orðið þess var að oft eru unglingar á ferð í hraðbátum, sem mér finnst mjög varasamt. Einnig er töluvert um bátaumferð seint á kvöldin, sem truflar þá sem vilja njóta kvöldkyrrðar. „Mér þætti eðli- legt að hraðbátar færu ekki um vatn- ið eftir klukkan tíu á kvöldin." ■ Brynja Tomer ¥

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.