Morgunblaðið - 31.07.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.07.1992, Blaðsíða 4
4 D MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1992 Hver veit nema íslendingar kunni að meta arabískan mat? Smsmiya: arabískt kaffimeðlæti úr sesamfræjum. í SNOTURRI íbúð í Vesturbænum býr fimm manna fjölskylda frá írak. Þau hafa verið búsett hér á landi í tæpt ár og una hag sínum nokkuð vel þó eðlilega sakni þau ættingja sinna í Irak. A Wafa Mahdi, húsmóðirin, er S listakokkur, enda vann hún í I mörg ár sem matreiðslukenn- o ari áður en hún flutti hingað. Hún hefur mikla þekkingu á t arabískri matargerðarlist og laai eldar yfirleitt arabískan mat fyrir fjölskylduna. „Nánast allt hráefnið fæst hér, en sumt er of dýrt til að hægt sé að nota það í jafn miklum mæli og ég er vön,“ segir hún. Grænmeti er mikið notað í arabískan mat og kardimommur eru mikilvægt krydd. Arabískt kaffi Kaffið sem Wafa bauð uppá, var einmitt bragðbætt með kard- imommum og einstaklega ljúffengt. Kardimommumar kaupir hún heilar og malar í duft. Duftið geymir hún í lokaðri kmkku og notar sem krydd í hina ýmsu rétti. Á móti tveimur skeiðum af kaffidufti notar hún 1 tsk. af muldum kardimommum og hellir síðan uppá kaffið. Nokkuð erfitt er að mala kardimommur, en hægt er að gera það í kaffikvörn eða með söxunarhníf. Þær hugmyndir sem við gerum okkur um írösku þjóðina eru vissu- lega litaðar af fréttum sem þaðan berast. Við sjáum gjarnan fyrir okkur öfgafulla hópa af stríðsglöð- um mönnum sem beijast af hörku fyrir opinberan málstað þjóðarinn- ar. Við það að sitja stund hjá írösku fjölskyldunni í látlausu íbúðinni þeirra í Vesturbænum, hverfa fyrri hugmyndir um íraska alþýðu eins og daggardropar fyrir sólskini. Bömin, Nawar, Bashar og Yasmin, eru prúð og kurteis og gætu vissu- lega verið gott fordæmi fyrir íslensk böm. Hjónin, Wafa og Imad, eru líka sérlega hlýleg og þakklát fyrir þær móttökur sem þau hafa fengið hér á landi. Vill elda arabískan mat fyrir íslendinga „Þeir íslendingar sem við höfum kynnst, hafa reynst okkur afar vel og aðstoðað okkur mikið,“ segja þau. Hvorugt hefur gott vald á ís- lensku, en strákamir, Nawar og Bashar, tala íslensku og ensku nokkuð vel, auk arabísku. Þeir voru í Melaskóla sl. vetur og gekk vel. Yasmin, 2 ára, talar íslenskt og arabískt bamamál. Imad er bifvélavirki og vinnur hjá Jötni. Wafa er heimavinnandi og hún hefur áhuga á að nýta þekk- ingu"sína á arabískri matargerð og kynna hana íslendingum. Wafa reyndi fyrir sér kvöld nokk- urt fyrir skömmu er Listasafn ís- lands skipulagði arabíska kvöld- stund í tengslum við sýninguna á jórdönskum og palestínskum bún- ingum, skarti og mósaík. Boðið var uppá arabískan mat sem Wafa eld- aði og ekki var annað að sjá en gestir kynnu vel að meta kræsing- arnar. Nú býðst hún til að útbúa arabískar veislur fyrir fólk í heima- húsum. „Þá elda ég matinn heima hjá mér og fer síðan með hann heim til þeirra sem ætla að borða hann.“ Hún útilokar ekki að halda í framtíðinni námskeið í arabískri matargerð. „Núna get ég eldað arabískan mat fyrir þá sem hafa áhuga,“ segir hún af einstakri hóg- værð. Morgunblaðið/Bje Wafa Mahdi, íraska konan sem tekur að sér að elda arabískan mat fyrir íslendinga. Bryani (hrísgrjónaréttur með lambakjöti) 1 kg hrísgrjón 1 kg lambakjöt m. beinum (t.d. lærisneiðar) 4 laukar 4 tómatar 2 grænar paprikur 4 kartöflur 3-4 msk. tómatpuré (1 lítil dós) 250 g frystar grænar baunir 250 g gulrætur 2 tsk. kardimommur (kvarnaðar í duft) 1 msk. salt 1 tsk. safran 2 tsk. kanill 1 tsk. chili-pipar 5 negulnaglar olífuolía til steikingar Kjötið skorið í bita og soðið ásamt beinum í vatni með örlitlu salti, 1 tsk. kanil, 1 tsk. kardimommum, 3 negulnöglum og 1 lauk. Látið krauma í u.þ.b. 40 mín. eða þar til kjötið er soðið. Fitu fleytt ofan af og soðið geymt. Kjötið tekið af bein- um og kjötbitarnir geymdir. Paprika, kartöflur og gulrætur skorið smátt og steikt í stutta stund við fremur lágan hita. Þá er laukur- inn saxaður og steiktur þar til hann er glær. Tómatar skornir í bita og látnir saman við laukinn. Baunum bætt útí. Þá er grænmetinu, sem áður var steikt, blandað saman við. Tómatpuré, 1 tsk. kardimommu- dufti, chili-pipar, 1 tsk. kanil og 2 negulnöglum bætt saman við. Látið Birkikvistur, aspir laukar og mjöllýs á stofublómum KRISTINN Helgi Þorsteinsson garðyrlq'ufræðingur svarar fyrir- spumum lesenda hér í Daglegu lífi í dag. Þeir sem vilja koma fyrir- spurnum áleiðis í næsta þátt sem birtist að viku liðinni geta hringt í dag frá klukkan 11-12 í síma 691100. Öspin hefur að auki þann ókost að rætur hennar eiga það tíl að troða sér inn í frórennslis- lagnir í leit að roka og gera þannig skaða. VINNINGUR í SUMARLEIK FJALLAHjÓLABÚÐAjílNNAR KOM A MIÐA NUMER Á hverjum Fimmtudegi á milli klukkan 16:30 og 17:00 er dregib nýtt númer í sumarleik okkar Nútíðinnl FaxafenTYIV^Tmi: 68 55 80 Sighvatur í Reykjavík spyr: Hvað á ég að gera til að losna við hvítar flugur af stofublómi? Svar: Hvítar flugur eða mjöllýs eru litlar jurtasugur, snjóhvítar og um 2 millimetrar að lengd. Þær fljúga fjörlega um þegar hreyft er við blöðum plantnanna. Hérlendis er ein tegund þekkt, svokölluð gróð- urhúsamjöllús, sem getur lifað í allt að mánuð og orpið yfir 100 eggjum, örsmáum grængulum að lit sem sitja á neðra borði blaða. Lirfumar eru gulleitar. Ég ráðlegg þér að kaupa skordýra- eitur seih fæst víða í blómabúðum. Úðaðu yfir plöntuna og mjöllúsina svo hún falli. Eftir em þá egg á blöð- unum sem næstu daga á eftir ættu að klekjast út. Ég mæli með að þú úðir einu sinni í viku í mánaðartíma en að því loknu skaltu fylgjast vel með því hvort líf kvikni á ný og vera þá tilbúinn að grípa inn í. Gísli í Reykjavík spyr: Ég er með aspir í garðinum, allt að þrjátíu ára gamlar. Þær eru mjög ljótar í sumar. Hver getur ástæðan verið? - Onnur kona hafði reyndar líka samband útaf þessu sama en hún var með ungar aspir. Hún vildi einnig fá að vita hversvegna. henni hafi verið ráðlagt að planta ekki ösp- um upp við hús? Svar: Víða má sjá skemmdir á trjáplöntum, bæði til sjávar og sveita. Mikill fjöldi aspa hefur orðið fyrir verulegum skemmdum jafnt ungar sem gamlar. Stór munur er þó milli einstaklinga. Á sumum tijám eru engar merkjanlegar skemmdir en á öðrum er greina- dauði mikill eða jafnvel verulegur. Eftir hlýtt og vindalítið sumar síðastliðið ár hefði mátt gera ráð fyrir að plönturnar væru þróttmikl- ar. Veturinn varð hlýr og aðeihs tvö kuldaköst sem komu. Ég er þeirrar skoðunar að sumar tijáplöntur hafi ekki fengið þá vetr- arhvíld sem þær þurftu. Of mikil hlýindi urðu þess valdandi að þær náðu ekki að varðveita þann þroska sem sumarið á undan veitti. Þá gerðist það einnig í byijun maí að hitinn fór niður fyrir frostmark. Það er ekki óvanalegt að kuldakast komi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.